Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 1

Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 1
STOFNAÐ 1913 205. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Clinton biður þingmenn Demókrataflokksins og ríkisstjórn sína enn afsökunar Þingið ákveður að gera skýrslu Starrs opinbera Washington. Reuters. SÉRLEG nefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins átti fund seint í gærkvöld þar sem ákveðið var að leggja til við fulltrúadeildina að gera opinberan meginhluta skýrslu Kenneths Starrs, sérlegs saksóknara, um Bill Clinton, Bandaríkjaforseta, sem hann afhenti þinginu í fyrradag. Eru forystumenn í Repúblikana- flokknum staðráðnir í að sjá til þess að meginhluti skýrslu Starrs verði kominn á Netið í kvöld, á milli sex og átta að íslenskum tíma, en demó- kratar höfðu farið fram á að Hvíta húsið fengi að kynna sér skýrsluna áður en hún yrði gerð opinber. David Kendall, lögmaður forset- ans, sagði skýrslu Starrs í gær „að- eins samansafn fullyrðinga og að- dróttana" og að forsetinn og lið hans biði með óþreyju tækifæris til að svara þeim. Heimildir hermdu þó í gærkvöld að þingnefnd hefði hafnað beiðni Kendalls um að forsetinn fengi að sjá og svara skýrslunni áður en hún yrði gerð opinber. Clinton hitti ríkisstjórn sína í gær- kvöld og baðst þar enn á ný afsökun- ar á framferði sínu. Að loknum fund- inum sögðu ráðherrar viðstaddir fundinn að rætt hefði verið hrein- skilnislega um mál forsetans og að fundurinn hefði verið „þrunginn til- fínningum". Gingrich hvetur til varúðar Fréttastofan Associated Press hafði eftir ónefndum heimildarmönn- um í gær að skýrsla Starrs færði rök fyrir því að fjórar forsendur væru fyrir málshöfðun til embættismissis á hendur forsetanum. Hann hefði framið meinsæri, misnotað vald sitt, staðið í vegi réttvísinnar og beitt vitnum í málinu þrýstingi. Er því haldið fram að Clinton hafí logið eið- svarinn bæði er hann flutti vitnis- burð í máli Paulu Jones í janúar og á nýjan leik í vitnisburði sínum 17. ágúst síðastliðinn. Leiðtogar bæði repúblikana og demókrata lögðu í gær áherslu á að samstaða þyrfti að vera um næstu skref og hvatti repúblikaninn Newt Gingrich, forseti fulltrúadeildarinn- ar, þingmenn til að vera varkárir í yfirlýsingum sínum á næstu dögum. Gingrich var spurður að því á CNN í gær hvort hann teldi að for- setinn ætti að segja af sér en sagði Clinton einan geta svarað þeirri spurningu. „Hann veit sjálfur hverj- ar staðreyndir málsins eru og ég held að hann ætti að hafa gert sér ljóst nú að allar munu þær verða lýð- urn ljósar áð lokum.“ A fundi sem Clinton átti í gærdag með leiðtogum demókrata í öldunga- deild Bandaríkjaþings baðst forset- inn enn á ný afsökunar og reyndi þannig að styrkja stöðu sína meðal demókrata. Tom Daschle, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni, sagði eftir fundinn að þingmenn hefðu hvatt Clinton til að vera samvinnu- þýður við þingið. Gert er ráð fyrir öngþveiti á Net- inu í dag þegar skýrsla Starrs verð- ur gerð opinber. Hægt er að nálgast hana á slóðinni www.thomas.loc.gov eða www.house.gov/icreport. ■ Bandaríkjaþing/26 ■ Evrópskir fjölmiðIar/26 Reuters CLINTON og kona hans, Hillary, í gærkvöld. Talsmaður forsetafrúar- innar segir að hún hafí fyrirgefíð manni sínum framhjáhald hans. Trimble og Adams ræddust við Belfast. Reuters. DAVID Trimble, forsætisráðherra Norður-írlands, og Gen-y Adams, leiðtogi Sinn Fein, áttu fund í gær, þann fyrsta milli leiðtoga lýðveldis- sinna og sambandssinna á Norður- írlandi síðan árið 1922. Trimble, sem hafði lýst því yfir fyrir fundinn að hann myndi ekki taka í höndina á Adams þar sem hann treysti honum enn ekki fylli- lega, sagði að fundurinn hefði verið „siðmenntaður“. Hann lagði hins vegar áherslu á að enn bæri ýmis- legt í milli þeirra Adams, sem lengi hefur verið grunaður um að hafa verið einn af höfuðpauram írska lýðveldishersins (IRA). „Pað er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að taka þátt í stjórnmálum að maður þarf að vinna með ýmiss konar fólki, og það era ekki allt englar," sagði Trimble. Adams lýsti einnig yfir ánægju sinni með fundinn í samtali við fréttamenn og sagði hann hafa verið uppbyggilegan. --------------- Óróleiki á fjár- málamörkuðum AHYGGJUR vegna mögulegrar ákæra á hendur Bill Clinton Banda- ríkjaforseta