Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hekla hf. skilaði 63,5 milljóna hagnaði fyrstu fjóra mámiðina
Tvöfaldaði hagn-
aðinn á milli ára
HAGNAÐUR Heklu hf. nam alls
um 63,5 milljónum króna fyrstu
fjóra mánuði ársins og er það rösk-
lega tvöfalt meiri hagnaður en á
sama tímabili á síðasta ári. Sala
fyrirtækisins hefur aukist verulega
milli ára á öllum sviðum, bæði á
notuðum og nýjum fólksbílum,
þungavinnuvélum, vörubílum,
heimilistækjum o.fl. Námu rekstr-
artekjur um 2.076 milljónum fyrstu
fjóra mánuðina og jukust um 31%.
„Við höfum verið að upplifa mjög
góða tíma hér hjá Heklu,“ sagði
Sigfús Sigfússon, forstjóri, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Þennan
meðbyr höfum við nýtt til að byggja
fyrirtækið upp þannig að það verði
betur í stakk búið til að mæta því
þegar hægja fer á efnahagsupp-
sveiflunni. Langtímalán Heklu hafa
t.d. stöðugt farið lækkandi. Ég
þakka góðu starfsfólki fyrst og
fremst þann árangur sem náðst
hefur í fyrirtækinu, en við erum
einnig með góða vöru á mjög sam-
keppnishæfu verði.“
Fjórir stórsamningar
Hekla hefur að undanförnu gert
nokkra stóra samninga um sölu
búnaðar vegna uppbyggingar í raf-
orkukerfí landsmanna.. „Við náðum
samningi við Reykjavíkurborg um
Gengið frá kaup-
um á Bílasölunni
Braut
sölu búnaðar fyrir Nesjavallavirkj-
un í mjög harðri samkeppni við
annað fyrirtæki. Mitsubishi hefur
þegar hafið framleiðslu á tveimur
30 megavatta hverflum fyrir virkj-
unina. Einnig seldum við þéttivirki
frá General Electric til Landsvirkj-
unar fyrir spennuvirkin á Geithálsi,
Sandskeiði og Hafranesi. Þetta var
sömuleiðis í mjög harðn samkeppni
við önnur fyrirtæki. í þriðja lagi
fengum við samning vegna endur-
byggingar Kröfluvirkjunar. Fjórði
stóri samningur okkar var við
Strætisvagna Reykjavíkur um sölu
á 14 strætisvögnum fram til næstu
aldamóta."
Sala þungavinnuvéla hefur
sömuleiðis verið mjög lífleg. Nýlega
afhenti Hekla stærstu jarðýtu
landsins til Suðurverks hf. og um
svipað leyti fékk ístak hf. stærstu
beltagröfu sem sést hefur hér á
landi.
Varðandi sölu fólksbíla það sem
af er árinu bendir Sigfús á að fyrir-
tækið hafi nú meiri hlutdeild á
markaðnum en önnur einstök bíla-
umboð. Það hafi þó ekki verið sér-
stakt markmið að vera í fyrsta
sæti og fyrirtækið t.d. ekki sóst
eftir sölu til bílaleigna með endur-
kaupasamningum. Hekla hafði
21,4% hlutdeild á fólksbílamarkaðn-
um fyrstu fimm mánuði ársins, Ing-
var Helgason 18,2%, Toyota-
umboðið 16,3% og Bifreiðar og
landbúnaðarvélar 14,5%.
Bókfært eigið fé Heklu var í lok
apríl 537 milljónir króna, en það
varð lægst um 288 milljónir í árslok
1994 eftir nokkur erfið ár í rekstrin-
um. Hefur staðan því styrkst um
249 milljónir króna á tímabilinu.
Kaupa Bílasöluna
Braut
Nýlega var gengið frá samning-
um um kaup Heklu á Bílasölunni
Braut. Verður bílasalan rekin sem
sjálfstæð eining samhliða Bílaþingi
Heklu. „Umfangið vegna notaðra
bíla er stöðugt að aukast hjá fyrir-
tækinu. Til að við getum þjónað
okkar viðskiptavinum betur þá
ákváðum við að kaupa bílasölu sem
við höfum átt mjög gott samstarf
við í gegnum árin. Nú getum við
einnig sinnt viðskiptavinum okkar
sem hafa viljað selja sína bíla hjá
okkur í umboðssölu,“ sagði Sigfús
Sigfússon.
(Þessi auglýsing er til fróðleiks eingöngu. Öll hlutabréf í útboðinu eru seld.)
Fjármögnun kaupa á Carnitech A/S
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
ISK 550.000.000
Umsjónaraðili: Búnaðarbankinn - Verðbréf
BRÚARLÁN
Lánveitandi: Búnaðarbanki íslands
LANGTÍMALÁN
DKK 18.400.000
Lánveitandi: Norræni fjárfestingarbankinn
í samvinnu við Búnaðarbanka íslands
^JNBÚNAÐARBANKI BÚN'AÐARBANKINN ftJlD
VVÍSLANDS V VERÐBRÉF I^MD
HEKLA
Milliuppgjör janúar - apríl 1997
Rekstrarreikningur apríi 1997 1996 Breyt.
