Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 45
málabaráttunni vestur á fjörðum og
I raunar ávallt síðan.
Kristín Ólafsdóttir var ljósmóðir
og sinnti því starfí einstaklega vel.
Hún var hjartahlý og góðviljuð og
mikils metin bæði af samstarfsfólki
og sjúklingum. Kristín var þar að
auki mesta myndarkona í sjón og
reynd og fyrirmyndar húsmóðir.
Því var það, að Isfirðingar söknuðu
] hennar og þeiira hjónanna beggja
þegar þau ákváðu að fylgja í fót-
spor svo margra annarra og flytjast
1 búferlum til Akraness.
Á Aki-anesi kunnu menn að meta
Rristínu og störf hennar ekki síður
en vestur á Isafirði. Þar hélt hún
áfram að vinna jafnaðarstefnunni
eins og mest hún mátti og lagði eins
og ávallt áður jafnan gott til allra
mála. Eftir að hún flutti búferlum
bar fundum okkar oft saman á sam-
komum og flokksþingum Alþýðu-
flokksins og ávallt voru þeir jafn
ánægjulegir og hlýlegir.
Nú er Kristín Ólafsdóttir látin.
Góð kona gengin. Fyrir hönd
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks Islands færi ég henni kveðj-
ur og þakkir. Sjálfur minnist ég
hennar með hlýhug og virðingu og
þakka henni samíylgd og stuðning.
Kristmundi, eiginmanni Kristínar,
og fjölskyldu hennar allri sendi ég
einlægar samúðarkveðjur.
Siglivatur Björgvinsson alþm.
I
Þegar ég var í Iþrótta-
miðstöðinni á Aki-anesi miðviku-
daginn 2. september síðastliðinn,
sagði Hallgrímur Ólafsson mér að
mín kæra vinkona og skoðanasyst-
ir, Kristín, systir hans, hefði látist
þá um morguninn. Mér varð hverft
við og varð hugsað til þeirra hjóna,
Ki'istínar og Kristmundar, sem
I hafa verið sem eitt í öllum gerðum
1 á sameiginlegri lífeleið. Hvarvetna
um landið hef ég hitt fólk sem á ein-
hvem hátt hefur átt samleið og
samskipti við Kristínu ljósmóður og
Kristmund og ávallt verið beðinn
fyrir hlýjar kveðjur til þeirra. Þetta
ásamt mörgu öðru hvarflaði um
hugann í einveru og þögn í kjölfar
orða Halla sem svaraði þegar ég
j spurði um Kristínu: Hún dó í morg-
un, vinur, klukkan 11. Svo tókumst
| við í hendur - orð voru óþörf.
Kynni okkar Kristínar hófust
fyrir alvöru þegar ég fór að hafa af-
skipti af stjómmálum 1984-86. Ég
hafði kannast við Kristínu ljósmóð-
ur gegnum bræður hennar Samma
og Halla og af góðu orðspori við
ljósmóðurstörf til langs tíma.
Ágætur látinn vinur okkar beggja
sem var samstarfsmaður minn og
: félagi í Sementsverksmiðjunni,
Hannibal Einarsson, fyllti síðan út í
með lýsingu á gæðamanneskju sem
V Kristín reyndist mér og öðram sem
áttu með henni samleið.
Starf og félagsskapur Kristínar
við okkur í kjördæmisráði Alþýðu-
flokksins á Vesturlandi og íyrir
okkar hönd á flokksþingum og í
flokkstjórn Aiþýðuflokksins var
leyst af einlægni og réttsýni sem
við félagarnir þökkum að leiðarlok-
J um. Þátttaka í félagsstarfi Alþýðu-
flokksfélags Akraness var á sama
hátt, allt jákvætt með hvatningu og
* einlægni.
Undirritaður og fjölskylda hafa
notið ógleymanlegrar ástúðar og
hlýju Kristínar og Kristmundar á
liðnum árum.
