Morgunblaðið - 29.07.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KEIKÓ er nú ekki kominn enn hr. Göran en frændur hans hoppa liér og skoppa og
kunna sér ekki læti af eftirvæntingu . . .
Þjálfa hunda fyrir blinda
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
tillögu Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra um að veita 2,2
milljónum króna til þjálfunar leið-
söguhunda fyrir blinda og sjón-
skerta. Fjárveitingin nægir til
kaupa og þjálfunar á tveimur hund-
um.
A síðasta ári starfaði starfshópur
á vegum heilbrigðisráðuneytisins,
sem falið var það verkefni að meta
þarfir blindra og sjónskertra og
gera úttekt á hvernig þörfum þeirra
væri sinnt í dag. Hópurinn taldi
mikilvægt að þjálfaðir yrðu leið-
söguhundar fyrir blinda líkt og gert
er á hinum Norðurlöndunum, Bret-
landi og víðar.
Heilbrigðisráðherra féllst á þessa
tillögu starfshópsins og hefur þegar
einn hvolpur verið keyptur og verið
er að leita að öði-um. Níu mánuði
tekur að þjálfa hundana, en þjálfun
þeirra verður í umsjón Auðar
Björnsdóttur frá ísafirði.
Nefndin kannaði einnig mögu-
leika á að flytja þjálfaða blindra-
hunda erlendis frá. Kostnaður við
kaup á einum þjálfuðum hundi var
áætlaður 2 milljónir króna. Auk
þess var talin hætta á að hundurinn
glataði þjálfuninni við að vera sett-
ur í margra mánaða sóttkví eftir
komuna til landsins. Að þjálfa hund
innanlands var því talinn helmingi
ódýrari kostur.
MANNRÆKT
UNDIR JÖKLI
Snæfellsásmótið
um verslunarmannahelgina
á Brekkubæ. Hellnum
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ MEÐ
FYRIRLESTRUM — NÁMSKEIÐUM — EINKATÍMUM —
SVITAHOFI — FRIÐARATHÖFN — KVÖLDVÖKUM — DANSI
— SÖNG — HREYFINGU — LEIKLIST — HEILUNARVÍGSLUM -
SKYGGNILÝSINGU
Barnadagskrá: Yoga fyrir börn, ævintýraferð,
leiklist (líka fyrir unglinga) og hugleiðsla með litum.
Fyrirlesarar og fræðarar:
Porsteinn Njálsson heimilislæknir, Guðrún Hjörleifsdóttir miðill, Helga Sigurðardóttir Ijóslitakennari,
Jón Jóhann seiðmaður, Guðrún G. Bergmann leiðbeinandi, Hermundur Sigurðsson talnaspekingur, Bryndís
Sigurðardóttir reikimeistari, Guðjón Bergmann yogakennari, Marta Eiríksdóttir leiklistarkennari,
Ágúst Pétursson stjörnuspekingur, Guðlaugur Bergmann leiðbeinandi, Hallgrímur Óskarsson yogakennari,
Sveinbjörg Eyvindsdóttir hjúkrunarfræðingur, Guðriður Hannesdóttir leiðbeinandi, Jóhann Þóroddsson
grasafræðari, Ólöf Þorvarðsdóttir listmeðferðarfræðingur, séra Ólafur Jens Sigurðsson, Margrét Hafsteinsdóttir
miðill og Arnhildur S. Magnúsdóttir aromaþerapisti.
Verð kr. 3.000, frítt fyrir börn yngri en 14 ára. Vímulaust mót.
Miðasala hjá Snæfellsás-samfélaginu
í síma 435 6754 eða við innganginn.
Fax: 435 6801. Netfang: leidar@aknet.is
Heimasíða fyrir Vestur-íslendinga
Ymsir hafa kom-
ist í kynni við
skyldfólk
Hálfdan Helgason
Fyrir um tveimur ár-
um setti Hálfdan
Helgason upp heima-
síðuna The emigration
from Ieeland to North
America eða búferlaflutn-
ingamir frá íslandi . til
Norður-Ameríku. Flett
hefur verið upp á heimasíð-
unni um 16.000 sinnum og
margir hafa með þessum
hætti komist í samband við
ættmenni sín hér á landi
eða Islendingar fundið
skyldmenni sín vestra.
„Megintilgangurinn með
heimasíðunni er að koma á
framfæri upplýsingum um
Island, sögu þess, menn-
ingu og síðast en ekki síst
ættfræði. Mér hefur þótt
áhugavert að veita fólki
upplýsingar um ættfræði
og gefa því kost á að nýta sér síð-
una til að koma á framfæri sínum
fyrirspurnum."
Hálfdan segir að þó afkomend-
ur vesturfara í Bandaríkjunum og
Kanada hafi oftast lejtað til sín
með fyrirspurnir hafi Islendingar
einnig notfært sér heimasíðuna
og leitað að ættingjum sínum í
Bandaríkjunum og Kanada með
þessum hætti.
- Færðu margar fyrirspurnir?
