Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 4
4 C FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagkvæmt að reisa 120 þúsund tonna polyol-verksmiðju hérlendis
Fjárfestingin gæti numið
um 10 milljörðum króna
Kuala Lumpur. Morgunblaðið.
Vinnuaflsþörf verksmiðj-
unnar um 60-70 manns
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptai'áðherra, er nú í opinberri
heimsókn í Malasíu ásamt íslenskri
viðskiptasendinefnd. Þangað kom
hann frá Suður-Afríku þar sem hann
festi í sessi samstarf ráðuneytisins
við þarlenda aðila vegna nýsköpunar
í iðnaði. Hæst bar verkefni vegna
byggingar polyol-verksmiðju.
Aðdragandi málsins er að árið
1994 var fyrirtækið ískem ehf. stofn-
að til að þróa viðskiptahugmyndir
sem byggjast á notkun jarðgufu í
efnaiðnaði. Stofnendur voru m.a.
Samtök iðnaðarins, Hitaveita Suður-
nesja, Iðntæknistofnun, Orkusvið
Fjárfestingastofunnai- (áður MIL)
og bandaríska fyrirtækið Teeh-
nology International Exchange Inc.
Nokkrar hugmyndir hafa verið skoð-
aðar, þar á meðal framleiðsla á
polyol. Iðnaðarráðuneytið styrkti
forathugun á málinu 1997 sem lauk
um vorið 1998. Síðan þá hefur verið
unnið að því að kynna málið fyrir
mögulegum fjárfestum. Forathugun-
in gaf til kynna að hagkvæmt sé að
reisa slíka verksmiðju hérlendis með
um 100 þúsund tonna framleiðslu-
getu á ári. Fjárfesting í slíki-i verk-
smiðju gæti numið um tíu milljörð-
um króna og er þá kostnaður við
gufuöflun ekki meðtalinn. Verk-
smiðjan notar mikla gufu og þarf því
að vera nálægt öflugu jarðhitasvæði
og sem næst höfn.
Lífrænt hráefni
A fyrsta stigi framleiðslunnar er
glúkósa (einföldum sykri) breytt í
sorbitol en það er t.d. notað sem
sætuefni í sælgætisframleiðslu,
tannkrem o.fl. auk þess sem það er
hráefni í C vítamín framleiðslu. Á
öðru stigi framleiðslunnar er sorbitol
breytt í blöndu efna sem síðan eru
aðskilin með eimingu. Helstu efnin
sem þannig fást eru ethylene glycol
(frostlögur og hráefni í polyester
plastframleiðslu, PET flöskur),
propylene glycol (frostlögur,
polyester, matvæli, lyf og snyrtivör-
ur) og glycerine (tannkrem, matvæli,
lyf, snyrtivörur og plastefni), en
propylene glycol og ethylene glycol
eru nú framleidd úr olíu. Polyol er
samheiti fyrir ofangreind þrjú efni.
Bandaríska fyrirtækið, International
Polyol Chemicals Inc. (IPCI) hefur
nú þróað nýja aðferð til að íramleiða
þessi efni úr sykri eða sterkju.
Heimsmarkaður þessara efna er
mjög stór og hefur stækkað mjög
hratt undanfarin ár. IPCI hefur
byggt tilraunaverksmiðju í Suður-
Áfríku í samvinnu við heimamenn og
byggist hún á umræddri tækni. Ráð-
herrann fór til Suður-Afríku í því
skyni að kynnast starfsemi verk-
smiðjunnar og koma á samstarfí
milli rekstraraðila hennar og ís-
lenskra aðila.
ísland hagkvæmast
Þegar liggur fyrh- forathugun á
hagkvæmni þess að reisa shka verk-
smiðju á Islandi sem myndi nota um
120 þúsund tonn af sykri eða sterkju
á ári en áætlað er að það magn skili
um 100 þúsund framleiddum tonnum
af polyoli. Niðurstöður athugunar-
innar eru jákvæðar og byggjast m.a.
á greiðum aðgangi að jarðgufu og
kælivatni og hagkvæmum sjóflutn-
ingum. Áætluð heildarfjárfesting í
verksmiðjunni er um tíu milljarðar
króna en þá er ekki reiknað með
kostnaði vegna jarðhitanýtingar.
Hagkvæmnisathuganir hafa
einnig verið gerðar með tiiliti til
byggingar jafnstórra verksmiðja í
Suður-Afríku og í Suðurríkjum
Bandaríkjanna. Segii' Finnur að þær
hafi leitt í ljós að Island sé hag-
kvæmasti kosturinn af þessum
þremur. „Ymislegt hefur þar áhrif á
en ég hygg að þar skipti mestu lítill
gufuaflskostnaður vegna jarðhitans.
