Morgunblaðið - 21.04.1998, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 B 3
VALUR ÍSLANDSMEISTARI f HANDKNATTLEIK
wmmmmmuammmmmmmmmmaammmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmamMmammammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Ótrúleg sigurganga Vals
VALSMENN hafa átt ótrúlegri
velgengni að fagna síðasta áratug-
inn og rúmlega það. Félagið hefur
alls átta sinnum orðið Islands-
meistari á ellefu árum, fjórum
sinnum unnið bikarkeppnina og
tvisvar orðið deildarmeistari síðan
núverandi fyrirkomulag með úr-
slitakeppni var tekið upp árið 1992.
Þrjú þessara ára hefur Valur bæði
unnið Islandsmótið og bikarkeppn-
ina, 1987-88,1992-’93 og 1997-’98.
Eftir tvöfaldan sigur leiktíðina
1987- 88 undir stjóm Pólverjans
Stanislaws Madrowskis varð fé-
lagið Islandsmeistari árið eftir.
Sumarið 1989 tók Þorbjörn Jens-
son við þjálfun af Pólverjanum og
fagnaði bikarmeistaratitli
snemma árs 1990 en varð að bíta í
það súra epli að tapa fyrir FH í
úrslitaleik um meistaratitilinn í
Kaplakrika. Vorið 1991 vannst Is-
landsmeistaratitillinn en liðið
hafði áður hafnað í 2. sæti í deild-
arkeppninni. Tímabilið 1991 -’92
tókst Val ekki að komast í úrslita-
keppnina, hafnaði í 9. sæti í deild-
inni og tapaði fyrir FH í úrslita-
leik um bikarinn. Menn létu ekki
hugfallast eftir þetta magra tíma-
bil og árið eftir vann Valur alla
titla sem í boði voru, þ.e.a.s. deild-
ina, bikarinn og Islandsmótið.
Arið eftir tryggðu Valsmenn
sér á ný Islandsbikarinn eftir að
hafa hafnað í öðru sæti í deildinni
á eftir Haukum, sem síðar urðu
andstæðingar Vals í úrslitaleikj-
unum. Síðasta ár Þorbjörns Jens-
sonar með Val var leiktíðin 1994
til 1995. Þá vannst deildarmeist-
aratitillinn og Islandsmótið eftir
æsilega úrslitaleiki við KA. KA-
menn lögðu hins vegar Val í úr-
slitum bikarkeppninnar í ekki síð-
ur spennandi orrustu þótt styttri
væri.
Jón Kristjánsson tók við þjálf-
un af Þorbirni og skilaði strax Is-
landsmeistaratitli í safnið, þeim
nítjánda í sögu deildarinnar.
Keppnistímabilið á eftir,
1996-’97, var eitt fárra magurra |
ára og liðið féll úr í átta liða úr-
slitum í úrslitakeppninni fyrir
Haukum. Eins og ævinlega eftir
mögur ár hjá Val koma ár vel-
megunar eins og keppnistímabil-
ið í ár sannar.
Allt
ákveðið
í haust
Theodór Valsson hefur verið kjöl-
festan á miðjunni í hinni geysi-
sterku Valsvöm og hann var að von-
um kampakátur eftir að íslands-
meistaratitillinn var í höfn eftir sig-
ur á Fram í síðasta úrslitaleiknum á
laugardag. „Þetta var aUt ákveðið í
haust. Þá ákváðum við að vinna til
allra titlanna, en við klúðruðum ein-
um og getum engum kennt um
nema okkur sjálfum, við spiluðum
ekki nógu vel undir lok deildar-
keppninnar. í úrslitakeppninni töp-
uðum við tveimur leikjum og í leikn-
um við Fram á miðvikudaginn lék-
um við ömurlega og það má segja að
það tap hafi verið ágætis áminning.
Við skoðuðum leikinn vel og sáum
allar vitleysumar sem við vorum að
gera og ákváðum að gera bragarbót
þar á. Við trúum því allir að við sé-
um betri en Fram og það sýndi sig í
dag, þó svo að munurinn sé ekki eins
mikill á liðunum og markatalan seg-
ir.“
Nú hefur það lent mikið á þér og
Sigfúsi Sigurðssyni að hafa gætur á
Oleg Titov. Hvernig er að leika á
mótí honum?
„Það er allt í lagi. Hann er ekki
löglegasti línumaðurinn því hann er
mikið með olnbogana á lofti, hann er
ekkert penni en hver annar. Guð-
mundur [Guðmundsson, þjálfari
Fram] heíúr verið að búa til ein-
hverjar tröllasögur um að allir séu
að berja hann í klessu, en ég held
það sé rugl. Titov er sjálfur mjög
fastur fyrir og gefur ekkert eftir, en
hann er heiðarlegur leikmaður og ég
held að við höfum leikið heiðarlega á
móti honum.
