Morgunblaðið - 17.07.1997, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
*
Odýr gisting á
Akureyri
Leigjum út 2-4 manna íbúðir
á besta stað í bænum.
_________FERÐALÖG_______
Topptjald í Lónkoti
Sími: 551 9800 og 551 3072
Ert þú á leið til
DANMERKUR
IHlfc
Getum útvegað bíla, sumarhús,
orlofsíbúðir og bændagistingu
í júlí, ágúst og september.
Leitið verðtilboða
Umboðsmaður
International Car Rental A/S á íslandi.
Fylkir Ágústsson. Sími 456-3745, fax 456-3795
STÓRT og litríkt topptjald grípur
auga ferðalangsins á leið um veginn
út með Skagafírði að austan. Þama
er rekin fjölbreytt ferðaþjónusta í
Lónkoti í Sléttuhlíð, þar sem m.a. er
minnst fjöllistamannsins Sölva Helga-
sonar. Blaðamaður á ferð forvitnaðist
um tjaldið litríka. Þama hafði áður
verið haganlegt hringtorg með hlöðn-
um veggjum, hugsað sem nokkurs
konar grískt Forum, þar sem menn
komu saman. En eins og eigandinn
Jón Snæbjömsson orðaði það, er þetta
á 66 gráðum norður. Og til að geta
tekið stóra hópa í skjól fyrir veðri og
vindum þegar svo slæst, var yfír torg-
ið hannað þetta tjald, sem er engin
smásmíði. Innanmálið er 700 fermetr-
ar og upp í hæsta punkt eru 11 metr-
ar. Sjálfur hannaði Jón grindina, en
Seglagerðin Ægir saumaði eða rétt-
ara sagt sauð saman tjalddúkinn.
Einar Þorsteinn arkitekt, sem er sér-
fræðingur í kúiuhúsum, veitti góð ráð.
Á þeim þremur vikum síðan tjaldið
var fullbúið hefur það komið í góðar
þarfir. í Lónkoti voru þijú ættarmót
í röð, þar sem fólkið gat allt, 100
manns í einu tilfellinu, látið sér iíða
vel innandyra saman. Jón sagði að
hljómburður væri góður í tjaldinu og
ýmir kórar væra búnir að skoða að-
stöðuna þar og spá í hana, og jafnvel
Sinfóníuhljómsveitin. Þetta væri
hugsað sem fjöllistahús, þar sem
mætti hafa ýmiss konar uppákomur,
„gjörninga".
'Ijaldhringurinn er raunar kallaður
Tjald galdramannsins og hefur hlotið
nafnið Hálfdánar-hringur, kenndur
við séra Háldán Narfason í Felli í
Sléttuhlíð, sem var einn frægasti
galdraklerkur norðanlands á 17. öld.
Era af honum margar sögur, engu
síður en Sæmundi í Odda 450 áram
fýrr, sem lifa enn og sagðar era í
bæklingi. Má nefna að eitt erindið í
Áföngum Jóns Helgasonar vísar í eina
þekktustu söguna af séra Hálfdáni,
það er sagan um húsfreyjuna í Mál-
mey eða konuna í Hvanndalabjörgum;
Ærið er bratt við Ólafsfjörð,
ógurleg klettahöllin;
teygist hinn myrki múli fram,
minnist við boðafóllin;
kennd er við Hálfdan hurðin rauð,
hér mundi gengt í ijöllin;
ein er þar kona krossi vígð
komin í bland við tröllin.
Morgunblaðið/EPá
TJALDAÐ er yfir hlaðið hringtorg úr fjörugrjóti með sérhönn-
uðu topptjaldi, þar sem 11 metrar eru upp í toppinn. Hringtorg-
ip er hugsað sem fjöllistatjald fyrir margskonar mannfagnað.
Ólafur Jónsson stendur hjá tjaidinu, en hann rekur ferðaþjón-
ustuna í Lónkoti ásamt föður sínum.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
Ferðin langa í Skagafjörð
Á ÞESSU sumri verður „langa ferð,“
hin fjögurra daga ferð um Skaga-
fjörð. Húnavatnssýslu og Kjalveg,
dagana 24. júlí til og með 27. júlí.
Svo sem venja er með þá ferð er stefnt
að því að gera hana sem fjölbreytt-
asta, þar sem áhersla verður lögð á
alhliða náttúraskoðun, auk þess sem
gefin verður kostur á Drangeyjarferð
ef veður leyfir. Gist verður í þijár
nætur í Varmahlíð.
Komið verður í náttstað um kvöld-
mat. í Varmahlíð er rekin mikil ferða-
mannaþjónusta og geta þáttakendur
valið um svefnpokapláss, tjaldstæði
eða hótelherbergi. Á staðnum er
sundlaug og þar er hægt að kaupa
flest sem ferðamenn getur vanhagað
um.
Ráðgerð er Drangeyjarferð á með-
an dvalið er í Varmahlíð, ef næg
þátttaka fæst. Veðurútlit og horfur
verða látnar ráða því, hvenær og
hvaða dag verður freistað að fara í
Drangey og öðrum dagskrárliðum
hagrætt til samræmis.
