Morgunblaðið - 29.07.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ami Sæberg
INGVAR Helgason afhendir Ingibjörgu Pálmadóttur fyrstu bifreiðina.
Samningur heilbrigðisráðuneytisins
og Ingvars Helgasonar
Samið við starfsmannafélög spítalanna
Þýðir 24% hækkun launa
á samningstímanum
STARFSMANNAFÉLAG ríkis-
stofnana ásamt starfsmannafélög-
um Ríkisspítala og Sjúkrahúss
Reykjavíkur gekk í gær frá aðlög-
unarnefndarsamningi við ríkið og
forsvarsmenn Ríkisspítala og
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Samningurinn, sem gildir fyrir
um 650 starfsmenn, felur í sér rúm-
lega 5% launahækkun að meðaltali
fyrir félagsmenn og gildir frá 1.
apríl síðastliðnum.
Að sögn Jens, Andréssonar for-
manns SFR, þýðir samningurinn
alls um 24% hækkun launa á samn-
ingstímanum miðað við undirskrift
samninga 1. apríl árið 1997 og til
október árið 2000.
Félagsmenn geta þó ekki átt von
á að hækkunin skili sér í laúna-
umslagið fyrr en 1. september
næStkomandi þar sem nokkurn
tíma tekur, að sögn Jens, að aðlaga
nýtt launafyi’irkomulag að launa-
kerfinu.
Búið að semja
við flesta
Samningarnir era samskonar og
Félag íslenskra hjúkranarfræðinga
gerði við ríkið og sjúkrahúsin fyrr í
sumar. Gert er ráð fyrir framgangs-
kerfi í samningnum þar sem ein-
staklingar geta sótt um 6-9% launa-
hækkun, til dæmis ef sótt eru end-
urmenntunar-, símenntunar- og
starfstengd námskeið innan spítal-
anna.
Starfsmenn sem fá þessa launa-
hækkun eru að mestu ófaglært
starfsfólk innan spítalanna, fólk
sem starfar við símavörslu og vakt-
menn, meðal annarra, auk fagstétta
eins og læknaritara, lyfjatækna og
matarfræðinga meðal annarra.
Innan SFR era 4.700 félagsmenn
en starfsmenn innan sjúkrahúsanna
er stærsti hópurinn sem samið er við
í einu lagi. „Við höfum verið að gera í
kringum 120-140 aðlögunarsamninga
frá síðustu áramótum og langstærstu
vinnustaðimir era búnir. Einungis
Pjóðleikhúsið, Fríhöfnin og fangelsin
era eftir,“ sagði Jens Andrésson.
34 bilar fara til
heilsugæslunnar
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ og Ingvar Helgason hf. hafa gert
samning um að fyrirtækið útvegi fólks- og jeppabifreiðir fyrir heilsu-
gæslustöðvar á landsbyggðinni. Alls er um 34 bifreiðir að ræða sem
fara til 34 heilsugæslustöðva hringinn kringum landið. Samningurinn,
sem er til þriggja ára, er um rekstrarleigu á þessum bílum. Kostnaður
ríkissjóðs við samninginn er 12,1 milljón á ári.
Búfé
smalað
frá þjóð-
veg’i 1
ÁTAK verður gert til að smala
búfé frá þjóðvegi 1 á Suður-
landi íyrir verslunarmanna-
helgina. Pað eru lögreglustjór-
arnir í Ames-, Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu sem
standa fyrir því en að auki
hafa þeir leitað eftir samstarfi
við Vegagerðina.
Það er að framkvæði ríkis-
lögreglustjóra að þetta er gert
og verður byrjað á föstudag.
I tilkynningu frá sýslumann-
inum í Rangárvallasýslu era
bændur minntir á að sam-
kvæmt vegalögum er lausa-
ganga búfjár við þjóðvegi
landsins óheimil ef girt er báð-
um megin vegar. Jafnframt er
bent á að Vegagerðinni sé
heimilt að fjarlægja búfé á lok-
uðum vegsvæðum á kostnað
eigenda. Þá eru vegfarendur
hvattir til þess að hafa sam-
band við lögreglu verði þeir
varir við lausagöngu búfjár á
þessum slóðum.
Margar tilkynningar um
lausagöngu hrossa
Að sögn Tómasar Jónsson-
ar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
Selfosslögreglu, er ekki búið
að útfæra samstarfið nákvæm-
lega. „Það hefur ekki verið
rætt í smáatriðum hvemig að
þessu verði staðið en þó mun-
um við reyna' að smala fénu frá
vegköntum og inn í næstu
girðingar. Það er erfitt fyrir
okkur að leggja hald á kindur
og ég veit ekki hvort það sé
hægt. Þetta er hins vegar búið
að vera mikið vandamál á okk-
ar svæði en í síðustu viku feng-
um við 13 tilkynningar um
lausagöngu, flestar vegna
hrossa. Við ætlum okkur að
taka á þessu vandamáli því bú-
fé á ekki heima við þjóðveg 1,“
sagði Tómas.
