Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 7

Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Ahuginn á Nýsköpun ‘99 fram úr björtustu vonum aðstandenda Fyrsta námskeiðið að hefjast NÁMSKEIÐ vegna samkeppni um viðskiptaáætlanir undir kjöi'orðinu Nýsköpun ‘99 hefjast eftir tæpa viku eða nánar tiltekið miðvikudag- inn 10. febrúar nk. Viðtökumar hafa farið fram úr björtustu von- um, að sögn G. Agústs Pétursson- ar, verkefnisstjóra, og þegar hafa vel á þriðja hundrað aðilar óskað eftir gögnum til þátttöku í verkefn- inu. Gögnin fást öllum að kostnað- arlausu og án nokkurra skuldbind- inga, svo og eru námskeiðin sem haldin eru í tengslum við Nýsköp- un ‘99 þátttakendum að kostnaðar- lausu. Aðstandendur Nýsköpunar ‘99- samkeppninnar um viðskiptaáætl- anir eru Nýsköpunarsjóður at- vinnulífsins, Morgunblaðið, Við- skiptaháskólinn í Reykjavík og Endurskoðunar- og ráðgjafaríyrir- tækið KPMG. Tveir síðastnefndu aðilamh- bera hitann og þungann af námskeiðshaldinu fyrir þátttak- endur í Nýsköpun ‘99. Agúst legg- ur áherslu á þá nýlundu að fjórir áhrifamiklir aðilar í íslensku við- skiptalífi skuli með þessum hætti leggja fram sérfræðikunnáttu sína hver á sínu sviði til að hrinda af stað átaki sem í sjálfu sér kalli á slíka samvinnu og væri erfitt og dýrt í framkvæmd fyrir einhvern einn aðila. Tilgangur þeirra sé ann- ars vegar að örva umhverfið fyrir nýsköpun og fmmkvöðla hér á landi og hins vegar að glæða um- ræðuna um þessi mál, sem hafi verið lítil sem engin hér á landi á síðustu áram. Bjarni Snæbjörn Jónsson, fram- kvæmdastjóri CL Ráðgjafar og umsjónarmaður námskeiðs um stofnun og rekstur fyiirtækja í Viðskiptaháskóla Reykjavíkur, mun 10. febrúar fjalla um þann undmbúning sem felst í að setja fram viðskiptahugmyndir og hvernig þær era veraleikaprófað- ar. „Eg mun ræða um hvort við- skiptahugmyndir séu hæfar til frekari úrvinnslu og hvort ástæða sé til að fara yfir í næsta skref, sem er sjálf áætlanagerðin," segir Bjarni Snæbjörn. Koma skiiaboðum á framfæri Jón Garðar Hreiðarsson og Ingvi Þór Elliðason hafa umsjón með námskeiðunum fyrir hönd KPMG. Jón Garðar segir að líta megi á námskeiðið, sem skiptist í þrennt, sem helsta tækifærið til þess að koma ákveðnum skilaboð- um á framfæri við þátttakendur áður en þeir ráðast í áætlanavinn- una sjálfa. Spjallfundi í húsnæði Viðskiptaháskólans geti þátttak- endur nýtt til stuðnings þegar út í áætlanagerðina er komið. „Fyrsti hlutinn fjallar um virkj- un hugvits og snýst um hugmynda- vinnu þátttakenda áður en vinnan við sjálfa áætlunina hefst. Oft gerir fólk áætlanir strax og eyðir tíma og fjármunum án þess að velta fyrir sér hvort líklegt sé að hugmyndin virki í raun. Markmiðið með fyrsta hluta er að hvetja fólk til þess að meta grandvöll þeirrar hugmyndar sem það hefur í höndunum og safna í sarpinn fyrir útfærsluna í viðskiptaáætluninni." Jón Garðar segir að í öðram hluta sé viðskiptaáætlunin sjálf tekin fyrir en í þeim hluta sé lögð áhersla á að þátttakendur skilji til- gang áætlunarinnar í því að hrinda hugmynd í framkvæmd, en við- skiptaáætlunin sé hvorki upphaf né endir þess ferils. „Til að viðskiptaá- ætlunin skili tilætluðum árangri þarf fólk bæði að hafa innsýn í skrefin við að gera áætlunina og einnig með hvaða hætti væntanleg- ir fjárfestingar- eða fjármögnunar- aðilar meðhöndla hana þegar hún er tilbúin.