Morgunblaðið - 21.04.1998, Side 9

Morgunblaðið - 21.04.1998, Side 9
1 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 B 9 KNATTSPYRNA Reuters VARAMAÐURINN Fabio Pecchia gerði mikilvægt mark fyrir Ju- ventus og samherjar hans kunnu vel að meta það. Mikilvægir varamenn Varamenn efstu liða ítölsku deild- arinnar voru í sviðsljósinu um helgina. Fabio Pecchia tryggði Ju- ventus 1:0 sigur á Empoli og Youri Djorkaeff braut ísinn með skalla- marki 10 mínútum fyrir leikslok þeg- ar Inter vann Udinese 2:0. Þegar fjórar umferðir eru eftir er Juve með 66 stig en Inter 65 og því má gera ráð fyrir mikilli spennu þegar liðin mætast í Tórínó um helg- ina. Marcello Líppi, þjálfari Juve, ákvað að taka franska landsliðs- manninn Zinedine Zidane af velli eft- ir klukkutíma leik og reyna Pecchia í staðinn. Tilraunin gaf þegar árang- ur; varamaðurinn Marcelo Zalayeta fékk boltann frá Alessio Tacchinardi og skallaði á Pecchia sem skoraði úr eina opna færi liðsins - setti boltann framhjá Marco Roccati í markinu með innanfótar spymu. Empoli hélt að Stefano Bianconi hefði jafnað sex mínútum síðar - að boltinn hefði ver- ið kominn yfir marklínuna þegar Angelo Peruzzi kom boltanum í burtu - en dómarinn var ekki á sama máli. Tacchinardi fékk gult spjald í annað sinn og þar með rautt níu mín- útum fyrir leikslok en Empoli tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og Juve hélt fengnum hlut. Udinese varð fyrst til að sigra Inter á tímabilinu og var nálægt því að endurtaka leikinn á San Siro. Oli- ver Bierhoff, sem tryggði liði sínu sigur á Inter í desember, átti góðan skalla að marki mótherjanna snemma leiks um helgina en heima- menn björguðu á línu og stundar- fjórðungi fyrir leikslok skaut hann í stöng. Luigi Turci, markvörður Udi- nese, kom í veg fyrir að Taribo West og Ze Elias skoruðu og útlit var fyrii- að Inter væri að missa Juve lengra frá sér þegar Djorkaeff kom til bjargar. Þremur mínútum síðar var Turci sendur af velli fyrir að stöðva boltann með hendi utan vítateigs þegar Ronaldo reyndi að leika á hann. Þar sem gestimir höfðu þegar skipt um þrjá menn fór Argentínu- maðurinn Hector Pineda í markið og fyrsta verk hans var að hirða boltann úr netinu eftir að Ronaldo hafði skorað beint úr aukaspyrnu - 22. mark hans á tímabilinu. Lazio missti væntanlega af möguleikanum á sæti í meistaradeild Evrópu sem annað lið Italíu með 2:1 tapi fyrir Vicenza. Lamberto Zauli skoraði fyrir heimamenn eftir tæp- lega hálftíma leik, Roberto Mancini jafnaði gegn gangi leiksins í byrjun seinni hálfleiks en Pasquale Luiso gerði sigurmark Vicenza sex mínút> um síðar. Kaiserslautern í vandræðum Kaiserslautern átti í mesta basli með Rostock en náði jafntefli, 2:2, og er áfram í efsta sæti þýsku deildarinnar þar sem Bayern Múnchen gekk ekki betur með botn- lið Bielefeld, gerði 4:4 jafntefli. Nýliðarnir eiga eftir fjóra leiki en Bayern þrjá. Kaiserslautern, sem hefur ekki sigrað í liðlega mánuð og aðeins gert fímm mörk í fimm leikjum, er með eins stigs forystu á Bayem. Otto Rehagel, þjálfari, sagði að keppninni um titilinn væri langt í frá lokið en liðið er með eins stigs forystu. „Við vorum ekki vakandi í byrjun sem styrkti mótherjana," sagði hann um leikinn við Rostock. „Baráttan um titilinn heldur áfram og er spenn- andi.“ Lothar Matthaus jafnaði fyrir Ba- yern mínútu fyrir leikslok en Giovanni Trapattoni, þjálfai-i Ba- yern, sagði að úrslitin hefðu verið sanngjörn. ,Áhorfendur sáu spenn- andi leik. Liðin léku vel, leikmenn gerðu allt sem þeir gátu og úrslitin voru sanngjörn.“ Gladbaeh vann Dortmund 2:1 og Nevio Scala, þjálfari Evrópumeist- ara liðins árs játaði sig sigraðan. „Við lékum ekki vel í fyrri hálfleik og töpuðum of mörgum návígjum á miðjunni." íþróttafélagið Grótta óskar eftir að ráða FRAMKVÆMDASTJÓRA sem fyrst. