Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ___________________________________________^_______________________________ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 C 17 HORFT yfir Giljahverfi. Uppbygging þessa hverfis er langt komin. ÖRN Jóhannsson, framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Hyrnu. Mynd þessi er tekin fyrir framan fjórbýlishiís, sem Hyrna hefur byggt í Giljahverfi. í þessum húsum er sérinngangur inn í hveija íbúð. „Það getur vel verið, að þeir fjár- munir, sem lagðir eru í þessi hús, skili sér ekki fullkomlega til baka, ef selja þarf þau aftur,“ segir Bjöm. „En fólk kaupir þau til þess að búa í þeim og er einfaldlega reiðbúið til þess að fóma nokkm til í því skyni. Það hugsar ekki eins mikið um, hvort fjárfestingin skili sér til baka síðar. Sum þessara húsa era afar falleg og tiginmannleg. Yfirleitt vora þau byggð af góðum efnum og mjög vel til þeirra vandað í upphafi." Björn kveðst telja, að minni íbúð- ir á Akureyri séu gjarnan 10-15% ódýrari en sams konar íbúðir á höf- uðborgarsvæðinu. Hins vegar sé munurinn minni á stærri íbúðunum. Eins og ávallt verði þó að taka tillit til þess, að ástand eigna er afar mis- munandi og mjög misjafnt, hvað í þær er borið og hve vel þeim hefur verið haldið við. Eftirsóttasta svæðið á Brekkunni Eftirsóttasta svæðið er eins og áður á Brekkunni svonefndu, það er svæðið í kringum kirkjunna og þar í nágrenni. „Ibúðir í Hrísalundi, Tjarnarlundi og Víðilundi halda sér alltaf í verði enda mikil ásókn í þær,“ segir Björn. ,jknnars má með sanni segja, að góðar íbúðir, hvar sem er í bænum, seljist nú vel. íbúðaverð hefur heldur verið að hækka, án þess að neinar stökk- breytingar hafi átt sér stað og því veldur sennilega einkum það, að seljendur fá nú betra raunverð út úr eignum sínum en var vegna minni affalla á húsbréfunum." Vaxandi eftirspurn er eftir at- vinnuhúsnæði á Akureyri og sér- staklega vantar minni einingar fyrir alls konar smáiðnað, á bilinu 60-100 ferm. „Þegar SÍS hætti starfsemi, losnaði mjög mikið af atvinnuhús- næði, aðallega fyrir iðnað og skrif- stofur," segir Björn. „Nú er búið að ráðstafa þessu húsnæði með sölu að mestu leyti." Ekki er samt mikið byggt af at- vinnuhúsnæði á Akureyri nú og tel- ur Björn sennilegustu skýringuna vera þá, að verð á atvinnuhúsnæði sé enn ekki það hátt á Akureyri, að slíkt borgi sig. Sveiflur í byggingu á nýju atvinnuhúsnæði hafi ávallt ver- ið minni og jafnari þar í bæ en fyrir sunnan. Hjá Byggð er nú til sölu mjög skemmtilegt einbýlishús á tveimur hæðum á mjög góðum stað í innbæ Akureyrar. Þetta er húsið Aðal- stræti 82. Það er að mestu leyti á einni hæð en undir austurhluta þess er neðri hæð. Komið er inn í forstofu á efri hæð, sem er flísalögð. Strax til vinstri er forstofuherbergi og inn- réttingar i sama stíl og í forstofunni og þrefalt gler í gluggum. Stofurnar era þrjár, allar parketlagðar og með frönskum gluggum, sem snúa í suð- ur. Úr einni stofunni er útganga út á pall. Ein af stofunum er að kalla ný, en hún var byggð 1990 og er 42 ferm. með arni úr svörtum og hvít- um marmara. í þessari stofu er út- ganga út á steyptan pall til suðurs. Eldhúsið er dökkt með gegnheilum eikarhurðum. Gengið er upp í svefnherberg- isálmuna um 4-5 þrep, en þar era þrjú herbergi og baðherbergi, lagt ljósum marmara. A neðri hæðinni em tvö herbergi, bæði frekar lítil og snyrting. Ásett verð á þetta hús er 21 millj. kr. „Þetta er stórglæsilegt einbýlis- hús á mjög góðum stað,“ sagði Björn Guðmundsson. „Eg tel ásett verð mjög raunhæft verð og geri mér því vonir um, að húsið seljist fljótlega.