Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 51

Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 51 MINNINGAR ÞORA R. STEFÁNSDÓTTIR + Þóra R. Stefáns- dóttir fæddist í Ólafsvík 29. deseiri- ber 1909. Hún Iést á Landakotsspítala 26. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 3. september. Elsku „amma“ Þóra mín! Nú ert þú farin frá okkur og söknuðurinn er ólýsanlega sár. Þú varst alveg einstök vinkona. „Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur" lýsir fólki sem stjórnast af rödd hjarta síns og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur" á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og skarð þeirra verður aldrei fyllt. „Einstakur" er orðið sem best lýsir þér. (Teri Femandez) Það dýrmætasta sem okkur fjöl- skyldunni hefur hlotnast var að fá að eignast vináttu þína. Við kynntumst þér fyrir 18 árum þegar ég var að byrja að skynja tilveruna. Þú bjóst í sama húsi og við. Það var svo notalegt að vita af þér á pallinum okkar og alltaf jafn hlýlegt að koma yfir til þín. Frá upphafi leit ég á þig sem ömmu mína og minn besta vin. Þú leyfðir mér að kalla þig ömmu og þannig var okkar samband alla tíð. Þú varst alltaf svo góð við mig. Við áttum margar góðar stundir saman. Þú sast oftast við endann á eldhúsborðinu okkar í sætinu þínu og sagðir okkur ógleymanlegar sögur. Oft talaðir þú um uppvaxtarárin þín og lífið í gamla daga. Ekki var alltaf auðvelt þá, en þrátt fyrir það varst þú alltaf mjög jákvæð og glaðvær. Eg hugsa stöðugt um þig og sé fyr- ir mér hvíta fallega englahárið þitt. Bhdan og hjartahlýjan skein af þér. Ég mun aldrei gleyma þér. Þú vaktir yfir mér með væntumþykju þinni. Ég man til dæmis vel þá daga þegar ég var lítill óþekktarangi. Ég vildi aldrei vera í skónum mínum og átti það til að henda þeim af mér úti og stalst til þess að vera berfætt. Þá stóðst þú upp á svölum og sagðir mér að koma strax inn því þú óttaðist að ég gæti fengið glerbrot í fæturna. Ég hlýddi þér því þín ráð voru alltaf svo góð. Ég man líka að á þessum tíma var ég stundum að reyna að stinga af yfir umferðargötuna. Þá voruð þið mamma alltaf úti í glugga og gættuð þess að ég kæmist ekki langt. Oft kallaðir þú á mig yfir til þín. Þá varst þú búin að laga „ömmumat" handa mér og stakkst þá einnig nammimolum upp í mig í leiðinni. Seinasta gjöf þín til mín var tákn- ræn. Þú gafst mér undurfallegan borðlampa, ljósið þitt sem ég mun alltaf láta lýsa mér. Ein jólin gafst þú foreldrum mín- um mjög fallega stofuklukku með sláttukólfi sem þú sagðir að ætti að vera til minningar um þig þegar þú værir farin af þessari jörð. Nú horfi ég á klukkuna á hverjum degi og finnst ég horfa á hjartsláttinn þinn. Ef allir væru eins og þú, þá væri heimurinn frábær. „Lífið sem við fáum að láni er stutt, en minningin um líf sem vel var varið er eilíf.“ Ég minnist samvenistunda okkar með miklu þakklæti og hlýhug. Emma Vilhjálmsdóttir. Elsku „amma“ Þóra! Meðan veðrið er stætt berðu höfuðið hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans ljóð upp við ljóshvörfin björt og heið. Þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó að byrðin sé þung sem þú berð þá stattu fast og vit fyrir víst þú ert aldrei einn á ferð. (Höf. ókunnur) Fyrir átján árum komst þú fyrst inn í líf fjölskyldunnar eins og bjartur sólargeisli. Við keyptum íbúð í sömu blokk og þú. Fyrsta árið vann ég sem dagmamma til þess að geta verið heima með dætur okkar, þær Emmu og Rögnu. Einn daginn var ég með barnahópinn minn að leik hér fyrir framan blokkin okkar. Þá sáum við ykkur Ester, dóttur þína, í fyrsta sinn koma heim að húsinu og það var „ást við fyrstu sýn“. Annar htli dagmömmudrengurinn minn, sem þá var þriggja ára gamall, sá ykkur koma gangandi. Hann tók á rás og hljóp til þín með útbreiddan faðminn og kallaði hátt með gleðiróm „amma mín, amma mín“ og svo hjúfraði hann sig að þér og þú umvafðir litla ang- ann og hafðir greinilega gaman af. Það skrýtna var að litli drengurinn átti enga ömmu á þínum aldri en þið tvö urðuð miklh' vinir frá þeirri stundu. Það sem vakti sérstaka at- hygli mína við þennan atbui'ð var hin mikla innri birta sem lýsti af ykkur mæðgunum. Frá þessum fyrstu kynn- um hefur þú, elsku „amma“ Þóra, ver- ið okkur einstaklega náin og dýrmæt vinkona og þið mæðgumar báðar. Þú varst