Morgunblaðið - 04.11.1997, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997__________________
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ _r" MORGUNBLAÐIÐ______________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER1997 B 7
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari
Þetlaer
hemaður
Þorbjörn var ánægður með varnarleikinn:
„Við höfum oft leikið svona vörn mjög vel“
„ÞAÐ má kannski segja að við
höfum fellt þá á eigin bragði,“
sagði Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari spurður að
því hvað það hefði átt að þýða
að leika með vörnina eins
framarlega og raun bar vitni.
Eg held að þeir hafi haldið að
við myndum leika 5-1 vörn á
móti leikmanni númer sex, sem var
besti maður þeirra í fyrri leiknum.
Við höfum oft leikið svona vörn
mjög vel og á þeim þremur æfing-
um sem við fengum hér heima
fórum við rækilega yfir hvernig
við ætluðum að hafa skiptingarnar
í henni og mér fannst vömin tak-
ast mjög vel hjá okkur. Mig grun-
aði að vísu að við myndum ekki
endast allan leikinn í svona vöm
og því fórum við aðeins í flata
vöm í lokin.
Kom það ekki á óvart að þeir
skyldu ekki leika eins vörn núna
og úti þar sem þeir léku nánast
maður á mann vörn allan tímann?
„Jú, en þetta er oft svona. Þeg-
ar maður er að eiga við þjálfarana
þarf maður oft að spyija sjálfan
sig: „Hvað gerir hann hugsanlega.
Hvað hugsar hann að ég hugsi?“
Þetta er bara hernaður og ég
ímyndaði mér að hann myndi reyna
að koma okkur á óvart með því
að taka tvo eða fara alveg í flata
vöm. Hann byijaði þannig og fór
svo framar með vörnina en það
gekk ekki heldur.“
Er gott að byrja á að taka vel
á því í upphafi í vörninni?
„Já, það er ágætt. Þá komast
menn vel í gang og þá getur verið
auðveldara að fara í 6-0 vörn eins
og við gerðum. Vörnin var fín og
það er mikill munur að fá á sig
32 mörk eða 18; munar það ekki
einum 14 mörkum?“
Biðröð í
skafrenn-
ingnum
ÞEGAR stundarfjórðungur
var þar til leikur Islands og
Litliáen átti að hefjast í
Kaplakrika var löng biðröð
fyrir utan iþróttahúsið.
Ahorfendur flykktust að
þrátt fyrir leiðinlegt veður,
fyrsti snjór vetrarins var fall-
inn og talsvert sterkur vindur
var þannig að skafrenningur
var nokkur. Þetta kom þó
ekki i veg fyrir að áhorfendur
fylltu áhorfendastæðin í
Kaplakrika.
Jónas Þórir
á skemmt-
aranum
JÓNAS Þórir sá um að leika
undir á skemmtara í Kapla-
krikanum og fórst það vel úr
hendi. Mikil stemmning skap-
aðist frá fyrstu minútu leiks-
ins, og raunar talsvert fyrr.
Stemmningin var altént mun
betri og skemmtilegri en í
Kaunas í Litháen á miðviku-
daginn fyrir viku þar sem um
400 áhorfendur fylgdust með
leiknum í litlum íþróttasal.
Fyrsta verk
Ellerts
ELLERT B. Schram var fyrr
á sunnudaginn kjörinn fyrsti
forseti nýrrar og sameinaðr-
ar forystu íþróttamála í land-
inu, íþrótta- og Ólympíusam-
bands íslands. Hans fyrsta
embættisverk eftir aðalfund-
inn var að heilsa uppá leik-
menn liðanna í Kaplakrika.
Öðruvísi
búningur
EINN landsliðsbúningur ís-
lenska liðsinsvar dálítið öðru-
vísi en hinir. Á treyju Patreks
Jóhannessonar vantaði allar
auglýsingar, bæði á bak og
brjóst auk þess sem merki
HSÍ var ekki á vinstra brjósti
eins og á hinum treyjunum.