Lífshlaup Kristínar verður ekki
rakið í þessari grein, en aðeins get-
ið um það sem lýtur að persónuleg-
um kynnum og félagsskap. Kristín
Ú vildi enga deyfð heldur kátínu og
hresst fólk í kringum sig, þannig
! munum við hana allir vinir og félag-
Vs ar. Hún vildi ekki ræða um sjúk-
dóm sinn, heldur hvatti til baráttu
fyrir því sem lýtur að almannaheill.
Við kveðjum með söknuði og
vottum þér kæri vinur, Kristmund-
ur, og fjölskyldu þinni okkar inni-
legustu samúð. Við vitum að í minn-
ingu Rristínar mun jafnrétti og
bræðralagshugsjónin verða okkur
ð leiðarljós á komandi tímum sem
I væri hún í okkar hópi.
Fyrir hönd kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins á Vesturlandi.
Edda og Gísli S. Einarsson.
+ Einar K.
Gíslason fæddist
í Reykjavík 27. apríl
1917. Hann lést á
heimili sínu mánu-
daginn 31. ágúst.
Foreldrar hans
voru Gísli Sigurðs-
son, fæddur á Króki
í Ölfusi 29.11. 1889,
dáinn 28.7. 1980, og
Anna Einarsdóttir,
fædd á Reykjum í
Ölfusi 23.11. 1883,
dáin 3.11. 1958.
Systkini Einars
voru: 1) Halldóra
Sigríður, f. 13.1. 1914, d. 8.6.
1914. 2) Sigurður Óskar, f. 21.1.
1915, fórst með Jarlinum GK
272 í september 1941. 3) Hall-
dóra, f. 10.4. 1920. 4) Guðlaug,
f. 6.1. 1922. 5) Hjörtur Harald-
ur, f. 24.10. 1923. 6) Páll Hauk-
ur, f. 14.3. 1925. 7) Gunnar
Björgvin, f. 16.9. 1926. 8)
Magnús Helgi, f. 7.8. 1928, d.
22.10. 1929.
Hinn 28.5. 1938 kvæntist Ein-
ar Helgu Jónsdóttur, f. 6.4.
1919. Þau eignuðust fjögur
börn: ljSigurður Jón, f. 9.10.
Elsku pabbi minn. Það koma svo
margar minningar upp í hugann,
að erfitt er að koma öllu á blað.
Alltaf varstu til staðar og varst
reiðubúinn að hjálpa ef eitthvað
bjátaði á. Alltaf var gott að koma í
Grandó til ykkar mömmu hvenær
sem var, alltaf sama gestrisnin og
góðmennskan. Það var yndislegt að
fá að vera með þér til hinstu stund-
ar. Ég veit að þér líður vel núna.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem.)
Elsku mamma, megi Guð styrkja
þig á þessum erfíðu tímamótum.
Þín dóttir
Anna.
Elsku afí minn. Mikið var ég
heppin að eiga þig sem afa. Mér
þótti svo ofsalega vænt um þig. Þú
varst alltaf svo blíður og góður við
alla. Ef eitthvað bjátaði á gat ég
alltaf leitað ráða hjá þér. Og ekki
vantaði hvatninguna frá þér. Fyrir
mér varstu meira en afi, þú varst
mín föðurímynd. Mínar fyrstu
minningar eru tengdar ykkur
ömmu í Grandó. Ég man hvað það
var alltaf gaman á jólunum hjá
ykkur. Ég var alltaf jafn heilluð af
stóra jólatrénu með fallega ski-aut-
inu. Ég man líka hvað ég var
ánægð þegar við Sigrún fengum í
jólagjöf frá ykkur ömmu
eskimóaúlpurnar sem þú hafðir
hannað og saumað.
Ég mun alltaf geyma í hjarta
mér þann dag er þú gerðir mér
þann mikla heiður að leiða mig upp
að altari þegar við Biggi giftum
okkur. Og í veislunni sveifst þú
með mig um dansgólfið og við
brostum hvort til annars.
Alltaf tókuð þið amma svo vel á
móti okkur Bigga og Björk þegar
við komum til ykkar. Þá ræddum
við oft um daginn og veginn og þú
sagðir okkur frá uppvaxtarárum
þínum. Mikið á ég eftir að sakna
þeirra stunda, afi minn.
