Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jevgení Prímakov, væntanlegur forsætisráðherra Rússlands
Fastur fyrir og nýtur
almennrar virðingar
JEVGENÍ Prímakov, sem Borís
Jeltsín, forseti Rússlands, hefur til-
nefnt sem næsta forsætisráðherra
landsins, hefur þá sérstöðu meðal
rússneskra stjómmálamanna, að
hann nýtur almennrar virðingar,
ráðamannanna í Kreml, stjómar-
andstöðunnar og ríkisstjórna á
Vesturlöndum. Hann er 68 ára gam-
all, fyrrverandi yfirmaður leyni-
þjónustunnar KGB og átti sæti í
stjómmálaráði kommúnistafiokks-
ins á sínum tíma. Að sögn Reuters-
fréttastofunnar þótti hann atkvæða-
mikill í kalda stríðinu og hefur getið
sér orð fyrir að verja hagsmuni
Rússlands af mikilli hörku síðan
hann varð utanríkisráðherra 1996.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra hefur átt nokkra fundi með
Prímakov og lætur vel af kynnum
sínum við hann. Segir hann vera
fastan fyrir en áreiðanlegan.
Prímakov hefur aldrei haidið sig
mikið í sviðsljósinu og hann tók því í
fyrstu fjarrí að verða forsætisráð-
herra þegar kommúnistar stungu
upp á því í síðustu viku. Andstæð-
ingar hans fínna honum það til for-
áttu, að hann hafí litla reynslu af
efnahagsmálum en Jeltsín féllst á
hann sem málamiðlun í þeirri
kreppu, sem stjórnmálin í Rúss-
landi era komin í. Prímakov er mik-
ill aðdáandi góðra leynilögreglu-
sagna og víst er, að hann mun þurfa
á öllu sínu innsæi að halda eigi hon-
um að takast að toga þjóð sína burt
frá bjargbrúninni.
„Þessi maður er til“
Viktor Tsjemomyrdín, starfandi
forsætisráðherra, segist hafa lagt til
við Jeltsín, að Prímakov yrði næsti
forsætisráðherra vegna þess, að
hann væri „lýðræðissinni og reynd-
ur maður, sem nyti virðingai' á al-
þjóðavettvangi" og Grígorí Javlín-
skí, einn helsti oddviti frjálslyndra
manna á þingi, sagði sl. mánudag,
JEVGENÍ Prímakov, fyrrver-
andi yfirmaður rússnesku leyni-
þjónustunnar, hlaut stuðning
annarra stjórnmálaleiðtoga
Rússlands til þess að gegna
embætti forsætisráðherra að
líkindum vegna þess að hvorir
tveggja vonast til að ná yfirráð-
um yfir efnahagsmálum lands-
ins. Prímakov, fram að þessu
starfandi utanríkisráðherra,
hefur að mati vestrænna stjórn-
málaskýrenda nægt pólitískt
vægi til að vera fær um að leysa
þann hnút sem kominn var á
stjórnarkreppuna í landinu, þar
sem hvorki Borís Jeltsín forseti
né stjórnarandstaðan í
dúmunni, neðri deild þingsins,
voru tilbúnir til að víkja fet frá
afstöðu sinni í deilunni, sem
gert hefur landið sljórnlaust
frá því forsetinn vék Sergej
Kíríjenkó frá fyrir tæpum mán-
uði og tilnefndi Viktor
Tsjernomyrdín í hans stað.
En ástæðan fyrir því að flest-
ir hafa getað sameinazt um
Prímakov sem málamiðlun í
forsætisráðherrastólinn þykir
liggja í því að lítið er vitað um
þær hugmyndir sem hann að-
hyllist um hvernig taka skuli á
hinum gífurlega vanda sem við
blasir í efnahagsmálum og hvað
gera skuli til að slá á vaxandi
þjóðfélagslega ólgu í landinu.
að fínna yrði mann, sem ekki yrði
rekinn úr starfí eftir þrjá mánuði.
