Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 >------------------------ MINIMINGAR GUÐMUNDUR KRISTÓFER GEORGSSON GUÐMUNDA LA UFEY HARALDSDÓTTIR + Guðmundur Kristófer Ge- orgsson fæddist í Ólafsvík 7. desember 1921. Hann lést á heimili sínu á Álftanesi 8. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bessastaðakirkju 15. apríl. Eftir langvarandi veikindi kom kallið. Okkar ástkæri afi er farinn m frá okkur. Einhvern veginn er það nú samt svo að niaður er ekki tilbú- inn að takast á við þá miklu sorg sem því fylgir. Okkar fyrstu minn- ingar um afa á Nesinu eru frá því er við systurnar fórum þangað með mömmu og pabba. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa á Nesinu, því mikla hlýju fundum við þar. Alltaf var afi tilbúinn að eiga stund með okkur systrunum og voru þær margar góðar. T.d. í bíl- skúrnum þegar hann var þar að vinna. Það var einnig gaman að fara til afa þegar hann var að vinna hjá Esso. Fengum við þá gjarnan sælgæti eða litla bíla. Oft vorum við frændsystkinin öil saman komin hjá ömmu og afa á Nesinu og þá var fjör og lætin oft mikil en aldrei reiddist afi, sama hvað gekk á. Eftir miklar draugasögur hjá okkur krökkunum var oft rifist um hver ætti að skríða upp í rúm á milli ömmu og afa, því alltaf var gott að koma þangað. Og voru stundirn- ar margar góðar sem lengi má telja upp. Afi var mjög hjarthlýr og góður maður, bæði við menn og dýr. Betri mann er ekki hægt að finna. Þín mun verða sárt saknað. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem geymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Elsku amma mín og Sævar minn, guð veiti ykkur styrk í sorginni, því missir ykkar er mikill. Elsku afi, okkar minning um þig mun lifa í hjarta okkar um ókomna framtíð. Hulda Hlíf og Lára Georgsdætur. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Guðmunda Laufey Haralds- dóttir fæddist á Hellissandi 7. júlí 1923. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 18. apríl síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 25. apríl. Elsku mamma mín, þá kom að því að þú hvarfst úr mínu lífi og það hvarf var sárt og söknuðurinn er mikill, svo mikill að hann mun lengi lifa. Ég man eftir því þegar ég var lítill strákur og líf okkar byijaði saman. Við gengum í gegn- um ýmislegt bæði súrt og sætt. Alla tíð hefur þú verið mér einlæg, góð, kærleiksrík og viljað allt fyrir mig gera. Um leið og þú vissir að ég fyndi til eða mig vantaði eitt- hvað þá varst þú þar og tróðst þér alltaf í þau mál og svo öfugt og ég mun aldrei gleyma þeirri ævi sem við áttum saman og ég mun aldrei gleyma því hjarta sem þú áttir né þeirri sál sem þú býrð yfir. Með einlægri ást og miklum söknuði elsku mamma mín. Hjarta mitt og hjarta þitt og hjarta systkina minna munu styrkja eiginmann þinn til æviloka, hann elskulega föður okkar, Jóhann L. Ingibergsson. Þinn yngsti sonur, Jóhann litli. Nú ertu farin úr mínu lífi, elsku Munda mín, og sár er söknuðurinn. Mér finnst ég vera svo tóm, það vantar svo mikið í lífið eftir að þú fórst. Það er skrítið að geta ekki farið upp á Kirkjuveg og talað við þig. Húsið er svo tómlegt án þín. En ég ætla að geyma minningarnar í hjartanu mínu. Þú varst ávallt góð við mig og mér þótti mjög vænt um þig, það var svo gaman að gleðja þig og gera eitthvað skemmtilegt fyrir þig og gaf manni mikið. Mér fannst líka yndislegt hvað þú varst góð við börnin, söngst og ýmislegt annað. Við áttum ýmislegt sameig- inlegt sem við tvær vitum og geym- um. Ég kveð þig nú með djúpum söknuði og einhvern tímann hitt- umst við aftur. Ég bið algóðan guð að blessa Jóa og ijölskylduna. Þín tengdadóttir og vinkona, Guðný. Elsku amma, með tárum ég kveð þig, Guð geymi þig og gefi afa all- an þann styrk sem hann þarf, því það er svo