Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 49 SIGURÐUR SIGURÐSSON + Sigurður Sig- urðsson fæddist í Reykjavík 19. des- ember 1964 og ólst upp í Kópavogi, þar sem hann bjó mest- an hluta ævi sinnar. Hann lést aðfara- nótt fímmtudagsins 27. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Sigurður Stef- ánsson og Dýrleif Kristjánsdóttir. Systkini hans eru Reynir, Jóhann, Egill, Kolbrún, Þóra og Elfa. Utför Sigurðar fór fram frá kapellu Fossvogskirkju 3. sept- ember. Þegar ég gekk inn í kapelluna þar sem útfararathöfnin fór fram og sá öll systkini þín fannst mér eins og þú værir rétt ókominn og myndir ganga inn á hverri stundu brosandi og hlæja að okkur. En það gerðist ekki og þá varð mér ljóst að þetta var raunveruleikinn, ekki bara vondur draumm-. Undanfama daga hef ég ekki gert annað en að rifja upp gamlar minningar og nýj- ar, reynt að muna allt sem þú sagð- ir og allt sem þú gerðir. Eg man þegar þú komst í heimsókn til okk- ai', maður vissi alltaf að þú varst kominn því þú hringdir fyrst bjöll- unni og síðan gekkstu inn eins og einn af fjölskyldunni. Það var alltaf gaman að fá þig í heimsókn. Ég man sérstaklega þegar þú og pabbi voruð að spila saman billiard eða þegar þú sast með okkur langt fram á nætur að spila Orient Express. Það varst þú sem kveiktir hjá mér áhuga á leynilögregluspilum. Tónlist var mikill hluti af lífi þínu. Ég man þegar þú og Karitas byrjuðuð að fara í píanótíma til þess að læra að lesa nótur. Þér fannst samt alltaf skemmtilegi'a að spila eftir eyi-anu. Það var hæfileiki sem mig langaði alltaf að hafa. Þú sýndir líka alltaf áhuga á því sem aðrir voru að gera. Mér þótti alltaf vænt um það þegar þú komst að hlusta á okkur systurnai' þegai- við vorum að spila á tónleikum. Ég vildi bara að ég hefði náð að segja það við þig. Það var svo margt sem mig langaði til að segja við þig en treysti mér ekki til þess og núna er það of seint. Það sýnir að maður á að gi'ípa tækifærið meðan það gefst, ekki bíða betri tíma með að segja það sem maður virkilega meinar eða segja hvemig manni líður. Ég man eftir því þegar ég kom í heimsókn til ömmu og afa, þá komst þú alltaf brosandi og hress upp í eldhús þar sem við sátum og töluðum saman. Ég sé ennþá svip- inn á þér og hvernig þú sagðir: „Nei, hæ,“ eða: „Nei, þú hér.“ Þú lést mann aldrei finna að þér liði illa, þó að maður vissi það innst inni. Það var alltaf hægt að tala við þig og grínast með þér. Ég á eftir að sakna húmorsins sem þú hafðir. Manstu þegar þú varst nýbúinn að kaupa karaoke-græjumar með heimabíóinu? Og mannstu eftir „Let it Be“ með Bítlunum? Seinna leyfðirðu okkur að heyra það sem þú hafðir tekið upp. Það var rosa- lega flott hjá þér. Daginn áður en þú lést ætlaði ég að koma í heimsókn en komst ekki. Ég get ekki annað en hugsað: „Hvað ef...?