Morgunblaðið - 21.10.1997, Qupperneq 20
■ 20 C ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4»
LAUFAS
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
sím, 533-1111
fax 533-1115
Magnús Axetsson, fasteignasali.
3ja herbergja
ALMHOLT. V. 6,7 M. Mjög skemmti-
leg 86 fm björt ibúð. Stór steypt ver-
önd og fallegur gróinn garður. Mögu-
leg skipti á 2ja herbergja íbúð. Áhv. ca
4,0 millj.
SAMTENGDSÖLUS^RÁ
ÁCRVRGI LAUFÁS
Fasteignasala
1’533-1111
.«,5331115
EIGNASALAN
Netfang: laufas@islandia.is
Opið virka daga
frá kl. 9-18.
2ja herbergja
GRETTISGATA. V. 5,5 M. 59 fm mikið
endurnýjuð íbúð. Ekkert greiðslumat.
Möguleiki á að taka bil upp í. Áhv. ca
2,5 millj.
NJÁLSGATA. V. 5,7 M. Glæsileg og
vönduð íbúð á jarðhæð. Sérinngangur.
Sérlóð. Skipti á bíl koma til greina.
Áhv. ca 4,0 millj.
SKARPHÉÐINSGATA. V. 3,0 M. Út-
borgun aðeins 1.0 millj. Ca 30 fm íbúð
í kjallara í þríbýlishúsi. Sérinngangur.
Laus fljótlega. Ahv. ca 2,0 millj.
SKIPASUND. V. 4.5 M. 60 fm ibúð á
1. hæð í þríbýlishúsi. Stór, ræktaður
garður. Áhv. 2,7 millj. húsbréf.
SKÓGARÁS. V. 5,6 M. Sérstaklega
rúmgóð ca 66 fm íbúð, á 2. hæð, i góðu
fjölbýlishúsi. Sameign til fyrirmyndar.
Ahv. ca 2,7 millj.
ÆSUFELL. V. 4,3 M. 54 fm íbúð á 2.
hæð i lyftuhúsi. Góðarsuðaustursvalir.
Stutt í alla þjónustu. Áhv. ca 2,3 millj.
ASGARÐUR. V. 6,6 M. 72 fm íbúð á
efstu hæð (2. hæð) ásamt bílskúr. Par-
ket á stofu og holi. Nýleg innrétting í
eldhúsi. Flisar á baðherbergi. Sérhiti.
4ra herbergja og stærri
DVERGABAKKI. V. 6.950 þús. 86 fm
íbúð í nýviðgerðu húsi að utan sem
innan. Frábært útsýni. Áhv. 2,3 millj.
F0SSV0GUR. V. 10,4 M. 125 fm ibúð
á 2. hæð með mjög stórum suðursvöl-
um. Útsýni. Húsið er viðgert að utan.
Mjög góð sameign.
OFANLEITI. V. 10,2 M. Ein góð á frá-
bærum stað. Þvottahús í íbúðinni.
Góðar suðursvalir. Bílskúr. Áhv. ca 3,5
millj.
Sérhæðir
BARMAHLÍÐ. V. 8,9 M. 4ra herbergja
neöri hæö á þessum eftirsótta stað.
Nýlegir gluggar og gler. Endurnýjaö
rafmagn. Sérinngangur og sérhiti. Fal-
legur garöur. Ákveðin sala.
ÚTHLÍÐ. V. 12,5 M. Rúmgóð fimm
herbergja efri hæð í einu fallegasta
húsinu í Úthlíðinni. Húsið er nýlega
endurnýjað að utan. Bílskúr.
Raðhús - Einbýli
ASH0LT Sannkallað lúxushús í Ás-
holtinu. Glerskáli. Sólarsvalir. Stæði í
bílskýli.
HÁTÚN ÁLFTANESI. V. 12,4 M. Ein-
staklega aðlaðandi ca 195 fm parhús,
ásamt bílskúr, í Bessastaðahreppl.
Húsið skiptist í fjögur herbergi, stofu,
borðstofu og sjónvarpspall. Þetta er
eign sem vert er að skoða.
