Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 24

Morgunblaðið - 29.03.1998, Side 24
24 E SUNNUDAGUR 29. MARZ1998 MORGUNBLAÐIÐ Græddur er geymd- ur eyrir > Bankar, sparisjóðsbækur, verðbréf, gengi gjaldmiðla, myntslátta. Allt eru þetta orð, sem tilhevra daglegu lífi ---------^-------------- hvers manns. Otalinn er sá fjöldi, sem hefír af því framfæri að fjalla með ein- hverjum hætti um krónur þær og aura, sem fara um hendur manna í daglegum viðskiptum. Pétur Pétursson þulur fjall- ar um gamla mælieiningu allt frá fyrstu * árum landnáms, „aura“. Því orði virðist ofaukið, stjórnvöld hafa birt tilkynningu um að krónur einar hafí gildi. Aurum er útrýmt. SYNIR Kristjáns Guðmundssonar kaupmanns í Krónunni og eigin- konu hans, Sigrúnar Sveinsdóttur. Þeir voru stundum kallaðir „25 eyringarnir hans Kristjáns í Krónunni". Guðmundur var kaupmaður í Krónunni í Mávahlíð, Sigurður lengi bátsmaður á flaggskipi ís- lenska flotans „GuIlfossi“, Ríkharður Sveinn stúdent var kaupmaður á Vesturgötu og Björn kaupmaður við Mánagötu. Áívw// fið/vtt//#//// ■'/’///'// AUGLYSING Lands- bankans um söfnun skólabarna (Raf- skinna). SPARIBAUKUR Landsbanka íslands. HAUKUR pressari Guðmundsson með hjálpartæki sín. Hann safnaði 25 eyringum og hafði áhyggjur af falli krónunnar. Haukur vinur minn pressari hafði miklar áhyggjur af örlögum krónunnar. Hann kveið niðurlægingu henn- * ar og rýmandi gildi. Safnaði smá- mynt til þess að verjast fjárhagsá- föllum lækkandi gengis meðan kost- ur var. Það mun hafa verið um miðj- an sjötta áratug aldarinnar að Haukur ákvað að ganga á fund Bjarna Benediktssonar, sem þá var dóms- og menntamálaráðherra. Er- indi hans var að leita ásjár Bjarna og ráða í peningamálum. Haukur sagði: „Þeir segja strákarnir að krónan sé alltaf að lækka og verði bráðum ónýt. Gerðu það fyrir mig Bjarni minn. Reyndu að passa þetta. Eg segi þér satt það er ómögulegt að standa í þessu lengur. Það þýðir ekkert að vera að safna aurunum ef allt verður að engu. Ég er með fullt blikkbox suður á Vífíls- stöðum, sem hann Skúli geymir fýr- ir mig með límbandi utanum. Svo skulda ég í sjoppunni. Það má ekki eyðileggja þetta allt fyrir manni. Ég er kurteis maður og það er erfitt að bera pressudótið ef maður tapar svo öllu og krónan verður ónýt.“ Bjarni Benediktsson var skjótur til svars. Hann á að hafa sagt: „Ég lofa þér því, Haukur minn, að krón- an skal alltaf verða fjórir tuttuguog- fímmeyringar". Þegar Bjarni Benediktsson lét þessi orð falla hefir hann sjálfsgat talið að svo yrði um alla framtíð. Þótt glöggur væri sá hann ekki fyr- ir umsvif Seðlabankans og hagfræð- <•». inga, sem börðust við núllin, engu síður en Don Kíkóti vindmyllurnar. Munurinn var sá að hagfræðingun- um fórst líkt og galdranemanum í tónverki Dukas. Vandinn óx við hvert högg sem þeir greiddu til lausnar gengisvanda. Núllin, sem þeir stýfðu af gjaldmiðlinum til þess að auka virðingu fyrir íslensku krónunni komu aftur og „stikluðu mót straumi", engu síður en laxfisk- ur, sem leitar aftur í fossiðu kvið- pokatíðar. „Hinn skinandi, rauðleiti málmur“ Með þessum orðum er hið forn- norræna orð eyrir skýrt í íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magn- ússonar. Ná hafa peningafurstar þeir sem ráða Fáfnisarfi látið