Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 37

Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 18. MAÍ1997 37 INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR + Ingibjörg Stefánsdóttir fæddist í Mjóadal í Laxár- dal, Austur-Húnavatnssýslu, 8. maí 1907. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 11. apríl síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Blönduóskirkju 26. apríl. Húnvetnsk frænka er gengin á vit feðranna. Hún lézt aidurhnigin langt frá uppruna sínum - langt frá heimaslóðum, þar sem hún hafði drýgt dáðir með lífshlutverki sínu - ljósmóðurstörfum. Ingibjörg Stefánsdóttir, kennd við Gil í Svartárdal, var ósérhlífin í þessu lífsstarfi sínu - og það var altalað fyrir norðan, að henni hefði alla tíð farnazt vel í því. Talað er um heppna lækna. Á sama hátt er ekkert óeðlilegt að segja að Imma hafi verið heppin Ijósmóðir - missti aldrei nýfætt bam. Öll börn, sem hún tók á móti, lifðu. Hún tók á móti nýju lífi við hinar og þessar aðstæður, stundum afar erfiðar eftir löng og þreytandi ferðalög. Imma frænka var ákveðinn per- sónuleiki - hafði átt mann, sem hún unni og virti. Þau hjón vom skyld - bæði af Skeggstaðaætt. Maður hennar, Þorsteinn Jónsson, gerðist sýsluskrifari eftir að þau hjón fluttust til Blönduóss. Hann var tónlistarmaður af guðs náð - tónskáld og kórstjóri. Þorsteinn var systursonur Kristjáns Gíslasonar kaupmanns á Sauðárkróki. Kristján var glæsimenni með músík í blóð- inu. Það var mikið um tónlist og aðra list í lífi Immu frænku. Til að mynda myndlist. Hún las alltaf úr- valsbækur og ræddi efni þeirra. SVERRIR SIGURÐS- SON + Sverrir Sigurðsson, vél- sljóri, fæddist á Gríms- staðaholti í Reykjavík 9. janúar 1933. Hann lést á Landspítalan- um aðfaranótt 5. maí síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 14. maí. Kær frændi minn, Sverrir Sig- urðsson, er látinn. Mig langar að senda honum mína hinstu kveðju með hinu fallega ljóði eftir Kristján Jónsson. Þú sæla heimsins svalalind, ó, silfurskæra tár, er allri svalar ýtakind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mér, þú ástarblíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt ljós í hjarta skín í hvert sinn, er ég græt, því drottinn tekur tárin mín - ég trúi’ og huggast læt. (Kr. Jónss.) Vertu sæll, frændi minn, Guð blessi þig og varðveiti að eilífu. Þín bróðurdóttir, Anna Björg Guðjónsdóttir. Handrit afmælis- o g minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Hún missti mann sinn allt of snemma og var ekkja áratugum saman, en af eljusemi kom hún börnum sínum tveim til þroska og æðri menntunar. Ingibjörg var stillt kona, en hreint ekki skaplaus. Eitt sinn leyfði ég mér að segja við hana frænku mína (við erum systk- inabörn) að hún væri kyrrlátur ofsi. Hún tók því vel. Áður fyrri í trölla- og æsiferðum milli norðurs og suð- urs og suðurs og norðurs, bílak- andi, oftast of hratt, var alltaf áð hjá frænku og iðulega gist. Það var svo langt frá hversdagsleikanum að koma inn í þetta litla „Hans og Grétu“-hús hennar - heitir Forna- staðir og stendur fremst í brekk- unni fyrir innan Blöndu og utan. Iðulega slegin upp veizla, reitt fram kálfakjöt, sem er húnvetnsk hefð að sjóða niður í loftþéttar krukkur og taka fram við sérstök tækifæri. Föðursystir mín, Elísabet frá Gili, sagði að hún hefði lært kúnstina við kálfakjötið af Elínu Briem sem stýrði kvennaskólanum á Ytri-Ey. Svo mikið er víst að þetta kjöt gef- ur sérstakan kraft, ekki síður en Texas-nautasteik. Á ferð um páskana á slóðum feðranna í heimsókn hjá fólki á Blönduósi var litið í áttina að hús- inu hennar Immu, þar sem það kúrði í mjallahvítum snjónum með fjöllin í Langadal í baksýn, þau voru alsett sólstöfum. Þá rifjaðist margt upp: Að hitta hana í