Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 C 19
£.
HJÁ Hraunhamri er nú til sölu glæsileg húseign við Fjóluhvamm 5 í
Hafnarfirði. Húsið er 247 ferm. og með innbyggðum tvöföldum bíl-
skúr, sem er 45 ferm. Ásett verð er 21 millj. kr. Húsið stendur á fallega
ræktaðri hraunlóð í enda botnlanga á miklum útsýnisstað.
vegna vetrarveðráttu. Ef verð á að
haldast stöðugt, þarf byggingariðn-
aðurinn að halda verulega í við þá
eftirspurn, sem nú er til staðar og
gera má ráð fyrir, að haldist á
markaðnum á næstunni."
Hjá Fasteignamarkaðnum er nú
til sölu öll neðsta hæð og hluti af
annarri hæð hússins Brautarholt
20, þar sem Þórskaffi var eitt sinn
til húsa. „Á síðasta ári seldum við
efri hæðir hússins, en þær keyptu
að hluta þrír ungir menn með veit-
ingarrekstur í huga og Baðhúsið
keypti hinn hlutann fyrir starfsemi
sína,“ sagði Jón.
„Húsið er samtals að gólffleti
2500 ferm., en óseld er öll neðsta
hæð húsins, sem gæti selzt í tveim-
ur til þremur hlutum. Af henni
liggja 350 ferm. að Nóatúni, en þar
geta verið góðir verzlunargluggar
og 164 ferm. eru að auki til sölu á
götuhæð Brautarholtsmegin. Á
annarri hæð er til sölu 145 ferm.
eldhús með kælum og pressum.
Auk þess vorum við hjá Fast-
eignamarkaðnum að fá til sölu hús-
eign, sem á að rísa við Laugaveg 21.
Byggingin verður kjallari og þrjár
hæðir samtals að gólffleti 1170
ferm. Á sömu lóð stendur gamalt
timburhús, sem verður allt endur-
bætt. í því húsi er gert ráð fyrir, að
rekin verði verzlun, kaffíhús eða
annar veitingarekstur. Hafízt verð-
ur handa við nýbygginguna og end-
urbyggingu gamla hússins á næst-
unni.“
Minna um eignaskipti
Fasteignamarkaðurinn í Hafnar-
firði er að sumu leyti frábrugðinn
því, sem gerist í Reykjavík. í heild
er þó verð á íbúðarhúsnæði þar
samt mjög sambærilegt við það,
sem gerist í Reykjavík og annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu. Til
Hafnarfjarðar flytjast hlutfallslega
margir utan af landsbyggðinni.
Þetta er fólk á öllum aldri, ekki síð-
ur eldra fólk en yngra. Þessi fólks-
straumur er býsna stöðugur og
hann á sinn þátt í að viðhalda
stöðugri hreyfingu á fasteigna-
markaði í Firðinum.
Mikil og hröð uppbygging hefur
átt sér stað í Mosahlíð í Setbergs-
hverfinu, en það er einna eftir-
sóttasta hverfið nú af nýju hverfun-
um í Hafnarfirði. Hvaleyrarholtið er
líka á uppleið, en þar hefur einnig
átt sér stað mikil uppbygging á síð-
ustu árum.
„Það sem einkenndi markaðinn í
Hafnarfirði í fyrra var mjög mikil
sala seinni hluta ársins,“ sagði
Magnús Emilsson hjá Hraunhamri.
„Beinar sölur eru líka orðnar miklu
algengari en var og að sama skapi
minna um eignaskipti."
Að sögn Magnúsai- hefur verið
mikil hreyfing á markaðnum, það
sem af er janúar og horfur á mark-
aðnum góðar. „Nú er búið að út-
hluta öllum lóðum á svoköllum Ein-
arsreit, sem liggur á milli Reykja-
víkurvegar og Smyrlahrauns," sagði
Magnús. „Ennfremur hefur verið
úthlutað miklu af lóðum í svokall-
aðri Holtabyggð, sem er nýtt hverfi
í Hvaleyrarhrauni í grennd við þann
stað, þar sem sædýrasafnið stóð eitt
sinn.
