Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 29.03.1998, Síða 22
22 E SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ CRUFTS HUNDASÝNINGIN í BRETLANDI TUTTUGU Þúsunn HUNDAR ___Ein þekktasta og stærsta hundasýning heims, Crufts, var haldin fyrir skömmu í Bretlandi í 95. sinn. Guðbjörg Helgadóttir fór á sýninguna, sem er haldin árlega. Gesti bar víða að, meðal annars frá ✓ Islandi og einn keppenda á sýning- unni var ung, íslensk stúlka. AUÐUR Sif á hlaupum með Dellu, írsku setter- tíkina sem hún sýndi. Morgunblaðið/Guðbjörg Helgadóttir AUÐUR Sif með uppáhaldstegundinni sinni Chow Chow. MARGIR voru þreyttir eftir langan dag, bæði hundar og eigendur þeirra. HLUTI af sýningarsvæðinu, í einni af flmm sýningarhöllum. BRESKI herinn sýndi starfsemi hundadeild- ar sinnar. s IGEGNUM árin hefur hóp- ur íslendinga er áhuga hef- ur á hundarækt og hunda- mennsku heimsótt Crufts til að sjá það markverðasta sem er að gerast í breskri hunda- rækt sem þykir ein sú fremsta í heiminum, ásamt því að hitta fólk sem deilir því gefandi og mann- bætandi áhugamáli sem hunda- eign er. Sýningin stendur alltaf yf- ir í fjóra daga, frá fimmtudegi til sunnudags. I ár voru sýndir ' 20.892 hundar sem er örlítil fjölg- un frá fyrri árum, en árið 1991 var metár með yfir 25.000 hunda. Fyrsta daginn voru dæmdir hundar er tilheyra svokölluðum „working" flokki, en það eru teg- ■ undir eins og Schaeffer og Collie sem eru fjárhundategundir, einnig sleðahundar og stórar tegundir '*'eins og Rottweiler og Mastiff. Annan daginn var dæmt í „terrier og hound“. Þeim hópi tilheyra all- ar terrier-tegundir, Afghan Borzoi, Saluki og fleiri vindhunda- tegundir. Þriðja daginn var svo „toy og utility" en þar eru smá- hundategundir eins og Minature pinscher og Pekinghundar, flest allir kjölturakkar. Utility hópnum tilheyra ýmsar tegundir eins og Púðlar, Dalmatíuhundar og Spitz- hundar. Og að lokum á sunnudeg- inum var svo „gundog" hópurinn, en það eru þær tegundir sem flokkast sem veiðihundar og flest- ir kannast við. Tegundir eins og *Retrieverar, Setterar, Pointerar og Spanielar. Einnig fóru allar úr- slitakeppnir fram á sunnudeginum og sýningunni lauk að venju með vali á besta hundi sýningar. 15 ára fulltrúi íslands Það sem kannski var sérstakt í augum hundaáhugafólks á Islandi var, að í þessa ferð fór 15 ára ís- lensk stúlka, Auður Sif Sigur- geirsdóttir, sem keppti fyrir ís- lands hönd í fyrsta skipti á Crufts sem „ungur sýnandi". Aðdragandi *þess að Auður Sif fór út er sá, að hún hefur keppt hér heima á hundasýningum með glæsilegum árangri. Hún var besti ungi sýn- andi ársins 1996 og stigahæsti ungi sýnandi ársins 1997. Slátur- félag Suðurlands, innflytjandi „Pedigree" á íslandi styrkti hana fararinnar en „Pedigree pet- food“ er styrktaraðili ungi-a sýnenda á Crufts. „International Junior handling" keppnin er fyrir krakka á aldrin- um 8-18 ára og þau 30 börn sem tóku þátt að þessu sinni höfðu öll unnið til titilsins „Besti ungi sýn- andi ársins" í sínu heimalandi. Keppnin felst í því að krakkarnir sýna hunda eins og gert er á hefð- bundnum hundasýningum. Ekki er tekið tillit til útlits hundsins heldur er sýnandinn dæmdur með tilliti til hversu vel og rétt hann ber sig við viðkomandi hundateg- und. Hundar eru sýndir á mjög mis- jafnan hátt eftir tegundum en markmiðið er í öllum tilfellum að hundurinn beri sig sem best þannig að dómari geti skoðað hann vel og gefið honum dóm með tilliti til þess ræktunarmarkmiðs sem gefið er út á viðkomandi teg- und. Þetta getur verið vandasamt verk fyrir þá sem ekki hafa gert þetta áður, en góður árangur næst með vinnu og þolinmæði. Auður Sif var því að vonum glöð að fá þetta tækifæri því það er ekki sjálfgefið að ná svo langt í keppni sem þessari og er þetta stór draumur þúsunda barna um allan heim. Skipulag „Pedigree" var til fyr- irmyndar í alla staði og allt gert til að dvöl krakkanna og fylgdar- manna þeirra væri sem ánægju- legust. Gist var á Stakis Metropol hótelinu sem er glæsihótel í göngufæri við sýningarsvæðið. Kveðja frá íslenskum hundavinum A fimmtudagskvöldinu var öll- um krökkunum boðið til