Ég mun aldrei gleyma þeim degi
sem við hittumst síðast. Þú brostir
svo fallega og blítt til Bjarkar litlu,
eins og þú brostir alltaf til allra.
Við tókum hvort utan um annað og
ég sagði við þig: láttu þér líða vel
elsku afi minn. Ég veit að þér líður
vel núna hjá englum Guðs og
stjarna þín skín skært á himnum.
Ég veit að við munum hittast í
framtíðinni, en þangað til, hafðu
það gott, elsku afi minn.
1938. Fyrri kona
hans var Borghild-
ur Emilsdóttir og
eiga þau þrjú börn,
Eniil, Helgu og
Sigrúnu. Seinni
kona Sigurðar er
Þorbjörg Þórarins-
dóttir og á hún eina
dóttur, Þórunni. 2)
Stúlkubarn sem
fætt var andvana. 3)
Anna, f. 26.4. 1947.
Fyrri maki hennar
var Jón Guðmunds-
son og eiga þau tvö
börn, Helgu og Ein-
ar. Seinni maki Önnu er Guð-
mundur Jakobsson og eiga þau
tvær dætur, Dagnýju og Díönu.
4) Einar, f. 17.7.‘ 1952. Kona
hans er Margrét Skúladóttir.
Þeirra sonur er Einar Örn.
Margrét á tvö börn af fyrra
sambandi, þau Skúla Magnús og
Guðrúnu Erlu.
Einar starfaði mestan hluta
ævinnar sem verkstjóri hjá
Belgjagerðinni.
Utför Einars fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 13.30.
Elsku amma mín, við biðjum
Guð að gefa þér styrk á þessum
erfiðu stundum.
Helga Jónsdóttir.
Mig langar til þess að minnast
með nokkram orðum frænda míns
og móðurbróður Einars Gíslason-
ar.
Fyrstu minningar mínar um
Einar tengjast jólaboðum hjá afa
og ömmu á Óðinsgötu og svo af-
mælisveislum barna Einars á
heimili fjölskyldunnar í Grundar-
gerði 2. Mér er í huga frá þeim ár-
um hve Einar var viljugur að taka
þátt í leikjum okkar barnanna.
Hann var sérstaklega hlýr, barn-
góður og talaði við okkur sem jafn-
ingja.
Sonur Einars, Einar yngri, og ég
erum jafnaldrar og þegar við vor-
um nágrannar á unglingsáram var
ég tíður gestur í Grundargerðinu.
Oft var setið í eldhúsinu og hin
ýmsu mál rædd fram og aftur. Ein-
ar var afdráttarlaus í skoðunum,
talaði alltaf tæpitungulaust, en var
jafnframt glaðbeittur. Ég tók þátt í
skátastarfi á þessum áram og
einnig var tískan farin að móta
klæðnað þann sem maður gekk í.
Belgjagerðin, þar sem Einar
starfaði lengst af ævi sinnar, var þá
einn helsti framleiðandi útivistar-
búnaðár og jafnvel tískuvöra á
landinu. Þá kom sér oft vel að
þekkja Einar. Heimsóknimar end-
uðu gjarnan á því að Einar var
spurður hvort Belgjagerðin fram-
leiddi ekki þetta eða hitt tjaldið,
svefnpokann, úlpuna, leðurjakkann
eða eitthvað annað sem nýtt var á
markaðnum. Með þessu var ég,
blankur skólastrákurinn, auðvitað
að falast eftir því að fá hlutina
ódýrt og Einar vissi öragglega
hvað klukkan sló. Yfirleitt svaraði
hann með því að segjast skyldu at-
huga málið og nokkra síðar fékk ég
þau skilaboð að umbeðinn búnaður
eða fatnaður biði þess að verða
sóttur. Ég bauð auðvitað greiðslu
en sjaldnast var það tekið í mál. Ég
veit að margir fleiri, bæði úr
frændgarði Einars svo og kunn-
ingjar, hafa svipaða sögu að segja
af greiðasemi hans.
