Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Rússum
lánað
ALÞJÓÐABANKINN sam-
þykkti á fimmtudag lánveit-
ingar til Rússlands samtals
sem svarar rúmum 5,7 millj-
örðum króna. Segja talsmenn
bankans markmiðið vera að
hjálpa Rússum að gera um-
bætur á efnahagskerfi lands-
ins og ýta undir hagvöxt.
Sjö farast á
Indlandi
SPRENGJA sem sprakk í
langferðabifreið á Norður-Ind-
landi í gær varð sjö manns að
bana og særði hátt á annan
tug. Grunur leikur á að að-
skilnaðarsinnar í héruðunum
Punjab og Kashmir hafí komið
sprengjunni fyrir en enginn
hefur lýst ábyrgð á tilræðinu
á hendur sér.
Hundur bítur
19 börn
FLÆKINGSHUNDUR beit 19
skólaböm, flest níu ára göm-
ul, í Japan í gær. Tildrög voru
þau að börnin umkringdu
hundinn klöppuðu honum á
leikvelli skóla í smábæ á Norð-
ur-Japönsku eynni Hokkaido,
og fældist hundurinn við það,
glefsaði til barnanna og elti
þau, er þau lögðu á flótta inn
í skólastofur. Hjúkrunarfólk
gekk úr skugga um að hundur-
inn væri ekki haldinn æði.
Ekkert barnanna hlaut alvar-
leg meiðsl.
Klanmaður
tekinn af lífi
FYRRUM meðlimur banda-
rísku leynisamtakanna Ku
Klux Klan, Henry Francis
Hays, var tekinn af lífi í gær.
Var það í fyrsta sinn frá því
1913 sem hvítur maður er líf-
látinn í Alabamaríki fýrir að
myrða blökkumann. Aftakan
fór fram klukkan tíu mínútur
yfir fimm í gærmorgun, að
islenskum tíma, og var Hays
úrskurðaður látinn átta mínút-
um síðar. Hann hlaut dauða-
dóm fyrir að myrða Michael
Donald 1981.
Morð til að
hefna fyrir
skólaskyldu
MAÐUR, sem segist hafa
myrt og hálshöggvið skóla-
dreng í borginni Kobe í Japan,
segir í bréfi til dagblaðs í borg-
inni að með morðinu hafi hann
verið að hefna sín á ströngu
menntakerfi. Lögregla í borg-
inni telur að bréfið sé ekki
gabb. Þar segir morðinginn
meðal annars að með morðinu
væri hann að hefna sín á hinu
stranga skólaskyldukerfi „sem
skapaði mig.“
Albright vill
frumkvæði
MADALEINE Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í ræðu, sem hún hélt í
tilefni af hálfrar aldar afmæli
Marshalláætlunarinnar að
Bandaríkjamenn yrðu að taka
frumkvæði í heiminum. Ekki
væri nóg að lýsa kommúnis-
mann dauðan, draga yrði lær-
dóm af fortíðinni og axla
ábyrgð leiðtogahlutverksins.
Deila Bandaríkjanna
og Indónesíu
Sljórn Ind-
ónesíu af-
lýsir vopna-
kaupum
Jakarta. Reuter.
INDÓNESÍA hefur svarað gagn-
rýni bandaríska þjóðþingsins með
því að aflýsa þátttöku í bandarísku
hernámskeiði og kaupum á níu
bandarískum F-6 herþotum.
Bandaríska þjóðþingið setti ný-
lega fram gagnrýni á það hvernig
staðið var að kosningum í Indónes-
íu 29 maí síðastliðinn. Einnig hefur
þingið gagnrýnt mannréttindabrot
á eyjunni Austur-Tímor sem var
hertekin og innlimuðu í Indónesíu
árið 1975.
Ali Alatas, utanríkisráðherra
Indónesíu, sagðist vona að aðgerð-
irnar muni draga úr spennu milli
þjóðanna tveggja og að í kjölfar
þeirra verði unnt að halda áfram
að byggja upp samvinnu í efna-
hags- og vamarmálum. Hann neitar
því að tengsl séu á milli gagnrýni
Bandaríkjaþings og aðgerða Indó-
nesíustjórnar.