kvöld- verðar í boði breska hundaræktar- félagsins. Þar gafst þeim tækifæri á að kynnast, og hvert og eitt stóð upp og hélt smá ræðu. Auður Sif stóð sig frábærlega er hún flutti sína ræðu á ensku. Hún þakkaði sérstaklega Sláturfélaginu og Pedigree fyrir að veita sér þetta tækifæri. Einnig þakkaði hún Hundaræktarfélagi Islands og bar kveðjur frá öllum hundavinum heima á Islandi. Gaman var að sjá hversu örugglega og prúðmann- lega hún bar sig, þegar hún hélt ræðu á ensku aðeins 15 ára gömul. Þótt samkeppni sé mikil í svona keppni var samkenndin ríkjandi meðal krakkana og öll óskuðu þau hvert öðru góðs gengis. Eftir kvöldverðinn skiptust krakkarnir á litlum gjöfum sem hver kom með frá sínu heimalandi og gaf Auður Sif hverju og einu lítinn hraunstein merktan Hundarækt- arfélagi íslands. Þessi þjóðlega gjöf vakti mikla athygli. Hundrað þúsund gestir Fram að keppni á sunnudegin- um gafst tími til að skoða sýning- una. Sýningarsvæðið er geysilega stórt og búið að bæta við enn einni sýningarhöllinni þannig að nú eru þær alls fimm. Búist var við 100.000 gestum þessa fjóra daga. Þess má til gamans geta að fjöl- mennustu hundategundirnar sem sýndar voru í ár voru Bearded collie eða skeggjakolur eins og hann nefnist á íslensku, þar á eftir kom Staffordshire bull terrier, síðan Afganhundar, því næst Ca- valier king Charles spaniel sem er vinsæl hundategund hér á Islandi, svo Lhasa Apso og Golden retri- ever sem er ein af vinsælustu teg- undum heims. A sýningu sem Crufts sér mað- ur rjómann í breskri hundarækt, sem er ein sú fremsta í heimi. All- ir helstu dómarar eru að störfum og þykir mikill heiður að fá að dæma á Crufts. Einn dómari sagði greinarhöfundi, að venjulega bær- ist boð um að dæma með fjögurra ára fyrirvara, og væri viðkomandi beðinn að halda því algjörlega leyndu, til að ekki kæmi til hags- munaárekstra milli ræktenda. Þetta er jú hörð samkeppni. En fyrir utan dómhringina var margt markvert að sjá og entust varla dagarnir til að komast yfir allt sem í boði var. Hundaeign og almenn gælu- dýraeign er mjög mikil í Bret- landi. Því var geysilega mikið af sölubásum og nánast hægt að kaupa allt sem viðkemur hunda- mennsku. Einnig settu fóðurfram- leiðendur stóran svip á sýninguna. En allskonar samtök, þ.á m. dýra- verndunarsamtök, höfðu mesta aðdráttaraflið. Mikið er gert til að fræða almenning um þá ábyrgð sem fylgir hundaeign en stórum hópi hunda er komið fyrir í „hunda- athvörfum" í Bretlandi á ári hverju. Astæðan er sú að fólk fær leiða á „leikfanginu“ og losar sig við það. Þetta er sorgleg stað- reynd og almenn, jafnvel hér á Is- landi. Markmið allra þessara sam- taka er að finna hundunum aftur góð heimili, enginn hundur er svæfður, allir hafa þeir jafnan rétt á að lifa. Fyrir tveimur árum fór breska hundaræktarfélagið af stað með herferð vegna örmerkinga í gælu- dýrum. Hefur það gefist svo vel að nú eru um 500.000 gæludýr ör- merkt í landinu og dýralæknar, hundaeftirlitsmenn og dýravernd- unarsamtök hafa öll tæki til að lesa merkingarnar svo hægt sé að koma týndu gæludýri eins fljótt og mögulegt er til eiganda síns. Bretar eru einnig meðvitaðir um hvers hundurinn er megnugur. Nokkuð sem Islendingar ættu að taka sér til fyrirmyndar. Stórkost- legt var að sjá hvernig hundurinn er notaður við fíkniefna- og sprengjuleit. I breska hernum er hann ómissandi hjálpartæki og blindir og fatlaðir telja það sjálf- sagðan hlut að hafa hund sér til aðstoðar. Allstaðar eru þessir hundar velkomnir, s.s. í strætis- vögnum, verslunum og bönkum. Samband manns og hunds Gaman var að fylgjast með keppni í hundafimi og hlýðni. Þar sér maður þetta sterka samband sem er milli manns og hunds. Hundurinn er í eðli sínu félags- vera og honum er eðlilegt að þóknast húsbónda sínum og það var frábært að sjá hann vinna af gleði. Barna og unglingadeild breska hundaræktarfélagsins „The Kenn- el club junior organisation" setti stóran svip á sýninguna og var með sinn eigin sýningarhring. Deildin er á sínu 13. starfsári og félagar eru yfír 7000 á aldrinum 8- 18 ára. Unglingadeildin er opin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.