Morgunblaðið - 20.01.1998, Side 18

Morgunblaðið - 20.01.1998, Side 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ± # Morgunblaðið/RAX NU ER unnið að því að steypa upp fjölbýlishúsiö við Blikahöfða 5-7, en íbúðirnar verða afhentar í ágúst nk. Eins og sjá má, er útsýni mikið út yfír sundin og til fjalla. Bjartsýni einkenn- ir fasteignamarkað inn í byriun árs VIÐ Blikahöfða 5-7 f Mosfellsbæ er Hóll með nýjar fbúðir til sölu f 16 fbúða fjölbýlishúsi. íbúðirnar eru seldar fullbúnar án gólfefna. Tveggja herb. íbúðirnar eru 72,6 ferm. og kosta 6,2 millj. kr., 3ja herb . íbúðirnar eru 95,4 ferm. ferm og kosta 7,9 millj. kr. og 4ra herb. fbúðirnar eru 111,3 ferm. og kosta 8.950.000 kr. Einnig er hægt að fá þessar fbúðir tilbúnar til innréttinga. Sala bæði á íbúðar- húsnæði og atvinnuhús- næði gekk yfírleitt vel á síðasta ári. Magnús Sigurðsson fjallar . hér um markaðinn á nýju ári og ræðir við nokkra kunna fast- eignasala. Að þeirra mati eru horfur á markaðnum góðar, FASTEIGNASALA tók mikinn kipp síðari hluta árs í fyrra. Það kom ekki hvað sízt fram í aukinni sölu á stærri eignum, sérstaklega einbýlishúsum á verðbilinu 16-20 miilj. kr., en hús á því verði höfðu lítið hreyfzt um árabil. Þar urðu því • mikil umskipti. Mikil sala var einnig í nýjum íbúðum og þá sérstaklega í Smárahvammslandi og Lindahverfí í Kópavogi. Góð sala var einnig í nýjrnn íbúðum í Borgahverfi í Graf- arvogi. Þetta kom fram í viðtali við Elías Haraldsson, sölustjóra hjá fast- eignasölunni Hóli, en hann eins og aðrir fasteignasalar taldi nýárið fara mjög vel af stað. „Það hefur aldrei verið jafii auðvelt að eignast íbúð og núna,“ sagði Elías. „Efna- hagsástand í þjóðfélaginu er yfir- leitt gott og mikil umsvif i atviimu- lífinu. Horfur á fasteignamarkaðn- um eru því góðar. Víðtækt sjó- mannaverkfall gæti hins vegar haft mjög neikvæð áhrif á markaðinn, eins og öll verkföll gera.“ Það er margt sem hleypir stoðum undir þessa staðhæfingu Eliasar um góðar horfur á markaðnum. Þannig var ávöxtunarkrafa húsbréfa mun lægri um þessi áramót en áramótin þar á undan og afföllin um leið. Þessi þróun er fasteignamarkaðn- inn í hag, því að það er hagstæðara að kaupa og byggja, þegar ávöxtun- arkrafan er lág, þar sem húsbréfin eru þá þeim mun verðmætari, sem fást út á eignimar. Á meðan ávöxtunarkrafan helzt lág eru síður líkur á nafiiverðs- hækkun á ibúðarhúsnæði, þó að erfitt sé að spá um slíkt með nokk- urri vissu í þeirri uppsveiflu, sem nú er almennt í þjóðfélaginu. Fram að þessu hefur verð á íbúðarhúsnæði líka haldizt býsna stöðugt, en marg- ir telja, að sú hagræðing, sem átt hefur sér stað í byggingariðnaðin- um, geti varla orðið meiri og því gæti verð farið að hækka, en bæði laun og efni fara nú hækkandi. Gott tíðarfar í vetur hefur einnig haft mjög jákvæð áhrif á íbúða- markaðinn. Þegar veðrátta er slæm og ófærð mikil, kemst fólk ekki til þess að skoða þær eignir, sem það hefur áhuga á. Góð færð getur því skipt afar miklu máli. Hváð atvinnuhúsnæði varðar, er eftirspurn miklu meiri nú en var og fyrirsjáanlegt, að svo verði um nokkum tíma. En byggingaraðil- HJÁ Fasteignamarkaðnum er nú til sölu öll neðsta hæð og hluti af ann- arri hæð hússins Brautarholt 20, þar sem Þórskaffi var eitt sinn til húsa. arnir hafa þegar tekið við sér og talsvert er í gangi af nýbyggingum. Það er því líklegt, að framboð auk- izt, þegar frá líður. Nýjar fbúðir við Blikahöfða ,Árið í fyrra var bezta árið hjá okkur hjá fasteignasölunni Hóli, frá því að hún tók til starfa fyrir fimm árum," sagði Elías Haraldsson. „Á þessu ári höfum við sett okkur ákveðin markmið og fylgjum þeim eftir með mikilli auglýsingaherferð, þar á meðal í sjónvarpi og á strætis- vögnum, fyrir utan hefðbundnar auglýsingar í Morgunblaðinu. Þetta hefur greinilega mælzt vel fyrir úti á markaðnum og er strax farið að skila sér. Hjá okkur em nú fimm sölumenn og þeir hafa varla við að selja.