Þetta ætti því að vera góður kostur
fyrir fjárfesta en næsta skref er
einmitt að tryggja verkefninu fjár-
mögnun. Þá þarf einnig að kanna
tæknileg atriði betur, t.d. hvað varð-
ar hagnýtingu jarðhitans. I stuttu
máli sagt er hér um afar spennandi
verkefni að ræða sem ég vona að
verði að veruleika. Ekki má gleyma
því að slík verksmiðja yrði afar um-
hverfísvæn þar sem hún notar hrá-
efni sem ella þyrfti að farga að miklu
leyti. Sjálf framleiðslan er lífrænt
plastefni sem dregur um leið úr
notkun á margvíslegum ólífrænum
efnum,“ segir Finnur.
Sjóðir Kaupþings
Norðurlands
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri
SÆVAR Helgason, hefur tekið
við starfi framkvæmdastjóra
hjá Sjávarútvegssjóði Islands
og Hluta-
bréfasjóði
Norðurlands
hjá Kaup-
þingi Norð-
urlands.
Sævar tekur
við starfinu
af Tryggva
Tryggvasyni.
Sævar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
árið 1993 og sveinsprófi í mál-
araiðn árið 1994. Hann lauk
B.Sc.-námi í rekstrarfræði frá
Háskólanum á Akureyri árið
1997 og er löggiltur verðbréfa-
miðlari frá Háskóla Islands ár-
ið 1998.
Sævar hóf störf í Landsbréf-
um árið 1997 og fór á Við-
skiptastofu Landsbanka Is-
lands um áramót 1997-98.
Hann hóf störf hjá Kaupþingi
Norðurlands í júlí 1998.
STAFRÆNN PRENTARI
UÓSRITUNARVÉL
STEFÁN Jónasson, Viktor G. Eðvarsson, Tryggvi Þorsteinson frá
Tæknivali og Árni Ingólfsson, deildarsljóri tölvudeildar Kópavogsbæj-
ar, gengu frá samningnum.
2000-vand-
inn hjá
Kópavogsbæ
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingi á milli Tæknivals hf. og bæj-
arsjóðs Kópavogs um allsheijar
úttekt á 2000-heldni allra tölva
og tölvubúnaðar sem heyrir und-
ir Kópavogsbæ. Þetta er stærsti
úttektarsamningur á 2000-vand-
anum sem Tæknival hefur gert
til þessa, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Markmið
samningsins er að auka rekstrar-
öryggi upplýsingakerfa með
söfnun og greiningu upplýsinga
um vél- og hugbúnað.
„Aðdragandi þessa samnings á
rætur sínar að rekja til þess að
undanfarið ár hefur Tæknival
séð um rekstur tölvu- og net-
kerfa fyrir alla grunnskóla Kópa-
vogs. í kjölfarið gerði Kópavogs-
bær samning vegna netkerfis á
bæjarskrifstofunum ásamt allri
þjónustu á víðnetsbúnaði," að því
er fram kemur í frétt frá Tækni-
vali.
mbl.is
SHARP AL-IOOO
• Tengjanleg viS tölvu
• 10 eintök á mínútu
• Fast frumritaborS
• Stækkun - minnkun 50%-200%
• 250 blaSa framhlaSinn
pappírsbakki
Aukin umsvif Fjárfestingarbanka atvinnulífsins erlendis
Vinnur að frekari lán-
veitingum til Mexíkó
EINS og fram kom í Morgunblað-
inu um síðustu helgi lánar Fjárfest-
ingarbanki atvinnulífsins fé til sjáv-
arútvegsfyrirtækisins Pesquera
Siglo í Guaymas í Mexíkó, sem er í
eigu Granda og Þormóðs Ramma/
Sæbergs og mexíkóskra aðila, án
ábyrgða íslensku eignaraðilanna.
Erlendur Magnússon hjá Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins segir
að ástæða þessarar lánveitingar sé
að einn af forverum bankans, Iðn-
þróunarsjóður, hafi lánað fé til út-
gerðarfélagsins og FBA hafi tekið
þau yfir við stofnun bankans.
Skoða frekari lánveitingar
Hann segir að hægt sé að lána án
ábyrgðar móðurfélaganna á Islandi
vegna þess að FBA hafi kynnt sér
vel starfsemi fyrirtækjanna í
Mexíkó og umhverfið sem þau
starfa í og tengsl bankanna við móð-
urfélögin séu góð og FBA beri mik-
ið traust til þeirra. Engu að síður sé
nokkur áhætta við lánveitinguna, en
samt viðunandi.
