Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI 113 m.kr. hagnaður hjá Nýherja hf. á síðasta ári Rekstrartekjur jukust um milljarð Cn> NYHERJI nf. Ársreikningur 1998 Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyt. Rekstrartekjur Milljónir króna 2.882,1 1.930,0 49,3% Rekstrarqjöld 2.668,7 1.866,8 44,0% Rekstrarhagnaður 153,3 63,3 142,2% Fjármagnsgjöld umfram tekjur 2,0 9,0 -77,8% Hagnaður af reglulegri starfsemi 151,3 54,2 179,2% Hagnaður fyrir skatta 151,3 73,8 105,0% Hagnaður ársins 112,8 74,1 52,2% Efnahagsreikningur 31. des. 1998 1997 Breyt. I Eiqnir: I Fastafjármunir Milljónir króna 311,0 224,4 38,6% Veltufjármunir 1.032,0 784,9 31,5% Eignir samtals 1.343,1 1.009,3 33,1% Skuidir oq eiqið fé: I Skammtímaskuldir Milljónir króna 733,1 429,4 70,7% Langtímaskuldir 209,0 262,4 -20,4% Eigið fé 400,9 317,5 26,3% Hlutafé 240,0 240,0 0.0% Skuldir og eigið fé samtals 1.343,1 1.009,3 33,1% Kennitölur 1998 1997 Breyt. Eiginfjárhlutfall 30% 31% Veltufjárhlutfall Milljónir króna 1,4 1,9 -10,5% Arðsemi eigin fjár 36% 29% Veltufé frá (til) rekstrar 158,3 93,9 68,6% HAGNAÐUR Nýherja hf. á síðasta ári nam 113 milljónum króna sam- anborið við 74 m.kr. hagnað árið á undan. Ljóst er að mikil umskipti hafa átt sér stað á rekstrinum und- anfarin misseri eftir 105 milljóna ki-óna tap félagsins árið 1996. Hagnaður af reglulegri starfsemi í fyrra nam 151 milljón króna og hækkaði um 97 milljónir frá 1997. Rekstrartekjur síðasta árs voru 2,8 milljarðar samanborið við 1,9 millj- arða 1997. Eigið fé Nýherja óx úr 317 milljónum árið 1997 í 401 millj- ón í fyrra. I fréttatilkynningu er greint frá því að stjóm félagsins hefur ákveðið að leggja til að hluthöfum verði greiddur 14% arður af hlutafé á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 17. febrúar næstkomandi. Þar verður jafnframt lögð fram til- laga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins. Fjárfestum í fólki Frosti Sigurjónsson, forstjóri Nýherja, segist ánægður með út- komuna sem sýni að reksturinn sé á réttri leið. Hann segir að í rekstrar- áætlunum síðasta árs hafí verið gert ráð fyrir svipuðum hagnaði og 1997 eða um 60-90 m.kr. Niðurstaðan er talsvert umfram þær væntingar, sem er fagnaðarefni. Hann segir ljóst að sú stefnu- breyting sem ráðist var í fyrir þremur árum hefur skilað árangri. „Við tókum þá ákvörðun 1996 að einblína ekki lengur eingöngu á sölu á vél- og tæknibúnaði heldur réðumst í að þjálfa og mennta starfsfólk með það fyrir augum að efla þau svið sem snúa að tækn- iþjónustu, hugbúnaði og ráðgjöf. Þær ráðstafanir hafa skilað góðum árangri og eru megin skýringin á þeirri veltuaukningu sem átt hefur sér stað hjá Nýherja“. Þannig segir Frosti kostnaðinn við veltuaukninguna fyrst og fremst liggja í þjálfun starfsfólks Nýherja sem aftur skili sér í aukinni getu starfsmanna til að skapa fyrirtæk- inu meiri verðmæti. Þá nefnir hann einnig samning Nýherja við heil- brigðis- og tryggingaráðuneytið á árinu um leigu á tölvubúnaði að heildarverðmæti 200-250 milljónir króna. Að sögn Frosta er stefnt að því að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur en gert er ráð fyrir að hagnaður þessa árs verði á bilinu 110-130 milljónir króna. Hann segir ljóst að vegna anna heima hafi ekki tekist að koma fyrirtækinu á legg erlendis en bindur vonii- við að úr rætist á þessu ári og að Nýherji nái að markaðssetja þann mannauð sem félagið býr yfir á erlendum vettvangi í framtíðinni. Kemur ekki á óvart Jafet Olafsson, framkvæmda- stjóri Verðbréfastofunnar, segir af- komu Nýherja