Valdimar
fékk úr
VALDIMAR Grímsson, sem
komst ekki í fyrri ieikinn í
Litháen, fékk afhenían blóm-
vönd og Adidas-úr fyrir leik-
inn. Þetta fékk Valdimar í
tilefni þess að hann hefur
leikið 200. landsleiki, en þetta
var 227. landsleikur Valdi-
mars. Hann hefur auk þess
leikið 8 aðra leiki með landsl-
iðinu gegn úrvalsliðum og
B-landsliðum - leiki sem ekki
teya sem A-landsleikir. Valdi-
mar hefur því klæðst lands-
liðsbúningnum 235 sinnum.
Áhorfendur
frábærir
ÍSLENSKA landsliðið sýndi að viðstöddum vel á þriðja þúsund áhorf-
endum í Kaplakrika að það hefur engu gleymt frá ævintýradögum
sínum í Kumamoto ívor. Liðsandinn frá Japan kveiktur og Litháar
lagðir, 25:18, og lífi þannig haldið í von um sæti í lokakeppni Evrópu-
mótsins næsta vor. Lykiliinn var frábær varnarleikur, lengst 3-2-1,
sem er sama varnarafbrigði og Litháar beittu með góðum árangri í
fyrri leik þjóðanna á miðvikudaginn. Gestirnir voru ráðþrota er í Ijós
koma að reynt yrði að fella þá á eigin bragði, þeim tókst aldrei að
ógna sterku íslensku liðið sem ekki horfði um öxl, heldur einbeitt
fram á veginn.
Þveröfugt við leikinn ytra þá voru
það Litháar sem byijuðu leikinn
en tókst þó ekki að setja mark sitt á
hann fyrr en eftir niu
ívar mínútur þegar ís-
Benediktsson lenska liðið hafði gert
skrifar þrjú mörk. Framliggj-
andi íslensk vörn var
vel einbeitt og fyrir aftan hana var
Bergsveinn Bergsveinsson markvörð-
ur sem svo sannarlega kunni vel við
sig á fornum slóðum. Sóknarmenn
Litháa sem eru nokkuð stórir og þung-
ir voru ekki búnir undir að mæta
grenjandi Ijónum á fyrsta snjóadegi
vetrarins á SV-horninu. Þeim gekk
illa að finna leiðir og þó að þeim tæk-
ist að minnka forskot íslands úr 3:0
í 3:2, þá áttu þeir alltaf undir högg
að sækja.
Islenska sóknin fékk meira rými
en í fyrri leiknum þar sem gestirnir
léku nú 5-1 vörn. Björgvin og Bjarki
byijuðu í hornunum en upp úr miðjum
hálfleik skipti Bjarki við Valdimar
Grímsson og kom lítið við sögu eftir
það. Geir fyrirliði var á línunni, en
eftir að hafa brennt af tveimur færum
skipti hann við Róbert Sighvatsson á
12. mínútu sem eftirþað lék aðalhlut-
verkið á línunni og undirstrikaði
hversu öflugur hann er að verða.
Dagur og Patrekur léku til skiptis á
miðjunni og í fyrri hálfleik gekk spilið
betur er Dagur var leikstjórnandi með
Róbert Julian Duranona og Ólaf Stef-
ánsson hvom til sinnar handar.
Litháar náðu aldrei að jafna leik-
inn, hvað þá að komast yfir. Baráttu-
glaðir íslenskir víkingar gáfu ekki
þumlung eftir og voru að jafnaði
tveimur til þremur mörkum yfir allan
fyrri hálfleikinn sem reyndar lauk
með 4 marka mun eftir að Duranona
hristi 'úr sér mesta hrollinn með þrem-
ur þrumufleygum í jafnmörgum til-
raunum. Hálfnað verk þá hafið er og
ekki síst þegar komið er að hálfleik,
staðan þá 13:9.
Gintas Galkauskas skoraði fyrsta
mark síðari hálfleiks og eina mark
sitt í leiknum, en að sinni komust
gestirnir ekki nær því að næstu fjög-
ur mörk leiksins voru íslensk og stað-
an var orðin 17:10 og tæplega 12
mínútur liðnar af síðari hálfleik.