Rekstrarleiga er nýjung á bíla-
markaði og felur í sér að leigutaki
greiðir fyrir afnot af bifreiðunum á
leigutímanum og í leigusamningn-
um er innifalið allt venjubundið við-
hald á bifreiðinni. Kostimir við
þetta leiguform era að áhætta við
endursölu er úr sögunni og ekkert
fjármagn er bundið í bifreiðinni.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ríkis-
sjóður gerir rekstrarleigusamning
en nokkur fyrirtæki hafa áður gert
svona samninga. Þetta er stærsti
rekstrarleigusamningur sem Ingvar
Helgason hf. hefur gert.
Samningurinn við Ingvar Helga-
son hf. var gerður að undangengnu
útboði. Bílarnir era af tveimur gerð-
um, 25 bílar eru af gerðinni Subaru
Forester og 9 af gerðinni Nissan
Terrano.
Eykur öryggi í þjónustunni
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði að með þessum bif-
reiðakaupum væri stefnt að því að
auka öryggi í heilsugæsluþjónustu á
landsbyggðinni. Einnig væri þetta
liður í að bæta aðstöðu starfsfólks.
Starfsfólk í heilsugæslu á lands-
byggðinni hefði verið mjög óánægt
með að hafa ekki aðgang að bifreið-
um. Ingibjörg sagði að þessi samn-
ingur um rekstrarleigu fæli í sér
nýjung sem ráðuneytið byndi mikl-
ar vonir við.
Miðbær Kópavogs
Tillaga að nýju deiliskipulagi
Nýtt deiliskipulag fyrir miðbæ Kópavogs í kynningu
10-11 sækir um lóð fyrir
verslun yfír Kópavogsgjá
VERSLUNARKEÐJAN 10-11
hefur sótt um lóð við og yfir Kópa-
vogsgjá vestan við Hamraborg í
miðbæ Kópavogs. Að sögn Gunnars
Birgissonar, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins, var nýtt deiliskipulag af
svæðinu samþykkt í bæjarstjórn í
síðustu viku og næsta skref er að
auglýsa tillöguna.
Svæðið er í framhaldi af Hamra-
borg og var í eldra skipulagi meðal
annars gert ráð fyrir hóteli á lóðinni
sem nær frá Hamraborg yfir gjána
að bakkanum vestan megin. 10—11
sækir um lóð fyrir 600 fermetra hús
á tveimur hæðum eða samtals 1.200
fermetra hús en ekki hefur enn ver-
ið gengið frá bílastæðum.
Gert er ráð fyrir að kynningu á
skipulagstillögunni verði lokið í lok
ágúst. „Það er ljóst að hugur allra
flokka hefur staðið til þess að rejma
að loka þessari gjá,“ sagði Gunnar.
„Þetta er fyrsta skrefið, ef byggt
verður yfir hana ásamt bílastæðum
lokast talsverður hluti en gjáin hef-
ur skipt bænum í tvo hluta, austur-
og vesturbæ. Þetta verður því hið
besta mál ef þama verður byggt og
gamli miðbærinn styrktur."
Sérstakri fjárveitingu lofað í samningi fjármálaráðuneytis og yfírskattanefndar
Málum verði komið í lög-
mælt horf fyrir mars 1999
KAiRUFRESTUR til yfirskatta-
néfndar hefur verið íengdur úr 30
dögum í þrjá mánuði, samkvæmt
breytingum sem Alþingi gerði á lög;
um um yfirskattanefnd í vor. í
framhaldi af því var svo í seinasta
mánuði gengið frá samningi á milli
fjámálaráðuneytisins og yfirskatta-
nefndar um starfsemi nefndai’innar.
Þar kemur m.a. fram að tryggð
verði sérstök fjárveiting vegna
tímabundinnar ráðningar tveggja
sérfræðinga til nefndarinnar.
Vegna fjölda óafgreiddra mála
sem liggja fyrir hjá nefndinni og
fyrirséð er að verða ekki afgreidd
innan lögboðinna tímamarka ber yf-
irskattanefnd að gera áætlun um að
koma málum í lögmælt horf eigi síð-
ar en í febrúar 1999.
Með lengingu kærafrests er þess
vænst að kærur til nefndarinnar
dreifist á lengra tímabil en áður og
að vinnuálag á nefndinni verði jafn-
ara. Með lagabreytingunni hefur
frestur yfirskattanefndar til að
kveða upp úrskurði einnig verið
lengdur úr þremur mánuðum í sex.
Skv. lögunum er nú heimilt að úr-
skurða skattaðila málskostnað í þeim
tilvikum sem úrskurður fellur skatt-
aðija í vil, að hluta eða öllu leyti.
í samningi ráðuneytisins og yfir-
skattanefndar er áhersla lögð á að
nefndin úrskurði í öllum kærumál-
um sem henni berast innan lög-
bundinna tímamarka en óafgreidd
mál hjá nefndinni voru rámlega 900
í lok síðasta árs.
„Ráðuneytið mun beita sér fyrir
því að árleg fjárveiting til starfsemi
nefndarinnar á samningstímanum
verði í samræmi við fjölda kæru-
mála sem berast nefndinni og um-
fangi þeirra,“ segir í samningnum.
Flutt í stærra húsnæði
í samningnum kemur einnig fram
að aðilar samningsins eru sammála
um að núverandi húsnæði yfir-
skattanefndar sé of lítið og óhent-
ugt fyrir starfsemi nefndarinnar.
Ætlar fjármálaráðuneytið að beita
sér fyrir því að fjárveiting fáist til
að flytja nefndina í stærra húsnæði
á árinu 1999.