Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Valur óstöðvandi
Framarar
áttu ekk-
ert svar
Þannig vörðu þeir
Laugardagur:
Reynir Þór Reynisson, Fram: 20/1 (þar af 5 þannig að knötturinn fór
aftur til mótherja) 10(2) langskot, 4 úr horrii, 3(2) eftir gegnumbrot,
2(1) af línu og 1 víti.
Guðmundur Hrafnkelsson, Val: 16/1 (þar af 8/1) þannig að
knötturinn fór aftur til mótherja) 10(2) langskot, 4(4) úr horni, 1(1) af
línu og 1(1) víti.
Mánudagur:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val: 15/1 (þaraf 6) þannig að knötturinn
fór aftur til mótherja. 7 (1) langskot, 2 (2) eftir gegnumbrot, 1
hraðaupphlaup, 3 (2) úr horni, 1 (1) af línu, 1 vítakast.
Reynir Þór Reynisson, Fram: 11 (þaraf 4) þannig að knötturinn fór
aftur til mótherja. 7 (3) langskot, 2 (1) úr horni, 2 af línu.
Þór Björnsson, Fram: 1 (þaraf 1) þannig að knötturinn fór aftur til
mótherja. 1(1) efth’ gegnumbrot.
VALSMENN héldu uppteknum
hætti frá fyrsta leiknum er
þeir mættu Frömurum öðru
sinni á Hlíðarenda á mánudag-
inn. Þeir léku sterka vörn og
spiluðu af yfirvegun í sókninni.
Virtust leikmenn Fram ekki
hafa nein svör á reiðum hönd-
um, þeir komust aðeins einu
sinni yfir, snemma leiks, en
áttu eftir það á brattann að
sækja og í raun má segja að
upp úr miðjum síðari hálfleik
hafi úrslitin verið ráðin. Vals-
menn innsigluðu annan vinn-
ing sinn í einvíginu með
þriggja marka sigri, 28:25,
sem var í raun öruggari en töl-
urnar gefa til kynna.
Þar með er ljóst að leikmenn
Fram verða að selja sig dýrt í
þriðja leiknum á heimavelli í kvöld
og ekkert annað en
jvar sigur dugir til þess að
Benediktsson sá leikur verði ekki sá
skrifar síðasti í þessari úr-
slitakeppni. Til þess
verða þeir að bæta ýmislegt, en þó
fyrst og fremst vamarleikinn sem
hefur verið nokkuð frá því sem
hann hefur oft best verið á keppnis-
tímabilinu. Einkum vantaði mikið
upp á í annarri viðureigninni að
vörnin væri sannfærandi enda segir
sóknarnýting Vals allt sem segja
þarf í því efni - mótspyrnan var lítil.
Fyi-stu tíu mínútur leiksins voru í
járnum en eftir það tóku Valsmenn
öll völd á vellinum. Léku sterka
flata vörn sem kom vel út móti
skyttum Framliðsins þannig að þær
fengu lítið ráðrúm, eins höfðu þeir
góðar gætur á þomamönunum,
einkum Sigurpáli Árna Aðalsteins-
syni í vinstra horninu. Sóknarleikur
Fram lenti hvað eftir annað á vegg
og fékk sig hvergi hreyft. Guð-
mundur Hrafnkelsson, markvörður
Vals, fór á kostum og varði nokkur
skot á afar auðveldan hátt, hrein-
lega greip þau og hafði lítið fyrir. A
sama tíma gekk sóknarleikur Vals
eins og í sögu. Staðan breyttist úr
5:4 Fram í hag í 10:5 Val í hag á níu
mínútna kafla. Þar með var grunn-
urinn lagður að forsytu sem Vals-
menn létu aldrei af hendi. Staðan í
hálfleik var 13:9 fyrir Val.
Sigfús Sigurðsson gaf tóninn fyr-
ir Val eftir rúma mínútu í síðari
hálfleik og undirstrikaði að ekkert
yrði gefíð eftir. Vörn heimamanna
var áfram sterk og gaf Oleg Titov
lítið rými til þess að vinna pláss fyr-
ir sig og félaga sína. Munurinn hélt
áfram að aukast og um miðjan hálf-
leikinn var staðan 22:15 og 25:18
þegar tíu mínútur voru eftir. A
lokakaflanum breytti Framliðið um
varnaraðferð, en slíkt er ekki dag-
legt brauð, lék 3-3 í stað 6-0. Það
sló á bitið í sókn Vals, en kom of
seint, munurínn var of mikill.
Breytti engu þótt vöm Vals gæfi
nokkuð eftir og Framarar næðu að-
eins að klóra í bakkann. Valsmenn
léku eins og þeir sem valdið hafa og
koma fullir sjálfstrausts í þriðja
leikinn á meðan enn harðnar á daln-
um hjá Safamýrarpiltum.
