Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 B 11
Kraft-
arnir illa
nýttir
Ivar
Benediktsson
skrífar
Það var ekki rismikill hand-
knattleikur sem leikmenn
Stjörnunnar og Víkings sýndu í As-
garði á sunnudag-
inn. Stigin voru báð-
um liðum bráðnauð-
synleg, Stjörnu-
menn eru í harðri
baráttu við að komast í úrslita-
keppnina og Víkingar að berjast
fyiir tilverurétti sínum í deildinni.
Orðaskak og bamingur einkenndi
leikinn og alls voru leikmenn utan
vallar í 30 mínútur og varð það síst
til þess að auðvelda slökum dómur-
um leiksins að sinna starfí sínu.
Stjörnumenn fógnuðu sigri, 25:24,
en ónákvæmur leikur Víkings á
lokakaflanum ásamt því að dómar-
arnir horfðu framhjá vítakastsdómi
9 sekúndum fyrir leikslok varð
næstneðsta liði deildarinnar að
falli.
Stjaman hafði frumkvæðið í
leiknum nær allan fyni hálfleik.
Leikur þeirra var hins vegar ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir, vörnin
var slök og sóknarleikurinn oft og
tíðum ómarkviss. Víkingar gerðu
sig seka um fjölda mistaka og köst-
uðu frá sér mörgum tækifærum til
að ná yfirhöndinni. M.a. fóm tvö
hraðaupphlaup í súginn í stöðunni
6:5 fyrir heimamenn. Sóknarleikur
Víkings var oft og tíðum handa-
hófskenndur og leikmenn Stjörn-
unnar fengu fjölda hraðaupphlaupa
sem flest enduðu með marki sem
varð þess valdandi að forystan var
þeirra í hálfleik, 14:12.
Stjörnumenn virtust í upphafí
síðari hálfleiks vera að ná tökum á
leiknum og náðu snemma fjögurra
marka forskoti, 17:13. En fljótlega
fjaraði út og leikurinn fór í sama
fax-ið og áður. Er við bættist að
leikmenn liðsins tóku að mótmæla
flestu því sem á gekk í leiknum, var
það ekki til að bæta úr skák. Vík-
ingar gengu á lagið og jöfnuðu, en
vantaði herslumuninn á að brjóta
ísinn og komast yfu-. Loks tókst
það í stöðunni 23:22 og rúmar sjö
mínútur voru eftir. Þá höfðu
Stjörnumenn misst þjálfara sinn
og besta leikmann af leikvelli með
rautt spjald. Adam var ekki lengi í
Paradís þeirra Víkinga því Stjöm-
unni tókst að komast yfír á ný
24:23. Hilmar Þórlindsson skoraði
síðan sigui-markið 30 sekúndum
fyrir leikslok úr vítakasti. Víkingar
áttu reyndar síðustu sóknina og
hefðu að réttu átt að fá vítakast
þegar 9 sekúndur voru eftir er
brotið var á Hjalta Gylfasyni innan
vítateigs, en dómurum leiksins
þótti greinilega nóg komið og létu
aukakast duga.
Kveikjuþráðurinn í mörgum
leikmönnum Stjörnunnar var stutt-
ur í þessum leik og ljóst að þar á
bæ ríkir engin gleði með stöðuna í
deildinni. Á hreinu er að leikmenn
liðsins verða allir sem einn að gera
betur ætli þeir sér að halda sér inni
í úrslitakeppninni, það tekst ekki
með viðlíka framgöngu og að þessu
sinni.
■ Úrslít / B14
■ Staðan / B14
Sigmar Þröstur
hetja Eyjamanna
FOLK
■ MAGNÚS Sigmundsson lék ekki
í marki Hauka á sunnudaginn en
hann var með flensu. í hans stað
kom Sigurður Sv. Sigurðsson og
varði tvö skot þann stutta tíma sem
hann var inná undir lok leiksins.
■ OLEG Titov, línumaðurinn
snjalli hjá Fram, fékk blómvönd.
fyrir leikinn fyrir 100 leiki með fé-
laginu. Blómaleikurinn var raunar
bikarúrslitaleikurinn um fyrri
helgi, en forráðamenn félagsins
vildu ekki auka á taugaspennu leik-
manna með því að afhenda honum
blómin í Laugardalshöllinni.
