Morgunblaðið - 04.11.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 B 3
KNATTSPYRNA
GLODNEY KLOMAN
Hvernig er hægt að semja við
hryðjuverkamann sem setur
engar kröíur fram?
tpEACEMAKER
Hermann Hreiðarsson í sviðsljósinu þartil slokknaði á flóðljósunum
Mynd/Action Images
EYJAPEYINN Hermann Hrelðarsson, varnarmaður Crystal
Palace, togar hér í handlegg lans Dowle, leikmanns West
Ham, í lelknum í gærkvöldi. Palace komst f 2:0 en West Ham
náði að jafna þegar 25 mínútur voru eftir - en þá slokknaðl
á flóðljósunum og lelknum var hætt.
Kristján þjálfar Völsung
KRISTJÁN Olgeirsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deiidar liðs
Völsungs í knattspymu næsta árið. Kristján, sem tekur við af
Ómari Rafnssyni, hefur áður þjálfað lið Húsvíkinga og leikið með
því en hann lék cinnig með Skagamönnum á árum áður.
Eg hélt að þetta væri
sýning eftir markið
Hermann Hreiðarsson var í
sviðsljósinu hjá Crystal
Palace sem sótti West Ham heim í
^| ensku úrvalsdeild-
Frá inni í gærkvöldi.
Edwir Neil Shipperley
Rögnvaldssyni g; mgr^ fyrjr
gestma í fyrn hálf-
leik, en John Hartson minnkaði
muninn með skallamarki fljótlega
eftir hlé og Frank Lampard jafnaði
metin 25 mínútum fyrir leikslok.
Fögnuður heimamanna kafnaði í
spennufalli á Upton Park - raf-
magnið fór af flóðljósunum og ekki
tókst að kveikja á þeim aftur.
Leiknum var því slitið og verða lið-
in að mætast aftur.
„Við hefðum sigrað ef þetta hefði
ekki gerst með ljósin,“ sagði Her-
mann við Morgunblaðið á Upton
Park eftir leikinn. „Ég hélt að þetta
væri einhvers konar sýning eftir
að þeir jöfnuðu. Við fengum fullt
af góðum marktækifærum í fyrri
hálfleik og einnig dauðafæri í þeim
síðari, þegar Dean Gordon skallaði
framhjá opnu marki, en leikurinn
var aldrei til - hann verður ekki
skráður. Þess vegna hefur ekkert
að segja að telja þetta upp.“
Um hálftími leið frá því ljósin
slokknuðu þar til dómarinn ákvað
að flauta leikinn af. „Við vorum
tilbúnir að bíða eftir að rafmagnið
kæmi á á ný en höfðum ekkert um
málið að segja - dómarinn réð og
tók ákvörðun um að hætta leikn-
um,“ sagði Hermann.
íslenski varnarmaðurinn, sem
hefur slegið í gegn að undanförnu,
sagði að áhersla hefði verið lögð á
öruggan varnarleik og það hefði
tekist nokkuð vel. „Við urðum að
vera vel skipulagðir í vörninni. Þeir
reyndu oft að gefa háar sendingar
á framherjana tvo, Hartson og
Dowie, sem eru mjög sterkir skalla-
menn.“
Leikmenn Palace byrjuðu með
miklum látum, áttu fyrri hálfleik
og var mikill hraði í spilinu þar sem
Hermann tók nokkrar rispur úr
vinstri bakvarðarstöðunni upp kant-
inn. Shipperley gerði fyrra markið
eftir misheppnaða spyrnu frá Craig
Forrest í marki West Ham og bætti
öðru marki við rétt áður en flautað
var til hálfleiks, fékk boltann inn í
vítateig og skoraði í hornið fjær
niðri. Heimamenn gerðu breytingar
á liði sínu í hléinu og þær skiluðu
árangri. „Þetta var allt í lagi hjá
mér og þeir komust altjént ekki
mikið upp mín megin en ég er samt
ekki ánægður með mig,“ sagði
Hermann.
Ingólfur
til Vals
INGÓLFUR Ingólfsson, knatt-
spyrnumaður úr Stjörnunni,
skrifaði í gær undir tveggja
ára samning við Val. Hann er
27 ára og hefur leikið rúmlega
100 leiki i efstu deild með
Fram og Stjörnunni. Hann á 5
leiki að baki með U-21 árs
landsliðinu, 13 leiki með 18 ára
liðinu og 17 með 16 ára lands-
liðinu.
Baldur
íFram
BALDUR Bjarnason, sem lék
með Sijörnunni keppnistíma-
bilið 1996 og var þá besti leik-
maður liðsins, hefur ákveðið
að ganga til liðs við Fram.
Baldur tók sér frí frá knatt-
spyrnunni sl. sumar vegna
flugnáms. Baldur er 28 ára og
á að baki 11 A-landsleiki.
Þórður
meiddur
ÞÓRÐUR Guðjónsson lék ekki
með félögum sínum þjá Genk
um helgina vegna meiðsla, en
liðið tapaði á útivelli 2:0 fyrir
Harelbeke. Liðin eru nú jöfn í
fjórða til fimmta sæti með 17
stíg að loknum 10. umferðum.
„Það eru álagsmeiðsl í báð-
um nárum sem eru að gera
mér lífið leitt,“ sagði Þórður
í samtali við Morgunblaðið.
„Ég tók mér frf síðari hluta
vikunnar og verð liklega ekki
með um næstu helgi. Með
þessu hléi reikna ég með að
ná mér á strik á ný, en þetta
er ekkert alvarlegt, aðeins
þreyta.“
Þórður sagði leikinn hafa
farið fram í mikilli þoku eins
og margir aðrir í beigísku
deiidinni um helgina. „Það var
á mörkunum að það væri rétt-
lætanlegt að láta leikinn fara
fram. Leikmenn Harelbeke
voru sterkari og sigurinn
þeirra var verðskuldaður."
HANDKNATTLEIKUR / ISLAND - LITHAEN
Björgvin tvíkjálka-
brotnaði í leiknum
BJÖRGVIN Björgvinsson, horna-
maður landsliðsins og KA,
meiddist í landsleiknum við Lit-
háen á sunnudagskvöld og verður
frá keppni í minnst fjórar vikur.
Hann fékk olnbogaskot frá and-
stæðingi sínum þegar tæpar átta
mínútur voru liðnar af síðari hálf-
leik og lék ekki meira með eftir
það. Hann sat á varamanna-
bekknum það sem eftir var leiks
og fór síðan á Sjúkrahús Reykja-
víkur strax eftir leik í aðgerð og
þá kom í ljós að hann var tví-
kjálkabrotinn.
Hann sagði í viðtali við Stöð
2 í gærkvöldi að líklega hafi
Litháinn gert þetta viljandi.
Hann sagði óhappið sigursins
virði. „Já, er sigurinn ekki alltaf
fyrir öllu. Menn verða alltaf að
fórna einhveiju til að sigra,“
sagði hann.
Ljóst er að Björgvin verður frá
keppni í minnst fjórar vikur.
„Þetta óhapp kemur sér mjög illa
fyrir okkur í KA, enda hefur
Björgvin verið í mjög góðri æf-
ingu,“ sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari KA-manna við Morgun-
blaðið. Framundan eru erfiðir
leikir KA-manna í meistaradeild
Evrópu. „Við eigum annan
hornamann, Sævar Arnason, nú
fær hann tækifæri,“ sagði þjálf-
arinn.
NOYEMBER 1997
HASK&Úli