mjög í takt við vænt- ingar markaðarins og ljóst að for- svarsmenn fyrirtækisins hafi náð góðum tökum á rekstrinum. „Við höfðum spáð því að hagnaðurinn yrði nálægt 105 milljónum króna eftir skatta þannig að niðurstaðan kemur ekki á óvart“. Jafet telur þó að 3,5% hagnaður af veltu sé í lægi-i kantinum og að þar mætti gera betur. Hann segir að ef tekið sé mið af þeirri áhættu sem fylgi rekstri tölvufyrirtækja, þá sé eðlilegt að gera kröfu upp á a.m.k. 5% hagnað af veltu. Jafet tel- ur þó engan vafa leika á um að stjórnendur Nýherja séu á réttri leið með fyrirtækið eftir erfiðleik- ana 1996. Engin viðskipti áttu sér stað með hlutabréf Nýherja á Verðbréfaþingi í gær en síðasta skráða gengi var 10,50. Aðspurður um áhrif rekstrar- reikningsins á gengi og eftirspurn hlutabréfa félagsins, telur Jafet lítilla breytinga að vænta. „Markað- urinn átti von á þessari útkomu sem endurspeglast m.a. í því að félagið hefur hækkað um 40% frá því í nóvember. Við gætum þó séð ein- hverja hækkun eiga sér stað á næstunni en fullvíst er að þar verð- ur ekki um neinar stórar breytingar að ræða“, segir Jafet. Hugbúnaðarfyrirtækið Landsteinar Samstarf um framtíðaruppbyggingu Arnarneslands Samið við Tívolí í Kaup- mannahöfn HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Landsteinar hefur gengið frá samningi við Tívolí í Kaupmanna- höfn um sölu, uppsetningu og aðlögun á heildarverslunarkerfi fyrir starfsemi skemmtigarðsins. í fréttatilkynningu frá Land- steinum segir að kerfið frá Land- steinum muni stýra rekstri allra verslana í Tívolí en það hefur sjálfvirk samskipti við afgreiðslu- kassa verslananna, les frá þeim sölugögn og sendir upplýsingar til þeirra eftir fyrirfram skil- greindum þáttum. „Verslunar- kerfið mun m.a. stýra verði á vör- um, afsláttum og tilboðum sem eru í gangi hverju sinni og veita stjórnendum Tívolí skilvirkar upplýsingar um gang mála í rekstrinum. Þannig sjá stjórnendur Tívolí m.a. upplýs- ingar um veltu, framlegð og kostnað við rekstur verslananna," segir í tilkynningunni. Verslunarkerfið sem sett verður upp í Tívolí er þróað af Landstein- um og selt út um allan heim af fyr- irtækinu og samstarfsaðilum þess. Verslunarkerfið er hannað í Navision Financials. Notendur hér á landi eru t.d. Japis, IKEA, Olíu- verslun Islands og nú nýverið Nóatúnsbúðirnar. „Þetta er virkilega skemmtileg- ur áfangi og gaman að vísa til þess að kerfið okkar sé í notkun hjá Tívolí í Kaupmannahöfn," sagði Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- stjóri Landsteina, í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum náð mjög góðum árangri með sölu á kerfinu á síðustu misserum og ger- um ráð fyrir að verslunarkerfið verði komið í ekki færri en 8.000 búðir við árslok," sagði Jón Örn. ------------------ IBM gefur út ný bréf Arrnonk, New Yorkríki. Reuters. IBM hefur boðað útgáfu nýrra hlutabréfa að dæmi Microsoft og verð bréfa í fyrirtækinu hækkaði um 4,50 dollara í 186,50 dollara í bandarískum kauphallarviðskiptum. Útistandandi hlutabréfum IBM fjölgar í um 4,69 milljarða við út- gáfu hinna nýju hlutabréfa í maí. IBM gaf síðast út ný hlutabréf í janúar 1997. Verð bréfa í fyrirtæk- inu hefur hækkað um 85% á 12 mánuðum. Stefnt a að hefja fram- kvæmdir sem fyrst LANDSBANKI íslands hf. og Jón Ólafsson í Skífunni kynntu í gær samstarf um uppbyggingu á Arnar- neslandi. Stefnt er að því að fram- kvæmdir á svæðinu hefjist sem fyrst en báðir aðilar leggja áherslu á að eiga gott samstarf við bæjaryfirvöld í Garðabæ. Landsbankinn fjármagnaði kaupin á Amarneslandi og