“ Við Blikahöfða 5-7 í Mosfellsbæ er Hóll með nýjar íbúðir til sölu í 16 íbúða fjölbýlishúsi, sem er þrjár hæðir. Sérbýlið einkennir þessar íbúðir, því að þær era með sérinn- gangi af svölum, en íbúðirnar á jarðhæð era með sérlóð í staðinn fyrir svalir. Að utan er húsið hraun- að og málað. Ibúðimar era seldar fullbúnar án gólfefna. Tveggja herb. íbúðimar era 72,6 ferm. og kosta 6,2 millj. kr., 3ja herb. íbúðimar era 95,4 ferm. ferm. og kosta 7,9 millj. kr. og 4ra herb. íbúðirnar eru 111,3 ferm. og koste 8.950.000 kr. „Ég tel þetta hagstætt verð fyrir jafn góðar íbúðir, en það er einnig hægt að fá þessar íbúðir skemmra komnar það er tilbúnar til innrétt- inga og þá er verðið að sjálfsögðu að sama skapi lægra, sagði Elías. „Bíl- skúrar geta fylgt og er verð þeirra aðeins 750.000 kr.“ Elías telur húsið vera mjög vel staðsett og í skipulagi er gert ráð fyrir verzlunum í næsta nágrenni. „Mosfellsbær er í mikilli sókn á fasteignamarkaðnum. Nýjar íbúðir í fjölbýlishúsum við Fálkahöfða, sem við fengum í sölu á síðasta ári, hafa selzt mjög vel,“ segir hann. „Það þarf ekki að koma á óvart. Mosfells- bær hefur upp á margt að bjóða. Útivistaraðstaðan er einstök, en úr bænum er t. d. ekki nema stundar- fjórðungs akstur upp i Skálafell, eitt bezta skíðasvæði landsins. Aðstaðan til hestamennsku er jafnframt afar góð, enda era margir áhugasamir hestamenn í Mosellsbæ. Mjög góð- ur golfvöllur er í bænum og loks má nefna íþróttasvæði bæjarins, sem er með þeim betri í landinu." ,M mínu mati era þessar íbúðir við Blikahöfða 5-7 mjög vel byggð- ar, enda standast þær ítrastu gæða- kröfur markaðarins í dag,“ sagði Elías Haraldsson að lokum. „Bygg- ingaraðili er Skörangar ehf., sem er mjög traust byggingafyrirtæki, en íbúðimar verða afhentar í ágúst næstkomandi.“ Mikil breidd í eftirspurn „Nýja árið byrjar mjög vel, sagði Jón Guðmundsson hjá Fasteigna- markaðnum og formaður Félags fasteignasala. „Oft hefur það verið þannig eftir áramót, að markaður- inn hefur þurft ákveðinn tíma til þess að komast í gang. Að þessu sinni tók markaðurinn við sér strax á fyrsta virka degi ársins. Að mínu mati era horfur mjög góðar fyrir markaðinn í heild, enda verð ég var við mikla bjartsýni úti á markaðn- um.“ Það sem einkum einkennir mark- aðinn að mati Jóns Guðmundssonar er mikil breidd í eftirspurn. „Nú er góð eftirspum eftir húsnæði í heild, allt frá litlum íbúðum upp í stórt at- vinnuhúsnæði," sagði hann. „Fram- boð á atvinnuhúsnæði hefur dregizt veralega saman vegna mikillar sölu í lok ársins og skortur er á ýmsum stærðum og gerðum atvinnuhús- næðis t. d. góðu skrifstofuhúsnæði af stærðinni 150-500 ferm. og einnig tilfinnanleg vöntun á stóra atvinnu- húsnæði á bilinu 800-1500 ferm. og allt upp í 2.000 ferm. Þá hefur það ekki spillt, að veður hefur haldizt mjög gott og allir hafa getað komizt ferða sinna til þess að skoða eignir, en oft hefur erfið veðr- átta og þung færð gert fólki erfitt fyrir á þessum árstíma. Góð tíð hef- ur að sjálfsögðu líka haft mjög já- kvæð áhrif á byggingariðnaðinn, sem verður þá ekki fyrir töfum ( i i i i i i i i i i i i i i c : c i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.