Morgunblaðið - 17.07.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
URVERIIMU
FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997 19
Margir skipstjórar telja aflaspárkerfi skaðlaus
„Engin leynimið til“
SKIPSTJÓRAR telja að í gögnum
unnum úr afladagbókum liggi ekki
leyndarmál um veiðistaði við ís-
land. Eins og kunnugt er hefur
þróun aflaspárkerfis, í samvinnu
Radíómiðunar ehf. og Háskóla ís-
lands, verið stöðvuð vegna and-
stöðu skipstjórnarmanna við að
notaðar séu upplýsingar fengnar
úr afladagbókum þeirra. Þeir skip-
stjórar sem Morgunblaðið ræddi
við segja hinsvegar að aflaspár-
kerfí gefi góðum skipstjóra ekki
neinar nýjar upplýsingar.
Tæki verða sífellt fullkomnari
Þorsteinn Vilhelmsson, skip-
stjóri hjá Samherja hf., segir að
vissulega séu aflaskýrslur skip-
stjóra trúnaðarmál á milli skip-
stjóra og Hafrannsóknastofnunn-
ar og Fiskistofu. Hinsvegar hafi
fiskveiðar við ísland þróast þannig
að tæki verði sífellt fullkomnari
og til þess gerð að auðvelda veið-
ar.
„Langflestir, ef ekki allir, eru
komnir með „plotter" og skiptast
á upplýsingum í þá. Ég hef því
ekki trú á að það séu lengur til
bleyður eða mið við landið sem
örfáir einstaklingar vita um.
Þannig að hvað miðin varðar hafa
þessi gögn ekkert að fela að mínu
mati. Þessi gögn eru að vísu trún-
aðarmál, en hvað fara margir yfir
þessar skýrslur? Eins og mér skilst
að meðferðin á þessum gögnum
hafi verið, kemur hvergi fram
hvaða skipstjóri eða hvaða skip
hefur verið að fiska á ákveðnum
stöðum. Ég get því ekki séð hvern-
ig aflaspárkerfið á að ljóstra upp
leyndarmálum."
Getur komið sér vel
Hvað aflaspárkerfið varðar seg-
ir Þorsteinn að það geti komið sér
vel fyrir óvana menn. Það sé af
hinu góða. „Flest ný tæki í brú
skipa miða að því að auðvelda
reynsluminni mönnum veiðarnar,
til dæmis plotterar. Það er gjöró-
líkt að byrja sem skipstjóri í dag
en það var fyrir kannski 20 eða
30 árum þegar menn höfðu fá eða
engin tæki til að styðjast við. Ég
get því ekki séð neitt athugavert
við slíkt aflaspárkerfi, óvanir
menn fá tæknina og þekkinguna
hvort sem er upp í hendurnar. En
það getur ekki breytt þeirri stað-
reynd að það koma aldrei nein
tæki og tól í staðinn fyrir góðan
og reyndan skipstjóra. Góður skip-
stjóri stólar meira á eigin hugvit
og sjálfstraust en aflaspárkerfi.
En ef það hjálpar óvanari mönn-
um, þá er það gott mál,“ segir
Þorsteinn.
Klaufalega að málinu staðið
Trausti Egilsson, skipstjóri á
Grandatogaranum Örfirisey RE,
segir að fýrst og fremst hafí verið
staðið klaufalega að málinu. Afla-
skýrslur skipstjóra séu trúnaðar-
gögn en samt sem áður afhent að
þeim forspurðum.
„Skipstjórar fýlla þessar skýrsl-
ur samviskusamlega út í þeirri trú
að enginn annar en Hafrannsókna-
stofnunin og Fiskistofa fái skýrsl-
urnar í hendur. Þessar stofnanir
byggja á gögnunum við gerð spáa
og þess vegna þurfa þær að vera
nokkuð nákvæmar. Ef skipstjóra
grunar að þessi gögn komist í ann-
arra hendur er hætta á að þeir
fylli skýrslumar ekki eins ná-
kvæmlega út. Það hefði verið
heillavænlegra að fara út í ein-
hverskonar samstarf með skip-
stjórum við þróun þessa kerfis. Ég
hef samt sem áður ekki trú á því
að gögnin geti skaðað einn eða
neinn. Þau koma ekki upp um nein
einkamið. Mörg skip á hefðbundn-
um veiðum fiska á takmörkuðu
svæði allt árið og ég hef ekki trú
á því að þar hafi menn nokkru að
leyna,“ segir Trausti.
