Morgunblaðið - 20.01.1998, Page 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins
—
Þriðjudagur 20. janúar 1998
Blað C
Vanstillt
hitakerfi
ORSÖK hitaskorts er oft sú, að
kerfíð er algerlega vanstillt,
segir Sigurður Grétar Guð-
mundsson í þættinum Lagna-
fréttir. Vatn rennur í gegnum
litlu ofnana, en skilur þá stóru
eftir. Þá er sama, hve mikið
vatnsrennslið er aukið. /14 ►
;1 • m 'ií__í
ISUASKA OPCKAS
Utanhúss-
viðhald
ÞAÐ þarf fljótlega að fara að
undirbúa viðhald á húseignum
utanhúss í sumar, segir
Eyjólfur Bjarnason, bygginga-
tæknifræðingur. Verktakar
geta þá betur skipulagt
starfsemi sína og húseigendur
ná betri samningum. / 30 ►
Góðar
horfur
FASTEIGNASALAR erú
almennt bjartsýnir á
markaðinn á þessu ári.
„Efnahagsástand er yfirleitt
gott og mikil umsvif í atvinnu-
Iífínu. Horfur á fasteigna-
markaðnum eru því góðar,"
segir Elías Haraldsson, sölu-
stjóri hjá fasteignasölunni
Hóli, í viðtalsgrein hér í blað-
inu í dag, þar sem hann kynn-
ir m. a. nýjar íbúðir við Blika-
höfða í Mosfellsbæ.
Gott tíðarfar það sem af er
vetri hefur haft mjög jákvæð
áhrif á íbúðamarkaðinn. Fólk
hefur getað komizt ferða
sinna til þess að skoða eignir,
en oft hefur erflð veðrátta og
þung færð gert fólki erfitt fyr-
ir á þessum árstíma.
Eftirspurn eftir atvinnuhús-
næði er nú miklu meiri en var
og fýrirsjánlegt, að svo verði
um nokkurn tíma. En bygging-
araðilarnir hafa þegar tekið
við sér og talsvert er í gangi af
nýbyggingum. Það er því lík-
legt, að framboð aukist, þegar
frá líður.
„Oft hefur það verið þannig
eftir áramót, að markaðurinn
hefur þurft ákveðinn tíma til
þess að komast í gang,“ segir
Jón Guðmundsson, formaður
Félags fasteignasala.
„Að þessu sinni tók markað-
urinn við sér strax á fyrsta
virka degi ársins. Að mínu
mati eru horfur mjög góðar
fyrir markaðinn í heild, enda
verð ég var við mikla bjartsýni
úti á markaðnum." / 18 ►
Aukning í húsbréfa-
umsóknum vegna ný-
bygginga einstaklinga
UMSÓKNIR um lán í húsbréfakerf-
inu gefa mikla vísbendingu um um-
svif á fasteignamarkaðnum á hverj-
um tíma. I fyira voru umsóknirnar
mun meiri en árið þar á undan.
Þannig jukust umsóknir vegna not-
aðs húsnæðis um 12% á síðasta ári
og vegna nýbygginga einstaklinga
um 31%. Umsóknir vegna nýbygg-
inga byggingaraðila stóðu hins veg-
ar í stað.
Samþykkt skuldabréfaskipti voru
líka mun meiri í heild eða um 14%
meiri en árið á undan. Húsbréfaút-
gáfan var samt nánast sú sama. Þar
ber að hafa í huga, að þeim íbúðum
og húsum fer stöðugt fjölgandi, sem
búið er að taka húsbréfalán út á. Við
kaup á slíkri eign þarf því ekki að
gefa út húsbréf nema að litlu leyti,
þar sem kaupandi yfírtekur
áhvílandi húsbréfalán.
Athygli vekur, að vanskil í hús-
bréfakerfínu halda áfram að minnka.
Það má væntanlega þakka batnandi
efnahagsástandi í landinu, skilvirkari
innheimtu og aukinni aðstoð við
skuldara.
Miklar breytingar urðu á ávöxtun-
arkröfu húsbréfa á nýliðnu ári. I árs-
byrjun í fyrra var hún 5,80%, en um
sumarið fór hún ört lækkandi og
komst lægst í 5,21% í ágústbyrjun. I
byrjun þessa árs var ávöxtunarkraf-
an 5,29% og núna í janúar hefur hún
haldið áfram að lækka. Sl. .fóstudag
var hún komin niður í 5,19% og hafði
þá ekki verið lægri í mörg ár.
A þessu ári er gert ráð fyrir, að
húsbréfaútgáfan verði um 16,5 millj-
arðar kr. að markaðsvirði. Á síðasta
ári var hún 15,3 milljarðar kr. Ástæð-
an fyrir aukinni húsbréfaútgáfu er
verðlagsbreytingar og einnig er gert
ráð fyrir aukningu í fasteignavið-
skiptinn miðað við síðasta ár.
Næstu daga verða gefnir út tveir
nýir húsbréfaflokkar, þannig að ekki
er hætta á því, að nein töf verði í af-
greiðslu nýrra húsbréfa. Þegar er
byrjað að afgreiða fasteignaveðbréf
vegna þessara nýju flokka.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu
í jan.-des. 1997
breyting frá sama Breyting
tímabili 1996 ^ jan.-des.
Innkomnar umsóknir \ 1997/1997
Notað húsnæði +12,63%
Endurbætur +21,28%
Nýbyggingar einstaklinga +30,94%
Nýbyggingar byggingaraðila +1,02%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi +11,36%
Notað húsnæði - upphæðir +11,99%
Endurbætur - fjöldi +0,54%
Endurbætur - upphæðir +8,27%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi +17,45%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir +22,42%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi +6,27%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir +9,61%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð +14,14%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð +0,28%
Verið velkomin í afgreiðsluna að Ármúla 13A
eða hafið samband við ráðgjafa okkar í síma 515 1500.
Við höfum opið alla virka daga frá 9.00 -16.00
KAUPÞING HF
Ármúla 13A • Sfmi 515 1500 • Fax 515 1509 • www.kaupthing.is