Hin seinustu ár hitti ég Einai'
aðallega er hann og Helga vora í
heimsókn hjá foreldram mínum, en
milli þeima hafa alla tíð verið sterk
bönd og þar hefur aldrei borið
skugga á. Síðast hitti ég Einar þar
snemma á þessu ári og þá var hann
hress eins og vanalega og bar ald-
urinn vel. Seinni hluta sumars frétti
ég síðan að hann hefði verið lagður
inn á spítala og að þar hefði komið í
ljós að hann væri haldinn illkynja
sjúkdómi. Er hann sneri aftur heim
hafði ég á orði að nú þyrfti ég endi-
lega að heimsækja hann. Af því
varð því miður ekki því hann
andaðist fáeinum dögum síðar.
Ég minnist Einars frænda með
hlýhug og þakka góðvild í minn
garð. Fyrir hönd foreldra minna,
systra og maka okkar votta ég
Helgu og fjölskyldu einlæga samúð.
Ölafur S. Ástþórsson.
Hann Einar er dáinn. Ekki svo
að skilja að það eigi ekki fyrir okk-
ur öllum að liggja, heldur hitt að
mér fannst tími hans ekki kominn.
En það er Guð sem ræður. Það var
fyrir um 20 áram að ég var svo
lánsöm að kynnast þeim heiðurs-
hjónum Einari Gíslasyni og Helgu
Jónsdóttur. Þau ár hefur aldrei
fallið skuggi á þá vináttu og fyrir
það vil ég þakka núna. Einar var
einstakur vinur, heiðarlegur,
tryggur og umhyggjusamur. Hann
hryggðist með mér í sorgum og
gladdist í gleði, jafnframt sem
hann miðlaði mér af reynslu sinni
og lífsspeki. Minningarnar eru
margar og er gott á þessum sorg-
arstundum að ylja sér við þær.
Elsku Einar minn, þú varst umvaf-
inn ást og umhyggju konu þinnar
og dóttur þar til yfír lauk og var
þín hinsta för bæði falleg og
friðsæl. Það er gott til þess að vita
á slíkri kveðjustundu að minningin
um góðan eiginmann, föður,
tengdaföður, afa, langafa og vin
mun lifa í hjörtum okkar. Um leið
og ég bið konu hans, börnum og
ástvinum öllum Guðs blessunar, vil
ég ljúka máli mínu með ljóði
Margrétar Jónsdóttur:
Eg þakka allt frá okkar fyrstu kynnum.
Pað yrði margt, ef telja skyldi það.
í lífsins bók það lifii' samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Eg fann í þínu heita stóra hjarta
þá helgu tryggð og vináttunnar ljós
er gerir jafiivel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
Ingibjörg Bergrós
Jóhannesdóttir.
Elskulegur afi minn er dáinn.
Það er erfitt að sætta sig við það að
sjá afa aldrei aftur, hann var hluti
af lífi manns, maður er svo eigin-
gjarn á þá sem maður elskar. Það
var alltaf hægt að reiða sig á afa.
Hann vissi svör við öllu, benti
manni alltaf á björtu hliðaraar, og
það jákvæða í öllu og öllum.
Ef maður kom eitthvað þungur til
ömmu og afa fór maður alltaf léttur
og hlæjandi út, því að afi var
stríðinn líka fram í fingurgóma.
Hann var alltaf hjálplegur og góður,
það era ekki ófá faðmlög sem mað-
ur fékk og hann var alltaf að segja
hvað hann væri heppinn að eiga öll
þessi góðu bama- og bamaböm.
Ég vona að við höfum sýnt hon-
um sömu góðvild og ástúð er hann
sýndi okkur. Ég gæti skrifað heila
bók um hann afa minn.
Við ræddum það nokkram dög-
um fyrir andlát hans hvað byði
okkar eftir jarðvistarlífið, hann
sagðist vera sáttur, búinn að eiga
góða og yndislega ævi. Við vitum
að öll hittumst við aftur, hann
sagði: eftir allt sem ég er búinn að
eiga, lít ég á þetta sem gleði, þeir
sem hafa þjáðst hætta að finna til.