“ Og ef ég hefði minnst fyrr á það við þig að ég og Iris ætl- uðum að bjóða þér með í hjólaferð upp í Heiðmörk? Ég vildi að ég hefði náð að segja við þig hvað mér þótti vænt um þig. Ég vona bara að ég fái tækifæri til þess að segja allt sem ég náði ekki að segja í Paradís. Elsku besti Siggi. Þín er sárt saknað. Ef þú aðeins vissir hversu mikið. Þín frænka Linda Rós. Elsku Siggi minn. Mig langaði til að kveðja þig með fáein- um orðum, elsku besti frændi. Þegar ég var að al- ast upp varst þú eins og stóri bróðir minn, alltaf að stríða mér. En þú kenndir mér líka svo mikið og gafst mér svo mikið sem sit- ur alltaf eftir hjá mér. Ég gleymi því aldrei þegar þú varst alltaf að spila á orgelið þitt, ég man hvað ég öfund- aði þig. Þú varst svo klár og þurftir engar nótur. Svo fórstu einn dag- inn og keyptir píanó og við fórum saman að læra og þú fórst líka að spila eftir nótum. Þá fannst mér gaman því þá gat ég gert eitthvað alveg eins og þú. Ég fékk líka íþróttaáhugann frá þér og byrjaði í handbolta, svo kenndirðu mér líka á skíðum. Þú gafst mér svo mikið í lífinu. Ég leit alltaf upp til þín og eftir að ég og mamma fluttum úr Grænatúninu, þá fannst mér alltaf gaman að koma og segja þér frá einhverju nýju sem ég hafði verið að gera, þó að þú hafir stundum gert gi-ín að því af gömlum vana. Þegar þú ert farinn þá rifjast upp svo margar minningar og ég þakka fyi'ir öll þau ár sem við feng- um að hafa þig hjá okkur og þau ár sem ég fékk að búa með þér. Elsku uppáhalds og besti frændi. Ég syrgi þig mjög. Þú ert horfinn úr þínu jarðneska lífi en þú ferð aldrei úr hjarta mínu né huga, því þar áttu alltaf stórt pláss. Eg kveð þig með sáran söknuð í hjarta. Guð blessi þig og varðveiti. Þín frænka Karitas. Nú ert þú farinn frá okkur, elsku besti frændi, en þú átt ennþá stað í hug og hjarta okkar allra. Það var ei-fitt að kveðja þig við jarðarförina því ég átti eftir að segja þér svo margt. Ég vildi að ég hefði að minnsta kosti sagt þér hvað mér þótti rosalega vænt um þig. En nú er það of seint. Ég verð víst að kyngja því þótt það sé sárt. Ég heyrði fallegt lag í dag en text- inn stakk mig svolítið. Þetta er það sem ég heyrði: „Það er erfitt að segja að maður elski einhvern og erfitt að segja að maður geri það ekki.“ Já, því miður reynist það oft erfitt. En sama hvað maður hugsar mikið um hvað hefði verið hægt að gera eða segja, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að þú sefur núna djúpum dauðasvefni og við ^getum ekki vakið þig til lífs á ný. Eg veit að þér þótti vænt um fjölskyldu þína, sérstaklega ömmu og afa, þótt þú segðir það ekki beint. Þú tjáðir væntumþykju á þinn eigin hátt. Þú gafst ömmu og afa margar gjafir sem þakklætisvott fyrir þá umhyggju sem þau sýndu þér. Ég á líka nokkrar ómetanlegar gjafir frá þér. Ég held mest upp á nótna- bækurnar og styttumar af tón- skáldunum, því þær sýna þann persónulega áhuga sem þú sýndir fólki. Þú varst alltaf hvetjandi við okkur systurnar að halda píanón- áminu áfram og gafst þér jafnvel tíma til þess að koma að hlusta á okkur spila á tónleikum. Þú tókst alltaf eftir því þegar við rugluð- umst. Og eftir tónleikana sagðirðu nákvæmlega hvað þér fannst um spilamennskuna. Ég tók gagm-ýni þína alltaf til gi'eina því þú varst sjálfur svo músíkalskur og hafðir gott tóneyi'a. Ég sakna þess að geta ekki spilað fyrir þig lengur. Þú varst alltof tilfinninganæmur fyrir þennan vonda heim. Þú þoldir ekki að horfa upp á saklaust fólk þjást. Þú fannst til með öðrum og þeir fáu _ sem þekktu þig eru heppnir. Ég er heppin því ég er ein þeirra fáu sem þú hleyptir að þér og þér leið vel nálægt. Við áttum margar