Þekkingin ekki úr tölvum
Trausti segir að eflaust geti
aflaspárforrit komið einhveijum að
gagni en hann hefur ekki trú á
því að þau nýtist reyndari skip-
stjórum. „Ég þekki ekki aflaspár-
kerfi af þessu tagi og veit ekki
hvert notagildi þess yrði. Það byij-
ar enginn sem skipstjóri nema með
töluverða reynslu að baki. Þá vita
menn nokkurn veginn hvar þorsk
er að fínna á ákveðnum tímum eða
hvar karfinn kemur í got á vissum
árstímum. Ég held að þeir sem á
annað borð taka að sér skipstjórn,
þurfi ekki að láta tölvu segja sér
um fiskgengd almennt. Ég segi
því fyrir mitt leyti að ég myndi
ekki kaupa svona forrit," segir
Trausti.
Fylla sig í tveimur
til þremur köstum
é?3 ,
6%. .,622
• Bolungarvík
Sléth^
grun
'SO
Pisí j
RayfartiQfn
p 615
714
jingaae*
614?rMWW
Þóréhöfn
Ekkert lát á góðri loðnuveiði
„ÞAÐ ER mokveiði og skipin yfir-
leitt að fylla í tveimur til þremur
köstum. Þannig hefur þetta verið
alla síðustu viku,“ sagði Sveinn ís-
aksson, skipstjóri á loðnuskipinu Jóni
Sigurðssyni GK, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Hann var þá
á leið til Grindavíkur með fullfermi
sem fékkst um 100 mílur norður úr
Kolbeinsey, alveg við landhelgislínu
íslands og Grænlands.
Gengur hægt að bræða
Norsk og færeysk loðnuskip hafa
verið á svipuðum slóðum, rétt norðan
við línuna. Fá skip eru yfirleitt á
miðunum hveiju sinni, allar bræðslur
á landinu eru stútfullar og menn
þurfa yfirleitt að hinkra eftir löndun.
„Þeir sem fara styst þurfa oft að
bíða í rúman sólarhring en hinir sem
lengra þurfa að fara, stoppa stutt.
Loðnan er geysilega falleg og verður
stærri og fallegri eftir því sem norð-
ar kemur. Hún er samt full af átu
og það gengur þess vegna hægt að
bræða hana. Við höfum séð mikið
af loðnu á svæðinu og því viðbúið
að þessi veiði haldi áfram. Venjulega
fer að draga úr veiðinni um mánaða-
mót,“ sagði Sveinn.
Þegar hafa borist rúm 160.000
tonn af loðnu á land á vertíðinni,
mest til SR Mjöls á Siglufírði, 21.400
tonn. 17.000 tonnum hefur verið
landað hjá SR Mjöli á Seyðisfirði og
um 15.100 tonnum hjá Síldarvinnsl-
unni hf. í Neskaupstað.
í góöu sambandi
- með Talhólfi Pósts og síma
Talholfið tekur vio skilaboðum þegar þú ert ekki
heima, kemst ekki í símann eða ert að tala í hann.
Það getur tekið við mörgum skilaboðum í einu og
segir þér síðan hvenær þau voru lesin inn. Þú þarft
ekki að kveikja á Talhólfinu, það er vakandi allan
sólarhringinn.
Talhólfið færir þér kosti símsvarans en losar þig
um leið við gallana. Það er einfalt í notkun, ódýrt og
áreiðanlegt, og það sem mest er um vert: það tekur
ekkert pláss.
Stofngjald fyrir Talhólf er aðeins 623 kr. og árs-
fjórðungsgjald 374 kr. Að flytja símtal í Talhólf er
ókeypis.
Talhólfið kemur sér vel fyrir þá sem nota venju-
legan síma og ekki síður fyrir farsímanotendur.
Hringdu í gjaldfrjálst þjonustunúmer Posts og síma
800 7000 og pantaðu þér Talhólf.
f:M«]7000
TALHÓLF
PÓSTSOGSÍMA
POSTUR OG SÍMI HF
Gjaldfrjalst þjonustunumei