Morgunblaðið - 29.07.1998, Side 11

Morgunblaðið - 29.07.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 11 FRÉTTIR Miðamælar settir upp við Lauga- veg Morgunblaðið/Asdís VERIÐ að Ieggja síðustu hönd á frágang við endurbættan Lauga- veg og á meðal annars eftir að setja upp stöðumæla. Að sögn Stefáns Haraldssonar, fram- kvæmdastjóra Bflastæðasjóðs, verða settir upp fjórir gjaldmælar þ.e. miðamælar við Laugaveginn. „Fólk kaupir þá miða og setur í framrúðuna á bflnum,“ sagði haim. „Þetta býður upp á mun sveigjanlegri þjónustu. Fólk getur til dæmis keypt sér miða fyrir tíu krónur og fengið þá sex mi'niítur." Mælamir taka alla mynt nema krónu en ekki má setja fímm krónu myntina fyrsta í mælana. --------------- Mál hrossabænda á Suðurlandi Málið verð- ur skoðað HROSSARÆKTARSAMTÖK Suð- urlands fóru fram á það við Lánasjóð landbúnaðarins fyn- í sumar að hrossabændur sem urðu fyrir tjóni af útflutningsbanni á hestum, sem sett var á síðastliðinn vetur og var ekki aflétt fyrr en nýlega, fái frestun á af- borgunum lána um tvö ár. Að sögn Guðna Agústssonar, formanns stjóm- ar lánasjóðsins, hefur málið verið rætt í stjóminni. „Tjónið sem bændumir hafa orðið fyrir liggur ekki fyrir en við emm að undirbúa okkur undh- að geta komið til móts við þá með einhverjum hætti. Við eram jákvæðir á að skoða málið og þurfum að taka ákvörðun um það í haust,“ sagði Guðni í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði jafnframt að málið gæti orðið flókið og bændumir þyrftu til dæmis að geta sýnt fram á hvert tjón þeirra væri til að hægt yrði að koma til móts við þá. Vönduð - ryðfrí HÚSASKILTI PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 S: 562 3614 U mh verfís vænn býfluguhúsbíll BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðheira afhjúpaði nýjan um- hverfísvænan húsbíl, sem nemar í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands höfðu hannað og smíðað, í Nauthólsvík á sunnudaginn var. Hönnun og smíði bílsins hefur staðið yfir frá því um áramót og verður framlag íslendinga á sýn- ingu í Stokkhólmi sem hefst þann 15. ágúst næstkomandi. Nemendunum til aðstoðar við smíðina voru hönnuðimir Sigrlður Heimisdóttir og Sigurður Pálsson. Knúinn rafmagni Eins og sést á meðfylgjandi mynd var við hönnun bflsins reynt að líkja eftir útliti býflugu. Bíllinn er knúinn rafmagni og í honum á einn maður að geta búið árið um kring. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Höldum okkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.