í bréfi sem Suharto, forseti Indó-
nesíu, skrifaði Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta segir hins vegar að
ósanngjöm gagnrýni Bandaríkja-
manna eigi sinn þátt í ákvörðun
hans og að hann treysti því að sam-
band ríkjanna muni þróast í átt til
gagnkvæmrar virðingar þar sem
hvomgt landið skipti sér af innan-
ríkismálum hins.
Bandaríski sendiherrann í Ja-
karta sagði að stjómin harmaði
ákvörðun Indónesíumanna en að
þeim væri að sjálfsögðu í sjálfsvald
sett hvar þeir keyptu vopn. Banda-
ríkin hafa verið helsti vopnasali
Indónesíu fram til þessa en einnig
hafa Indónsíumenn keypt vopn frá
Bretum.
Reuter
ísraela leit-
að á Vestur-
bakkanum
Clinton stefnir að auknu umferðaröryggi
Barist fyrir auk-
inni bílbeltanotkun
ÍSRAELSKIR lögreglumenn
hófu í gær mikla leit á Vestur-
bakkanum að fimm ísraelum,
sem fóru frá Jerúsalem og
ætluðu á brúðkaup í bænum
Tiberias í norðurhluta lands-
ins. Brúðguminn var á meðal
mannanna og þeir ákváðu að
fara um Vesturbakkann til að
stytta sér leið. Þegar ekkert
spurðist til þeirra hóf herinn
viðamikla leit í þorpum Palest-
ínumanna og óttast var að
skæruliðar hefðu myrt menn-
ina. Lík þeirra fundust nokkru
síðar og talið var að þeir hefðu
lent í bílslysi.
Washington. New York Times.
í BANDARÍKJUNUM nota ein-
ungis 68% farþega og ökumanna
bílbelti. Ef hægt væri að hækka
það hlutfall upp í 85%, sem er það
takmark sem Bill Clinton, Banda-
ríkjaforseti, hefur nýlega sett
fram, gæti dauðaslysum í umferð-
inni fækkað um allt að 4200 á ári.
Bílbeltanotkun í Bandaríkjunum
er mjög misjöfn eftir fylkjum.
Þannig er hún 94% á Guam-eyju
í Suður- Kyrrahafi en um eða und-
ir 50% í Maine, Oklahoma og Da-
kota-fylkjunum tveimur.
Ef borin eru saman ýmis fylki
má sjá augljósa fylgni á milli
strangra refsinga og bílbeltanotk-
unar. í Louisiana-fylki jókst t.d.
bílbeltanotkun úr 50% árið 1994
upp í 63% árið 1996 við það eitt
að lögreglumönnum, sem áður
gátu einungis kannað bílbeltanotk-
un í tengslum við önnur lögbrot,
var heimilað að stöðva bifreiðar til
að athuga hvort beltin væru
spennt.
Bílslys eru nú langalgengust
þeirra dauðaslysa sem verða við
fólksflutninga. Flest ár látast 10
sinnum færri af völdum flugslysa
og enn færri í lestar- og sjóslysum.
Sigurvíma á evrópska
jafnaðarmannaþinginu
Málmey. Morgunblaðið.
De Europeiska
Socia
Parla
okraterna
Reuter
NÝIR forsætisráðherrar. Lionel Jospin og Tony Blair, heilsast
á fundi evrópskra jafnaðarmanna í Málmey.
SIGURVIMANN liggur í loftinu á
þingi evrópskra jafnaðarmanna-
flokka á Málmey og hvert tækifæri
nýtt til að minna á að þrettán af
fimmtán ríkisstjórnum Evrópusam-
bandsins er nú stjómað eða með-
stjórnað af jafnaðarmannaflokkum.