Rekstrartekjur 2.076,4 1.582,0 +31,3%
Rekstraraiöld Milljómr krona 1.944,7 1.510,0 +28,8%
Hagnaöur án fjármagnsliða 131,7 72,0 +82,9%
Fjármagnsgjöld (23,4) (26,9)
Óreglulegar tekjur og (gjöld) Rekstrarafkoma fvrir skatta (10,7) 97,6 (5,7) 39,5 +147,1%
Hagnaður tímabilsins 63,5 29,4 i-116,0%
Efnahagsreikningur 30.apr.'97 31.des.96 Breyt.
1 Eíonir: 1 Veltufjármunir Milljónir króna Fastafjármunir Eignir samtals 1.294,2 700,5 1.135,2 698,3 +14,0% +0,3%
1.994.7 1.833,5 +8,8%
! Skutdir on einiO fé: 1 Skammtímaskuldir 1.026,5 920,5 +11,5%
Langtímaskuidir 430,3 438,6 -1,9%
Skuldir samtals 1.456,8 1.359,1 +7,2%
Eigið fé 538.0 474,4 +13,4%
Skuldir og eigið fé samtals 1.994,7 1.833,5 +8,8%
Kennitölur
Eiginfjárhlutfall 27% 22%
Veltufé frá rekstri 73,5 38,9 +88,9%
Iðnlánasjóður tekur 50 milljóna dollara lán
Hagstæðasta
lán sjóðsins
frá upphafí
IÐNLÁNASJÓÐUR hefur tekið lán
að fjárhæð 50 milljónir dollara sem
jafngildir um 3.500 milljónum króna.
Er þetta hagstæðasta lán sem sjóður-
inn hefur tekið erlendis.
Umsjón með lántökunni hafði Fuji
bankinn í Lundúnum en níu aðrir
bankar standa að henni. Bragi Hann-
esson, forstjóri Iðnlánasjóðs, annað-
ist undirbúning og undirritaði láns-
samning. Hann segir að upphaflega
hafi verið leitað eftir 30 milljónum
dollara en þar sem mikill áhugi hafi
verið hjá erlendum bönkum að lána
sjóðnum, hafi niðurstaðan orðið sú
að taka 50 milljón dollara lán og
nota hluta þess til að greiða upp eldri
og óhagstæðari lán.
Lánið er til fimm ára með 10
punkta álagi á Libor-vexti. Unnt er
að taka það í fimm myntum og breyta
milli þeirra með skömmum fyrirvara.
Þegar tekið hefur verið tillit til lán-
tökukostnaðar nemur heildarlán-
tökukostnaður vegna lánsins 12,61
punktum á Libor-vexti allan lánstím-
ann.
Lánið er hið hagstæðasta sem
sjóðurinn hefur tekið erlendis að sögn
Braga. Jafnframt er það fyrsta lánið
sem tekið er eftir að fyrir liggur að
lánasjóðir atvinnulífsins renni saman
í upphafi næsta árs. „Þessi kjör eru
ánægjuleg vísbending um lánstraust
hins nýja fjárfestingarbanka því
hann verður greiðandi lánsins þegar
upp er staðið. Það er einnig ánægju-
legt að fínna hvað íslendingar njóta
mikils lánstrausts erlendis en það
byggist á farsælli stjórn efnahags-
mála landsins á síðustu árum,“ segir
Bragi.
Japanskir
bankamenn
handteknir
Tókýó. Reuter.
FYRSTU starfsmenn frægs jap-
ansks banka hafa verið handtekn-
ir í fjárkúgunarmáli, sem stærsta
verðbréfafyrirtæki Japana er
einnig viðriðið.
Fjórir starfsmenn Dai-Ichi
Kangyo Bank Ltd voru handtekn-
ir vegna rannsóknar, sem jap-
anskir fjölmiðlar telja að kunni
að svipta hulunni af tengslum
glæpamanna og fjármálastofnana
í Japan.
Samkvæmt tilkynningu frá
skrifstofu saksóknarans í Tókýó
eru bankamennirnir grunaðir um
að hafa veitt lán að upphæð 100
milljónir dollara fjárkúgara að
nafni Ryuichi Koike, höfuðpaurs
í mútumáli, sem helzta verðbréfa-
fyrirtæki landsins, Nomura Secu-
rities Co Ltd, er flækt í.
„Við biðjum viðskiptavini okkar
afsökunar,“ sagði Yoshiharu Mani
varabankastjóri. „Ég held að veg-
urinn til endurfæðingar sé erfið-
ur, en við munum gera okkar
bezta."
Hleypa upp fundum
Koike hefur verið ákærður iyr-
ir að þiggja 409.000 dollara í
mútur frá Nomura fyrir að hleypa
ekki upp hluthafafundum.
Koike var einn af foringjum
hóps fjárkúgara, sem kallast
„sokaiya" og kúga fé út úr fyrir-
tækjum með því að hóta að spytja
erfiðra og viðkvæmra spurninga
um starfsemi þeirra á hluthafa-
fundum.