„Hann ætti ekki að tilheyra nein-
um stjórnmálaflokki, njóta al-
mennrar virðingar og hafa engan
áhuga á forsetaembættinu. Þessi
maður er til. Hann heitir Jevgení
Maxímovítsj Prímakov," sagði Ja-
vlínskí.
Þessi ummæli sýna vel sérstöðu
Prímakovs. Kommún-
istar stungu upp á hon-
um, frjálslyndir menn
fógnuðu því og nú hefur
Jeltsín lagt blessun
sína yfír það.
Söng dúett
með Albright
Prímakov er einnig
vel metinn á Vestur-
löndum. Raunar var
honum vantreyst í
fyrstu en síðan hefur
myndast mjög gott
samband með honum
og Madeleine Albright,
utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Sem
dæmi um það má nefna,
að nýlega voru þau í veislu og sungu
þá saman dúett gestunum til
óblandinnar ánægju.
Rússar eru mjög andvígir stækk-
un Atlantshafsbandalagsins, NATO,
og Prímakov hefur haldið á þvi máli
af mikilli festu. Fyrir það hefur
hann áunnið sér virðingu landa
sinna og einnig ráðamanna á Vest-
urlöndum. Þá er honum þakkað það
fyrst og fremst að álit og áhrif
Rússlands á alþjóðavettvangi hafa
heldur verið að aukast miðað við þá
öskustó, sem þau vora komin í eftir
hrun Sovétríkjanna. Honum hefur
einnig tekist að bæta samskiptin við
Kína og Japan og ýmis ríki, sem áð-
ur höfðu góð tengsl við Sovétríkin,
og líklegt er, að hann hafí sérstakan
áhuga á Miðausturlöndum. Þar var
Stjórnmálaskýrendur segja
að í versta falli muni Prímakov
verða óskilvirkur leiðtogi, sem
skorti einurð eða stuðning til að
hrinda í framkvæmd stefnu sem
vænleg væri til árangurs. „Sér-
svið Prímakovs eru ekki efna-
hagsmál, svo að allt veltur á því
hveijir veljast í lið með hon-
um,“ sagði Thierry Malleret, yf-
irhagfræðingur fjárfestinga-
bankans Alfa Capital í Moskvu.
Og Heinz Timmermann, sér-
fræðingur í rússneskum stjórn-
málum við eina fremstu utan-
ríkismálarannsóknastofnun
Þýzkalands, sagði að andstæðar
fylkingar rússneskra stjórn-
mála gætu sameinazt um
Prímakov en staða hans væri
ekki nógu sterk til að hann gæti
veitt landinu fullnægjandi for-
ystu til lengri tíma.
Rússneski verðbréfamarkað-
urinn, sem hefur gengið í gegn
um gífurlegar hremmingar síð-
hann fréttaritari fyrir Prövdu í
nokkur ár seint á sjöunda áratugn-
um.
Prímakov hefur reynt að miðla
málum milli íraksstjómar og Sa-
meinuðu þjóðanna og í nóvember
1997 féllst stjómin í Bagdad á að
leyfa vopnaeftirlitsnefndinni að
starfa áfram eftir viðræður Tareqs
Aziz, utanríkisráðhema íraks, við
Prímakov og Jeltsín.
Það var sú umbun,
sem Prímakov fékk
fyrir tilraunir sínar, að
vísu árangurslausar, til
að koma í veg fyrir
Persaflóastríðið 1991
með málamiðlunar-
samningi við Iraka.
Ihaldssamur
að eigin sögn
Prímakov tók við
sem utanríkisráðherra
af Andrei Kozyrev,
sem var mjög vinsam-
legur vestrænum ríkj-
um, eftir sigur kómm-
únista í þingkosning-
unum 1995. Hafði hann
þá verið yfirmaður erlendu leyni-
þjónustustarfseminnar í fimm ár og
lýsti sjálfum sér sem íhaldsmanni.
Styður hann meðal annars hið um-
deilda samband Rússlands og
Hvíta-Rússlands en harðlinumaður-
inn Alexander Lúkashenko, forseti
þess síðarnefnda, er hreinasta and-
styggð í augum frjálslyndra manna
í Rússlandi.