“ Jón Garðar segir að í lok annars hluta ættu þátttakendur að þekkja skrefin við að gera áætlun og ættu að hafa innsýn í hugsun fjárfesta. „I þriðja hluta er lögð áhersla á rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð- ina og í lok fjallað um hugleiðingu um hvemig vinna megi að fjár- mögnun viðskiptahugmynda." Námskeiðin kjörin tækifæri Jón Garðar segir að námskeiðið eigi að nýtast þátttakendum í að skoða hugmyndir sínar áður en kemur að framkvæmd þeima þannig að lágmarks áhætta hljótist af fyrir sig og væntanlega fjár- festa. „Námskeiðið er kjörið tæki- færi fyrir þá sem era með nýjar hugmyndir hvort sem þeir era í rekstri eða ekki og þurfa á fjár- mögnun að halda,“ segir Jón Garð- ar. Fyrsta námskeiðið af þremur verður haldið eins og áður segir miðvikudaginn 10. febrúar nk. í Viðskiptaháskólanum við Ofanleiti og hefst kl. 17.15. Er rétt að ítreka að það er þátttakendum að kostn- aðarlausu. FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 C 7 33. árgangur, viðameiri ert nakkru sinni fyrr Úmissandi uppsláttarbúk í erli dagsins Tryggúu þér eint&k í tíma TSLENSK 1-pYRIRTÆ.Kí Seljavegl S, Reykjavik. Simk 515 5530 - Fax: IMetfang: islenskf@lslenskf.la Internetið Útflutningsleið nútímans Talið er að um 5% af heildarviðskiptum heimsins muni fara í gegnum Internetið árið 2003*. Er þetta ógn eða tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki? 0 /// ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS SIH Samtök íslenskra hugbúnaöarfyrirtækja Útflutningsráð íslands og Samtök íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja efna til ráðstefnu um þá möguleika sem Internetið opnar. Ráðstefha haldin fimmtudaginn 11. mars 1999 kl. 13:00-17:00 í Háskólabíói í sal 2. DAGSKRÁ: Setning. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands. Ávarp. Viðskiptalegt umhverfi á íslandi fyrir viðskipti á Netinu. Hr. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Viðskipti á Netinu. Farið yfir sviðið. Hannes Birgir Hjálmarson, Útflutningsráð. Fyrstu Skrefin. Hvernig á að byrja. Fjalar Sigurðarson, Hugvit. Reynslusaga. Útflutningur í gegnum Internetið. Steinn Logi Björnsson, Flugleiðir. Kaffi. E-commerce and exports - issues related to the consumer. Susan Nolan, Bluesky International Marketing. The future of E-commerce. Dr. Jakob Nielsen, Nielsen Norman Group. „Er útflutningur íslenskra vara í gegnum Internetið raunhæfúr?“ Pallborðsumræður undir stjórn Jóns Asbergssonar. Ert þú með? Um erlendu fyrirlesarana. Dr. Jakob Nielsen Dr. Jakob Nielsen er af mörgum talinn sá klárasti í málefnum Netsins. Hann starfaði sem „Distinguished Engineer“ hjá Sun Microsystems, og hefur verið kallaður „vefguðinn“ og „netgúrú númer eitt“. Það hefur jafnvel vakið undrun að hann er ekki jafn þekktur og Elvis! Nielsen er á lista yfir 10 áhrifamestu mennina á Netinu. Hans helsta sérsvið er framtíðarsýn Netsins, notagildishönnun, mat á velgengni vefsvæða og þróun viðskipta og þjónustu á Netinu. Vegna þekkingar sinnar er hann einn eftirsóttasti fyrirlesari heims um málefni Netsins. Frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði Dr. Nielsens www.useit.com. Suzan Nolan Suzan Nolan er forseti Bluesky International Marketing www.blueskyinc.com sem aðstoðar fyrirtæki við að skilja og nýta sér þau tækifæri sem Internet markaðurinn í Evrópu býður upp á. Bluesky gerir samkeppnisgreiningar í þeim tilgangi að aðstoða fyrirtæki við stefnumótun. Suzan er einnig pistlahöfúndur og greinar eftir hana sem fjalla um viðskipti og markaðssetningu á Internetinu birtast m.a. hjá vefritinu Who's Marketing Online. Ráðstefhan er einkum hugsuð fyrir stjómendur fyrirtækja sem hug hafa á að hefja eða auka viðskipti á Internetinu. Þátttökugjald er kr. 12.500,-. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Skráning fer firam hjá Útflutningsráði fslands í síma 511 4000. Nánari upplýsingar em á vefsvæði Útflutningsráðs www.icetrade.is. * http://www.forrester.com/Research/Report/0,1001,3662.00.html

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.