Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 1
NÁMSKEIÐ Leiðtogar læra á nýja öld /5 FYRIRTÆKI Stefnt að samruna á næstunni /6 PLASTPRENT Nýtt skipurit hefur tekið gildi /9 3H0f0ttnUaMk VOSKIFn AIVINNUllF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR1999 BLAÐ Verksmiðja Porathuganir gefa til kynna að hag- kvæmt sé að reisa poiyol-verk- smiðju hér á landi. Fjárfesting í slíkri verksmiðju gæti numið um tíu milljörðum króna og er þá kostnað- ur við gufuöflun ekki meðtalinn. Verksmiðjan yrði best í sveit sett nálægt kraftmiklu gufuaflssvæði og höfn og má búast við að hún veiti á milli 60-70 manns vinnu. /4 Landssteinar Hugbúnaðarfyrirtækið Landsteinar hefur gengið frá samningi við Tívoh' í Kaupmannahöfn um sölu, uppsetn- ingu og aðlögun á heildarverslunar- kerfi fyrir starfsemi skemmtigarðs- ins. Verslunarkerfið er hannað í Navision Financials. /2 Rekstur Hagnaður Nýherja hf. á síðasta ári nam 113 milljónum króna saman- borið við 74 mkr. hagnað árið á undan. Ljóst er að mikil umskipti hafa átt sér stað á rekstrinum und- anfarin misseri eftir 105 milljóna króna tap félagsins árið 1996. Hagnaður af reglulegri starfsemi í fyrra nam 151 milljón króna og hækkaði um 97 milljónir frá 1997. Engin viðskipti áttu sér stað með hlutabréf Nýheija á Verðbréfaþingi í gær en síðasta skráða gengi var 10,50. /2 SÖLUGENGIDOLLARS Fjölsótt kaupstefna íslenskra fyrirtækja í Kuala Lumpur í Malasíu Islenskt lýsi til Malasíu Kuala Lumpur. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Lárus Karl VÍGREIFIR samstarfsaðilar að lokinni undirritun saminga á fslensku kaupstefnunni í Kuala Lumpur í gær. S. S. Bhullar eigandi ABC og Baldur Hjaltason forsljóri Lýsis. LYSI HF. hefur gert samning um dreifingu og sölu á vörum sínum við malasískt fyrirtæki, ABC Exhibition Services. Undirritun samningsins fór fram á kaupstefnu íslenskra fyr- irtækja, sem haldin var í gær í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu. Tólf önnur íslensk fyrirtæki kynntu vörur sfnar og þjónustu á kaupstefnunni en Utflutningsráð stendur að henni í tengslum við opinbera heimsókn Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, til Malasíu. Á annað hundrað kaupsýslumenn úr mala- sísku viðskiptalífi sóttu kaupstefn- una, heldur fleiri en sóttu kaupstefn- una í Taflandi í síðustu viku. Baldur Hjaltason, forstjóri Lýsis, er ánægð- ur með samninginn og segir að hann sé árangur margra ára vinnu við markaðssetningu á vörum fyrirtæk- isins í Austurlöndum fjær. „Rík hefð er fyrir neyslu þorskalýsis í Malasiu. Með samningnum hefst formleg sala á vörulínu Lýsis hf. í Malasíu, t.d. þorskalýsi í glerflöskum og pillu- formi. Við höfum smám saman byggt upp viðskipti í Suðaustur-Asíu og á síðasta ári námu þau um 70 milljón- um króna eða um 15-20% af heildar- tekjum fyrhtækisins. Þau viðskipti hafa aðallega snúist um lýsi til ála- og rækjufóðurgerðai- en markmiðið hefur alltaf verið að fikra sig inn á neytendamarkaðinn. Þessi samning- ur er stórt skref í þá átt og við bind- um miklar vonir við hann,“ segir Baldur. Áhersla á stórmarkaði S.S. Bhullar, eigandi dreifingar- fyrirtækisins, segist hafa mikla trú á góðu gengi íslenska lýsisins í Malasíu en hann kynntist því upp- haflega á heilsuvörusýningu sem fyrirtæki hans stendur fyrir árlega. „Við munum leggja áherslu á markaðssetningu Lýsis í stór- mörkuðum og miða við hinn al- menna neytanda, ekki síst barna- fjölskyldur. Fólk um allan heim hugsar meira um heilsuna en áður og Malasíumenn eru þar engin und- antekning. Menn hætta ekki að kaupa heilsuvörur þrátt fyrir slæmt efnahagsástand. Millistéttin hér í Malasíu er stór og vel upplýst um gildi heilbrigðra lífshátta. Það getur þó vissulega tekið tíma að markaðs- setja nýja vöru en ég er bjartsýnn á að sú fjölmiðlaathygli sem íslenska kaupstefnan hefur fengið hjálpi til,“ sagði Bhullar og vísaði til þess að fimm malasískir blaðaljósmyndarar og einn myndatökumaður festu undirritun samningsins á filmu. Ut- flutningsráð stóð einnig fyrir ráð- stefnu í tengslum við kaupstefnuna. Finnur Ingólfsson tók virkan þátt í störfum hennar og bauð síðan þátt- takendum til hádegisverðar þar sem andi viðskipta sveif yfir vötnum. í dag mun Finnur m.a. eiga fund með Seri Rafidah Aziz, viðskipta- og iðnaðarráðherra Malasíu. Opinberri heimsókn ráðherrans ásamt við- skiptasendinefndinni lýkur í kvöld og mun ráðherrann þá halda heim á leið ásamt fóruneyti. Fulltrúar ein- hverra fyrirtækja munu hins vegar ferðast um fleiri Asíulönd í margvís- legum viðskiptaerindum. ----------.... / •• ATVINNUHÚSNÆÐIS Kjörleiðir Glitnis eru fjórar ólíkar leiðir til fjárfestinga. Skynsamlegar fjárfestingar í atvinnutækjum og atvinnuhúsnæði geta verið lykillinn að velgengni Ráðgjafar Glitnis veita þér nánari upplýsingar og aðstoð við að velja þá Kjörleið sem þér hentar best. OU SsillBi j|. .okkur; ok kvruiii =>« Glitnirhf DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sfmi 560 88 00. Myndsendir 560 88 10. Heimasíða: http://www.glitnir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.