hyggst í fram- haldi bjóða fjármögnun í tengslum við uppbyggingu á svæðinu. Halldór J. Ki-istjánsson, bankastjóri Lands- bankans, sagði í samtali við Morgun- blaðið að bankinn legði áherslu á að vandað yrði til allrar kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu. Hann sagði samstarfið við eiganda svæðisins í samræmi við áherslur bankaráðs Landsbankans um að auka hlut sinn í fjárfestingar- fjármögnun á öllum sviðum og veita heildarþjónustu. Áhugaverður kostur „Við höfum haslað okkur völl í fjármögnun á atvinnuhúsnæði og er- um að fara af stað með nýja íbúðar- lánastarfsemi sem verður kynnt á næstu dögum. Fyrirhugaðar fram- kvæmdir á Arnarneslandi gefa bank- anum því tækifæri á áhugaverðum viðskiptum.“ Halldór sagði að Landsbankinn hefði aukið hlut sinn í fasteigna- rekstri og benti á að bankinn hefði komið að stofnun fasteignafélaganna Landsafls og Óslands í samvinnu við Islenska aðalverktaka og Þyrpingu, en bankinn á nú 20% hlut í báðum félögum. Halldór sagði að mai’kmið bankans væri að sameina félögin í eitt og skrá það á hlutabréfa- markaði. „Áhersla Landsbankans er að auka hlut bankans í fasteignum og uppbyggingu. Hefur bankinn rætt við ýmis sveitarfélög um að koma að einkafjármögnun opinberra fram- kvæmda og auka lánveitingar til slíkra verkefna.“ Halldór sagðist leggja á það höfuðáherslu að gott samstarf tækist á milli framkvæmdaaðila og bæjarins, slíkt væri mik- ilvægur gi’undvöllur fyrir framhaldið. Á blaðamannafundi í gær kynnti Jón Ólafsson ástæður þess að hann keypti landið og hver væru framtíðarmöguleik- ar þess. Hann sagði greinilegt að mikil eftir- spurn væri eftir landinu og að yfir 50 einstakling- ar og nokkur fyrirtæki hefðu óskað eftir að kaupa lóðir. Hann greindi einnig frá því að fyrirspurn hefði borist frá verktaka sem hefði sýnt áhuga á að kaupa allt landið. Jón sagði að bæjaryf- irvöldum í Garðabæ hefði ekki enn verið sent er- indi um hvað hann hefði í huga hvað varðar fram- tíð svæðisins en sagði að honum væri umhugað að eiga gott samstarf við bæjaryfirvöld. Norðurhluti svæðis- ins hefur enn ekki verið deiliskipu- lagður en þar er gert ráð fyrir blandaðri byggð. í syðri hlutanum er gert ráð fyrir 400 íbúða byggð, þar af yfir 140 einbýlishúsum. Jón sagði að honum hefði verið boðið að koma að kaupum á Arnar- neslandinu og hann talið landið góð- an fjárfestingarkost sem hentaði vel til íbúðarbyggðar. „Ég hef verið þekktur fyrir annars konai’ viðskipti en ákvað að slá til og reyna fyrir mér.“ Rætt hefur verið um að kaupverð landsins hafi verið um 700 milljónir króna. Jón sagði að samkomulag væri á milli hans og fyrrverandi eig- enda um að gefa ekki upp kaupverð. Morgunblaðið/Ásdís JÓN Ólafsson og Halldór J. Kristjánsson kynntu í gær samstarf Landsbankans og Jóns um kaup á Arnameslandinu. „Ef því verði sem rætt hefur verið um í fjölmiðlum væri deilt upp í þær 400 íbúðir sem þegar hafa verið skipulagðar í suðurhluta væri meðal- verð innan við 1,8 milljón króna. Þá er ekki tekið tillit til norðurhluta landsins. Ég bendi einnig á að fyrir 15 árum voru lóðir seldar í Hlíða- hverfi fyrir allt að þremur milljón- um. Þetta ætti að svara því hvort hér sé um góð kaup að ræða eða ekki.“ Aðspurður hvort hann hygðist snúa sér í auknum mæli að kaupum lands og byggingaframkvæmdum sagði Jón að það færi eftir því hvern- ig til tækist og hvernig honum líkaði að stunda slík viðskipti. „Ég hefði í það minnsta gaman af því að spreyta mig á nýjum hlutum." Mikil eftirspurn eftir landi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.