Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 C 3 VIÐSKIPTI Goodyear í bandalag með Sumitomo Segja upp 2.800 starfs- mönnum BANDARÍSKA hjólbarðafyrir- tækið Goodyear Tire & Rubber Co. hefur skýrt frá því að það hyggist koma á fót alþjóðlegu bandalagi ásamt Sumitomo Rubber Industries Ltd. í Japan og segja upp 2.800 manns, eða 3% starfsliðs Goodyear, með uppstokkun, sem muni gera fyrirtækið að mesta hjólbarðaframleiðanda heims. Goodyear tilkynnti einnig að hagnaður á síðasta ársfjórðungi hefði aukizt í 122 milljónir dollara úr 2 milljónum fyrir ári, sem er meira en gert hafði verið ráð fyrir í Wall Street. Sala í heiminum minnkaði í 3,2 milljarða dollara á ársfjórðungnum úr 3,3 milljörðum dollara árið á undan. Verð hluta- bréfa í Goodyear hækkaði um 2,125 dollara í 52,375 dollara í kauphöll- inni í New York. Heimsbandalagið byggist á vilja- yfirlýsingu Sams Gibara, forstjóra Goodyear í Akron, Ohio, og Naoto Saito, forstjóra Sumitomo Rubber í Osaka, og þarf samþykki stjóma fyrirtækjanna. Greiða 936 milljónir dollara Goodyear mun eignast 10% í Sumitomo Rubber og japanska fyr- irtækið jafnstóran hlut í því banda- ríska. Bandaríski risinn mun greiða Sumitomo 936 milljónir doll- ara þegar sameignarfyrirtækið er orðið að veruleika. Ráðstafanir til að draga úr kostnaði og hagræðing munu auka hagnað sameignarfyiii-tækja á næstu þremur árum og telur Goodyear að heildarsala á ári muni aukast um 2,5 milljarða dollara. Goodyear mun eiga 75% og Sumitomo 25% í sameiginlegum rekstrai'fyrirtækjum í Norður-Am- eríku og Evrópu. í Japan mun Sumitomo Rubber eiga 75% í tveimur sameignarfyrirtækjum og Goodyear 25%. Kosningaréttur skiptist 70-30. Starfsmönnuni fækkað Goodyear mun loka verksmiðju sinni í Gadsden, Alabama, fyrir áramót og segja upp 2.500-2.800 starfsmönnum. Fyrirtækið hyggst spara 100-150 milljónir dollara með endurskipulagningunni, en kostnaðurinn mun einnig nema 100-150 milljónum dollara. Samvinnan við Sumitomo og endurskipulagningin stafa af óró- leika í efnahagsmálum Rómönsku- Ameríku, kreppunni í Asíu og óhagkvæmni í rekstri í Norður- fl m*r sSC B t| 1 w. Ím %is II í * J f » k 4 V i 7'jSJÍÆL SAM Gibara, forstjóri Goodyear, og Naoto Saito, forstjóri Sumitomo, handsala samkomulagið á blaðamannafundi í gær. Ameríku. Þótt framleiðslu verði hætt í verksmiðjunni í Gadsden - sem er frá 1929 og ein af fimm stærstu verksmiðjum fyrirtækisins - verður gúmmívinnslu haldið áfram. Frá Gadsden verður framleiðsl- an flutt til annarra verksmiðja í Bandaríkjunum, þar sem unnið verður sjö daga í viku með fullum afköstum. Dregið verður úr fram- leiðslu í nokkrum verksmiðjum í Asíu og Rómönsku-Ameríku. Hlutabréf Pirelli hækka Mflanó. Reuters. VERÐ hlutabréfa í Pirelli hjól- barðafyiTrtækinu hækkaði um allt að 6,8% þegar skýi't var frá betri hagnaði en búizt hafði verið við og fréttir bárust um hugsan- lega uppstokkun í greininni vegna væntanlegra samninga Goodyear í Bandaríkjunum og Sumitomo í Japan. Tíu mínútum eftir að viðskipti með hlutabréf í Pirelli hófust hafði verð þeirra hækkað um 4,3% í 2,49 evrur eða 2,82 dollara. Pirelli er sjötti mesti hjólbarða- framleiðandi heims. 800 NÚMERIN ERU GÓÐ LEIÐ TIL AÐ BYGG7A UPP JÁKVÆÐAÍMYND FYRIRTÆKIS GAGNVART VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM. Vegna þess að 8oo númerin eru gjaldfrjáls virka þau hvetjandi á fólk til að hafa samband og leita eftir upplýsingum. Neytendur eru orðnir meðvitaðri um hvað 8oo númerin tákna og sífellt fleiri notfæra sér þessa gjaldfrjálsu þjónustu fyrirtækja. Samkvæmt könnun Gallup í byrjun okt. 1998 töldu 69% aðspurðra það mikilvægt að fyrirtæki bjóði upp á 800 númer. Hafðu samband við Þjónustuver Símans í síma 800 7000 og kynntu þér hvernig 800 númerin geta nýst þínu fyrirtæki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.