Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
T
IÞROTTIR
Leið Keflavíkur að bikarnum
32-liða úrslit:
IR-Keflavík
1 "2 Framl.
16-liða úrslit:
Eysteinn Hauksson
Jóhann B. Guðmunds.
Keflavík-Fram
1:0
8-liða úrslit:
Gunnar Oddsson
■:
Valur-Keflavík
1 "5 Framl.
Jóhann B. Guðnrúnds. 3
GBSttir Gylfason
Eysteinn Hauksson
Keflavfk-Leiftur
1 "0 Framl.
Urslit:
Keflavík-IBV
1:1
1 ÍBV-KA
Leiknir-ÍBV \ [ 0:4 6:1
IBV-Breiðablik
8:1
[
IL
IBV-KR
3:0
Keflavík-IBV
0:0 Framl.
15:4 í vítasp.keppni
■ SIGURÐUR Jónsson var eini
íslendingurinn í liði Örebro, sem
vann Norrköping 1:0 í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspymu í
gærkvöldi, en Arnór Guðjohnsen
tók út leikbann. Dan Sahlin skor-
aði um miðjan fyrri hálfleik.
Örebro er í fjórða sæti deildarinn-
ar.
■ BJARKI Sigurðsson fór á
kostum og skoraði 10 mörk í tap-
leik Drammen gegn BK 46 frá
Finnlandi í Evrópukeppni meist-
araliða í handknattleik. Leikurinn
var háður í Finnlandi og endaði
24:23. Síðari leikurinn verður í
„ljónagryfjunni“ í Drammen um
næstu helgi.
■ KEPPNIN í 2. deild karla í
handknattleik hófst á laugardag-
inn með leik Fjölnis og Harðar
frá ísafirði. Ekki var nú byijunin
góð því það dróst í 35 mínútur að
leikurinn gæti hafis þar sem dóm-
ararnir mættu ekki. Seint og um
síðir komu þó Jónas Elíasson og
Arnar Kristinsson þannig að leik-
urinn gat hafist.
■ MICHAEL Jordnn sagði fyrir
helgina að tímabilið sem senn
hæfist yrði hans síðasta og ástæð-
an er fyrst og fremst sú að forráða-
menn Chicago Bulls og Phil
Jackson þjálfari liðsins hafa kom-
ist að samkomulagi um að þetta
verði síðasta tímabilið sem hann
Mm
FOLX
þjálfi liðið og Jordan segist ekki
ætla að Ieika undir stjórn annars
þjálfara.
■ LENNOX Lewis átti ekki í
vandræðum með Andrew Golota
er þeir mættust í hnefaleikahringn-
um um helgina. Kapparnir eru í
þungavigt og sigraði Lewis í
fyrstu lotu á tæknilegu rothöggi,
lamdi Golota tvívegis í gólfið.
■ OFTAST eru þjálfarar og for-
ráðamenn liða ánægðir þegar eng-
ir eru meiddir, en til eru undan-
tekningar frá því. Vyacheslav
Koloskov, formaður rússneska
knattspyrnusambandsins, kvartaði
um helgina yfir því að enginn leik-
manna landsliðsins hefði meiðst í
síðustu leikjum undankeppni HM.
Hann kvað þetta merki um að leik-
mennirnir legðu sig ekki nægilega
mikið fram.
■ „LÆKNAR liðsins þurftu til
dæmis aldrei að fara inn á völlinn
þegar við lékum við Kýpur, og það
sama gerðist í leiknum við Búlgar-
íu,“ sagði Koloskov. „Það var
engin barátta í leikmönnum,“ sagði
formaðurinn. Rússar gerðu 1:1
jafntefli við Kýpur og töpuðu 1:0
fyrir Búlgörum.
■ BESTI knattspyrnumaður á
Bretlandseyjum um þessar mundir,
Hollendingurinn Dennis Berg-
kamp hjá Arsenal, segist vera
viss um að Englendingar tryggi
sér sæti í lokakeppni HM í Frakk-
landi með hagstæðum úrslitum í
Róm um næstu helgi.
■ BRIAN Little knattspymu-
stjóri Aston Villa getur rifjað upp
foma frægð þegar Aston Villa
mætir Athletic Bilbao í annarri
umferð Evrópukeppni félagsliða,
en nú eru rétt 20 ár síðan hann
var leikmaður félagsins er það sló
Bilbao út í leik í sömu keppni.
■ JEWSK/sóknarmaðurinn Dan-
iele Dichio er á leiðinni frá
Sampdoria til Lecce fyrir um 100
milljónir króna. Dichio hefur að-
eins leikið í 20 mínútur með
Sampdoria síðan hann kom þang-
að frá QPR í lok síðasta tímabils.