Vel fór á með þeim Prímakov og
Míkhaíl Gorbatsjev og á áttunda
áratugnum, á valdatíma Leoníds
Brezhnevs, var hann talinn einn
mesti sérfræðingur Sovétríkjanna í
málefnum Austurlanda. Hann var
félagi í kommúnistaflokknum frá
1959 þar til Jeltsín lagði hann niður,
átti sæti í miðstjórninni og sat í
stjórnmálaráðinu í skamman tíma
astliðnar vikur, tók dágóðan
kipp upp á við eftir að tilnefn-
ing Prímakovs fregnaðist. Vísi-
tala hlutabréfa hækkaði um
7,5%.
Dúman mun greiða atkvæði
um skipan Prímakovs í dag. All-
ir þingflokkar lýstu strax í gær
stuðningi við hann að þjóðern-
issinnanum Vladimír Zjírínov-
skí undanskildum.
Ná kommúnistar að
láta kné fylgja kviði?
Spurningin er, livort komm-
únistum, sem hafa tögl og
hagldir í dúmunni, takist að láta
kné fylgja kviði, nú þegar
Jeltsín lét undan ítrekuðum og
háværum kröfum þeirra um að
hann félli frá stuðningi sinum
við Tsjernomyrdín, og nái að
hafa slík áhrif á val manna í rík-
issljórnina, að sú efnahagsstefna
sem kommúnistar aðhyllast
verði ofaná í sljórnarstefnunni.
án atkvæðisréttar. Ekki þykir hann
mikill ræðumaður og hann hefur
ekki haft nein afskipti af innanland-
spólitíkinni síðan hann varð ráð-
herra. Hann var kjörinn á sovéska
þingið 1988 og 1990 varð hann einn
af ráðgjöfum Gorbatsjevs.
Jevgení Prímakov fæddist í Kiev í
Úkraínu en ólst upp í Tbilisi, höfuð-
borg Georgíu. Að námi loknu 1953
hóf hann störf sem fréttaritari fyrir
ríkissjónvarpið og útvarpið. Hann
er ekkjumaður, á eina dóttur og
eina dótturdóttur. Segist hann hafa
yndi af leynilögreglusögum, horfir
nokkuð á sjónvarp og iðkar sund en
segir, að starf sitt í leyniþjónust-
unni og utanríkisþjónustunni hafi
löngum gert sér erfitt fyrir með að
sækja mikið leikhús og veitingahús.
Prímakov hefur fengið sinn
skammt af andstreyminu í lífi sínu,
missti son sinn ungan úr hjartaáfalli
og konu sína á síðasta áratug. A
Vesturlöndum hefur sumum fundist
hann vera dálítið þungur og laus við
gamansemi en Anatolí Dobi-ynín,
fyrrverandi sendiherra Sovétríkj-
anna í Bandaríkjunum, segir ekkert
vera fjær lagi. Vissulega taki hann
starf sitt alvarlega en þeir, sem einu
sinni hafí starfað með honum, vilji
gera það aftur.
Gæti aukið stöðugleikann
„Eg hef mjög góða reynslu af
samstarfi og samskiptum mínum
við Prímakov. Hann er vel inni í
málum, fljótur að setja sig inn í
hlutina og hefur reynst mjög áreið-
anlegur í þeim samskiptum, sem ég
hef átt við hann, Fastur fyrir en
hreinn og beinn og vafalaust góður
samningamaður," sagði Halldór As-
grímsson utanríkisráðherra í sam-
tali við Morgunblaðið. Kvað hann
erfítt að segja nokkuð fyrir um þró-
unina í Rússlandi en hann hefði þó
trú á, að Prímakov gæti komið á
auknum stöðugleika í landinu.
„Enginn þeirra sem hafa set-
ið að kjötkötlunum og bera
ábyrgð á arðráni landsins mun
fá sæti í stjórn Prímakovs,“
lýsti Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, yfir í dúmunni.