þau boð út ganga að þeir hyggist herja á föður- ^ arf sinn og fjársjóð tungunnar. Boða þeir afnám og gjöreyðingu orðs sem fylgt hefir þjóðinni allt frá landnámi, en er sjálft eldra og norræn- um þjóðum tungutamt austan Atlandsála, sem vestan. Fornar sagnir greina margar frá samskipt- um forfeðra Islend- inga, landnámsmanna, búsetu þeirra, atvinnu- háttum, vöruskiptum og verðlagningu. Eyrir og aurar koma jafnan við sögu, allt frá fyrstu tíð. Nú hafa þau tíðindi borist að fjár- málastjórn landsins hyggist afnema auratal en nefna krónur einar. Er því við borið að töl- um ógni aurar og af þeim sökum verði þeim synjað um rúm í talna- dálkum reiknistofu bankanna. Samtök auglýsinga- manna, Hjálmtýr Heið- dal og félagar hans, höfðu beðið mig að flytja einhverjar hug- leiðingar um auglýs- ingar fyrri tíðar og nafnkunna menn, brautryðjendur í þeirri grein. Mér þótti við hæfi að minnast langafa Hjálmtýs Þor- láks Johnson kaupmanns, sem var fyrstur reykvískra kaupmanna til þess að auglýsa með eftir minnileg- um hætti, „brjóstsykurinn ljúfa“ og „þjóðfrelsisviskýið" (þótt templari væri). Síðan vék ég talinu að Bólu- Hjálmari. Vakti athygli ungra manna á myndrænum ljóðum skáldsins, sem hugsaði í myndum. Vitnaði í ljóð Hjálmars því til sönn- unar: „Sjá nú hvað ég er beinaber, brjóstin visin og fólar kinnar" o.s.frv. Auglýsingamenn hurfu fljótlega að loknum fyrirlestri mínum að „þjóðfrelsisviskýi“ barþjónanna, en ég fylltist hofmóði og taldi mig geta boðið Landsbankanum tilsniðna sparifjárauglýsingu. Hún var, að mig minnir svolátandi: Haukur og Eyjólfur voru góð- kunningjar. Þeir hittust stundum í afgreiðslusal Landsbankans þegar þeir áttu erindi í sparisjóðinn. Þeir voru báðar sparsamir og höfðu fest sér vel í minni heilræði bankans: „Græddur er geymdur eyrir“. Eyjólfur spurði Hauk eitt sinn er þeir biðu afgreiðslu: Hvemig geng- ur þér að safna í bókina þína, Hauk- ur minn? Mér gengur vel, sagði Haukur. Ég er á blaðsíðu tvö. Það er gott sagði Eyjólfur. Um að gera að byrja smátt. Svo vitnaði hann í Sigurð Berndsen, frægan fjármálamann: Það er enginn vandi að verða miljóner. Bara að eyða minna en maður aflar ... „Sparnaður er upphaf auðs“. I Rafskinnu, auglýsingabók Gunnars Bachmanns mun hafa birst auglýsing bankans. Síðan mun Landsbanki Islands hafa hagnýtt sér hvatningu þessa er bankinn hafði forgöngu um að efla sparifjár- söfnun skólabarna. Snorri Sigfús- son fyrrverandi skólastjóri veitti forstöðu deild þeirri er hafði umsjón með átaki þessu. Guðjón Jónsson kennari frá Fagurhólsmýri var að- stoðarmaður Snorra og tók síðar við því starfi. Magni Guðmundsson, góðkunur kaupmaður og mynt- og frímerkjasafnari var hjálparmaður Snori’a um skeið. Hann minnist þess er próförk kom úr prentsmiðju með áprentuðu kjörorði sparifjár- söfnunarinnar, að þá hafði slæðst inn meinleg villa. Á blaðinu stóð skýrum stöfum „Grættur er geymd- ur eyrir“. Magni segist enn muna hve freistingin hafi verið mikil að láta sem ekkert væri og gefa grænt ljós á prentun upplagsins. En sam- viskusemin sigraði. Torfi Olafsson var um langt skeið gjaldkeri Landsbanka íslands, en síðar gjaldkeri og deildarstjóri Seðlabankans. Hann á í fórum sín- um sparibauk með áletrun orðanna „Græddur er geymdur eyrir“. Torfi veitti góðfúslega