Hann á enn eftir að leika í ítölsku
deildinni því hann kom inn á er
Sampdoria tapaði 2:1 fyrir At-
hletic Bilbao í Evrópukeppninni.
■ KEFL VÍKINGAR fengu 500
þús. kr. frá Vífilfell ehf. fyrir sig-
ur í bikarkeppninni, Eyjamenn
fengu 250 þús. kr. fyrir annað
sætið.
SPURNINGAR
Enn einu knattspymutímabili
(slenskra félagsliða er lokið
og landsliðin hafa skilað s(nu
nema hvað A-landslið karla lýkur
verkefnum ársins á Laugardals-
velli nk. laugardag og
síðustu leikir pilta- HH
landsliðsins á leiktíð-
inni verða í lok mán-
aðarins. Þegar litið er
yfír nýfarinn veg má
sjá að árangur landslið-
anna hefur ekki verið
sérstakur með nokkrum undan-
tekningum. Félagsliðin stóðu sig
ágætlega í Evrópumótunum, þar
af ÍBV og KR best, en engu að
síður náði hvort lið aðeins að ryðja
einni hindrun úr vegi. í þessu
sambandi er vert að minna á að
fyrir nokkrum árum setti KSÍ sér
það markmið að landsliðið yrði í
hærri styrkleikaflokki en áður á
þessum t(mamótum og bestu fé-
lagsliðin kæmust í 3. umferð Evr-
ópumóta.
Enginn efast um vilja forráða-
manna félaga til góðra verka, en
hver er staða íslenskrar knatt-
spymu? 1989 vann ungmennaliðið
Finna 4:0 á Akureyri, tók Holland
3:2 ytra og gerði 1:1 jafntefli við
Þýskalandi á útivelli. Hvar standa
íslensku strákamir nú í saman-
burði við fyrrum mótherja sína?
Hvað hefur breyst síðan Framarar
voru allt annað en sáttir við að
falla úr Evrópukeppni bikarhafa
í 2. umferð 1985 og 1990? Hafa
menn lært af reynslu Skaga-
manna og KR-inga, sem voru
hundóánægðir með að falla úr
Evrópukeppni meistaraliða annars
vegar og Evrópukeppni bikarhafa
hins vegar eftir að hafa haft bet-
ur gegn fyrstu mótheijum í við-
komandi keppni 1995? Eru leík-
menn í nægjanlegu úthaldi allt
tímabilið eins og til dæmis Skaga-
menn voru 1993?
Hvað svo sem mönnum sýnist
um stöðu mála er ljóst að framfar-
ir verða ekki nema þeir viður-
kenni vandamál og taki á þeim.
Fyrir fimm árum varaði Evrópu-
ráðið við fækkun skyldutíma í
íþróttakennslu grunnskóla og
lagði til að frekar ætti að auka
íþróttakennslu í eina stund á dag
en fækka úr þremur til fjórum á
viku í eina til tvær. Hvernig er
Er uppbygging ís-
lenskra knattspymu-
manna á villigötum?
þessum málum farið ( grunnskól-
um landsins?
Undirstöðuatriði í íþróttum
skipta öllu máli með framhaldið í
huga. Er uppbygging ungra
knattspymumanna nógu markviss
og eru aliir leiðbeinendur með við-
urkennda menntun til starfans?
Hvað segir meiðslatíðni um upp-
bygginguna?
Þegar nýir þjálfarar tóku við
ÍA og KR í sumar sögðu þeir að
leikmenn sínir væru ekki ( nógu
góðri æfíngu. Getur verið að leik-
menn í efstu deild reyni að kom-
ast eins létt frá hlutunum og
mögulegt er og komist upp með
það? Fyrir kemur að leikmenn eru
settir f leikbann vegna agabrota
en er agaleysið meira en af er
látið og hvaða áhrif hefur það á
frammistöðu manna og liða?
Til að landsliðið nái árangri
verða undirstöðumar að vera
traustar. Til að félagslið komist
fram veginn verða allir innviðir
þess - aðbúnaður, stjórn, þjálf-
arar, leikmenn, stuðningsmenn og
styrktaraðilar - að vera í lagi.
Til að einstaklingurinn fái að njóta
sín verður íþróttastarfíð ( skólum
og hjá félögum að vera nægt,
aðlaðandi, markvisst og upp-
byggilegt. Eru þessi atriði eins
og þau eiga að vera og er Reykja-
vfk að dragast aftur úr lands-
byggðinni samanber það að full-
trúar fslands í Evrópumótunum
Qórum næsta ár koma allir utan
af landi?