tómlegt hjá honum án þín. Ég geymi allar góðu minning- arnar um þig í hjarta mínu, allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Þessar línur eru til þín. Nú ertu farin frá mér elsku amma mín, mér finnst það svo sárt, þú gafst mér svo margt og varst mér svo góð, ég græt því ég sakna þín. Mér þykir svo vænt um þig, elsku amma. Þín ömmustelpa, Ingibjört. Nú er elsku amma okkar komin til guðs og búin að fá hvítu engla- vængina sína og líður vel. Við sökn- um þín ofsalega mikið og finnst skrítið að nú er ekki amma á Kirkju- vegi lengur til staðar. Við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta þín og vera með þér, þú varst okkur alltaf góð og söngst með okkur barnavísur og lékst við okkur, og oft laumaðir þú til okkar smá gott- eríi þegar ekki var nammidagur. Við elskum þig og söknum þín, elsku besta amma okkar. Elsku afi, guð gefi þér styrk í þessari miklu sorg og til að halda áfram að lifa. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs- ins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibj. Sig.) Þín litlu ömmubörn Arnar, Katrín og Jóhanna. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. + Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, DAVID B. TATE verkfræðingur, Gloucester, Virginíu, Bandaríkjunum, lést á heimili sínu föstudaginn 16. maí. Sigríður Finnsdóttir Tate, börn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR, Tunguvegi 1, Reykjavík. Sigurður A. Álfsson, Jón Friðrik Sigurðsson, Álfrún Sigurðardóttir, Ásrún Matthíasdóttir, Jón Kristinn Cortez, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÉTURS BJÖRNSSONAR, Álftamýri 58. Dagmar Ingólfsdóttir, Anna S. Guðmundsdóttir, Anna Bára Pétursdóttir, Davíð B. Guðbjartsson, Ingólfur G. Pétursson, Dagmar L. Jónasdóttir, Svanhildur F. Jónasdóttir, Ásmundur Vilhjálmsson, Pétur Már, Maríanna Björk. + Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar frænku okkar, ELÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, kaupkonu frá Stóra Hofi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir 1. maí sl. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Hauksdóttir, Þuríður Hauksdóttir. Lokað Lokað verður þriðjudaginn 20. maí vegna jarðarfarar HAUKSJACOBSEN. Verslunin Egill Jacobsen, Austurstræti 9. FASTEIGNASALAN f r Ó n FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI S: 533 1313 Gamli Vesturbær 99 fm björt og virkilega falleg hæð ásamt 20 fm bílskúr. Marmari og parket á gólfum. Þessi getur losnað strax og hún selst strax. 0439 UTHLIÐ 140 fm mjög rúmgóð og björt efri hæð í 4ra íbúða húsi, nýleg eldhúsinn- rétting og nýtt allt á baði, parket á stofum. öll herb. eru rúmgóð og húsið er í góðu standi. Þessi stoppar stutt við! 0433 Sólvallargata Vel skipulögð 3ja herb íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Nýtt parket og 20 fm sólverönd á svölum sem snýr í suð- ur og vestur. Sér bílastæði. Áhv. 3,7 millj. Verð 6,5 millj. Gullsmári í Kóp so - 90 fm skemmtilegar íbúðir í litlu fjölbýli, seljast fullbúnar með vönduðum innréttingum án gólfefna. Byggingaraðili er nú þegar búin að byggja og selja 2 hús og aðeins eru eft- ir nokkrar íbúðir í 3 húsi. Teikningar og upplýsingar gefnar á skrifstofu frónar. HÚSAFELL Perla milli hrauns og jökla! Höfum fengið í sölu nokkrar leigulóð- ir í Húsafellsskógi, þessari paradís sumarhúsaeigandans. Frábært um- hverfi og þjónusta, gönguleiðir.golf- völlur, sundlaug og fl. Aðeins eru fá- ar lóðir til ráðstöfunar núna. Nokkur hús einnig til sölu, eða byggjum eftir þínu höfði. + Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÁRNI ÞORVALDSSON, Sólvangsvegi 1-3, Hafnarfirði, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 16. maí sl. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.