fyrir embættisafglöp ollu því að mikill óróleiki einkenndi markaði bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu í gær. Dow Jones-vísitalan féll um 249,48 punkta, sem er lækk- un um 3,2% frá deginum áður, en tók reyndar góðan kipp síðasta hálf- tímann fyi-ir lokun og var þá 7.615 punktar. FTSE 100-vísitalan breska féll einnig, var 174,7 punktum og 3,3% lægri en í upphafí dags, CAC-vísi- talan franska féll um 4,7% og DAX- vísitalan í Þýskalandi hafði fallið um 293 punkta við lokun, eða 5,8%. Jeltsín tilnefnir Primakov utanríkisráðherra sem næsta forsætisráðherra Prímakov heitir að halda umbótastefnunni áfram Moskvu, London. Reuters. Kommúnistar fágria en varkárni ein kennir viðbrögð á Vesturlöndum Nyrup fær hlýlegar móttökur í Færeyjum Þórshöfn. Morgunblaðið. POUL Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Dana, hlaut í gær mun hlýlegri móttökur við komuna til Færeyja en þegar hann kom þangað í janúar sl. Þá neitaði fjöldi færeyskra stjórnmálamanna ■ að hitta hann, enda lá þá ekki fyrir sam- komulag um milljarðagreiðslur til Færeyinga vegna banka- málsins. Nú er annað uppi á teningnum, Nyrup er boðinn velkominn í leiðara Sosialurin og á næstu dögum mun hann eiga þrjá fundi með Anfinn Kallsberg, lögmanni land- stjórnarinnar, en Kallsberg var einn þeirra sem neituðu að hitta danska forsætisráðherr- ann í ársbyrjun. I síðustu heimsókn Nyups mætti honum ískuldi en viðmót Færeyinga hefur hlýnað mjög vegna hagstæðrar niðurstöðu samkomulags danskra og fær- eyskra stjórnvalda um banka- málið. VARKÁRNI einkennh- viðbrögð leið- toga á Vesturlöndum við tilnefningu Jevgenís Prímakovs, starfandi utan- ríkisráðheraa Rússlands, sem næsta forsætisráðherra landsins. Kváðust leiðtogarnir vonast til þess að með skipan Prímakovs lægði öldurnar í rússneskum stjómmálum og að tek- ist yrði á við gríðarlegan efnahags- vanda Rússlands. Prímakov vildi í gær lítið tjá sig um stefnu sína, sagði aðeins að hann myndi halda áfram pólitískum og efnahagslegum umbót- um. Andstæðingar Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, sem eru í meiri- hluta á þingi, fógnuðu ákvörðun for- setans um tilnefninguna en dúman, neðri deild rússneska þingsins, mun greiða atkvæði um skipan Prímakovs í dag. „Skynsemin hafði yfirhöndina að þessu sinni,“ sagði Gennadí Zjúg- anov, leiðtogi kommúnista. Jeltsín tilkynnti í gærmorgun að Prímakov yrði forsætisráðherraefni hans í stað Viktors Tsjernomyrdíns, sem dúman hafði hafnað i tvígang. Lét hann með þessu undan þrýstingi kommúnista, sem höfðu sagt Príma- kov á meðal þeirra sem þeir myndu sætta sig við. Enn er of snemmt að segja til um getu Prímakovs til að takast á við efnahagsvandann en ráðherrann hef- ur lítil afskipti haft af efnahagsmál- um hingað til. Stjórnmálaleiðtogar á Vesturlöndum lögðu í gær áherslu á að Rússar uppfylltu þau skilyrði um umbætur sem Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn hefur sett fyrir lánum til landsins. Talsmaður Bandaríkja- stjórnar sagði hana búast við því að eiga gott og náið samstarf við Príma- kov. Þá sagði talsmaður þýsku stjórnarinnar Jeltsín hafa heitið Helmut Kohl Þýskalandskanslara því að komandi stjórn myndi halda áfram umbótum. Masljúkov líklega í stjórn Lítið er vitað um skipan væntan- legrar stjórnar Prímakovs en frétta- þjónusta Kremlar sagði frá því í gær að Júrí Masljúkov, einn þeirra sem talinn var koma til greina í forsætis- ráðherraembættið, myndi líklega taka sæti í stjórninni. Masljúkov gegndi embætti viðskipta- og iðnað- arráðherra í síðustu ríkisstjórn. Hef- ur hann verið sagður líklegur til að hreppa embætti fyrsta aðstoðarfor- sætisráðherra. Þá er búist við að Viktor Gerashjenkó, fyi-rverandi yfirmaður rússneska seðlabankans, snúi aftur til þess starfa, og að Igor Ivanov, fráfarandi aðstoðarutanrík- isráðherra, og Andrei Kokosjín, rit- ari öryggisráðs forsetans, muni lík- lega fá sæti í væntanlegri ríkis- stjórn. Það hefur vakið athygli að Príma- kov sinnti embættisskyldum sínum sem utanríkisráðherra í gær, þrátt fyrir tilnefninguna, ólíkt Tsjernó- myrdín, sem flutti inn í forsætisráð- herrabústaðinn nokkrum klukku- stundum eftir að Jeltsín tilnefndi hann fyrir hálfum mánuði. ■ Fastur fyrir og nýtur/24 ■ Hver mun í raun stjórna/24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.