En það minntu líka ýmsir á að verk-
efnið nú væri að efna loforðin. Tony
Blair, formaður nýja Verkamanna-
flokksins í Bretlandi, bar með sér
nýjabrumið, en hið gamla lifir einn-
ig góðu lífi, eins og ræða Lionels
Jospins, hins nýkjörna franska for-
sætisráðherra, var gott dæmi um.
Þriðja leiðin
Tony Blair stökk léttum skrefum
upp á sviðið til að_ fræða þinggesti
um stefnumál sín. I kosningabarátt-
unni hélt hann sig mest við það sem
flokkur hans ætlaði ekki að gera,
en nú er hann kominn yfir í það,
sem hann vildi gera. Efnahagsmálin
eru undirstaðan, en takmarkið er
réttlátt þjóðfélag var innihaldið í
orðum hans. Það er til önnur leið
en hægri og vinstri, nefnilega miðj-
an og vinstri, eða þriðja leiðin, eins
og Blair kallar hana. „Hægri væng-
urinn hefur stundum verið gagn-
rýndur fyrir að vera of óvæginn í
aðgerðum sínum. Ég kýs heldur að
líta á hann sem svo gamaldags að
hann skilji ekki breytingarnar,"
sagði Blair og ræða hans fjallaði
einmitt um að taka möguleikum
nútímans með opnum hug.
Á fremsta bekk sat Robin Cook,
utanríkisráðherra Breta, og brosti
sínu breiðasta meðan Blair talaði,
um leið og hann lét augun renna
yfir fremsta bekkinn til að sjá við-
brögðin þar. Og ekki minnkaði bros-
ið þegar hann sá að Jacques Delors,
fyrrum forseti framkvæmdastjómar
ESB, kinkaði kolli í sífellu, um leið
og hann skrifaði hjá sér gullkom
Blairs. Og ekki kinkaði Torbjöm Jag-
land, forsætisráðherra Noregs, síður
kolli. Blair þurfti hvað eftir annað
gera hlé á orðum sínum meðan þing-
heimur klappaði og í lokin risu menn
á fætur til að fagna orðum hans.
Gamlar tuggur vinstrimanna
á frönsku
Lionel Jospin var ekki alveg jafn
léttur á fæti, þegar hann kom upp
á sviðið, enda meira en áratugur á
milli þeirra og hann bar þess merki
að hafa ekki sofið mikið undanfar-
ið. En fljótlega heyrðist að ekki
hafa verið höfð sömu endaskipti á
hlutunum í franska sósíalista-
flokknum, því honum varð tíðrætt
um þörfina á vernd og stærri opin-
berum geira. Orð Jospins fengu
heldur ekki sömu viðtökur og Bla-
irs, engin upphafin andlit horfðu á
Jospin og aðeins tvisvar kölluðu orð
hans á hikandi klapp í salnum. I
lokin fékk hann hlýlegt klapp, en
aðeins aftari hluti salarins fagnaði
honum standandi.
Verður sigurvímunni
veitt til íslands?
yVið ætlum að fá þessa bylgju
til Islands eftir tvö ár,“ sagði Rann-
veig Guðmundsdóttir, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins. Hún
sagðist vongóð um að þá yrði
vinstrivængurinn sameinaður í
sterkann flokk. Það hefði oft sýnt
sig að það tæki nýjar hugmyndir
tvö ár að ná íslandi. Hún sagði sig-
urvímuna ekki leyna sér á þinginu
og henni fylgdi mikil bjartsýni.
Valgerður Gunnarsdóttir, fyrrum
varaþingmaður, tók einkum eftir
orðum Blairs um að ekki þýddi að
einblína á hægri og vinstri á gamla
mátann, því þjóðfélagið hefði breyst
og það kallaði á nýja skipan og
nýja hugsun. Og Katrín Theódórs-
dóttir, starfsmaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, hjó eftir þeirri
áherslu sem Blair leggur á efna-
hagsframfarir sem nauðsynlega
undirstöðu samfélagshjálpar, en
ekki sem markmiðs í sjálfu sér.
I
I
»
I
>
>
í
>
l
I
I
I
I
I
i
l
l
t
L