Margt stefndi í að ísland hefði brotið
gesti sína á bak aftur því sókn þeirra
gekk ekkert og mark Galkauskas var
það eina í fyrstu 10 upphlaupunum.
I kjölfarið fylgdi slaki kaflinn hjá ís-
lenska liðinu. Einbeitingarleysi gerði
vart við sig í sókninni og þrátt fyrir
áframhaldandi góða vörn þá tókst
ekki að vinna upp allar misgjörðirnar
í sókninni þar sem óyfirveguð skot
réðu ferð um stund. Litháar minnkuðu
muninn í þijú mörk, 18:15, er 9,15
mínútur voru til leiksloka.
Eitt setti strik í sóknarleikinn hjá
heimamönnum og það var er Björgvin
varð að fara af leikvelli vegna meiðsla
og kom ekki meira við sögu. Geir og
Róbert hlupu í skarð hans í horninu
en gekk illa að halda breidd og úr
varð um tíma þröngt spil og árangurs-
lítið.
Þorbjörn Jensson þjálfari sá að við
svo búið mátti ekki standa. Blés hann
í herlúðra, breytti vörninni i 6-0 -
sendi Júlíus Jónasson á vettvang. Eins
og fyrri daginn er hann og Geir standa
hlið við hlið í vörninni er ekki að sök-
um að spyija. Þetta varnarafbrigði
gekk ekki síður en hitt og sóknin
vaknaði af værum blundi. Þar fór
öðrum fremur Patrekur fyrir félögum
sínum, gerði þijú mörk í röð líkt og
á svipuðum tíma í fyrri leiknum og
gaf þar með tóninn á ný. Eftir það
héldu íslandi engin bönd í sókninni.
íslenska liðið lék saman sem ein
liðsheild að þessu sinni, ákveðið í að
verða ekki fótaskortur á leið sinni og
valda þjóð sinni ekki vonbrigðum.
Þorbirni þjálfara tókst að laða það
besta fram í leikmönnunum, ekki síst
í vörninni, sem hefur verið slök í und-
anförnum leikjum. Bergsveinn fór á
kostum og stórskyttunni Gintaras
Vilaniskis var haldið niðri eftir stór-
leik ytra. Dagur og Valdimar áttu
framúrskarandi leik, Geir óx í vörn-
inni er á leið og Patrekur og Duran-
ona gerðu góða hluti í sókninni og
sá fyrrnefndi var fastur fyrir og einn
lykilmanna i sterkri vörn. Róbetf lék
afar vel á línunni og hefur greinilega
miklu bætt við sig í verunni í Þýska-
landi. Björgvin skilaði sínu hlutverki
vel meðan hans naut við. Bjarki var
eini leikmaður íslenska liðsins sem
átti erfitt uppdráttar. Júlíus lék ekki
mikið, en var sterkur þann stutta tíma
sem hann kom við sögu.
Enginn lék þó betur en Ólafur.
Hann vann frábærlega jafnt í vörn
sem sókn. Hann skoraði fjögur mörk,
hvert öðru fallegra og línusendingar
hárfínar. Varnarhlutverkinu skilaði
hann nær óaðfmnanlega. Með þessum
leik er ljóst að Ólafur er ekki einung-
is á góðri leið með að verða fremsti
handknattleiksmaður þjóðarinnar,
heldur einnig og ekki síst einn sá allra
fremsti í heiminum.
Undrum sætti að Litháar skyldu
ekki leika svipaða vörn að þessu sinni
og hafði gefist svo vel ytra og það var
ekki fyrr en undir lokin er þeir voru
einum fleiri að þeir færðu sig framar
á völlinn en þá var orðið um seinan
að breyta niðurstöðunni. Einnig að
þeir skyldu ekki vera undir það búnir
að íslenska liðið reyndi að brydda upp
á nýjungum í leik sínum eftir tapið í
fyrri leiknum. Þegar öllu er á botninn
hvolft þá er sigurvegari leiksins Þor-
bjöm Jensson og það ekki í fyrsta sinn.