Föstudaginn 25. júlí verður farin
hringferð um Skaga. Staðnæmst
verður á nokkrum stöðum, svo sem
við Reynisstað, Tindastól, Ketu,
Skagatá og Hafnir og hugað að gróðri
og jarðmyndunum. Síðan verður ekið
inn til Skagastrandar, um Refasveit,
Blönduós og Langadal og til baka í
Varmahlíð. Laugardaginn 26. júlí
verða Skagafjarðardalir skoðaðir.
Reykjavíkur og ráðgert að koma
þangað fyrir kvöldmat.
Leiðbeinendur í ferðinni verða Ey-
þór Einarsson, grasafræðingur, Árni
Hjartarson, jarðfræðingur, Haukur
Hafstað fyrrverandi bóndi og fram-
kvæmdastjóri Landvemdar, auk þess
sem fararstjórarnir, Freysteinn Sig-
urðsson og Guttormur Sigbjamarson,
jarðfræðingar munu kynna sín svið
fræðanna. Öllum er heimil þátttaka
og kostar ferðin 7000 krónur fyrir
fullorðna en hálft gjald fyrir börn
yngri en 14 ára, auk gistikostnaðar.
Ferð í Drangey kostar auk þess 3000
krónur. Fólk er hvatt til að skrá sig
sem fyrst í ferðina á skrifstofu félags-
ins að Hlemmi 3, sími 562 4757.
-----------» ♦ ♦----
Fjölskyldu-
helgiá
Klaustri
SÉRSTÖK dagskrá fyrir alla fjöl-
skylduna verður á Kirkubæjar-
klaustri 19. og 20. júlí nk. Leiktæki
verða á staðnum, farið verður í leiki
með börnunum, haldín róðrarkeppni
á Hæðargarðsvatni fyrir unglingana
og gönguferðir með leiðsögn verða
í boði fyrir unga sem aldna. Þá er
ótalin pílukastkeppni, tónlistarflutn-
ingur og útimarkaður.
Hægt verður að fara í golf, leigja
hesta, veiða í ám og vötnum eða
fara í dagsferðir út frá Klaustri.
Áfangastaðir eru m.a.: Lakagíga-
svæðið, Núpsstaðaskógur, Skafta-
fell, hringferð um Öldufellsleið,
Eldgjá og Skaftártungu og fjaran.
Nánari upplýsingar gefur Upplýs-
ingaþjónustan á Kirkjubæjarklaustri:
487-4840.
Ekið verður inn í Vesturdal að eyði-
býlinu Þorljótsstöðum, sem er fulltrúi
fomrar eyðibyggðar. Jöklalandmótun
er hér stórbrotin og dalimir gróður-
sælir. Þaðan verður ekið til baka og
beygt inn í Austurdal að brúnni á
Jökulsá austari innan við Merkigil.
Frá henni verður gertgið inn í Aust-
urdal að Árbæjarkirkju og gljúfrin
skoðuð. Sunnudagsmorgun verður
ekið frá Varmahlíð um Kjalveg til
Við bjóðum auk þessa uppá
eftirfarandi þjónustu:
Orlofsíbúðir í orlofshverfum
þar sem er fjölbreytt þjónusta,
m.a. leiksvæði fyrir börn.
Bændagistingu
(Bed & Breakfast) eða íbúðir
hjá bændum.
Studio - Ibúðir
Strandgötu 13, sími 461 2035
ÚTIVISTARBÚÐIIU
viö Umferðarmiðstöðina
Eyjaferðir
"Grandferðir," útileguferðir,
grillferðir o.fl.
Leitið upplýsinga eða tilboða.
Sætaframboð fyrir allt
að 180 manns.
- Stykkishólmi
Ógleymanlegt
œvintýri!
• Skelfiskveiði og smökkun
• Fuglaparadís
• Ólýsanleg náttúrufegurð
• Hvalaskoðun
• Lifandi leiðsögn í hverri
ferð
I
Bílaleigubílar í Danmörku
Bjóðum nýja bíla á frábæru verði, enda um að ræða toll- og skattfrjálsa.
Allt innifalið í verði, ótakmarkaður akstur, tryggingar, skattar. Allt nema
bensín. Til afgreiðslu á Kastrup-og Billundflugvöllum eða þar sem þér
óskið. Lágmarkstími 1 vika.
DanCenter býður sumarhús um alla
Danmörku. Hús við allra hæfi, lítil og stór.
Leigutími frá laugardegi til laugardags.
Bókanir og upplýsingar í síma 438 1
Með Baldri yfir
Breiðafjörð
Frá Stykkisbólmi kl. 10:00 og 16:30
Frá Brjánskek kl. 13:00 og 19:30
Ávallt viökoma
íFlatey
FERJAN BALDUR
Símar 4381120 í Stykkisbólmi
______4562020 á Brjánslœk_