“ „Mér lízt mjög vel á markaðinn hér á Akureyri," sagði Björn Guð- mundsson að lokum. „Mér sýnist sem eftirpspurnin verði lífleg áfram.“ Ásókn í sérbýli Við Snægil í Giljahverfi er bygg- ingafyrirtækið Hyma að reisa 4ra íbúða blokkir. „I þessum húsum er engin sameign og sérinngangur inn í hverja íbúð,“ segir Örn Jóhanns- son, framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins. „Þetta er það, sem fólk vill í dag. Það leggur meira upp úr sér- býli en áður.“ Ibúðirnar eru af þremur stærð- um. Þær minnstu eru 2ja herb. og 75 ferm.. síðan koma 3ia herb. íbúð- ir, sem era 90 ferm. Þær stærstu era 4ra herb. og 102 ferm. að stærð. íbúðirnar era seldar fullbúnar og er verð á tveggja íbúðunum 6,5 millj. kr., 3ja herb. íbúðirnar kosta 7,8 millj. kr. og 4ra herb. íbúðimar 9,8 millj. kr. „Það hefur gengið mjög vel að selja þessar íbúðir og þær íbúðir, sem byrjað var á í vor, era allar seldar nema tvær,“ sagði Örn Jó- hannsson. „Við eram búnir að selja 20 íbúðir á þessu ári á frjálsum markaði og það er mun meira en allt árið í fyrra, en það ár seldum við tólf íbúðir alls.“ Hyrna hefur líka byggt mikið af íbúðum fyrir félagslega kerfið, en þær íbúðir, sem nú era í smíðum, verða væntanlega þær síðustu, vegna þeirra breytinga, sem fyrir standa á húsnæðiskerfinu. Að mati Arnar er markaðurinn miklu líflegri nú en áður. „Það er bæði ungt og gamalt fólk, sem kaupir," segir hann. „Yfir höfuð sýnist mér fólk hafa góð fjárráð og það stendur í skilum. Peningar era ekki vandamál. Fjárráð fólks hafa aukizt frá því sem var og bjartsýnin er meiri, enda betra atvinnuástand og efnahagshorfur en var. Hjá Hymu vinna að jafnaði um 40 manns og fyrirtækið rekur eigin trésmiðju við Dalsbraut. „Við smíð- um allt í okkar hús sjálfir, bæði glugga, hurðir og allar innrétting- ar,“ segir Örn. „Það gefur okkur vissan styrk að vera í hvora tveggja. Við leggjum mikið kapp á að vanda til innréttinga okkar og ég tel, að þess vegna gangi okkur jafn vel að selja og raun ber vitni.“ Örn segir verkefnastöðu fyrir- tækisins vera mjög góða. „Við erum að byrja að byggja 16 íbúðir fyrir félagslega kerfið og einn áfanga við Verkmenntaskólann," sagði hann. „Til viðbótar eram við að endur- byggja sláturhús KEA auk margi-a smærri verkefna, en við eram tals- vert í tilboðsverkefnum.“ Örn kvað næsta byggingasvæði Akureyrar verða sunnan Verk- menntaskólans. „Þar verður fram- tíðarbyggð Akureyrar, því að uppbygging Giljahverfis er langt kornin," sagði hann að lokum. Einbýlis- og raðhús Urriðakvísl - einbýli stórglæsilegt Stórglæsilegt tvílyft einbhús ásamt góðum bílskúr og stóru gróðurhúsi. Húsið er sérlega vandað og vel skipulagt og allar innr. og gólfefni valdar af kostgæfni. Wljög snyrtilegur garður, heitur pottur, sturta, verönd og falleg tjöm. Húsið er einstaklega vel staðsett með frábæru útsýni yfir borgina. Sjón er sögu ríkari. Fífusel - raðhús Mjög gott 200 fm raðhús á þremur hæðum ásamt stæði í bílsk. Mjög vandaðar og góðar innr. Ný- legt parket og flísar. 