Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Arangur Völu Flosadóttur í stangarstökki
og þróun heimsmetsins innanhúss
VALA: 4,44 m
3,5
3,0-
V
Vorið 1994:
Yfir3,0 m
______-________
% | Fyrsta mót: 2,50 m
2,0 fA
Jan. '95: 3,63
Norðurlandamet
Mars 1994: Vala
stökk fyrst á stöng
Jan. '97: 4,20 m, NM
og heimsmet unglinga
Jan. '96: 3,82 m, NM
Jan. '96: 3,90 m, NM
Jan. '96: 4,00 m, NM
Feb. '96: 4,11 m, NM
Mars '96: 4,16 m, NM
Evrópumeistari innanh.
31/1: 4,26 m,NM
4/2: 4,35 m, EM
6/2: 4,42 m, HM
14/2: 4,44 m, HM
1994
1995
1996
1997
1998
■ KRISTJÁN Brooks knattspymu-
maður úr ÍR, stóð sig vel í leik með
norska liðinu Lyn um helgina, er
liðið lék æfmgaleik gegn Moss, 2:2.
Kristján skoraði bæði mörk liðsins.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson skoraði
eina mark Genk í 1:1 jafntefli við
Aalst á útivelli í belgísku 1. deild-
inni um helgina. Þórður kom Genk
yfir á 21. mínútu með marki sínu en
55 mínútum síðar jöfnuðu heima-
menn og þar við sat.
■ KRISTJÁN Finnbogason var í
marki skoska liðsins Ayr í 4. umferð
bikarkeppninnar um helgina. Ayr
sigraði þá Kilmarnock 2:0 og kemst
því í 5. umferð.
■ VILBORG Jóhannsdóttir úr
Tindastóli varð um helgina íslands-
meistari í sexþraut á Meistaramóti
íslands sem fór fram í Kaplakrika
og Baldurshaga. Vilborg fékk 4.040
stig og hjó nærri sex ára gömlu ís-
landsmeti Þuríðar Ingvarsdóttur
frá Selfossi, en það er 4.091 stig.
■ JÓN Arnar Magnússon úr Tinda-
stóli varð Islandsmeistari í sjö-
þraut, fékk 5.727 stig, sem er tals-
vert frá Islands- og Norðurlanda-
meti hans, 6.145 stig, en þess ber að
geta að Jón fékk sáralitla keppni. í
öðru sæti varð Ólafur Guðmunds-
FOLK
son, Selfossi, með 4.651 stig.
■ HAILE Gebrselassie setti um
helgina heimsmet í 2.000 m hlaupi
innanhúss á móti í Birmingham.
Eþíópíumaðurinn hljóp á 4.52,87
mín. Gamla metið átti Irinn Eamon
Coghlan, 4.54,07 mín. Það var sett
fyrir 11 árum.
■ JANINE Whitlock breski methaf-
inn í stangarstökki kvenna bætti
breska metið um 3 cm, stökk 4,21
m, á mótinu í Birmingham. Whit-
lock reyndi við 4,43 m sem þá var
tilraun við heimsmet en tókst ekki.
■ JONATHAN Edwards heimsmet-
hafa í þrístökki utanhúss frá Bret-
landi tókst loks um helgina að slá
breska metið í þrístökki innanhúss.
Það átti sér stað á mótinu góða í
Birmingham. Edwards stökk 17,64
og bætti 17 ára gamalt met Keith
Connors um 33 cm. f öðru sæti varð
Kúbumaðurinn Yoelvis Quesada
með 17,20 m.
■ EDWARDS er að taka þátt í sínu
fyrsta keppnistímbili innanhúss í
fimm ár og eftir mótið sagði hann
að árangurinn hefði komið á óvart
sökum þess að flensa hefði herjað á
hann síðustu dagana fyrir mótið.
„Nú horfi ég bjartsýnn fram á veg-
inn og stefni að guliverðlaunum á
EM í Valencia og kannski ég geri
atlögu að heimsmetinu innanhúss
áður en tímabilinu lýkur.“ sagði Ed-
wards að mótinu loknu.
■ EINAR Karl Hjartarson íslands-
methafi í hástökki innanhúss úr ÍR
stökk 2,04 m og hafnaði í 5. sæti á
Opna sænska meistaramótinu um
helgina. Er það 12 cm frá metinu
sem hann setti í Laugardalshöll
fyrir 10 dögum.