Eg á von á því, að mikið verði
byggt á þessum svæðum í sumar og
að með því komizt enn meiri hreyf-
ing á markaðinn í Firðinum. Við hjá
Hraunhamri seljum einnig talsvert
af fasteignum í Garðabæ en þó
minna en við gjaman vildum, því að
eftirspurnin þar er núna slík, að
góðar eignir fara jafn óðum og þær
koma í sölu.“
Hjá Hraunhamri eis nú til sölu
glæsilegt einbýlishús \ við Fjólu-
hvamm 5 í Hafnarfirði. \Ásett verð
er 21 millj. kr., en húsið er 247
ferm. og með innbyggðum tvöföld-
um bílskúr, sem er 45 ferm. Húsið
stendur á fallega ræktaðri hraunlóð
í enda botnlanga á miklum útsýnis-
stað.
Gengið er inn í flísalagða forstoíú,
sem er með flísalagðri gestasnyrt-
ingu í hólf og gólf. Eldhúsið er stórt
með góðri eikarinnréttingu, parketi
á gólfi og borðkrók með búri inn af.
Borðstofan er stór með útgangi út á
svalir, sem liggja meðfram öllu hús-
inu, en frá þeim er einstakt útsýni.
Síðan kemur stofa með góðri loft-
hæð, skemmtileg arinstofa og sjón-
varpskrókur.
f svefnherbergisgangi er stórt
hjónaherbergi og þrjú góð bai-na-
herbergi fyrir utan rúmgott baðher-
bergi og gott þvottahús frá gangi
með útgangi út. Innangengt er í
mjög góðan tvöfaldan bílskúr. Inn-
angengt er einnig í séríbúð á jarð-
hæðinni, sem hefur líka sérinngang,
en í þessari íbúð er stór stofa með
góðu útsýni, svefnherbergi, eldhús
með vandaðri innréttingu og bað-
herbergi.
Eign fyrir vandláta
„Þetta er eign fyrir vandláta,
enda er hér um að ræða eitt af vand-
aðri húsum Hafnarfjarðar," sagði
Magnús Emilsson að lokum. „Ég tel
ásett verð, sem er 21 millj. kr., vera
mjög eðlilegt verð, miðað við að hér
er um óvenjulega glæsilega húseign
að ræða, sem er afar vönduð að allri
gerð og stendur þar að auki á frá-
bærum útsýnisstað, sem margir rót-
grónir Hafnfirðingar sækjast eftir.“
3
ÚWrÁ
Járnbraut-
arstöð
GOMLU járbrautastöðvamar í
Þýzkalandi hafa nú verið hafnar til
vegs á nýjan leik. Margir hafa áttað
sig á gildi þeirra. Vegna frábærrar
legu og áhrifamikils byggingarstíls
setja þær gjaman mikinn svip á um-
hverfið og era kjörinn vettvangur
ekki bara fyrir mannlíf og samgöng-
ur heldur einnig fyrir verzlun og við-
skipti hver á sínum stað.
Jámbrautarstöðin í Leipzig var
íyrir skömmu opnuð að nýju eftir
gagngerar endurbætur og breyting-
ar, sem tóku heil þrjú ár. Hún var
reist 1915 og þótti þá eitt fallegasta
mannvirki sinnar tegundar í Evr-
ópu. En með tímanum hafði hún fall-
ið í niðurníðslu og dregizt aftur úr
kröfum tímans.
Eftir enduropnunina nú era 140
verzlanir í jámbrautarstöðinni, sem
er á þremur hæðum og þykir afar
glæsileg og skera í stúf við frekar
dapurt efnahagsástand í austur-
þýzku sambandsríkjunum.
