Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
V/£> SA'UMþéNHWKJSA SJÖS4
I/ATHflBUPFALA SEMWLLBeBMSr
l//E> þ/G UM YF/0eh£>JNÍ/tJÖ&>///Nf
. t>£6HA/JN AÐ/BF/1 S/$
>£) STAN6A i MOOSUN Or/
'A EKlG/NtJ./
fV/D&JMNAN-
'M6UFNAUN61
l/JF Hl/F&TÚ
\SF6/R£>UþAP*\
7Í/U//J SA6£>/ /t&HANH
SkYLP! Bc& S/7INGA
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Akureyrarbær
og dagvistarmál
Frá Ernu Rós Ingvadóttur,
Hugrúnu Hjörleifsdóttur,
Hugrúnu Stefánsdóttur og
Gunnhildi Halldórsdóttur:
ÞAÐ SEM hér er sett á blað er til-
komið vegna óánægju með leik-
skólagjöld hjá Akureyrarbæ. Við
sem þetta skrifum erum foreldrar
tvíbura, en þetta mál varðar samt
alla foreldra sem eru með fleira en
eitt barn á Ieikskóla hjá bæjarfélag-
inu.
Þannig er mál með vexti að þeg-
ar barnið þitt kemst á leikskólaald-
ur og þú ferð að kynna þér þau
mál, þá kemur í ljós að við sem
búum hér á Akureyri sitjum ekki
við sama borð og flest allir aðrir
landsmenn hvað leikskólagjöld
varðar. Við kynntum okkur leik-
skólagjöld hjá 13 bæjarfélögum
víðsvegar um landið og í ljós kom
að leikskólagjöld hér á Akureyri eru
með því hæsta sem gerist og aðeins
á einum stað af þessum 13 voru
þau 100 krónum hærri en hér. Fyr-
ir utan háa gjaldskrá er enginn
systkinaafsláttur veittur hér, en það
er ef foreldrar eru með fleiri en
eitt barn á leikskóla, en í 11 af
þessum 13 bæjarfélögum var veitt-
ur 25% afsláttur fyrir annað barn.
Svo dæmi séu tekin þá kostar að
hafa barn í 4 ‘A klst. í leikskóla á
Akureyri 9.100 kr. eða 18.200 kr.
fyrir tvö börn og á ári gera þetta
218.400 fyrir tvö börn. Með 25%
afslætti fyrir annað barn eru leik-
skólagjöldin 15.925 kr. á mánuði
og 191.100 kr. á ári og er mismun-
urinn 27.300 kr. sem þessi afsláttur
fyrir annað barn færir foreldrunum.
Þessi dæmi sýna það að fyrir
hinn almenna borgara borgar það
sig ekki að hafa tvö börn á leik-
skóla í 4 'A klst. á dag og vinna úti
4 klst. á dag. Tökum sem dæmi
Ieikskólakennara sem vinnur sem
deildarstjóri á leikskóla. Fyrir 4
klst. vinnu hefur hann 47.700 kr.
í laun á mánuði og þegar búið er
að greiða af því félagsgjöld, barna-
pössun og skattkortið tekið af mak-
anum fær viðkomandi 8.300 kr. í
laun á mánuði.
Við teljum að börn eigi að eiga
kost á því að vera á leikskóla og
hafi gott af því hluta úr degi frá
vissum aldri og að það sé því slæmt
að foreldrar sjái sér það ekki fært
vegna mikils kostnaðar sem af því
hlýst. Við skorum því á bæjaryfir-
völd að þau sjái sóma sinn í því að
veita hér systkinaafslátt eins og
önnur bæjarfélög gera víðsvegar
um landið. Þetta ásamt fleiri gjöld-
um hér í bæ laðar ekki að sér fólk
til staðarins né heldur það að bæjar-
yfirvöld hyggjast loka gæsluvöllum
yfir veturinn. Við vonum því að
afstaða verði tekin til þessara mála
og 25% systkinaafsláttur veittur hjá
Akureyrarbæ og einnig að gæslu-
vellir verði áfram opnir allt árið.
ERNA RÓSINGVADÓTTIR,
Núpasíðu 8b., Ak.
HUGRÚN HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Vestursíðu 4c, Ak.
HUGRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
Borgarsíðu 1, Ak.
GUNNHILDUR HALLDÓRSDÓTT-
IR,
Skútagili 5, Ak.
Varst þú á
togara í stríðinu?
Hvert eru allir að
fara? Komið aftur!
Þið sjáið að ég er ekki á förum,
er ekki svo? Þið sjáið að varnarleik-
maðurinn okkar er ekki á förum,
er ekki svo?
Og missið af öllu ijörinu?!
Frá Einari Heimissyni:
UNDIRRITAÐUR undirbýr nú gerð
sjónvarpsmyndar um íslenska fiski-
menn í síðari heimsstyijöldinni. Alls
komu um 75 prósent af öllum fiski,
sem Bretar neyttu i stríðinu, héðan,
og segir það sitt um þýðingu tog-
arasiglinga íslendinga. Þær mann-
fórnir sem íslendingar færðu í hild-
arleiknum voru miklar, jafnvel meiri
en Bandaríkjamanna.
Vegna sjónvarpsmyndarinnar
óska ég eftir öllu tiltæki efni um
siglingar íslenskra fiskiskipa til
Bretlands, jafnt ljósmyndum og
kvikmyndum sem og frásögnum
þeirra manna, sem tóku þátt í sigl-
ingunum. Eru þeir íslendingar sem
sigldu á togara eða öðrum fiski-
skipum í stríðinu, og ekkjur fall-
inna sjómanna, beðin um að hafa
samand við mig í síma 561-1905.
EINAR HEIMISSON,
Skólabraut 14.
MOHGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, fþróttir 669 1 156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.