Zjúganov hefur ítrekað hafnað
fijálslyndum umbótaáformum
og hvatt til lausna sem byggjast
á peningaprentunarstefnu. Þá
stefnu hafa mótað menn á borð
við Júrí Masljúkov, sem var
efnahagsmálaráðherra á loka-
skeiði Sovétríkjanna.
En Richard Gray, hagfræð-
ingur með hagkerfi fyrrver-
andi austanljaldsríkja að sér-
sviði hjá Ameríkubanka í
Lundúnum, leiddi að því likum
að Tsjernomyrdín, sem hefur
lagt fram hófsamlega frjáls-
lyndar efnahagsaðgerðir en „á
þessum síðustu og verstu tím-
um“ mælt með peningaprent-
un, yrði í raun með hendur á
stjórnartaumunum að tjalda-
baki.
En þegar svo margir reyna
að hafa hönd í bagga með
stjórninni og Jeltsín heldur sig
að miklu leyti til hlés, er óljóst
hvort Ieyniþjónustumeistarinn
fyrrverandi geti með árangurs-
ríkum hætti sfjórnað efnahags-
málunum, tekið umdeildar en
nauðsynlegar ákvarðanir og
hrint þeim í framkvæmd.
Fossett og
Branson
slá saman
BANDARÍSKI ævintýramað-
urinn Steve Fossett, sem var
næstum því búinn að týna líf-
inu er loft-
belgur hans
hrapaði í
Suður-
Kyrrahaf í
síðasta
mánuði,
hefur
ákveðið að
slást í för
með breska viðskiptajöfrinum
Richard Branson í tilraun til
að fljúga í fyrsta sinn í kring-
um jörðina á loftbelg. Kapp-
arnir, sem hafa hingað til ver-
ið keppinautar, munu leggja
upp í leiðangur sinn frá
Marokkó í nóvember.
Níu látast
eftir árekstur
FIMM manns hafa fundist
látnir og fjórir í viðbót eru
taldir af eftir að tvær pakist-
anskar herflutningaflugvélar
rákust saman með þeim afleið-
ingum að kviknaði í þeim.
Areksturinn átti sér stað á
herflugvelli í höfuðborginni
Islamabad og var önnur flug-
vélin að lenda og hin að hefja
sig til flugs. Ekki var skýrt frá
orsök slyssins.
Frakkar
hlynntir
hjónaböndum
HELMINGUR frönsku þjóð-
arinnar er hlynntur því að
samkynhneigðir fái að ganga í
hjónaband, samkvæmt skoð-
anakönnun sem birt var í gær.
Þá telur fjórðungur Frakka að
samkynhneigð pör ættu að
hafa rétt til að ættleiða böm.
Skoðanakönnunin var gerð í
tengslum við tillögur frönsku
ríkisstjórnarinnar um að veita
öllum pömm í sambúð sömu
réttindi og hjónum af gagn-
stæðu kyni.
Anwar verður
ákærður
FORSETI Malasíu, Mahathir
Mohamad, sagði í gær að lög-
regla myndi leggja fram
ákæm á hendur Anwar Ibra-
him, sem vikið var úr ríkis-
stjórninni í síðustu viku, um
leið og nægar sannanir gegn
honum lægju fyrir. Hann er
meðal annars sakaður um
kynferðisglæpi, landráð og að-
ild að morði.
Innanríkis-
ráðherra til
meðvitundar
JEAN-PIERRE Chevenem-
ent, innanríkisráðherra Frakk-
lands, komst til meðvitundar í
gær, en hann hafði verið í dái í
átta daga eftir að hafa gengist
undii' gallsteinaaðgerð. Læknir
ráðhen-ans sagði að hann
þyrfti að vera í öndunarvél um
tíma, en ekki væri enn hægt að
meta hvort hann hefði oi'ðið
fyrir varanlegu heilsutjóni.
Vangaveltur stjórnmálaskýrenda um val Prímakovs
sem forsætisráðherraefni
Moskvu. Reuters.
Hver mun í raun
stjórna efnahags-
málum Rússlands?
Jevgení
Prímakov