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf skilist til Mbl., merkt: „4291“, fyrir 1. maí nk. Aðalstjórn Gróttu. HANDKNATTLEIKUR Lijana varði 30 skot Stjörnustúlkur með 2-1 forskot í úrslitaleikjunum Morgunblaðið/Golli RAGNHEIÐUR Stephensen reynir að brjótast gegnum Hauka- vörnina, sem er þó þétt fyrlr að þessu sinni; Harpa Melsteð, t.h., og Tinna Björk Halldórsdóttir reyna að stöðva hana. „MUNURINN lá í markvörsl- unni auk þess sem okkur gekk afar illa að Ijúka sóknun- um og köstuðum þannig frá okkur möguleika á sigri en við erum einmitt búin að tala mik- ið um þetta vandamál,“ sagði Magnús Teitsson, þjálfari Haukastúlkna, eftir 26:19 tap fyrir Stjömunni í Garðabæ á sunnudaginn. Garðbæingar hafa þar með unnið tvo leiki og þurfa einn til viðbótar til að fullkomna veturinn með sigri í bikar, deild og úrslita- keppni. En kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið því Hafnfirðingarnir eru ekki þekktir fyrir að ieggja árar í bát. „Það er varla hægt að tapa leik ef markvörður ver um þrjátíu skot. Nú er press- an öll á okkur en ef við f næsta leik nýtum helminginn af skotunum, sem við erum að klúðra, þá fáum við einn leik til viðbótar - við gemm okkar besta og stelpurnar eru til- búnar,“ bætti Magnús við. Taugamar voru þandar til hins ýtrasta í byrjun og flestum leik- mönnum mislagðar hendur. Herdís Sigurbergsdóttir, leik- Stefán stjórnandi Garðbæ- Stefánsson inga, var tekin úr um- skrifar ferð strax í byrjun en þá gátu Ragnheiður Stephensen og Inga Fríða Tryggva- dóttir látið Ijós sitt skína. Hauka- stúlkur léku ágætlega saman í sókn- inni en gekk illa að finna leiðina framhjá Lijönu Sadzon í marki Garðbæinga. Eftir að jafnræði hafði verið með liðunum fram eftir fyrri hálfleik kom góður kafli Garðbæ- inga, sem skilaði þriggja marka for- skoti. Eftir hlé var sami taugatitringur- inn og í byrjun leiks, liðin reyndu að keyra upp hraðann enda voru skoruð níu mörk á fjórum fyrstu mínútun- um. Þá hrundi leikur Hafnfirðinga, sóknir urðu endasleppar á meðan Þannig vörðu þær I sviga eru skot, sem fóru til mótherja. Lijana Sadzon, Stjörnunni 30 (11). 15 langskot (6), 3 gegn- umbrot (2), 6 horn (1), 6 af línu (2). Guðný Agla Jónsdóttir, Haukum 8 (4). 6 langskot (3), 2 gegnumbrot (1). Alma Hallgrímsdóttir, Haukum 5 (2). 3 langskot (1), 1 gegnumbrot (1), 1 horn. Garðbæingar juku forskotið. Haukar tóku þá bæði Herdísi og Ragnheiði úr umferð en það snerist í höndunum á þeim því aðrir leikmenn fengu meira rými og nýttu það vel svo að forskotið fór upp í tíu mörk. Eftir það slógu Stjörnustúlkur af og Haukar gengu á lagið en það dugði ekki til. Stjörnustúlkur fá prik - og reynd- ar mikilvægan sigur - fyrir að fallast ekki hendur þegar Herdís var tekin úr umferð en í síðasta leik varð það þeim að falli. Sem fyrr átti Lijana Sadzon stórleik í markinu, varði 30 skot, flest auðveldlega þegar hún las út skyttur Hauka eins og opna bók. Ragnheiður og Inga Fríða voru best- ar, héldu sínu striki allan leikinn. Haukastúlkur eiga ekki sigur skil- inn ef þær fara eins illa með færin og SÓKNARNÝTING Þriöji úrslitaleikur kvennaliðanna, leikinn í Garðabæ 19. apríl 1998 Stjarnan Haukar Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 11 29 38 F.h 8 30 27 15 33 45 S.h 11 32 34 26 62 42 Alls 19 62 31 8 Langskot 5 1 Gegnumbrot 1 5 Hraðaupphlaup 3 2 Horn 1 8 Lína 5 2 Víti 4 raun bar vitni því nýting á dauðafær- um var afleit og eins langskot þeirra. Liðið getur betur en þarf þá að halda haus heilan leik en í þetta sinn var það sóknarleikurinn, sem brást. Ju- dit Esztergal var best til að byrja með en Hulda Bjarnadóttir og Harpa Melsteð áttu góða kafla. Leystum vandann „ÞAÐ skipti öllu hvemig okkur tæk- ist að leysa vandan ef Herdís yrði tekin úr umferð því ef það gengur upp þá vinnum við,“ sagði Inga Fríða Tryggvadóttir, línumaður Stjöm- unnar, sem átti góðan leik. „í síðasta leik voram við eins og negldar við gólfið þegar hún var tekin úr umferð en núna vomm við hreyfanlegar og allar að vinna saman eins og lið á að gera. Þegar útileikmenn koma á ferðinni í sókninni og gera sig líklega þá opnast fyrir aðra leikmenn, til dæmis inná línuna. En þetta var erfitt allan leikinn því Haukaliðið gafst aldrei upp,“ bætti Inga Fríða við og þegar hún var spurð hvort það væri betra að fara í næsta leik með tvo sigra sagði hún það engu máli skipta. „Við emm búnar að vinna tvo leiki, sem er hið besta mál en varð- andi pressuna fyrir næsta leik skipt; ir það svo sem ekki máli. Við höfum prófað þetta allt saman; að vera tveimur sigi’um yfir og tveimur und- ir en aðalmálið er að taka einn leik fyrir í einu.“ Ræðulið Verslunarskóla íslands VASKIR 0G VAKANDI „Ræðukeppni Morfis er mjög krefjandi, þess vegna notuðum við Rautt eðal- gingseng þegar reyndi á athygli og þol. Þannig komumst við í andlegt jafnvægi og jukum úthaldið." Sigurvegarar í Morfis 1997 og 1998. RAUTT EÐAL GINSENG - Það er vit í því Hvert hylki inni- heldur 300 mg af hreinu rauðu eðalgingsengi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.