hennar ranni og var andleg reynsla, hún var svo fróð og hún var svo mennsk og mannleg í öllu. Eitt atvik er minnisstæðast. Maki_ undirritaðs númer tvö vænti sín. Á ferðinni var frumburðurinn. Það var júlí ’62 - sól inni og sól úti - nýtt líf að ryðja sér leið inn í þennan heim. Má segja, að teflt hafi verið á tæpt vað að vera á ferðalagi þegar svona stóð á. Komið við hjá Immu, sem tók af skarið og setti frænda sinn í snarheitum inn í vissan sannleik, ef fæðing bæri brátt að. Þetta gaf traust. Ekkert er betra í þessu lífi en að vera treyst fyrir einhveiju vandasömu eins og í þessu tilviki. Hafði áhrif á sjálfsmat og jók styrk í lífsins ólgu sjó. Hins vegar var engin fæðing fyrr en komið var til Reykjavíkur. Svona var hún Imma boðin og búin að gefa öðrum styrk. Hún tók starf sitt eins og listræna sköpun. Hún afhenti nýtt líf inn í heiminn æ ofan í æ. Hveiju nýju lífi fylgir nýr heimur inni í þessum heimi. Imma óx af starfinu. Börn hennar tvö, Elísabet, gift í Þýska- landi og Hængur, tannlæknir, voru Immu hamingja og gleði. Steingrímur St.Th. Sigurðsson. Barrholt 10 — opið hús um hvítasunnuhelgina, sunnudag og mánudag frá kl. 13.00-16.00. Gott einbýlishús, 140 fm + bílskúr. 5 svefnherbergi. Fallega ræktaður garður. Stutt í alla þjónustu. Bústaður fasteignasala, Haukur Friðriksson, löggiltur fast eignasali, sími 451 2600, fax 451 2747 „Klassa” 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábæru verði í Breiðuvík 1, 3 og 5 eru til sölu 3ja herb. 90 fm íbúðir og 4ra herb. 115 fin íbúðir allar með sérinngangi og öllu sér. Ibúðirnar seljast fulllninar ineð full flísalögðum böðum, öllum innréttingum og gólfefnum. Sameign úti sem inni verður öll frágengin þar með talin lóð. Að utan verða búsin kvörsuð. Allur frágangur verður fyrsta flokks. Bílskúrsréttur getur fylgt. Ibúðirnar eru til afliemlingar fljótlega. Verð á 3ja herb. íbúð fullbúinn er frá kr. 7,5 millj. og 4ra herb. íbúð frá kr. 8,9 millj. Eitt besta verðið á markaðnuin, gerðu verðsamanburð. Hér er ekki um að ræða neinar nauðþurftaíbúðir. Asbyrgi \ SP-FJÁRMÖGNUN HF Vegmúla 3 • 108 Reykjavlk • Sími 588 7200 • Fax 588 7201 Premium pca ©©turrrru b©trrri k©up? Turnkassi Soundblaster P200+ örgjörvi 1 6VE (IBM) 25W hátalarar 256KB 33600bps flýtiminni mótald 16MB EDO 1 5" hágæða minni litaskjár DIGITAL Á fSLANDI Vatnagarðar 14 104 Reykjavík Sími 533-5050 Fax 533-5060 s Abyrg þjónusta í áratugi Sími 588 9090 - Síðumúli 21 Sverrir Kristinsson, lögg. fast.e.s. Einbýlishús í Skerjafirði óskast - staðgreiðsla í boði. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250-300 fm einbýlishús. Staðgreiðsla ( boði fyrir rétta eign. íbúð við Miðleiti (Gimli) óskast - staðgreiðsla. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 110-120 fm íbúð í þessari blokk. Staðgreiðsla í boði. Einbýlishús í Fossvogi óskast - staðgreiðsla í boði. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250-300 fm einbýlishús í Fossvogi. Bein kaup, allt greitt strax í peningum og húsbréfum. Ekki er nauðsynlegt að húsið verði laust fyrr en eftir eitt ár. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Hæð eða parhús. Höfum kaupanda að góðri 150-200 fm sérhæð, hæð og ris, hæð og kjallara eða parhúsi á svæðinu vestan Háaleitisbrautar. Vesturbær - Þingholt. Viðskiptavinur okkar leitar að um 110 fm 4ra-5 herb. hæð í vesturbæ eða Þingholtum á verðbilinu 9,5-11,0 millj. Atvinnuhúsnæði óskast. Bráðvantar á skrá: 100-300 fm iðnaðarhúsnæði á götuhæð og með góðri lofthæð. 50-200 fm verslunarhúsnæði á góðum stað í Rvík. 100-400 fm skrifstofuhæð í Rvik. 200-500 fm óinnréttaðar hæðir í borginni. Mikil eftirspurn eftir öllum tegundum atvinnuhúsnæðis. Nánari uppl. veitir Stefán Hrafn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.