góðar stundir saman. Ég hafði alltaf gaman af því að spila dúetta með þér á píanóið heima, syngja og spila snóker. Þú áttir góða foreldra sem vildu þér aðeins það besta. Eftir fráfall þitt hefur án efa myndast stórt tómarúm hjá þeim. Fjölskyldan mun nú hjálpast að við að fylla þetta tómarúm. Hver veit nema þetta eigi eftir að þjappa fjölskyldunni betur saman? Þessi sorglegi atburður fékk mig til þess að hugsa um hvað fjöl- skyldan er mikils virði. „Róm var ekki byggð á einum degi.“ Að byggja upp sterkar fjölskyldur út- heimtir líka tíma og ei-fiði. En það er hægt ef allir leggjast á eitt. Þótt nú séu erfiðir tímar framundan er það von mín að fjölskyldan samein- ist. Ég er viss um að þú hefðir vilj- að það líka. Þú varst trúr fjöl- skyldu þinni og fannst sorglegt að horfa upp á fjölskyldur sundrast. Fjölskyldan er fátækari eftir að hafa misst þig en við vonum að Jehóva muni muna eftir þér í Para- dís. Það verður ólýsanleg gleði að taka á móti þér í upprisunni. Þá munu gleðitárin streyma í stað sorgartára, einmitt það sem þú hefðir viljað frekar. Megi Jehóva styi'kja ömmu og afa og öll systkini þín í sorg sinni. Saknaðar kveðj ur. Þín frænka íris. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN SIGMUNDSSON frá Hamraendum, lést föstudaginn 28. ágúst. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vinarhug. Margrét Jóhannsdóttir, Ásmundur S. Jóhannsson, Ólöf Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, ANNA GUÐNÝ ANDRÉSDÓTTIR Ijósmóðir, Röðli, er lést föstudaginn 4. september, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 12. september kl. 16.00. Haukur Pálsson, Lilja Hauksdóttir og fjölskylda, Sesselja Hauksdóttir og fjölskylda. + Hjartkær systir mín, KRISTÍN MARKÚSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt 9. september. Fyrir hönd aðstandenda, Alda Markúsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför, INGIBJARGAR STEINÞÓRSDÓTTUR, Mýrarholti 14, Ólafsvík. Sonja Guðlaugsdóttir, Óttar Guðlaugsson, Steinþór Guðlaugsson, Guðmunda Guðlaugsdóttir, Rafn Guðlaugsson, Magnús Guðlaugsson, Sólveig Guðlaugsdóttir, Björg Guðlaugsdóttir, Guðlaug S. Guðlaugsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega hluttekningu og samúð vegna andláts GISLA HALLDÓRSSONAR leikara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynn- ingar Krabbameinsfélags íslands og Land- spítalans. Theódóra Thóroddsen, Theódóra Gísladóttir, Matthías Halldórsson, Halldór Gislason, Anna Guðrún Björnsdóttir, Sverrir Gíslason, Kristbjörg Marfa Bl. Birgisdóttir og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐAR MAGNÚSDÓTTUR, Langagerði 78. Ásmundur Ólafsson, Hilmar Ólafsson, Aðalheiður Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför LUCIU GUÐNÝJAR ÞÓRARINSDÓTTUR frá Smyrlabjörgum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjólgarðs fyrir ómetanlega umönnun og hlýju alla tíð. Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, ÞÓRU R. STEFÁNSDÓTTUR, Suðurhólum 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Sigurðar Árnasonar og starfsfólks 11E, Landspítala, og starfsfólks L2 og L3, Landakotsspítala. Esther Guðmundsdóttir, Sævar Th. Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.