Morgunblaðið - 29.07.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 37
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
HEV, aaJCK,U)HEN y or maybe\ U)E 60 T0 THE / WE 5H0ULP \ DANCE,ARE Y0U JU5T MEET 60NNA PICK ME UP THERE, HUH, / IN A LIMO? Á CHARLE5?/ f MEET \ /WHERE? OUHO I5 / slHl5I/ IT'S 05, CHUCK, VOU 8L0CKHEAPÍ
/I ,;>m jmm ydjS vLt i 11
£>6 mmFtXS? ftl fy&r l
\ THINKYOUVeYI F0R60T\
60T TH05E / TO TELL
6IRLS ALL / THEM TO
C0NF05ED, BI6 5AVE ME
BROTHER... ATHEWALTZ
Hæ, Kalli, ætlarðu að sækja mig í
eðalvagni þegar við förum á dans-
leikinn? Eða ættum við kannski bara
að hittast hérna, ha, Kalli?
Hittast hvar? ÞETTA ERUM
Hver er VIÐ, KALLI,
þetta? ÞÖNGULHAUSINN
ÞINN!
Ég held að þú hafir ruglað all-
ar þessar stelpur í rfmmu,
stóri bróðir ...
Ég gleymdi að segja þeim að
geyma valsinn handa mér ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Lýðræði
landsmanna
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
VIÐ KJÓSUM okkur fulltráa til
Alþingis til þess að gæta hagsmuna
okkar, fólksins í landinu, fyrst og
fremst. Hagsmuna er hafa þá
frumforsendu að hver maður geti
haft í sig og á, sér og sínum til
handa samkvæmt því lífsviðurværi
er atvinnuskilyrði og önnur skil-
yrði eru sköpuð til, af hálfu þeirra
er gæta hagsmuna okkar, fólksins í
landinu.
Við kjósum okkur fulltráa til
þess að þeir hinir sömu hafi skoð-
anir fram að færa á hinu háa Al-
þingi og í umræðu um málin öll.
Við kjósum ekki aftur fulltráa er
þarf að leita að eigin skoðunum,
ellegar þarf aðstoð annarra til þess
að mynda sér skoðun æ ofan í æ.
Alþingismenn sverja þess eið mér
best vitanlega að fylgja eigin sann-
færingu í hvívetna, en á hverju
byggist sannfæring fulltráanna er
við kusum á þing? Getur það verið
að sannfæring alþingismanna sé
einkum og sér í lagi mótuð af inn-
sendum umsögnum hagsmunaaðila
óbreytts ástands í hinum ýmsu
málaflokkum, þ.e. verkalýðshreyf-
ingar er vill ekki breytt vinnufyrir-
komulag á þeim bæ, kvótaeigenda,
lækna og hjúkrunarfræðinga er
vilja heldur ekki breyta nokkru í
heilbrigðiskerfinu, bænda er
stunda búskap í Bændahöllinni við
Hagatorg, og á Keldum, og emb-
ættismanna hjá ríkinu er vilja
halda í eigin hlunnindi og starfs-
kjör, hvort sem þar er um að ræða
ómælt ráðstefnuflakk um heiminn
eða eitthvað annað sem erfitt er að
færa arðsemismat á?
Mér best vitanlega sitja til dæm-
is verkalýðsleiðtogar ekki aftarlega
á merinni hvað varðar launakjör,
alltént er nokkur vegur frá þeim til
þeiiTa er hvað lægst laun hafa í
þessu landi þrátt fyrir margra ára
starfsaldur á vinnumarkaði, og
tryggð og trúmennsku í starfi. Það
virðist gleymast að stórum hluta
þessa fólks er enn gert að lifa á
launum undir 100 þúsund krónum,
þegar skattar hafa verið dregnir
frá, en þrátt fyrir umtal um tvö
skattþrep um tíma, varð slíkt ekki
niðurstaða úr síðustu kjarasamn-
ingum, né heldur stytting vinnu-
tíma er vegur þungt til handa fjöl-
skyldufólki.
I rauninni hafa skilaboðin sjald-
an verið skýrari, þessir forystu-
menn munu aldrei breyta neinu
meðan þeir hinir sömu hafa með
málin að gera. Allt tal um lægstu
launin, höfum við heyrt of lengi frá
þeim er ekki hafa burði til þess að
breyta nokkrum sköpuðum hlut.
Því miður verður að segja hið sama
um nokkurn hluta kjörinna fulltráa
okkar til Alþingis. Þeir hinir sömu
hafa fjarlægst hin upphaflegu
markmið starfa sinna sem fulltráar
fólksins í landinu, þ.e. allra lands-
manna, ekki hluta þeirra. Flokks-
brotaþingmenn eru til dæmis mest
áberandi í fjölmiðlum um hvert
einasta mál er uppi er, enda í
mestri hættu um að missa þingsæti
sín er kosið verður aftur, hitt er
aftur annað mál að stjórnarþing-
menn komast vel hjá því að svara
til um skoðanir í hinum einstöku
málaflokkum er fróðlegt væri að
heyra skoðanir þeirra oftar í opin-
berri umræðu.
Einnig mætti að ósekju taka upp
umræðuþætti í sjónvarpi um hin
ýmsu mál, með fulltráum allra
flokka, af og til, og án þess að kosn-
ingar séu í vændum. Það er lands-
mönnum nauðsyn að vita hvort
fulltrái sá er kosinn var til þess að
gæta hagsmuna hans hefur skipt
um skoðun, eða stendur við skoðun
sína frá því íýrir kosningar, hvað
varðar málefni er varða lífsafkomu
landsmanna, ekki hvað síst er æ
fleiri hyggjast nú ganga til sængur
í sama rúmi, af kjömum fulltráum
er—flökkaðir hafa verið vinstri
menn, og enn aðrir er ganga úr
sínu gamla rámi með braki og
brestum er hingað til hafa talist til
hægri. Hvaða málefni ætla menn
að setja í öndvegi? A kannski loks-
ins að efla grunneiningu samfé-
lagsins, fjölskylduna, þannig að
böm fái notið samvista við foreldra
sína og stuðla þar með að eflingu
kristilegs siðgæðis meðal lands-
manna? A að sjá til þess að allir
aldraðir og sjúkir geti framfært
sér og sínum, með leiðréttingu þar
að lútandi, og greiðslu launa á
vinnumarkaði yfir lágmarksfram-
færslumörkum? Fyrr en þessum
markmiðum er náð, held ég að við
getum varla borið höfuðið hátt, né
heldur leyft okkur að telja börnum
okkar trá um að peningamir vaxi á
trjánum, því hvora tveggja þarf að
koma til hugvit og hendur í verð-
mætasköpun þjóðar.
GUÐRÚN MARÍA
ÓSKARSDÓTTIR,
Eiðistorgi 3, Seltjarnarnesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi.
Góð varahlutaþjónusta.
Þ. ÞORGRÍMSSQN &C0
A undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Ármúla 29. simi 553 8640
FYRIRLIS6JAN0I: GÖLFSLlFIVÉLiR - RIPPER ÞJÖPPOR - DJELUR
- STEYPUSR6IR - HRJERIVÉLAR - SR6RRDLÖB - Voaluð frailellsla.