GEIR Sveinsson stöðvar hornamanninn Giedrius
Ágætis
skotnýting
SKOTNÝTING íslensku lands-
liðsmannanna var einnig nokkuð
góð, eða 49%. Leikmenn skutu
51 sinni að marki Litháa oggerðu
25 mörk. Litháar fengu knöttinn
eftir 20 þeirra skota sem ekki
rötuðu rétta leið, en sex sinnum
náði íslenska liðið knettinum.
Bjarki Sigurðsson var sá eini
sem var með 100% nýtignu, skor-
aði fyrsta mark íslands úr einu
skottilraun sinni.
Valdimar Grímsson var með
mjög góða nýtingu, 85,7%, gerði
6 mörk í sjö skotum og íslenska
liðið fékk knöttinn aftur eftir eina
skotið sem hann skoraði ekki úr.
Patrekur Jóhannesson skaut
oftast að marki, 15 sinnum alls.
Úr þessum skotum skoraði hann
6 mörk sem er 40% nýting. ís-
lenska liðið fékk boltann eftir
fjögur skot Patreks sem ekki röt-
uðu rétta leið, en eftir fimm skot
hans fengu gestirnir knöttinn.
Rétt er að taka fram að Patrekur
þurfti stundum að taka af skarið
þegar sóknarleikurinn var orðinn
vandræðalegur.
Róbert Julian Duranona
gerði fimm mörk úr átta skotum
og það er 62,5% skotnýting. Úr
einu misheppnuðu skoti fékk liðið
boltann aftur.
Ólafur Stefánsson gerði 4
mörk úr sjö skotum og það gerir
57% nýtingu.
Róbert Sighvatsson skaut
ijórum sinnum að marki og gerði
tvö mörk. 50% nýting og Lithaár
fengu boltann þegar skot hans
misstu marks.
Björgvin Björgvinsson var
einnig með 50% nýtiginu; skaut
tvívegis og gerði eitt mark. Lithá-
ar fengu boltann eftir skotið sem
var varið.
Geir Sveinsson skaut þrívegis
að marki en öll skot hans voru
varin og Litháar héldu boltanum.
Dagur Sigurðsson skaut fjór-
um sinnum en náði ekki að skora
og Litháar fengu boltann í öll
skiptin. Rétt er að taka fram að
hann varð stundum að skjóta þar
sem sóknarleikurinn var orðinn
vandræðalegur og komið að því
að dæma leikleysu.
Sjö marka
sigur er
ljómandi gott,“
sagði Geir
.Sveinsson fyrir-
liði íslenska
landsliðsins
ljómandi
ánægður að
leikslokum. „Við
vorum að leika
allt aðra vörn
núna en í Kaun-
as á miðviku-
daginn og mar-
kvarslan fylgdi
með. Við tókum
dálitla áhættu
með að leika
vömina svona framarlega. Þetta
þýddi að menn gátu ekki treyst á
GEIR SVEINSSON
„Við tókum
dálitla áhættu
með að leika
vörnina svona
framarlega"
Cernlauskas.
Morgunblaðið/Kristinn
mikla hjálp frá
félögunum held-
ur urðu þeir að
vinna mikið
maður á móti
manni og það
gekk ljómandi
vel. Botninn
datt dálítið úr
vamarleiknum
um miðjan síðari
hálfleik, ég veit
ekki hvort við
gáfum eftir eða
hvort þeir fundu
eitthvert svar
við vörn okkar.
Það var ágætt
herbragð hjá
okkur að fara þá í 6-0 vörn þó svo
hún væri dálítinn tíma að komast
í gang og það er ekkert slæmt að
fá á sig 18 mörk á móti 32 á mið-
vikudaginn.“
Nú hvíldir þú óvenjulega mikið í
þessum leik. Getur maður átt von ■
á að sjá þig svona mikið á vara-
mannabekknum í framtíðinni?
„Það veit ég ekki. Þú verður að
spyrja þjálfarann að því. Annars
er málið ósköp einfalt. Eg nýtti
ekki færin sem ég fékk og það
kostar sitt og maður sættir sig vel
við það meðan Róbert spilar vel.