4 góð svefnh. Möguleiki á aukaíb. Tvennar suðursv. Frábært útsýni. Jórusel - einbýli Sérlega gott 327 fm einb. á tveimur hæðum, kj. og bflsk. Mjög vandaðar innr. og gólfefni. 4 mjög góð svefnh. Stórar og bjartar stofur auk sólstofu. Góð staðsetn. Sæbólsbraut - raðhús Giæsi- legt 200 fm raðhús, ásamt innb. bílsk. Mjög vandaðar innr. og gólfefni, bjartar og rúmg. vistarverur, skipti möguleg á minni eign. 5 herb. og sérhæðir Laugateigur Vorum að fá í einka- sölu sérl. góða miðhæð í þrib. 3 góð svefnherb., fallegt nýstandsett eldh., 2 saml. stofur, suðursv. Fallegur skjólsæll suðurgarður. Fráb. staðsetn. Nesvegur - glæsieign Stórglæsileg neðri hæð í nýlegu húsi ásamt stæði í bílgeymslu. Vandaðar og fallegar innréttingar. Parket. Björt stofa. Stór laufskáli. Mjög rúmg. Suðursvalir. Þvottah. í ib. Innangengt í bflskýli. Eign í sérflokki. Kjartansgata - bílsk. Björt og góð neðri hæð í þríbhúsi með sérinng. ásamt góðum bílskúr með rafm. og hita. 3 svefnherb., samliggjandi sólrikar stof- ur, suðursv., gróinn garður. Nýl. þak. 4ra herb. Ljósheimar - nýtt í sölu Mjög góð 96 fm íb. á 6. hæð í lyftuhúsi. 2-3 góð svefnherb. Stór og björt stofa. Suðvestursvalir. Rúmgott eldhús. Nýlegt parket. þvottahús I ib. Inng. af svölum. Frábært útsýni. Hrísmóar - bílskúr - Garða- bær Stórglæsileg 110 fm íb. á 2. hæð í litlu fjölb. ásamt innb. bílskúr. ib. er sem ný, mjög vel skipul. með sérlega vönd- uðum innr. og gólfefnum. 2-3 svefnherb. Þvottahús og búr í ib. Tvennar svalir. Mjög góð staðs. Gullengi - nýtt í sölu sért. bjort og falleg sem ný 4ra herb. íb. á 3. hæð í litlu fjölb. Vandaðar innr., Parket, flísar, góð svefnh., suðursv., þvhús. í ib. Fal- legt útsýni. Bílskúrsréttur. Verð 8,7 millj. Alfheimar Sérlega björt og rúmgóð 107 fm íb. á 3. hæð. ( ib. eru 3 svefn- herb., 2 stórar stofur, baðherb. m. glugga, rúmgott eldhús með borðkrók. Suðursvalir. Sameign í góðu ástandi. Stutt í alla þjónustu. FJARFESTING FASTEIGNASALA ehf Sími 5624250 Borgartúni 31 Opið mánud. - föstud. frá kl. 9-18. Hilmar Óskarsson, Sigurður Jónsson, Guðjón Sigurjónsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. Maríubakki Mjög góð 100 fm íbúð á fyrstu hæð i fjölbýli. Sérlega rúmgóð íb. með stórum svefnh. og bjartri stofu. Suðursv. Þvhús og búr inn af eldh. Baðherb. með glugga. Nýlegar flísar. Sameign i góðu ástandi. Álftamýri Vorum að fá í einkasölu góða ca. 90 fm 3-4 herbergja íbúð á þriðju hæð. Þrjú svefnherbergi, hægt að stækka stofu. Parket. Dúkur. Suðursval- ir. Mikið útsýni. Verð 6,8 millj. Áhvílandi 3,5 millj. Kleppsvegur - inni við Sund Mjög góð 4ra herb. ib. á 8. hæð i lyftu- húsi. 3 svefnh., rúmgott eidhús, björt stofa, suðursv. Frábært útsýni til allra átta. Sameign nýstandsett. Verð 6,5 m. 3ja herb. Drápuhlíð Mjög góð 3ja herb. ca 85 fm íb. á jarðhæð. Rúmgóð herb. Nýl. parket og baðherb. Hús i góðu ástandi. Spítalastígur - laust strax Vorum að fá í einkasölu góða 73 fm íbúð á 1. hæð í fjórbýli. Tvö góð svefnherb., hátt til lofts, gifslistar, panell á veggjum. Góð staðsetning. Funalind 9-11 Kópavogi Sérlega vel skipulagðar og glæsilegar 2ja-6 herb. íbúðir í litlu fjölb. á þessum eftirsótta stað. Byggingaraðili: Bygging- arfélag Gylfa og Gunnars. Glæsilegur upplýsinga- bæklingur fyrirliggjandi. Lautasmári 1 - Kópavogi Einstaklega glæsilegar 2ja-6 herbergja íbúðir í þessu fal- lega lyftuhúsi í hjarta Kópa- vogs. Mjög gott skipulag. Vandaðar innréttingar. Suður- og vestursvalir. Byggingaraðili: Byggingarfélag Gytfa og Gunnars. Glæsilegur upplýsingabæklingur fýrirliggjandi. Austurbrún - nýtt í sölu góö ca 90 fm 3ja herb. íb. á jarðhæð í tvíbýl- ishúsi. 