Svona var okkar seinasta samtal.
Einar afi var höfðingi í mínum
huga og okkar allra.
Elsku afi, takk fyi'ir allt og allt.
Hvíl þú friði, friður guðs þig blessi.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
A grænum grundum lætur hann mig hvflast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(23. Davíðssálmur; 1-4.)
EINAR K.
GÍSLASON
Elsku amma mín, við vottum þér
innilega samúð okkar.
Guð blessi þig.
Helga Sigurðardóttir
og fjölskylda.
Mig langar að minnast föðurbróð-
ur míns Einars Gíslasonar með
nokkram orðum. Einar var sann-
kallaður heiðursmaður og hafði
þann einstaka hæfileika að láta þá
sem hann umgekkst líða vel og finna
hve sérstakir þeir vora og skiptu
máli. Þegar ég var ungur patti og á
leið í sveit komum við mamma við
hjá honum í vinnunni til að kveðja
og man ég hvað mér þótti mikið tíl
hans koma, og þaðan fór maður ekld r _
tómhentur, í hvert skipti með eitt-
hvað nýtt í farteskinu.
Einar og Helga kona hans
bjuggu á Hverfisgötu þegar ég
man fyrst efth' heimili þeima og
man ég hve sérstakt það var að
vera boðinn til þeirra í mat, allt svo
fínt og glæsilegt og umfram allt
var maður svo velkominn. Reyndar
hefur alltaf verið yndislegt að
sækja þau heim sama hvar,
hvenær eða í hvaða tilefni.
Ég man nú ekki hvað ég var
gamall en einhverju sinni vorum
við mamma á gangi í miðbænum og
mættum þeim hjónum og man ég
hvað mér þótti mikið til koma
hvemig hann tók ofan hattinn og #•
heilsaði með virktum, þá leið manni
vel. Þegar ég fermdist gáfu þau
mér svefnpoka sem hafði verið sér-
saumaður, vel vatteraður og hlýr,
og þegar ég eltist var Einar alltaf
tilbúinn til að lána okkm’ Sigga
syni hans bílinn til ballferða eða
bílskúrinn til einhverra viðgerða.
I gegnum tíðina höfum við átt
með þeim hjónum yndislegar
stundir, t.d. fóram við saman
ásamt tengdafólki mínu og börnum
í yfir 10 ár í Þjóðleikhúsið og
einnig í mörg ár á nýársdag á
Sögu. Ogleymanlegar era einnig
árlegar heimsóknir þeirra ásamt
Sigga og Laugu í sumarbústað
okkar hjóna sem hafa verið okkur
hjónum dýrmætar.
Einar frændi minn var alveg ein-
stakur öðlingur sem aldrei sagði
styggðai-yrði um nokkum mann,
hann kunni að hlæja og njóta
líðandi stundar. Alla ævi mína hef
ég fengið notið umhyggju og þátt-
töku hans í lífi mínu og fjölskyldu
minnar, það sem hann var mér og
konu minni og börnum er erfítt að
koma í orð.
Elsku Helga, Siggi, Anna, Einar,
tengdabörn, bamabörn, barna- •
barnabörn og aðrir ástvinir, megi
Drottinn styrkja ykkur í sorginni
og blessa minningu ykkar um stór-
kostlegan mann sem svo sannar-
lega gaf sanna vináttu.
Vinátta
Góð vinátta
minnirmigoftávorið
fer hægt af stað
hlýnar svo
ogbirtiryfir
ástundum
er hún köld og leiðinleg
en
samt
kanntu alltaf betur og betur
að meta hana
því þegar á heildina er litið
er með vináttuna eins og vorið
þér líður vel innan um það.
(Þór Sandholt.)
Tómas H. Sigurðsson.
Blómabúðin
öaFðskom
v/ Possvogskifkjwqa*^
‘ s.mi: 554 0500