heilsteypt, stórbrotin, ijöl- hæf mannkostakona. Tungutak þitt var kjarnyrt og fagurt og frásagnar- hæfileikinn heillandi. Glaðværð þín, umvefjandi kærleikur og bjartsýni varð okkur „bömunum þínum á pall- inum okkar" svo sapnarlega upp- spretta gleðinnar. A milli okkar myndaðist djúp gagnkvæm væntum- þykja sem aldrei hefur borið skugga á öll þessi ár. Þið Guðmundur „afi“ vomð okkur öllum svo undur góð og þið voruð dætrum okkar sem „amma og afi“. Þegar Guðmundur „afi“ lést eftir sín erfiðu veikindi árið 1988 gekk það mjög nærri þínu þreki. Þér datt þó aldrei í huga að láta hugfall- ast. Þú varst alla ævi fastákveðin í að lifa lífinu lifandi og reyna að gera þitt besta. Að hafa fengið að eignast vin- áttu ykkar var okkur fjölskyldunni sérstakt lífslán. Á langri ævi þurftuð þið hjónin að takast á við marga þungbæra hluti, en samheldni ykkar, þrautseigja og viljastyrkur var það bjarg sem þið byggðuð á. Við leiðarlok geti þið glast saman yfir því hve börnin ykkar og fjöl- skyldur þeirra bera bernskuheimili sínu fagurt vitni. Við hugsum um það nú þegar þið bæði eruð horfin af okk- ar tíðnisviði hér á jörðinni hve góð- vildin og kærleikurinn til samferða- fólksins var einkennandi fyrir ykkur hjónin. Ykkar sterkasta hugsun var að láta gott af ykkar leiða. Þið voruð okkur yngra fólkinu sannarlega góð fyrirmynd - veganesti sem hollt er hverjum manni að tileinka sér. Þrátt fyrir háan aldur fannst okkur þú aldrei verða gömul í hugsun; þú varst alltaf svo glöð í hjartanu og áhuga- söm. Þú talaðir oft um liðna tíð, bæði um gleðilega atburði og einnig þá sem reynt höfðu mjög á þitt sálar- þrek, en hin líðandi stund var þér þó yfirleitt miklu hugstæðari. Djúp sál- an-ó og lífsgleði einkenndu fas þitt. Skýi' rökhugsun og ótrúlega kristal- tært minni hafðir þú til æviloka. Þú varst ávallt svo fallega til höfð, sama hvað þú varst að bjástra og þitt glófagra hár alltaf eins og þú værir nýkomin úr lagningu. Þannig varst þú alla tíð þar til yfir lauk. Seinustu árin varst þú oft mjög þjáð af sjúk- leika þínum, en þrátt fyrir það var aldrei svo af þér dregið að þú hefðir ekki kraft til þess að hugsa fyrst um annarra hag og senda þeim þínar kærleikshugsanir. Börnin þín og fjöl- skyldur þeirra umvöfðu þig og sýndu þér gagnkvæma ræktarsemi allt til hinstu stundar. Nú ert þú horfin sjónum okkar, elsku „amma“ Þóra, en samt ert þú okkur svo undur nærri, dýrmæt perla samofin okkar helgustu hugsunum. Takk fyrir tímann sem með þér við áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð eftir kveðjuna hér. Þinn orðstír mun lifa um ókomna daga. Indælar minningar hjarta okkar ber. (P.Ó.T) Við færum börnum þínum og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. „Börnin þín á pallinum okkar.“ Erna Fjóla Baldvinsdóttir og Vilhjálmur Vilhjálmsson. SIGRIÐUR RAGNARSDÓTTIR + Sigríður Ragnarsdóttir fæddist á Hrafnabjörgum í Lokinhamradal í Arnarfirði 13. september 1924. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 30. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 7. september. Það var sumarið 1988 sem ég varð þess aðnjótandi að fá að dvelja hjá Siggu á Hrafnabjörgum. Þó að þetta væri ekki langur tími var hann mér mikii upplifun og opnaði fyrir mér nýjan heim. I raun var þetta likt og að vera færður yfir í annan tíma því allar aðstæður voru svo framandi og nútímatæknin engin. Að fá að upplifa þessa stemmningu Kðins tíma og læra að tileinka sér vinnubrögð sem þekkjast ekki í nútíma búskap voru mikil forréttindi fyrir fimmtán ára ungling úr borginni. Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Öldugranda 9, Reykjavík. Þóra Halldórsdóttir, Gréta Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Ragnheiður I. Halldórsdóttir, Guðmundur G. Halldórsson, Sigrún Halldórsdóttir, Björn Halldórsson, Gunnar R. Sveinbjörnsson, John DeMarco, Guðmundur V. Ólafsson, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir, Hafþór Edmond Byrd, Auður Gilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Grafarvogshátíð í TILEFNI af Grafarvogshátíð verður guðsþjónusta á morgun, laugardaginn 12. september, kl. 10. Elísabet Gísladóttir, djáknanemi prédikar. Sr. Sigurður Arnarson og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna fyrir altari. Unglingar úr skólum Grafai-vogssóknar flytja ritningarorð. Skátar úr skátafélag- inu flytja bæn. Kór Grafarvogs- kirkju syngur undir stjórn Harðar Bragasonar. Unglingakór Grafar- vogskirkju syngur. Stjórnandi Ás- laug Bergsteinsdóttir. Organisti Hörður Bragason. Prestarnir. Laugarneskirkja. Mömmumorg- unn kl. 10-12. Langholtskirkja. Opið hús í dag kl. 11-13. Kyrrðarstund kl. 12.10. Eft- ir stundina verður boðið upp á súpu, brauð og salat. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Bænastund kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Sjöunda dags aðventistar á Is- landi: Á laugardag: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Björg- vin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíufræðsla að lokinni guðsþjónustu. Ræðumaður Einar Valgeir Arason. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Guðni Kristjánsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu- maður Frode Jakobsen. Samfélag aðventista, Sunnuhlíð 12, Akureyri: Samkoma kl. 10. Ræðu- maður Jón Hjörleifur Jónsson. Sigga var mikill höfðingi, ávallt heiðarleg og miklum gáfum gædd. 'Hún var ákveðin og hreinskilin og kom til dyi-anna eins og hún var klædd en alltaf var stutt í húmorinn. Hjá henni leið manni eins og heima hjá sér því móttökurnar voru hlýjar og apdrúmsloftið í sveitinni yfirveg- að. Otrúleg seigla einkenndi hana og oft hugsaði maður til hennar á vetr- um þegar kalt var og snjóþungt því hún gekk ein til sinna búverka og var þá ekki spurt hvernig viðraði. Hún átti þó góða að sem komu henni til aðstoðar eftir því sem aðstæður leyfðu og hjá henni skipuðu þeir sér- stakan sess. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari merku konu og veit að ég mun lengi búa að þeim kynnum. Aðstandendum votta ég samúð mína. Eva Ólafsdóttir. Vinningaskrá 18. útdráttur 10. septemberl998. Bifreiðavinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaidur) 6466 1 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr, 200.000 (tvöfaldur) 56947 57968 76985 77258 Kr. 50.000 Ferðavinningur 2657 8597 19931 39591 62637 68980 6785 18389 38980 57336 68809 76300 Kr. 10.000 Húsbúnaðarvinningur 1056 12038 27545 34267 40890 55340 64864 77339 1685 13335 28499 34280 43638 55473 65591 77347 2267 13577 28940 34609 44269 55877 65630 77631 3374 15654 28947 35525 44440 57444 68474 77773 3722 17271 28972 36105 45456 57993 68850 77851 4408 17942 29262 36678 48620 58445 69540 77870 6377 18452 30662 36679 49634 60467 69866 78686 6446 18704 31123 36826 50168 60908 70817 79401 9482 20902 31684 37259 50943 61319 72075 79929 9562 22581 32891 37284 51028 61398 75218 9897 24710 33557 37385 51349 63607 75277 10060 25071 33596 38845 54643 64647 77043 11735 26585 33643 40481 55218 64815 77246 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 205 8943 18016 27591 37637 48475 58393 69470 225 9006 18029 28127 38251 48823 58607 70810 384 9479 18340 28335 38701 49252 60091 70832 531 9574 18771 28513 38803 49354 60419 71428 734 9709 19400 28930 39097 49668 60484 71473 1212 10713 20052 29037 39134 49819 60839 72444 1273 10727 20543 29306 39149 50380 61147 73502 1476 11160 20552 29375 40288 50783 62098 73597 1887 11869 20562 29820 40387 51149 62106 73625 1980 12258 20967 30012 40575 51253 62196 73696 2001 12519 21058 30102 41268 51635 62321 74580 2015 12833 21223 30241 41930 51916 63171 74631 2238 13193 21252 30337 42325 52124 63370 74772 2726 13334 21742 32048 42440 52379 63513 75184 3114 13903 21847 32051 43441 52382 64275 75513 3227 13942 22160 32424 43654 52462 64380 76054 3457 14147 22236 32841 44055 52740 64751 76117 3498 14237 23022 33051 44402 53513 64997 76497 4114 14273 23306 33217 44662 53837 65581 76800 4542 14761 23676 33745 44682 54076 66239 77056 4865 15217 23698 34046 45026 54218 66281 78338 5035 15479 24264 34490 45390 54944 66434 78428 5531 15639 24440 35086 45640 55086 66600 78668 6380 15727 24559 35090 45989 55480 66777 79001 6579 16020 24584 35380 46098 55548 66905 79045 6655 16283 24657 35454 46430 55928 67051 79330 6988 16347 24662 36173 46555 56132 67374 7227 16362 25667 36409 46684 56717 67386 7593 16377 25832 36747 46856 56960 68564 7657 17143 26428 36961 47774 57104 68860 8091 17566 27063 37118 47843 57144 69031 8593 17890 27192 37307 47948 57506 69191 Nœsti útdráttur fer fram 17. september 1998 Heimasíða á Intemeti: www.itn.is/das/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.