Ljóst er að Guðmundur Þ. Guð-
mundsson og lærisveinar hjá Fram
verða að bæta leik sinn verulega
jafnt í sókn og þá einkum í vörn til
þess að leikurinn í kvöld verði ekki
þeirra síðasti í einvíginu og Islands-
meistaratitillinn falli Valsmönnum í
skaut. Valsarar geta a.m.k. sætt
lagi, þeir eru ekki tilneyddir að
leggja fram sín tromp, það er ann-
arra að gera það. Slíkt er góð staða
en þó ekki þannig að menn megi
sofna á verðinum.
Morgunblaðið/Þorkell
Dans að
hætti
línumanna
LÍNUMENNIRNIR Sigfús Sigurðs-
son hjá Val og Framarinn Oleg
Titov hafa tekist á í leikjunum
tveimur og hingað til hefur Sig-
fús haft betur bæði í vörn og
sókn. Hér hefur hann snúið á
Titov og komist f færi í leiknum
á Hlfðarenda á mánudaginn.
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liðanna I úrslitunum,
leikinn í Framheimili 11. apríl 1998
Fram
Mörk Sóknir %
Valur
Mörk Sóknir %
10 8 18 27 37 F.h 10 24 33 S.h 11 51 35 Alls 21 26 24 50 38 46 42
10 Langskot 8
1 Gegnumbrot 3
3 Hraðaupphlaup 3
1 Horn 2
1 Lína 2
2 Viti 3
skrifar
Þrítugur
Valsham-
arinn nær
ókleifur
Valsmenn komu Frömurum í
opna skjöldu í fyrsta leik lið-
anna um íslandsbikarinn á laugar-
dag. Leikið var í Framhúsinu, þar
sem heimaliðið hefur verið illvið-
ráðanlegt í vetur, en nú var annað
upp á teningnum;
Skapti Valsmenn sigruðu
Haiigrimsson mjög örugglega,
21:18, og sýndu gam-
alkunnar sparihliðar:
léku frábæra vörn og markvarslan
var einnig góð. Reynir Þór í marki
heimaliðsins varði raunar fleiri
skot en Guðmundur Valsmaður, en
það dugði ekki til að þessu sinni.
Segja má að Valshamarinn, sem
reistur var við vítateiginn, hafi
reynst Frömuram nær ókleifur á
laugardag; lítið fór fyrir þeim
hraða og vel útfærða sóknarleik
sem þeir bláklæddu úr Safamýi’-
inni hafa gjarna boðið upp á í vet-
ur; Valsmenn höfðu allt að því lært
leikkerfi andstæðingsins utan að
og tóku vel á móti honum.
Segja verður Frömurum til
hróss að þeir léku einnig góða vörn
langtímum saman og Reynir var
góður í markinu, en sóknarnýting
liðsins var afspyrnuléleg - aðeins
35 af hundraði. Nýting Valsmanna
var ívið betri, þótt ekki væri hún til
að hrópa húrra fyrir, en Valsmenn
voru þó mun agaðri í sóknarað-
gerðum sínum. Taugar þeirra eru
greinilega sterkari þegar á reynir.
Leikurinn var nokkuð sveiflu-
kenndur; í tvígang gerðu Valsmenn
fjögur mörk í röð. I fyrra skiptið,
um miðbik fyrri hálfleiks, liðu um
tíu mínútur án þess að heimaliðið
næði að skora og fimm mínútur í
það síðara - eftir hlé.
Bæði lið léku flata vörn og tókst
vel upp, sem fyrr segir. Nánast
engin Framari náði sér hins vegar
á strik í sókn nema ef vera skyldi
Magnús Már í fyrri hálfleik og
Daði í þeim síðari. Valsmenn geta
einnig mun betur í sókn en þeir
sýndu. Jón Kristjánsson fór fyrir
sínum mönnum þegar liðið sótti og
hinn stórefnilegi Daníel Ragnars-
son var einnig góður. Þegar fylgst
er með honum virðist stundum sem
Boris Bjarni, Oskar, Jón og þeir
Valsmenn aðrii’ sem séð hafa um
drenginn, eftir að hann gekk til liðs
við Val frá Aftureldingu, hafi skellt
Ólafi Stefánssyni í ljósritunarvél!
SOKNARNYTING
Annar leikur liðanna í úrslitunum,
leikinn að Hiíðarenda 13. apríl 1998
Valur
Mörk Sóknir
Fram
Mörk Sóknir %
13 21 62 F.h 9 21 43
15 26 58 S.h 16 25 64
28 47 60 Alls 25 46 54
13 Langskot 9
2 Gegnumbrot 1
2 Hraðaupphlaup 3
1 Horn 3
9 Lína 4
1 Víti 5