Steinþór
Guðbjartsson
Hvað hugsaðiKristinn Guðbrandsson erhann tóksigurspyrnuna?
Gaf mérgóða
afmælisgjöf
KRISTINN Guðbrandsson átti síðasta orðið í bikarúrslitaleik Keflavíkur
og ÍBV, átti síðustu spyrnu leiksins - skoraði sigurmark Keflvíkinga
úr vítaspyrnu. „Ég treysti eingöngu á sjálfan mig og var ákveðinn að
skora og gefa mér sjálfum góða afmælisgjöf," sagði Kristinn, sem er
28 ára í dag, þriðjudaginn 7. október. Fimm ár eru síðan Kristinn skor-
aði síðast og þá einnig í vítaspyrnukeppni. „Ég man vel eftir markinu
sem ég skoraði gegn Þór á Akureyri í bikarkeppninni - sendi knöttinn
fram hjá Friðriki Friðrikssyni, markverði. Við máttum þá þola tap, 5:3.“
Kristinn rak smiðshöggið á sigur
Keflvíkinga, eins og hann var
búinn að lofa. Það er viðeigandi,
þv> að hann er lærð-
Eftir ur húsasmiður,
SigmundÓ. vinnur hjá Hjalta
Steinarsson Guðmundssyni í
Keflavík. Kristinn
og samherjar náðu fram hefndum
gegn ÍBV, en þeir töpuðu fyrir
Eyjamönnum í vítaspymukeppni í
bikarkeppninni í fyrra - í Keflavík.
„Ég var ákveðinn að standa við
loforðið, að skora sigurmarkið. Ég
get gengið uppréttur um Keflavík
sem eftir er,“ sagði Kristinn.
Hvernig lögðu Keflvíkingar upp
leikinn gegn Eyjamönnum?
„Við vorum ákveðnir að koma
til leiks og halda okkar striki -
að leika skynsamlega, veijast og
ná hröðum sóknum. Þannig leikst-
(11 hentar okkur vel, þar sem við
erum með fljóta framherja eins og
Hauk Inga, Jóhann og Adolf, sem
eru stórhættulegir er þeir komast
á rétt ról.“
Eyjamenn náðu sér aldrei á strik
gegn ykkur?
„Nei, þeir voru ekki eins gráðug-
ir og við áttum von á. Þeir virkuðu
þreyttir, sem er kannski eðlilegt
eftir erfiðan Evrópuleik í Stutt-
gart. Við lékum mjög yfírvegað og
áttum aldrei í neinum vandræðum
með þá.“
Varstu búinn að ákveða hvar þú
ætlaðir að skjóta í vítaspyrnunni?
Morgunblaðið/Golli
KRISTINN Guðbandsson stekkur upp er hann snýr sér að
félögum sínum og fagnar sigurmarkinu gegn ÍBV.
„Já, það var ég búinn að gera.
Þegar kallið kom gekk ég mjög
afslappaður til verks - ég var bú-
inn að ákveða að skjóta niðri,
hægra megin við Gunnar og kvik-
aði aldrei frá þeirri ákvörðun minni
er ég hljóp að knettinum - knöttur-
inn rataði rétta leið.“
Er ekki mikil lyftistöng fyrir
knattspyrnuna í Keflavík að þið
eruð á leiðinni með bikarinn heim?
„Það er ekki spurning. Við strák-
arnir í knattspyrnunni höfum
kynnst sigurstemmningunni í
Keflavík í kringum hið sigursæla
körfuknattleikslið okkar. Nú er
komið að okkur að gleðjast,
stemmningin er ólýsanleg - það
er sætt að vera sigurvegari í knatt-
spyrnu, sem er íþrótt númer eitt í
heiminum."
Það brugðu sér nokkrir leikmenn
í Arsenal-búning inn í búningsklefa
eftir leikinn. Hver var ástæðan?
„Arsenal er ofarlega í huga
margra okkar. Það er ekkert lið
sem ég held eins mikið upp á. Það
gera einnig Haukur Ingi, Bjarki
markvörður, Þórarinn Kristjáns-
son, Anton Hartmannsson, vara-
markvörður, og Hrafnkell Oskars-
son, læknir, svo einhveijir séu
nefndir. Við strákarnir í Keflavík-
urliðinu erum á leið til London og
förum þá á Highbury til að sjá leik
Arsenal og Aston Villa 26. októ-
ber. Fögnuðurinn heldur áfram á
Highbury," sagði Kristinn.