Kostnaðurinn við endumýjunina
nam 500 milljónum marka (um 20
milljörðum ísl. kr.). Eigandinn, sem
er ríkishlutafélagið Deutsche Bahn,
hefur samt aðeins lagt fram um 100
millj. mörk. Ýmsir fjárfestar hafa
fjármagnað framkvæmdina að öðru
leyti og þeirra stærstur er Deutsche
Bank.
EIGNAMIÐSTOÐIN-Hátún
Skipholti 50b, 2. hæ
Sími 561 9500 é
Fax 561 9501
Nýbýlavegur - Kóp. Falleg og
endumýjuð 134 fm efri sérhæð með
bílskúr. 4-5 svefnherb. Nýtt gler og flísar
á gólfum. Arinn I stofu. Gott útsýni. Áhv. 4
millj. Gott verð. 1191
h: herbergja
herbergja
Vantarl! Vegna góðrar sölu undanfarið
vantar okkur nú þegar góðar 3ja herbergja
íbúðir, helst vestan Elliðaáa. Við höfum
mikinn fjölda ákv. kaupanda á skrá.
Gunnar Viðars hdl. Lárus H. Lárusson,
Kjartan Hallgeirsson og Þórir Halldórsson
Vantar 4ra herbergja Vegna góðrar
sölu undanfariö vantar okkur nú þegar
góðar 4ra herbergja íbúðir á söluskrá,
Við höfum mikinn fjölda ákv. kaupanda
á skrá. ÖFLUGT STARFSFÓLK
FINNUR KAUPANDANN AÐ PINNI
ÍBÚÐ
Safamýri. Vorum að fá I sölu góða
ca. 70 fm íbúð á jarðhæð í
þribýlishúsi á þressum eftirsótta stað.
Stutt í alla þjónustu. Pessi stoppar
ekkilengi. 1279
Norðurbrún
Vorum að fá í einkasölu þetta
stórgóða 255 fm parhús m/innb.
bílskúr. Húsið er skemmtilega
innréttað, góð gólfefni og fallegt
útsýni. Á neðri hæð er auðvelt
að koma fyrir aukaíb. m/sér-
inng. Mjög stór og góður innb.
bílskúr. Garður er náttúru-
paradís á sumrin. 1267
Lundarbrekka - Gott verð Falleg íbúð
með góðum innréttingum á jarðhæð með
sérinngangi. I nýviðgerðu fjölbýli. Parket
og flísar. Sérþvottahús.Áhv. 3 millj. Verð
6,8 m. 1243
Austurbrún. Falleg og sérstök, vel
skipulögð ca. 80 fm risaribúð í fallegu
þrfbýli. Parket og flísar. V. 7,6 m. 1173
Þverholt - Mos - Byggsj. Falleg 100 fm
penthouse íbúð I góðu nýlegu fjölbýli.
Mikil lofthæð. Öll þjónusta við hendina.
Sérstök og spennandi íbúð. Áhv. 5,1 millj.
Greiðslub. 25. þús á mán. Verð 7,3 m.
1242
Skipholt Falleg og vel skipulögð 84 fm
íbúð á 2. hæð í mjög góðu fjölbýlishúsi.
Nýtt eldhús og parket. Vestursvalir, góður
staður. Áhv. 4 m. 1235
Leirubakki - Gott verð. Skemmtilega
skipulögð 93 fm íbúð með parketi. Sér
þvottahús oa fráb. útsýni. Hús viðgert.
Suðursvalir. Áhv. 2,9 m í byggsj. V. 6,9 m.
1099
einb./raðhús
Vesturbrún - stórglæsilegt!!
Vorum að fá I sölu mjög fallegt, vel
hannað og sérstaklega vel innréttað
parhús á þessum eftirsótta stað í
hjarta Reykjavíkur. Glæsilegar inn-
réttingar og skemmtileg hönnun eru
aðalsmerki hússins sem er á allan
hátt mjög glæsiiegt. Parket og flísar
á öllum gólfum. Glæsilegur garðskáli
fylgir og setur punktinn yfir lið. 1275
Lestu þetta!