Það skiptir mig ekki máli hver set-
ur mörkin svo fremi við vinnum og
komum okkur til Ítalíu.
Næsti leikur er hér heima á
móti Júgóslavíu og það er úrslita-
leikur fyrir okkur. Með sigri þar
er ég viss um að við komumst
áfram, en það er að vísu ýmislegt
annað í stöðunni. Áhorfendur voru
frábærir og virkilega gaman að
spila fyrir fólkið. Það hvatti okkur,
var vel inni í leiknum og það er
ekki nokkur vafi að það hjálpaði
okkur mikið,“ sagði fyrirliðinn.
Höfðum gaman af því að svara fyrir
okkur, sagði Ólafur Stefánsson
„ÞAÐ að var allt annar og meiri
andi yfjr þessu hjá okkur,“
sagði Ólafur Stefánsson, einn
besti leikmaður íslenska lands-
liðsins eftir að það hafði tryggt
sér góðan sigur á Litháum í
Kaplakrika.
Eg veit ekki af hverju Litháar
léku ekki eins vöm núna og
þeir gerðu í Kaunas á miðvikudag-
inn. Þá áttum við í miklum erfiðleik-
um gegn þeim, en nú fengum við
meiri tíma i sókninni og við sáum
til þess að þeir þurftu að hafa að-
eins fyrir hlutunum í sókninni. Við
lömdum aðeins á þeim í byijun,
svona til að komast í gang og eftir
það gekk vel í vöminni. Við Iögðum
líka allt í hana og þar sem við feng-
um meiri frið í sókninni gátum við
hvílt okkur aðeins þar, annars fann
ég mig ekkert sérstaklega vel í
sókninni.
Þetta var ljúft og í rauninni bara
spuming um að hafa hausinn í lagi.
Við ætluðum að hefna okkur. Þeir
vora mjög grófir úti í Litháen og
við höfðum bara gaman af því að
svara fyrir okkur hér,“ sagði Olafur.
Meiri háttar vöm
„Liðsheildin var frábær og vörnin
meiri háttar. Áhorfendur voru frá-
bærir, húsið gott og það var allt
með okkur þannig að það var ekki
hægt annað en vera í stuði á gömlu
fjölunum hér í Kaplakrika," sagði
Hafnfirðingurinn Bergsveinn Berg-
sveinsson markvörður Afturelding-
ar og landsliðsins. „Það var sama
hver kom inná, það stóðu sig allir
vel þannig að það var hægt að skipta
inn og út án þess að veikja liðið.“
Hvað með síðasta skotið þegar
SÓKNAR-
NÝTING
ISLAND
Mörk Sóknlr %
LITHAEN
Mörk Sóknir %
13 22 59% F.h 9 22 41%
12 27 44% S.h 9 26 35%
25 49 51% Alls 18 48 38%
9 Langskot 7
5 Gegnumbrot 1
6 Hraðaupphlaup 1
2 Horn 1
2 Lína 6
1 Vrti 2
þú varðir úr hraðaupphlaupi. Þá var
staðan 23:18 og þið einum færri og
þeir hefðu getað minnkað muninn
í tvö mörk. Varnarmennirnir létu
hornamanninn fara og treystu þér
greinilega til að verja.
„Já, eigum við ekki að hafa það
þannig að við höfum verið búnir að
ákveða þetta?! Annars var þetta bara
homamaður sem fór inn á milli
homamanns og bakvarðar í sókninni
og þeir era ekki klókustu menn í
heimi í þessari stöðu og eiga það til
að skjóta fast og ég
náði að veija. Ég
fékk það aldrei á
tilfinninguna að við
myndum tapa þessu
niður. Við náðum
góðum tökum á
þeim í byijun og
þetta var öruggt all-
an tímann,“ sagði
Bergsveinn.
Morgnnblaðið/Kristinn
ÓLAFUR Stef ánsson átti stórleik jaf nt í vörn sem sókn gegn Lltháen. Hér hef ur hann komlst í dauðafæri en Arunas Vaskevicius markvöröur varöl á ævintýralegan hátt.
Felldir á eigin bragði
Lögðum allt
í vömina