2 góð svefnherb. Stór stofa. Flís- ar. Gegnheilt Merbau-parket. Góð sam- eign. Fallegur garður. Nýtt jám á þaki. Óðinsgata - sérinng. Sérlega notaleg og góð 3ja herb. íb. á 2. hæð (efstu) í þríbhúsi. 2 svefnh. m. parketi, stofa og borðstofa með teppi (panill undir). Rúmg. eldhús, ágæt innr. Yfir allri íb. er stórt ris með góðri lofthæð, miklir möguleikar. Nýtt þak, nýtt gler. Hús nýl. stands. að utan. Mjög góð staðsetn. Leirubakki Sérlega vel skipulögö, góð ca 90 fm horníb. á 3. hæð í litlu fjölb. ásamt góðu aukaherb. í kj. Björt stofa, 2 góð svefnherb., rúmg. eldhús, þvottahús og búr innaf. Sameign nýl. stands. að utan. Stutt í alla þjónustu og skóla. Bamvænt umhverfi. VANTAR VEGNA MIKILLAR SÖLU SERHÆÐIR, RAÐ- OG EINBÝLISHÚS í AUSTUR- OG VESTUR- BÆ. ATH. EKKERT SKOÐUNARGJALD Bræðraborgarstígur - nýlegt Sérlega góð 3ja herbergja Ibúð í litlu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað. 2 svefn- herbergi, góð stofa. Tvennar svalir. Sér- hití. Sameign í mjög góðu standi. 2ja herb. Rauðás - Glæsieign stórgiæsi- leg 82 fm ibúð á fyrstu hæð í litlu fjöl- býlishúsi. Vandaðar og fallegar innrétt- ingar, flísar, parket, stór og björt stofa. Sólstofa. Þvottahús og búr inn af eld- húsi. Einstaklega glæsileg ibúð á góð- um stað. Ljósheimar nýtt í sölu vorum að fá 2ja herb. íb. á annarri hæð í nýlega standsettu fjölbhúsi. Sériega vel um gengin og góð íb., á mjög rólegum og eftirsóttum stað. Laugateigur - sérinng. Mjög góð ca 50 fm kjíb. með sérinng. í fjórb. Stórt svefnherb. Góðar innr. Parket. Sameign nýstandsett að utan. Góður garður. Boðagrandi - laus strax vor- um að fá í sölu góða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Aðgengileg og góð íbúð á eftirsóttum stað. Sporðagrunn - einstaklíb. Vorum að fá í sölu litla einstakllbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi. Góður kostur fyr- ir fólk á leigumarkaðnum. Góð stað- setning. Hagstætt verð. Lyklar á skrif- stofu. Eldri borgarar Vesturgata - 2ja herb. Mjog falleg og björt ib. á annarri hæð. Sérlega vönduð eign með góðum innréttingum og gólfefnum. Notaleg setustofa fyrir framan íb. Áhv. byggsj. 2,7. Verð 7,5 millj. Skúlagata - 2ja herb. + bílskýli Mjög vel umgengin og góð 2ja herbergja íbúð ásamt góðu stæði [ bílgeymslu. Vandaðar og góðar innrétt- ingar. Þvhús og geymsla í íb. Mikið útsýni. Nýjar íbúðir Galtalind - 4ra herb. mjög góö ný 101 fm jarðhæð með sérgarði. Þrjú góð svefnherbergi, stór stofa, sérþv- ottahús. íbúðin afhendist fullbúin án gól- fefna. Vættaborgir - nýjar íb. - sér- inng. Vel skipulagðar 3ja og 4ra herbergja (búðir með sérinngangi sem verða afhentar fullbúnar án gólfefna. Verð frá kr. 7.520 þús. fyrir 3ja herbergja og frá kr. 8.430 þús. fyrir 4ra herbergja íb. Suðursvalir. Möguleiki á bllskúr. Ein- staklega hagstæð kjör. Sumarbústaðir Sumarbúst. - Grímsnesi vor- um að fá í sölu mjög vandaðan sum- arbústað á þessum vinsæla stað. Bústaðurinn er 60 fm með svefnlofti. Rafmagn, vatn og gas. Golfvöllur í nágr. Stutt í versl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.