★Ákveðinn kaupandi (trésmiður) óskar eftir 4-5herb. íbúð á
Reykjavíkursv. á verðinu 7-11m. Má þarfnast verulegra
lagfæringa eða vera tilbúin undir tréverk. Uppl. Kjartan.
★Vantar gott einbýlishús á verðb. 17-25 m.
vestan Elliðaáa fyrir fjársterkan kaupanda.
Eignaskiptj. Uppl. Lárus.
★Lækni, búsettar í Svíðþjóð vantar einbýli eða raðhús
í nágrenni Borgarspítala. Sterkur kaupandi.
Uppl. Þórir eða Lárus.
★Erum með gott raðhús í skiptum fyrir hæð eða
góða íbúð vestan Snorrabrautar í Reykjavík
fyrir fjársterkan aðila. Uppl. Lárus.
Eiðistorg Falleg 90 fm íbúð á jarð-
hæð með sérgarði í þessu vandaða
húsi. Parket og flísar á gólfum. Nýtt
baðherb. Gengið slétt inn frá garði en
svalir út frá stofu. Öll þjónusta til
staðar. V. 7,5 m. 1198
herbergja
Við seljum og seljum! Nú er hart í
ári. Allar tveggja herbergja íbúðimar
eru að verða uppumar og nú vantar
okkur nauðsynlega eignir á skrá strax.
Hringdu og við mætum, það ber
Stakkhamrar. Gullfallegt 205 fm ein-
býlishús með 40 fm bílskúr, hæð og hálf
jarðhæð sem býður upp á stækkunar-
möguleika. Massíft parket og mahogany
innréttingar, stór verönd og hellulagðar
stéttir. Fallegur garður og gott útsýni.
V15.9 m. 1171
Logafold - Gott raðhús. Nýlega komið í
sölu mjög gott og vel umgengið ca. 200
fm raðhús með innbyggðum bílskúr.
Húsið skiptist m.a. í 5 svefnh. stofu og
borðst. Góðar innr. parket og flísar.
Seljandi leitar eftir skiptum á stærri eign,
nærmiðbænum. 1264
í Foldahverfi Mjög falleg og einkar vel
staðsett einbýlishús við Logafold. Húsið
er ca 234 fm ásamt stórum bílskúr.
Sérsm. innr. Fallegur garður. Góð
staðsetning. Sjón sögu ríkari. 1100
hædír
Súlunes stótglæsilegt
vandað og fallegt einbýli með
tvöföldum bílskúr og stúdíó (búð. Hér
er engu til sparað, sérstök eign. 1271
Auðarstræti - stórglæsilegt!! Vorum
að fá I sölu þessa stórglæsilegu ca. 130
fm 6 herb. hæð og ris á þessum eftirsótta
stað í Norðurmýrinni. 4 svefnh. 2 stofur. 2
baðh. Mikið endurnýjuð. Þetta er drauma
íbúðin og draumastaðsetning. Hér þýðir
ekkert hik, hún stoppar ekkert þessi! Áhv.
5,3 m. I góðum lánum. Verð 10,2 m. 1258
Súluhólar - frábær íbúð!!!! Vorum að
fá í sölu gullfallega og mikið endumýjaða
ca. 90 fm íbúð á 1. hæð með góðum
suðursvölum. Góðar innr., parket og
flísar. Skoðaðu þessa, hún er frábær.
1256
Austurströnd - Ótrúlegt útsýni. Góð
íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi ásamt bilskýli og
þvottahúsi á hæðinni. Öll þjónusta og
Esjan, Akrafjallið og Skarðsheiðin við
hendina. Áhv. 1,4 m. í byggsj. Gott verð.
1248
Frostafold - Byggsj. 63 fm íbúð í góðu
lyftufjölbýli á 4. hæð. Suðursvalir, mjög
gott útsýni. Parket, þvottahús í íbúð. Áhv.
4 m. í Byggsj. V. 6,2 m. 1200
Erum fluttir í SKIPHOLT 50B, 2. hæð.
Nýtt SÍMANÚMER 561 9500