■ JÚLÍUS Gunnarsson skytta úr
Val brotnaði á þumalfíngri vinstri
handar í síðasta skoti sínu í bikar-
úrslitaleiknum. Hann verður frá í 5
til 6 vikur.
■ INGVAR Þ. Sverrisson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir meistara-
flokk Vals í leiknum gegn Breiða-
bliki á sunnudaginn. Fyrir það
fékk hann hefðbundna viðurkenn-
ingu frá félögum sínum - rassskell.
■ ÓLAFUR Ingimundarson fékk
tækifæri til að láta Ijós sitt skína á
sunnudaginn þegar hann kom inná
hjá Breiðabliki sem varamark-
vörður fyrir Elvar Guðmundsson,
sem missti linsu. Ólafur er 49 ára
og var inná í tvær mínútur.
■ SIGMAR Þröstur Óskarsson,
markvörður IBV, gerði glæsilegt
mark í leiknum gegn FH. Hann
komst inn í sendingu FH-inga,
brunaði fram og setti knöttinn í
netið framhjá Lee í marki FH.
■ ALEXEI Trúfan lék með Vík-
ingi á ný eftir nokkurt hlé sem
hann tók í framhaldi af að hann var
leystur undan samningi sem þjálf-
ari liðsins fyrr á þessu ári. Trúfan
lék eingöngu í vöminni og kom
fyrst við sögu eftir tæplega 11 mín-
útur og var það sem eftir var í
vörninni.
■ FJÓRIR leikmenn Stjörnunnar
voru reknir af leikvelli fyrir mót-
mæli í leiknum gegn Víkingi, þar
af þrír sem mótmæltu dómum þeg-
ar Stjarnan var í sókn.
Framarar í annað sætið
SIGMAR Þröstur Óskarsson
var hetja ÍBV þegar liðið sigr-
aði FH í gærkvöldi, 23:26.
Leikurinn var mjög jafn og
segja má að einstaklings-
framtak Sigmars Þrastar hafi
ráðið því að sigurinn féll
Eyjamönnum í skaut en ekki
FH-ingum.
Fyrri hálfleikur var ágætlega
leikinn og sáust skemmtileg til-
þrif hjá leikmönnum beggja liða.
FH-ingar virtust
BorgarÞór hafa frumkvæðið en
Einarsson Eyjamenn gáfu ekk-
skrifar ert eftir. Varnir
beggja liða voru
sterkar og nýttu liðin sér það til
hraðaupphlaupa. Sérstaklega voru
upphlaup FH-inga vel útfærð og
skoraði liðið helming tólf marka
sinna í fyrri hálfleik úr hraðaupp-
hlaupum.
Síðari hálfleikur var ekki eins vel
leikinn en ívið fjörugi'i ef eitthvað
var. Meiri óþolinmæði gætti í sókn-
arleiknum og varnarleikurinn var
ekki eins agaður. Sigmar Þröstur
hafði greinilega haft gott af leik-
hléinu og varði eins og berserkur í
seinni hálfleik. Hann stöðvaði
einnig ófá hraðaupphlaup FH og
kórónaði leik sinn með glæsilegu
marki eftir að hafa komist í send-
ingu og brunað fram í sókn. Þegar
leið á hálfleikinn færðust leikmenn
ÍBV allir í aukana en FH-ingar virt-
ust slegnir út af laginu og gerðu sig
seka um ótímabær skot og óvandað-
ar sendingar.
Þegar staðan var 22:22 og FH-
ingar í sókn var einum Eyjamanni
vikið af leikvelli og virtust heima-
menn standa með pálmann í hönd-
unum. En þeim tókst ekki að nýta
liðsmuninn betur en svo að Eyja-
menn náðu tveggja marka forystu
einum leikmanni færri. Segja má að
úrslit leiksins hafi í raun ráðist á
þessum kafla. Á lokamínútunum
gerðu FH-ingar örvæntingarfullar
tilraunir til að jafna leikinn en allt
kom fyrir ekki og fögnuðu Eyja-
menn innilega í leikslok.