Hann er það sterkur leikmaður að
það þurfa yflrleitt að vera tveir á
honum. Hann er klókur að snúa af
sér vamarmann og ef hann fær bolt-
ann og maður er einn á móti honum
þá er erfitt að stöðva hann nema að
hanga á honum og þá er maður rek-
inn útaf. Við náðum að leysa þetta
vel í öðram leiknum og aftur í dag,
því þá voram við alltaf komnir tveir
á móti honum og sá þriðji tilbúinn til
aðstoðar."
Þið voruð svo gott sem búnir að
gera út um leikinn uppúr miðjum
fyrri hálfleik. Hvað gerðist?
„Við voram bara miklu, miklu
ákveðnari en þeir og Framarar
komust eiginlega aldrei almennilega
í takt við leikinn. Við eram með
mjög sterka vörn og þegar við náum
að leika vel í vöminni þá ver Guð-
mundur [Hrafnkelsson] vel fyrir aft-
an okkur og í kjölfarið eram við yfir-
leitt fljótir fram og refsum mótherj-
um okkar strax.
Það er ekkert lið hér á landi sem
vinnur okkur þegar við náum að
leika vel. Við verðum svo bara að sjá
til hvort sænsku liðin geta það,“
sagði Theodór Valsson, sem heldur
til Svíþjóðar á morgun en þar taka
Valsmenn þátt í Norræna meistara-
mótinu í handknattleik.
Jón Kristjánsson íslandsmeistari með Val í 8. sinn á 10 árum
Morgublaðið/Kristinn
JÓN Kristjánsson fór fyrir sfnum mönnum með glæsibrag f úrslitakeppninni. Hér skorar hann eitt sex marka sinna á laugardag.
TiHinning sem
aldrei venst
Morgunblaðið/Kristinn
THEODÓR Vaisson er einn þeirra leikmanna sem ekki eru áber-
andi í Valsllðinu, en hann hefur gegnt afar dýrmætu hlutverki f
varnarleiknum; á honum hefur ekki sfst mætt að takast á vlð
Oleg Titov, rússneska Ifnumanninn hjá Fram.
„ÞAÐ er alltaf lagt upp með það hjá
Val að vinna Islandsmeistaratitil-
inn,“ segir Jón Kristjánsson þjálfari
sem stýrði Val til sigurs í annað sinn
á þremur áram sem þjálfari. „Eg var
þokkalega bjartsýnn í haust að það
mætti takast. Við voram á góðri leið
með að mynda nýtt lið eftir að hafa
misst fjóra leikmenn fyrir tveimur
áram. Eftir það urðum við að taka
upp annan leikstíl, sem fólst í mun
kerfisbundnari handknattleik en áð-
ur og þá um leið brotthvarf frá
frjálsum handknattleik sem hafði
verið aðal okkar síðustu ár.“
Valsmenn fóra ekki auðveldustu
leiðina í úrslitin, lögðu Aftureldingu
og KA, en bæði liðin urðu ofar í
deildarkeppninni og áttu heimaleikja
rétt. Valur blés á allt þess háttar,
vann Aftureldingu í tveimur leikjum
og KA-menn í oddaleik í KA-heimil-
inu. „Afturelding átti í vanda á þess-
um tíma en við voram í uppsveiflu
auk þess sem Aftureldingarliðið
hentaði okkur ágætlega.
KA-liðið var hins vegar sterkara
en ég átti von á, leikimir við það
vora þeir erfiðustu í úrslitakeppn-
inni. Leikirnir vora spennandi og
tóku vh'kilega á.“
Framliðið segir hann hafa verið
ágætan mótherja sem leiki kerfis-
bundið og hann hafi í raun ekki ótt-
ast þá veralega. „Til að byrja með
spáði ég mikið í hvemig væri best að
taka á móti þeim, hvort rétt væri að
breyta út af 6-0 vöminni sem við
höfðum leikið gegn UMFA og KA.
Eftir nokkra athugun ákvað ég að
halda sama striki því ég var sann-
færður um að stæðum við okkar vakt
áfram í 6-0 vörninni myndi það
duga.“
Jón sagði ennfremur að fyrsti leik-
urinn hefði verið lykilleikur og eftir
jafnan leik hafi hans mönnum tekist
að sigra og ná frumkvæði í einvíginu.
I öðram leiknum náðu þeir sér aldrei
á strik, en í þriðja leiknum vora þeir
ekki reiðubúnir í slaginn og töpuðu. I
fjórða leiknum gáfu þeir síðan ekk-
ert eftir.
Það er alltaf jafn gaman að standa
uppi sem sigurvegari, þetta er til-
finning sem aldrei venst, hversu
lengi sem maður stendur," sagði Jón
Kristjánsson sem leikið hefur tíu
keppnistímabil með Val og átta sinn-
um staðið uppi sem Islandsmeistari
með liðinu, fjórum sinnum deildar-
meistari og í fjórgang bikarmeistari.