HJALLAVEGUR. V. 6,4 M. Eitt af
þessum litlu eftirsóttu einbýlishúsum í
Kleppsholtinu er komið í sölu. Húsið er
á einni hæð og skiptist í svefnherbergi
og tvær samliggjandi stofur.
HOLAVELLIR GRINDAVIK. NYTT
Skemmtilegt ca 86 fm einbýlishús á
einni hæð með ca 24 fm bílskúr .
Húsið skiptist í tvö svefnherbergi
og stofu. Verð 7,3 millj. Áhv. 3,5
millj. í hagstæðum lánum.
SOGAVEGUR. V. 13,8 M. 172 fm ein-
býlishús tvær hæðir og kjallari. Húsið
er uppgert að öllu leyti. Áhv. ca 5,4
millj.
Atvinnuhúsnæði
KLYFJASEL. NYTT Mjög vinalegt
einbýlishús, hæð og ris ca 150 fm
ásamt frístandandi ca 30 fm bílskúr
og ca 40 fm hesthúsi sem getur
einnig nýst sem vinnustofa, verk-
stæði eða íbúðarhúsnæði. Yfirtekn-
ar áhvílandi skuldir
kr. 631.742
Nýtt veðskuldabréf til 25 ára
kr. 2.368.258
Fasteignaverðbréf til 25 ára
kr. 6.035.000
Útborgun kr. 4.865.000
Verð: 13,9 milljónir. Greiðslubyrði á
mánuði ca kr. 58.750. Möguleiki að
skipta á 3ja til 4ra herbergja íbúð.
STARARIMI. NYTT Ca 140 fm ein-
býlishús á einni hæð, ásamt ein-
staklingsíbúð í bílskúr. Húsið skipt-
ist í þrjú herbergi, stofu, borðstofu
og sjónvarpshol. Gott útsýni til Esj-
unnar. Verð 14,4 millj. Áhv. ca 6,4
millj.
TJARNARSTIGUR SELTJ. V. 14,9 M.
Ca 164 fm uppgert einbýlishús. Stór,
tvöfaldur bílskúr. Áhv. ca 7,0 millj.
Tvær í sama húsi
AUÐBREKKA. V. 6,9 M. og 4,3 M.
Tvær samþykktar íbúðir, geta selst
saman eða hvor í sínu lagi. Mögu-
leiki að sameina í eina stóra íbúð,
(hringstigi). Ibúðin á neðri hæðinni
tilbúin til innréttingar. Sérhiti. Ný-
legar rafmagns- og hitalagnir.
ARÐSEMI Verslunarhúsnæði í
Vesturbæ. Góður langtíma leigu-
samningur. Verð 5,9 millj. Áhv. 3,5
millj.
SKRIFST0FUR Ca 350 fm fullbúin
skrifstofuhæð (efsta hæð) í við-
skiptahúsi. Möguleiki á að nýta
þakrými sem er yfir allri hæðinni.
Húsnæðið er nýtt í þrennu lagi, þ.
e. tvær ca 145 fm einingar og ein ca
60 fm. Húsið er allt nýviðgert að ut-
an. Verð á fermetra er kr.
55.000,00.-
Nýbyggingar
B0LLAGARÐAR Einbýli. Afhendist
fullklárað að utan og fokhelt að innan.
Verð 12,2 millj.
GULLENGI 6 íbúða hús. Sérinngangur
í allar íbúðir. Afhendist fullbúið að utan
sem innan, en án gólfefna. Verð 8,1
millj.
SELÁSBRAUT Fallegt fullbúið ca 176
fm raðhús, á tveimur hæðum, ásamt
bílskúr. 4 svefnherbergi, tvær stofur og
sjónvarpshol. Glæsilegt útsýni í vest-
urátt. Auk þess eru þrjú önnur raðhús á
sama stað, sem skilast tilbúin til inn-
réttinga á 11,8 millj. eða fullbúin á 13,4
millj.
VÆTTABORGIR Steypt 166 fer
metra raðhús með innbyggðum
bílskúr. FRÁBÆRT VERÐ: Rúmlega
fokheld og tilbúin að utan á aðeins
kr. 7.950.000 og tilbúin til innrétt-
inga á aðeins kr. 9.450.000.