Erlendur segir að viðræður
standi nú yfir við bæði Pesquero
Siglo og systurfélag þess Nautico,
um frekari lánveitingar og endur-
fjármögnun. „Við erum að vinna að
þessu í samvinnu við Islandsbanka
en málið er ekki endanlega frágeng-
ið ennþá. Það er hluti af stefnu okk-
ar að fylgja íslenskum fyrirtækjum
úr landi enda gefast með því mörg
tækifæri. Við værum þó ekki að
lána í fyrirtæki af þessari stærð-
argráðu, á stað eins og Mexíkó,
nema vegna eignaraðildar Granda
og Þormóðs ramma í fyrirtækjun-
um. Þessi fyrirtæki eru mikilvægir
viðskiptavinir okkar, sem og Is-
landsbanka.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í Morgunblaðinu um helgina
að lánveitingar íslenskra banka til
mexíkóskra fyrirtækja í sjávarút-
vegi væri athyglisverður möguleiki,
ekki síst vegna sérþekkingar Is-
lendindinga á högum sjávarútvegs-
fyrirtækja.
Erlendur tekur undir að kunn-
átta íslenskra fjármálastofnana í
þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki
gæti nýtst vel erlendis enda séu
sjávarútvegsfyritæki víða olnboga-
börn og njóti því ekki jafn góðra
kjara og sjávarútvegsfyrirtæki gera
hériendis.
Þessi lánveiting er fyrsta skrefið í
þá átt að veita erlendum fyi'irtækj-
um fyrirgreiðslu, sögn Erlends, en
hann segir þó að langur tími gæti
liðið þar til lánað yrði til fýrirtækja
erlendis sem ekki tengdust íslend-
ingum.
Um það hve mikið fé lánað væri
til íyrirtækjanna í Mexíkó, vildi Er-
lendur ekki tjá sig um að svo
stöddu.
Pizza 67 lokar veitingastað sínum á Ráðhústorginu
íslensk fjölskylda hyggst
opna nýjan kjúklingastað
ÍSLENSK fjölskylda hyggst opna
Kentucky Fried-veitingastað á Ráð-
hústorginu í Kaupmannahöfn á
næstu vikum. Veitingastaðurinn
Pizza 67 var áður í sama húsnæði en
rekstri hans var hætt um miðjan síð-
asta mánuð.
Þröstur Júlíusson, Ingibjörg Sig-
urðardóttir og sonur þeirra, Bjart-
mar Þrastarson, hafa rekið þrjá
Kentucky Fried-veitingastaði í borg-
inni en gert er ráð fyrir að fjórði
staðurinn á Ráðhústorginu verði
opnaður undir lok mánaðarins.
Þröstur segir að fjölskyldan hafi
Kentucky Fried-sérleyfi í Dan-
mörku, en í því kveði á um að opnað-
ir verði 10 staðir í landinu á næstu
fimm árum. „Reksturinn hefur geng-
ið ágætlega en um 16-25% aukning
hefur orðið í starfsemi staðanna á
milli ára,“ segir Þröstur. Hann telur
staðsetningu á Ráðhústorgi ákjósan-
lega, þrátt fyrir háa leigu, og bendir
á að um 260 þúsund manns fari þar
um að meðaltali á hverjum degi.
Þröstur segir að verulegar breyt-
ingar hafi verið gerðar á staðnum og
að hann hafi flutt tæki og borðbúnað
frá Islandi. Þá nefnir hann að nokkr-
ir Islendingar séu í vinnu hjá honum
við að Ijúka við breytingarnar á
staðnum.
Pizza 67 Danmark fékk rekstrar-
leyfi af Pizza 67 og rak um tíma tvo
staði í Kaupmannahöfn. Mikkel Bu-
low, starfsmaður Pizza 67 í Kaup-
mannahöfn, sagði að tveir staðir með
nafni Pizza 67 hefðu verið í Kaup-
mannahöfn, en staðnum við Ráðhús-
torgið hefði verið lokað vegna þess
að eigendur húsnæðisins hefðu kraf-
ist of hárrar leigu. Hann sagði að
hinn staðurinn væri í úthverfi borg-
arinnar og áhersla væri nú lögð á að
finna húsnæði fyrir nýjan stað undir
nafni Pizza 67 í samstarfi við rekstr-
araðilann. „Við teljum starfsemi
veitingastaðarins henta betur í út-
hverfum. Aukinheldur er leigan þar
mun lægri en á Ráðhústorginu."