leyfi til þess að ljósmyndari Morgunblaðsins festi á filmu þennan sögufræga söfnunar- bauk, sem geymir í áletrun sinni orð, sem fylgdi landnámsmönnum, er þeir stigu fæti á fold. Kristján kaupmaður Guðmunds- son er minnisstæður Vesturbæing- um. Hann stóð dyggan vörð smá- kaupmannsins í verslun sinni um áratuga skeið. Deildi kjörum með stéttarbræðrum sínum, sem börð- ust dag hvern við misvitur verðlags- og innflutningsyfírvöld, misskilning viðskiptamanna, sem héldu margir hverjir að hver króna, sem í kass- ann kæmi væri hreinn ágóði kaup- mannsins og eyðslueyrir fjölskyld- unnar. Þegar KRON opnaði verslun í húsakynnum Þorsteins jámsmiðs Jónssonar á Vesturgötu 33 svaraði Kristján kaupmaður Guðmundsson með því að breyta heiti verslunar sinnar úr verslun er hann hafði nefnt sínu eigin nafni og ákvað, einmitt í þann mund, sem gengi krónunnar var fellt að lýsa hollustu sinni við íslenskan gjaldmiðil og nefna verslun sína: Verslunin Krón- an. Kristján hafði langan reynslu að baki. Árið 1924 hafði hann opnað verslun á Bergsstaðastíg, komst í góðar álnir, en lenti í klóm spek- úlanta, sem hann trúði fyrir all- stórri fjárhæð til vörukaupa erlend- is. Það varð Kristjáni dýrkeypt reynsla. Hann sá aldrei „eyrisvh’ði“ af upphæðinni, en tókst með hygg- indum og sjálfsafneitun, svo ekki sé gleymt iðjusemi og ráðdeild eigin- konunnar, Sigrúnar Sveinsdóttur, að komast í álnir að nýju og afla sér trausts í heimi viðskipta. Til þess var tekið af Vesturbæingum, sem fylgdust grannt með nágrönnum sínum, að Kristján þvoði sjálfur gólfið í búð sinni, að loknu löngu dagsverki og gerði hreint fyrir sín- um dyrum. Hann var árrisull. Þótti sjómönnum og öðrum dugnaðar- mönnum gott að koma við „hjá Stjána" og geta rætt og rabbað um aflabrögð og veðurhorfur. Bræður Hauks voru flestir góð- kunningjar mínir. Sverrir, seinna skósmiður var skólabróðir minn í Landakotsskóla. Sigurður ljós- myndari, góður félagi og stúkubróð- ir minn um skeið. Hann tók fjöl- margar ljósmyndir af öfiugri starf- semi ungra jafnaðarmanna meðan ég tók þátt í þeim samtökum, talkór FUJ, kröfugöngum, fjöldafundum og hverskyns atburðum. Sigurður var ljúfur maður og ósérhlífinn. Hamhleypa til verka. Lét ekki bæklun hamla sér í starfi. Óx ás- megin við erfiði. Benedikt var öðlingur. Allt lék í höndum hans. Listamannssál hans viðkvæm, en heimur hrjúfur. Benedikt lagði stund á málarahst, hélt sýningar á verkum sínum og hlaut lof margra. Hann vann lengi fyrir daglegu brauði sem kjötiðnaðarmaður, en stundaði síðar afgreiðslustörf. Hvarvetna var hann rómaður fyrir prúðmennsku og drengskap. Guð- mundur dömuklæðskeri var kunnur maður. Lengi miðdepill í sam- kvæmislífi bæjarins. Jafnan í fylgd fegurstu kvenna Reykjavíkur, um- kringdur tískudömum og dansmeyj- um og hárgreiðslumeistm-um. Þá var systir Clementsía í Landa- koti ekki síst þeirra systkina. Létt í spori í skósíðum nunnubúningi sín- um. Örugg í bílaumferð á rúg- brauðsbifreið Landakotsspítala. Fjöldi sagna er sagður um Hauk. Ein þeirra var um afmælisdag hjúkrunarkonu. Hún fagnaði fimm- tugsafmæli. Þá hlaup Haukur um alla ganga og hrópaði: „Nú er Þor- björg fimmtíu ára í dag. Kiukkan tólf í kvöld getur hún aldrei átt krakka."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.