Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 B 3
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Vala Flosadóttir bætti heimsmetið í stangarstökki í annað sinn á átta dögum
Lá á dýnunni og
horfði á rána titra
Hasse Sjögren
VALA Flosadóttir yfir ránni f metstökki sínu.
VALA Flosadóttir, frjálsíþrótta-
kona úr ÍR, bætti enn heims-
metið í stangarstökki innanhúss
um helgina. Hún stökk 4,44
metra á sænska meistaramótinu
í Eskilstuna á laugardag og
bætti hálfrar klukkustundar
gamalt met Danielu Bartovu um
einn sentímetra. „Þetta var
ótrúlegt og tilfinningin var jafn-
vel enn betri en þegar ég setti
heimsmetið í Bielefeld fyrir viku.
Ég fór yfir í annarri tilraun og
kom aðeins við rána á niðurleið.
Ég lá síðan á dýnunni og horfði
á rána titra fyrir ofan mig, en
hún hætti því og hékk uppi og
heimsmetið var mitt aftur,“
sagði Vala við Morgunblaðið.
Byrjunarhæð Völu var 3,93 metr-
ar, síðan lét hún hækka upp í
4,13 metra og síðan 4,30 og fór yfír í
fyrstu tilraun. „Þegar ég var búin að
stökkva fyrsta stökk-
Valur B. ið (3,93m) var til-
Jónatansson kynnt í hátalarakerf-
skrilar jnu j íþróttahöllinni
að Bartova hafi bætt
heimsmetið mitt um einn sentímetra.
Ég hugsaði til hennar og klappaði
fyrh- henni. Þessar fréttir voru um
leið mikil hvatning fyrir mig að ná
metinu aftur. Ég vai' ákveðin í að
endurheimta metið og lét hækka í
4,44 eftir að ég hafði stokkið auðveld-
lega yfír 4,30 metra,“ sagði Vala.
Hún felldi á uppleið í fyrstu tilraun,
en í næstu tilraun fór hún vel yfir en
kom aðeins við rána á niðurleið. Ráin
titraði aðeins og hékk síðan uppi og
Vala gat fagnað heimsmeti öðru sinni
á átta dögum. „Það var erfið bið á
dýnunni meðan ráin titraði. Þegar
Ijóst var að hún hékk uppi hljóp þjúlf-
arinn til mín og fagnaði með mér.
Það var yndislegt að upplifa það að
setja heimsmet aftur. Ég missti met-
ið í hálfa klukkustund," sagði Vala.
20 áhorfendur
Hún sagði að keppnin í stangar-
stökkinu hefði dregist mjög á lang-
inn og hún hafi verið búin að bíða í
þrjár klukkustundir áður en hún hóf
keppni. „Þegar ég setti heimsmetið
um klukkan hálfátta um kvöldið voru
örfáir eftir í íþróttahöllinni, liðlega
20 áhorfendur. Það bjóst enginn við
þessu meti hjá mér,“ sagði hún.
„Þessi árangur gefur mér aukið
sjálfstraust fyrir Evrópumeistara-
mótið sem fram fer í Valencia á
Spáni í lok mánaðarins. Þar verður
hörkukeppni og ég er næstum viss
um að heimsmetið fellur þar. Hvort
það verður ég eða einhver önnur
sem bæti það skal ósagt látið. Ég
lofa engu, en geri ávallt mitt besta.“
Eftir að hún setti heimsmetið fór
Vala beint í viðtal við sænska ríkis-
sjónvarpið og í gær átti hún að mæta
í sérstakan þátt sem TV-4 í Svíþjóð
verður með um hana. Ágangur frétt-
manna hefur verið mikill. En hvern-
ig finnst henni að vera svona mikið í
sviðsljósinu. „Það er allt í lagi en
getur stundum verið þreytandi. Ég
held mér alveg á jörðinni. Þetta er
bara hluti af velgengninni og ég verð
að taka því eins og öðru.“
Þórey efnileg
Keppendur í stangarstökkinu í
Eskilstuna voru 25. Danska stúlkan
Mari Rassmussen, sem varð önnur,
setti danskt met og stökk 4,03
metra. Þórey Edda Elíasdóttir úr
FH keppti einnig á mótinu og stökk
3,88 metra og hafnaði í þriðja sæti.
„Hún á eftir að fara yfir fjóra metra,
það er aðeins spuming um tíma hjá
henni. Hún er að bæta sig jafnt og
þétt og það er gaman að önnur
íslensk stúlka skuli vera komin í
stangarstökkið," sagði Vala.
Vala er nú að hefja lokaundirbún-
ing sinn fyrir Evrópumótið. „Ég
mun æfa frekar létt fram að EM.
Mun leggja áherslu á að slípa tækn-
ina. Annars mun ég reyna að slappa
af og undirbúa mig vel andlega."
Hún býr í Lundi en keppti fyrir MAI
frá Malmö í Eskilstuna. Hún hefur
bætt árangur sinn um 24 sentímetra
á þessu ári. Heimsmetið utanhúss er
„Ég keppi
aldrei fýrir
Svíþjóð“
SÆNSKIR Qölmiðlar hafa fjall-
að mikið um Völu Flosadóttur
að undanförnu og vilja þeir að
hún gerist sænskur ríkisborg-
ari, enda hefur hún æft og búið
í Svíþjóð í fimm ár. „Ég er og
verð alltaf Islendingur og það
kemur ekki til greina að breyta
því. Þegar ég setti fyrst heims-
metið fyrir átta dögum sló
sænska dagblaðið Aftonbladet
því upp og sagði í fyrirsögn:
„Hún gæti orðið næsta ólymp-
fustjarna okkar.“ Nú er fyrir-
sögnin í sama blaði: „Ég keppi
aldrei fyrir Svíþjóð." Þetta er
mikii breyting á umfjöllun
blaðsins og ég er ánægð með
hana,“ sagði Vala við Morgun-
blaðið.
Vala segir í viðtali við sunnu-
dagsblað Aftonbladet að Tomas
Engdahl, yfirþjálfari sænska
kvennalandsliðsins, hafi komið
að tali við sig á dögunum og
sagt að nú þyrfti hún að fara að
velja milli Islands og Svíþjóðar.
„Ég sagði honum að ég væri
löngu búin að velja ísland.“
í eigu Emmu George frá Ástralíu og
er það 4,55 metrar. „Það er draum-
urinn að ná heimsmetinu utanhúss í
sumar,“ sagði Vala.
Góð afmælisgjöf
Vala varð tvítug í gær, mánudag,
og sagði hún að varla væri hægt að
hugsa sér betri afmælisgjöf en
heimsmet. Hún hefur fengið mörg
heillaskeyti frá íslandi og eins hafa
margir haft samband við hana til að
samgleðjast henni og óska henni til
hamingju með metið.