„Já, það berast til mín ótal fyr-
irspurnir sem ég reyni að leysa úr
eftir mætti. Ég gæti auðveldlega
verið í fullu starfi við að svara fyr-
irspurnum og leita fyrir fólk en
þetta er allt gert í sjálfboðavinnu
og meðfram öðru starfi þannig að
ég reyni að svara fyrirspurnum
eins og tími gefst til.“
-Hvernig er heimasíðan upp
byggð?
„Hún er miðuð við að aðstoða
fólk við að finna rætur sínar eða
núlifandi ættingja. Ég er síðan
með tengla fýrir ýmsa þætti og er
með vísi að gagnabanka um land-
nemana íyrir vestan." Hálfdan
segir að menn geti leitað í þann
banka og fengið upplýsingar. Þá
segist hann reyna að útskýra fyrir
fólki íslenska nafnakerfið, vera
með vísi að ættfræðilegu orðasafni
og fáeinai’ gamlar myndir sem
hann fékk leyfi frá Þjóðminjasafn-
inu til að nota. Að lokum geta
menn komið með fyi-irspurnir.
Þegar Islendingar hafa komið með
fyi-irspurnir hefur jafnvel fólk í
Bandaríkjunum og Kanada sem
þær sér tekið við og leitað fyrir
viðkomandi."
- Þú hefur þá kynnst
mörgum í gegnum
þetta áhugamál?
„Já, ég hef kynnst
fjölmörgum og til gam-
ans má geta þess að í kringum
heimasíðuna hefur myndast um
þrjátíu manna hópur sem skrifast
á reglulega. Hópurinn hefur
áhuga á ættfræði og íslenskum
málefnum og skiptist á upplýsing-
um þar að lútandi."
Meirihluti þeirra sem koma
með fyrirspurnir eru rosknir.
„Þetta er iðulega fólk sem man
eftir ömmu og afa sem töluðu ís-
lensku eða jafnvel mömmu og
pabba. Það er sjaldgæft að það
tali íslensku sjálft utan eina og
eina setningu og það er allur
gangur á því hvort fólk hefur
heimsótt landið. „
- Veistu til að margir hafí náð
að kynnast ættmennum sínum
með þinni aðstoð?
„Já, það eru þónokkur dæmi
um það og sumir hafa jafnvel
komið hingað til lands að heim-
sækja skyldmenni sín. Mér hefur
►Hálfdan Helgason er fæddur í
Reykjavík árið 1937. Hann ólst
upp á Húsavík og útskrifaðist
sem tæknifræðingur frá Stokk-
hólmi árið 1963. Hann hefur
starfað sem tæknifræðingur frá
þvi námi lauk og síðustu tiu árin
hefur hann starfað hjá verk-
fræðistofunni Fjarhitun hf.
Hálfdan hefur lengi haft
áhuga á ættfræði og setti upp
heimasíðu fyrir tveimur árum
fyrir þá sem eru að leita ætt-
menna sinna hér á landi eða í
Bandaríkjunum og Kanada.
Eiginkona Hálfdans er Erla
Benediktsdóttir, bókavörður í
Gerðubergi, og eiga þau þrjú
börn og fimm barnabörn.
líka tekist að kynna fólk innbyrðis
í Bandaríkjunum og Kanada sem
er skylt en vissi ekki hvað af öðru.
Hálfdan segist ennfremur hafa
fengið fyrirspurnir frá ættmenn-
um þeirra vesturfara sem lögðu
land undir fót til Utah á árunum
eftir 1855.
„Ég er með tengil á síðunni þar
sem sögð er saga Þórðar Diðriks-
sonar sem fór til Utah á þessum
árum. Það er greinilegt að þessir
íslendingar lögðu mikið á sig fyr-
ir trúna.“
-Færðu annars konar fyrír-
spurnir en um ættfræði?
„Ég fæ ýmsar spurningar um
land og þjóð og sumar hreint
ótrúlegar. Nýjasta dæmið er fólk
sem var að leita að íslensku nafni
á óskírt barn vinafólks.
Ég hafði samband við
Hagstofuna og fékk
lista yfir vinsælustu
nöfnin sem ég síðan
sendi þeim. Þá er fólk
meira að segja að leita að matar-
uppskriftum og svo mætti áfram
telja.“
Heimasíða Hálfdans er
http: //nyherji.is/— halfdan-
/westward/vestur.htm og netfang
hans halfdan@itn.is.
-Þú ert að velta fyrir þér að
útbúa heimasíðu um íslendinga
sem fluttu til Ástralíu á sjöunda
áratug þessarar aldar?
„Ég hef töluvert hugsað um
það. Nokkur fjöldi flutti til Ástral-
íu á þessum tíma og ég hef verið í
sambandi við mann sem flutti ung-
ur til Astralíu og er að reyna að
komast í samband við fleiri." Ef
fólk sem þetta les þekkir einhverja
sem fluttu til Ástralíu á þessum
árum vill Hálfdan endilega biðja
þá um að senda sér línu með upp-
lýsingum. Þá kemur kannski á
daginn hvort grundvöllur er fyrir
slíkri heimasíðu."
Ótal fyrir-
spurnir í
hverri viku