Sumarbústaðir /Lóðir *
HUSAFELL Sumarbústaðalóðir á þess-
um frábæra stað. Lóðarsamningar til
99 ára. Nánari upplýsingar og bækling-
ar á skrifstofu.
Lóðir í Grímsnesinu.
Eignaskiptayfirlýsingar
Föst verðtilboð, leitið upplýsinga.
Undir
virkisáhrifum
f GAMLA daga voru kastalar
manna umluktir víggirðingum
og þetta munstur á veggnum er
greinilega úr þeirri átt.
Þægilegur
hægindastóll
CARLO Mollinu, ítalski arki-
tektinn, hannaði þennan gula
hægindastól sem hann gaf
nafnið' Ardea og er sagður sér-
Iega þægilegur að sitja í.
Vinnupallar
Smiðjan
Vinnupallar og vörulyftur eru umfiöllunar-
efni Bjarna Ólafssonar og brýnir hann hér
fyrir mönnum að ganga tryggilega frá upp-
setningu þeirra, t.d. stífa þá vel af.
Margir tvístíga lengi og hika
við framkvæmd verks ef
þeir þurfa að komast hátt
upp til þess að vinna það! Ekki furðar
mig á því. Sama er hvað gera þarf,
enda þótt erindið sé ekki meira en
það að þvo gluggarúðu, þá getur það
verið erfitt ef glugginn er á þriðju
hæð eða ofar. Sem betur fer eru til
ágæt gluggahreinsifyrirtæki sem
svara kalli nokkuð fljótt ef pantaður
er gluggaþvottur. I þjónustuskrá er
röð slíkra fyrirtækja. Sjálfur bý ég á
þriðju hæð og þarf því hjálp við
gluggaþvott. Eg hefi góða reynslu af
fyrirtæki sem ber heitið Hreinsýn.
Hver og einn verður velja viðskipta-
fyrirtæki eftir staðsetningu í bænum
og fleiri atriðum.
Einnig eru til þörf fyrirtæki sem
leigja út handhæga vinnupalla og
stiga. Þessi fyrirtæki leigja mismun-
andi búnað til þess að hægt sé að
vinna uppi. Sum eru með grindur
með tvöfóldum, fjórföldum, eða enn
fleiri stoðum, sem raðað er upp í
næga hæð. Dekk eða göngupallar eru
svo lagðir þar yfir. Þessu fylgja
skástífur, handrið og stigar eftir því
sem þurfa þykir.
Margir vilja heldur kaupa sér
timbur í vinnupalla og nota síðar
timbrið í smíðar. Það er auðvitað mis-
jafnt hvað hentar hverjum og einum.
Til eru fleiri en ein gerð lyftipalla.
Þeir eru afar hagkvæmir í mörgum
tilvikum þar sem hægt er að aka þeim
að húsveggnum. Svo hagar þannig til
annars staðar að ekki er hægt að
koma slíkum palli að húsinu, t.d. ef
fara þarf inn í lokaðan húsagarð eða
þar sem röð sambyggðra húsa lokar
aðkomunni. I slíkum tilvikum er
betra að raða upp samsettum pöllum.
Þá er hægt að bera hluta þeirra
ósamsetta inn í garðinn að húsabaki.
Ávallt þarf að gæta vel að stífingu
vinnupalla. Það hvessir oft fyrir-
varalaust og verður að ganga þannig
frá að vinnupallamir geti ekki
skekkst eða hreint og beint lagst út af
þegar hvasst er og vindur blæs með
hörðum hviðum. Stífumar þurfa að
vera vel festar og að vera bæði langs
eftir vinnupallinum og einnig þvers,
þannig að pallurinn taki ekki að hall-
ast frá húsinu.
Ohætt er að segja að pallaleiga sé
mikið þarfafyrirtæki. Það er þó svo
með vinnupallaleigu að þörfin er afar
misjöfn eftir tímabilum. Hún rís og
hnígur eftir veðri og árstímum.