■ STEFFI Graf hefur verið frá
keppni í tennis sl. átta mánuði
vegna meiðsla. Nú vonast hún til
þess að hafa fengið bót meina sinna
og keppir þess vegna á opnu tvíliða-
leiksmóti sem hófst í Hanover í
gær. Graf og félagi hennar Barbara
Rittner unnu þá Meike Babel og
Wiltrud Probst örugglega í tveimur
settum, 6:3, 6:1.
HETJUUÓD
W#ala Flosadóttir vekur hvar-
Wvetna athygli þai- sem hún
stekkur á stöng. „Hún er hávax-
in, fljót, íþróttamannslega byggð
og í henni býr hinn íslenski
kraftur," sagði sænska Aftonblad-
et á dögunum, eftir að hún setti
heimsmet; stökk 4,42 m í Bi-
elefeld í Þýskalandi.
Slæm meiðsl í baki
hrjáðu Völu í fyrra-
sumar og meginmark-
mið hennar fyrir Evr-
ópumeistaramótið,
sem fram fer eftir
tæpar tvær vikur, var að ná
heilsu. Það tókst og tvö heims-
met teljast líklega býsna góð
uppbót (!) - en hún er jarðbund-
in þrátt fyrir velgengni:
„...heimsmetið er þjálfaranum
fyrst og fremst að þakka, hann
er einstakur. Árangur sem þessi
kostai- mikið erfiði og þolinmæði
- þrotlausa vinnu. Ekki bara hjá
íjjróttamanninum heldur ekki
síður hjá þjálfaranum sem verð-
ur að hafa óþrjótandi þolinmæði
til viðbótar við yfirgripsmikla
þekkingu,“ sagði hún eftir áður-
nefnt metstökk.
VaJa og tékkneska stúlkan
Daniela Baitova hafa verið þær
bestu í Evi-ópu undanfarin miss-
eri en barátta þeirra hófst í
Stokkhólmi snemma árs 1996;
þegar stangarstökk kvenna var
keppnisgrein á Evrópumeistara-
móti í fyrsta skipti. Bartova var
þá talin langsigurstrangl egust en
Vala hafði betur; kom, sá og sigr-
aði. Þær hafa marga hildi háð síð-
an og verða að teljast líklegastai-
til að berjast um gullið á Evrópu-
meistaramótinu, þó auðvitað megi
ekki gleyma því að fleiri gera til-
kall til góðmálma á því móti.
Þjálfari Bartovu, Boteslaw Pa-
tera, sagði við Morgunblaðið eft-
ir að Vala setti heimsmetið um
daginn að sá árangur hennar
hefði ekki komið sér á óvart. Og
bætti reyndar við að hann teldi
að metið félli örugglega mjög
fljótlega. „Bartova, Baiakhonova
frá Úkraínu, Szemerédi frá Ung-
verjalandi og Vala geta allar gert
það hvenær sem er. Það kæmi
mér ekki á óvart þó heimsmet
Völu yrði bætt fyrir Evrópu-
meistaramótið, sem fer fram í
Valencia á Spáni í lok þessa
mánaðar." Segja má að hann hafi
hitt naglann á höfuðið, því metið
var tvíbætt á laugardag; fyrst
lærisveinn hans, í Prag, og Vala
skömmu síðar í Eskilstuna í Sví-
þjóð - fékk fregnir af afreki Bar-
tovu og var þá ekkert að tvínóna
við hlutina; bætti metið strax aft-
ur. Það sýnir mikinn andlegan
styi'k og ánægjulegt er hve Vala
er orðin örugg í keppni.
Ummæli Pateras, þjálfara
Bartovu, um Völu í Morgunblað-
inu á dögunum, eru athyglisverð:
„Vala er hávaxin - það kemur
henni mjög til góða. Ef hún yrði
svolítið h'kamlega sterkari en
hún er í dag og næði meiri
snerpu - meiri hraða - þá gæti
hún hæglega bætt heimsmetið
frekar; ég tel Völu reyndar geta
stokkið miklu hærra en hún hef-
ur þegar gert.“ Pateras þessi er
vonandi spámannlega vaxinn.
Frásagnir af Völu undanfarn-
ar vikur hafa verið sem samfellt
hetjuljóð. Megi shkur kveðskap-
ur hljóma sem lengst.
Skapti
Hallgrímsson
Vala sýnir mikinn
andlegan styrk og er
orðin örugg í keppni
Hafði körfuboltakonan JENNIFER BOUCEK ekki áhuga á að slá stigametið?
