Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 B 21
Bin Laden ekki vísað
frá Afganistan
Kabúl. Reuters.
Tekjumis-
munur fer
vaxandi í
Finnlandi
Hclsinki. Morgunblaðið.
TEKJUMUNUR láglaunafólks og
vel efnaðra Finna fer greinilega
vaxandi. Tölur yfír árið 1997, sem
birtar voru á mánudaginn, sýna að
tekjur allra Finna að meðaltali auk-
ist um tæp 7% milli ára. Eftirtekt-
arvert þykir hins vegar að þeir
tekjuhæstu skuli hafa notið hlut-
fallslega meira góðs af hækkandi
tekjum.
Niðurstöður þessar hafa verið
túlkaðar á þá leið að þjóðfélagið sé á
hraðri leið með að verða tvískipt.
Atvinnuleysi er enn um það bil 10
prósent. Mismunandi útreikningar
gefa þó mismunandi tölur. En á
sama tíma hefur mælst mikill vöxt-
ur á fjármálamarkaði. Þannig hafa
tekjur þeirra sem stunda kauphall-
arviðskipti aukist mjög hratt.
í Finnlandi er skattur af fjár-
magnstekjum mun minni en launa-
skattur. Rökstyðja menn þetta fyr-
irkomulag með því að það muni
stuðla að fjárfestingum í landinu.
Það veldur hins vegar einnig því að
hátekjufólk getur komist hjá skött-
um með því að gerast eigendur í þvi
fyrirtæki sem hefur ráðið það í
vinnu.
Mismunur milli hátekjufólks og
þeirra efnaminni í Finnlandi er
samt sem áður enn mun minni en í
löndum eins og Bretlandi, Banda-
ríkjunum eða mörgum ríkjum Suð-
ur-Evrópu. Það sem þykir þó ugg-
vænlegt í þessari þróun er að þeir
sem hafa litlar sem engar tekjur í
dag verða alveg tekjulausir þegar
þeir eru komnir á eftirlaunaaldur.
Atvinnulausir safna ekki í lífeyr-
issjóð og verða þannig að komast af
eingöngu á tekjutryggingu þegar
þeir eru orðnir 65 ára. Hún er hins
vegar miðuð við að menn hafi aðrar
tekjur að auki.
STJORN talebana í Afganistan
hyggst áfram veita hi-yðjuverka-
manninum Osama bin Laden hæli,
þrátt fyrir ummæli hans í viðtali
fyrir skömmu, þar sem hann hvetur
múslíma til að myrða Bandaríkja-
menn og Breta í hefndarskyni fyrir
árásimar á Irak fyiT í þessum mán-
uði.
Bin Laden lýsti þessu yfir í fyrsta
viðtalinu sem við hann er tekið eftir
að BandaiTkjamenn gerðu árásir á
búðir hans í austurhluta Afganistans
í ágúst, þar sem grunur lék á að
hryðjuverkamenn hlytu þjálfun.
Bandaríkjamenn saka hann um að
hafa lagt á ráðin um sprengjutilræði
við sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa
og Tansaníu sl. sumar, þar sem yfir
200 manns létu lífið. Bin Laden, sem
neitaði aðild að tilræðunum, hefur
áður lýst því yfir að hann muni leiða
múslíma í heilögu stríði gegn gyðing-
um og kristnum mönnum.
Háttsettur maður innan hreyf-
ingar talebana sagði í samtali við
Reuters-fréttastofuna á þriðjudag
að sér væri ekki kunnugt um hvað
bin Laden hefði sagt í viðtalinu, en
að hann væri gestur í Afganistan og
að honum yrði ekki vísað úr landi.
Bin Laden er fæddur í Sádi-Arabíu,
en hefur verið sviptur ríkisborgara-
rétti sínum þar.
jfírisium af oÁÁur
fóíasieiJtina
Við byrjum af fullum krafti
með nýja stundatöflu
mánudaginn 4. janúar 1999
Við bjóðum meðal annars upp á læsta skápa í
búningsklefa, góða barnagæslu, gufubað og
umfram allt hreinlega og þægilega stöð.
Ný námskeið hefjast þriðjudaginn 5. janúar. Allar
nánari upplýsingar í síma 555 3637.
Kíktu til okkar og fáðu stundatöflu.
neilsuræktin
TOSCA
BÆJARHRAUNI 4, 220 HAFNARFIRÐI,
SfMI 555 3637, FAX 565 3638.
Léttarí leið til léttara
lífs á nvrrí öld!
Gaui litli verður með yoga-
spunanámskeið í Toscu í
vetur. Námskeiðin byggjast á
samruna líkamsræktar og hug-
ræktar. Aðhaldsnámskeiö þessi eru
lokuð námskeið og eru fyrir þau sem vilja léttast.
Skráning í síma 561 3434.
Eitthvað fyrir alla
á nýju ári!
Kanarieviar
Vikulega til 22. mars.
Tæland
Aukaferð 27. janúar í 22 nætur.
Madonna
di Campiglio
Drottning Alpanna
Frá 30. janúar bjóðum
við vikulega skíðaferðir
til ítölsku alpanna.
co
o
Sam vinnuferðir
Landsýn
OMEGA
OMEGA-úrin eru enn í gangi frá síðustu öld
Garðar Ólafsson úrsmiður
Lækjartorgi, s. 551 0081.