Þannig geta allir pallar horfið í út-
leigu um góðviðrishelgi að sumri til
eða vori. Þá ætla margir að vera dug-
legir og drífa sig til að ljúka því sem
gera þarf heima við. Síðan dofnar yfir
leigunni, einkum ef veður er óhent-
ugt. Rok og rigning dregur úr mögu-
leikum á margs konar viðgerðum og
málun.
Vörulyftur
Hér að framan nefndi ég vinnu-
palla sem lyft er upp í hæfilega
vinnuhæð með vélarafli, vökvaafli.
Brýnt er að farið sé með vinnupalla
af fyllstu gát og eftir ströngum regl-
um. Hátt handrið í kringum pallinn,.
sem unnið er á, verður að vera traust
og gott, ekki lægra en 90 cm. Þá er
áríðandi að stoðir vinnupalla standi
vel, engin stoð má vera á lofti og
standi einhver stoð á lausum eða
gljúpum jarðvegi verður að setja tré
eða aðra fasta undirstöðu undir stoð-
ina. Pallur má ekki rugga.
Lyftur sem geta flutt þunga vöru
upp á efri hæðir húsa eru farnar að
tíðkast hér. Að slíkum lyftum er
mikill léttir fyrir fólk sem stendur
t.d. í búferlaflutningum.
Ef hægt er að koma þungum hlut-
um svo sem kæliskáp, þvottavél og
þungum húsgögnum upp á þriðju
eða fjórðu hæð, án þess að bera þau
upp marga stiga, er vissulega gott að
geta leigt vél til að koma þeim upp.
Hjólavagn
Hin nýja aðferð byggist á gömlu
lögmáli, eins og svo fjölmargar nýj-
ungar sem skjóta upp kollinum og
tilheyra nútímatækni. Fallsterk og
burðarmikil grind er reist skáhöll
upp að svölum, eða glerlausum
glugga á þeirri hæð hússins sem ætl-
unin er að flytja í. Grindin gegnir
hlutverki brautarteina. Á hana er
komið fyrir vagni á hjólum og er
vagninn dreginn upp eftir brautinni
húsbúnaði upp á íbúðarhæðina.
með þá vöru sem sett er á vagninn.
Rafknúinn mótor dregur vagninn
upp með stálvírum.
Eg segi frá þessu hér í þeirri trú
að vitneskjan geti orðið einhverjum
til gagns. Vinur minn benti mér á
tækið þar sem það var í notkun við
hús eitt við Bankastræti í Reykjavík.
Trúlega hafa sendibílastöðvar aflað
þess til notkunar við flutninga.
Af því tilefni að ég nefni sendibíla-
stöðvar ætla ég að leyfa mér í lok
þessarar smiðjugreinar, að benda á
þá þjónustu sem sendibílstjórar
véita viðskiptavinum sínum. Yfirleitt
eru bílstjórar þessara bíla framúr-
skarandi hjálpsamir og liprir og
þjónustan er þeir veita ódýr, miðað
við hve mikil hún er. Nú hafa margir
sendibílar orðið gaflhlera sem getur
lyft töluvert þungum varningi frá
jörð og upp í bílinn. Að því er mikil
hagræðing, sem léttir til muna
hleðslu og afhleðslu bílanna.
Um a.m.k. þrjátíu ára skeið var
störfum mínum þannig háttað að ég
þurfti að eiga mikil viðskipti við
flutningaþjónustu sendibíla. Á þeim
árum varð mér æ betur ljóst hve
ódýr og afbragðsgóð sú þjónusta var
GOTT er ef vinnupallurinn er
stöðugur og öruggur.
er ég keypti hjá þeim. Ég bjó síðar í
nokkur ár á Jótlandi í Danmörku og
komst að því að þar var ekki til
svona þjónusta og saknaði ég þess
stundum mikið. Þar var ekld annað
til ráða en að leigja sendibíl hjá bíla-
leigu og aka svo sjálfur og bjástra
hjálparlaust við að bera vaminginn.
Hér fáum við hjálp bílstjóranna við
að bera varning upp og niður stiga
og það gera þeir margir með bros á
vör! Hafið þökk fyrir alla hjálp,
sendibílstjórar!