Spila alltaff
fýrir liðið
JENNIFER Boucek frá Bandaríkjunum hefur leikið vel með
liði Keflavíkur í vetur og í bikarúrslitaleiknum á laugardag-
inn átti hún mjög góðan leik, hitti úr 4 af 8 skotum innan
teigs, tveimur af þremur þriggja stiga skotum, og 13 af 14
vitaskotum rötuðu rétta leið. Auk þess tók hún 5 fráköst og
náði boltanum sex sinnum af ÍS-stúlkum. Jenny, eins og
hún er alltaf kölluð, er 24 ára, fædd 20. desember 1973 í
Nashville í Tennessee. Hún byrjaði snemma í íþróttum og
gat sér fljótlega gott orð í nokkrum greinum og má sem
dæmi nefna að hún fékk skólastyrk fyrir góða frammistöðu í
blaki og tennis. Áður en hún kom til Keflavíkur lék hún með
Cleveland Rockers í WNBA-deildinni, atvinnumannadeild
kvenna í Bandaríkjunum.
Jenny segist alltaf hafa verið
mjög virk og alla tíð verið í
mörgum íþróttum. Þegar hún var
^■■■1 19 ára sneri hún sér
Eftir alfarið að
Skúla Unnar körfuknattleik og
Sveinsson lagði aðrar íþróttir
á hilluna marg-
frægu. Hún hefur gert samning við
WNBA um að leika þar á ný í sum-
ar og fer utan um leið og keppnis-
tímabihnu lýkur hér á landi. Það
verður sem sagt ekkert frí hjá
henni. En hvernig stendur á að hún
kom til íslands? „Ég vildi fara á
einhvem stað sem ég myndi aldrei
koma á aftur. Það eru afskaplega
litlar líkur á að ég hefði komið til
íslands nema vegna körfuboltans
og því var þetta gullið tækifæri,"
segir Jennifer.
„Mér líkar afskaplega vel héma
og ég hef reynt að nýta tímann vel
og skoða eins mikið af landinu og
kostur er. Ég er í rauninni búin að
sjá talsvert mikið og líkar vel.“
Þú áttir stóran þátt í sigrinum á
laugardaginn, gerðir 27 stig og
þaraf 23 í fyrri hálfleik. Stigametið
í bikarúrslitaleik eru 33 stig - þú
hefur ekkert verið að hugsa um
það?
„íslendingar, og þá sérstaklega
Keflvíkingar, hafa gert svo mikið
fyrir mig og ég veit ekki hvemig ég
get endurgoldið þeim en vona að ég
Sigurður Valgeirsson
JENNIFER Boucek ásamt Ingimundi Guðjónssyni, ungum
stuðningsmanni Keflavíkurliðsins, eftir bikarúrslitaleikinn.
hafi gert eitthvað þeim til ánægju í
úrslitaleiknum. Þetta er einstakt
land og þá er ég ekki bara að tala
um körfuboltann heldur þessa
miklu gleði hér. Við vildum virki-
lega vinna og stundum þegar vilj-
inn er of mikill er erfitt að byrja
leik en við héldum áfram og vörnin
var sterk, sem var lykillinn að
sigrinum. Við unnum því á vörninni
enda leggja stelpurnar mikið á sig
fyrir utan æfingar og það hefur
komið þeim alla þessa leið.
Annars spila ég alltaf fyrir liðið
og það skiptir mig ekki máli þó ég
skori ekki stig ef liðið mitt vinnur. I
fyrri hálfleiknum vai’ð ég að skjóta
talsvert vegna þess að stelpurnar
virtust eitthvað taugatrekktar. í
seinni hálfleik var leikur liðsins
eðlilegur og þá þurfti ég ekki að
skjóta. Ég vona að ég geti hjálpað
stelpunum þannig að þær verði
betri í körfubolta og þeim fer ekki
mikið fram ef ég er alltaf að
skjóta.“
Móðir þín, afí og amma auk móð-
ursystur þinnar fylgdust með bik-
arúrslitaleiknum. Var sigurinn ekki
sætari fyrir bragðið?
„Jú auðvitað. Þau hafa komið
nokkrum sinnum í vetur og finnst
frábært að vera hér. Helst af öllu
vilja þau að ég nái mér í íslending
til að þau geti komið hingað sem
oftast,“ segir Jenny glettin.
Talar þú einhverja íslensku?
„Nei, ekki ennþá, en ég er búin
að læra talsvert og ég skil dálítið.
Ég kann öll „ljótu“ orðin, enda lær-
ir maður þau fyrst. Ég er með
spólu sem ég ætla að læra íslensku
af og svo er bara að fá sér barna-
bækur og lesa,“ sagði Jennifer.