Hjá FH-ingum var Lee mark-
vörður bestur og verður honum
ekki kennt um tapið. Lið FH lék vel
framan ef en leikmenn virtust missa
einbeitingu þegar leið á leikinn.
Eins og fyrr segir var Sigmar
Þröstur besti maður IBV en auk
hans léku Svavar Vignisson og
Zoltán Belanyi vel. Sigmar Þröstur
var að vonum ánægður að leik lokn-
um: „Við reyndum að koma í veg
fyrir hraðaupphlaup þeirra f síðari
hálfleik og þá fór þetta að ganga.
Ég var nú eiginlega mest hræddur
um að Lee myndi skora hjá mér,
þannig að ég svaraði bara fyrir mig
- fyrirfram!
Morgunblaðið/Ásdís
GÚSTAF Bjarnason skoraði eitt af fimm mörkum sínum af línu gegn Fram.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Þrátt fyrir afleita byrjun tókst
Fram að leggja Hauka 26:22
og færast með því upp í annað sæt-
ið, fjórum stigum á
eftir Aftureldingu
en Safamýrarliðið á
leik til góða. Hauk-
amir byrjuðu sér-
lega vel, komust í 4:0 áður en Fram
tókst að skora fyrsta markið eftir 7
mínútur og 25 sekúndur. Eftir
markið vöknuðu heimamenn til
lífsins í vörninni en sóknin var
áfram heldur losaraleg og næsta
mark kom ekki fyrr en eftir 6 mín-
útur og 20 sekúndur og þá hafði
Framliðið lokið níu sóknum og að-
eins gert eitt mark.
Guðmundur Guðjónsson, þjálfari
Fram, tók leikhlé þegar staðan var
6:2 og gafst það vel því heimamenn
jöfnuðu 7:7 er leikið hafði verið í 21
mínútu og komust síðan 10:8 yfir.
Haukar léku illa á þessum kafla,
gerðu aðeins eitt mark í níu mínút-
ur en tókst að jafna 11:11 fyrir
leikhlé með tveimur síðustu mörk-
um hálfleiksins.
Upphaf síðari hálfleiks var nærri
endurtekning á þeim fyrri. Heima-
menn gerðu reyndar fyrsta markið
en gestirnir luku fímm fyrstu sókn-
unum með marki og komust í
14:12. Framarar breyttu stöðunni
úr 17:18 í 20:18 á níu mínútna kafla
og síðan 23:19 þegar fimm mínútur
voru eftir og nú leygðu þeir þeim
rauðklæddu ekki að jafna.
Framarar léku ágætlega ef
fyrstu mínúturnar eru undanskild-
ar. Vörnin var sterk og Reynir Þór
Reynisson varði vel og í sókninni
voru þeir sprækir og hugmynda-
ríkir. Hornamennirnir, Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson og Njörður
Árnason, nýttust vel. Daði náði sér
ágætlega á strik eftir hlé auk þess
sem Guðmundur Helgi Pálsson átti
fínan leik og Oleg Titov bregst
varla þegar hann fær færi.
Leikur Hauka var dálítið brokk-
gengur. Vörnin lék ágætlega á
köflum en þess á milli voru leik-
menn ekki nægilega vel á verði.
Sóknin var fín á köflum, boltinn
gekk vel manna á milli og mikil
hreyfing var á leikmönnum, en síð-
an komu langir kaflar þar sem eng-
inn virtist vita hvað átti að gera.
Vörn Fram var reyndar nokkuð
sterk og það háði sókn Hauka að
þegar nálgaðist leikleysu urðu
skytturnar oft að skjóta úr vonlitlu
færi. Bjami Frostason byrjaði
mjög vel og náði sér síðan aftur á
strik í upphafi síðari hálfleiks.
Gústaf Bjarnason var öruggur á
línunni og Halldór Ingólfsson átti
fínan leik, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Einar Gunnarsson lék talsvert
og hefði að ósekju mátt skjóta oft-
ar.