Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 10
10 C FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Mikilvægi sijórnandans í fyrir- tækjum á hlutabréfamarkaði IFRAMTIÐINNI munu ís- lenskir íjárfestar, við mat á fjárfestingakostum, væntan- lega leggja vaxandi áherslu á hlutverk æðstu stjórnenda fyrir- tækja í þeim efnum. Til þess að fyr- irtæki nái markmiðum um arðsemi eigin fjár getur hæfni stjómandans og hlutdeild hans í viðgangi fyrir- tækisins vegið þungt. Við skoðun fjárfesta á fjárfestingu í hlutabréf- um hefur mat þeirra á hæfni stjóm- andans fengið aukið vægi. Stjórn- andi fyrirtækis sem ætlar að selja hlutabréf á hlutabréfamarkaði þarf að hafa yflrgripsmikla þekkingu á þeirri atvinnugrein og þeim mark- aði sem fyrirtækið sinnir. Hann þarf að skilgreina hlutverk sitt sem stjórnanda og bakgrunn sinn. Mikilvægt er að hlutdeild hans í fyrirtækinu sé hvorki of mikl né of lítil. Hæflleikar stjórnandans í sam- skiptum við ólíka hópa, hæfileiki til að búa til liðsheild, fylgja eftir skoð- unum gagnvart stjórn, víðsýni, hlut- verk utan fyrirtækisins, endumýjun innri uppbyggingar og miðlun fram- tíðarsýnar hafa mikil áhrif á ákvarðanir fjárfesta um fjárfest- ingu. Fagleg þekking og árangur stjórnanda við rekstur fyrirtækis, viðunandi arðsemi, uppbygging fjármála, sóknaraðgerðir á helstu mörkuðum og færni hans við ný- sköpun í rekstri munu skipta sköp- um um arðsemi af rekstrinum í framtíðinni og möguleika fyrirtæk- isins til sölu hlutafjár á hlutabréfa- markaði. Hlutdeild í hagnaði Nokkrir mikilvægir þættir sem fjárfestar vilja greina í fari stjórn- anda fyrirtækis á hlutabréfamark- aði eru eftirfarandi: 1. Hlutdeild í viðgangi fyrirtæk- isins. Nauðsynlegt er að stjómand- inn eigi persónulega hlutdeild í við- gangi fyrirtækisins umfram bein laun, þ.e.a.s. njóti góðs af góðri af- komu og beri rýrari hlut ef illa gengur. Tengingin verður að vera hæfíleg, næg til að veita hvatningu og ekki of mikil til að trufla einbeit- ingu hans við stjórnun fyrirtækis- ins. Hægt er að hugsa sér ýmsar leiðir, t.a.m. hlutdeild í hagnaði, hlutdeild í hagnaði umfram tiltekið mark eða hlutdeild í tapi. Einnig er mögulegt að stjómandinn eigi hlutabréf eða skuldbindi sig til að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu. Við- horf stjórnandans gagnvart arð- semi þarf að taka mið af því að hlutafé sé dýrasta fjármagn í fyrir- tækinu hverju sinni. 2. Samskiptahæfileikar. Nauð- synlegt er að stjómandinn hafí hæfileika til samskipta við mismun- andi hópa innan fyrirtækisins. Stjómandinn þarf að geta sett sig inn í sjónarmið ólíkra hópa t.d. verkamanna, skrifstofufólks, milli- stjórnanda og hluthafa. Stjómand- inn þarf að verja hæfílegum hluta af tíma sínum í samskipti við hvem þessara hópa með fundum og sam- tölum við hvern og einn. 3. Hæfileiki til að búa til „liðs- Sjónarhorn A undanförnum árum hefur mikilvægí stjórnandans í fyrirtækjum á hlutabréfa- markaði aukist verulega en við fjárfestingu í hlutabréfum fyrirtækis skiptir það fjár- festa engu að síður meginmáli, segir Albert Jónsson, að arðsemi sé af fjárfest- ingunni þegar til lengri tíma er litið. Albert heild“. Fyrirtæki er liðsheild þar sem stjórnandinn er liðs- stjóri. Mikilvægt er að stjómandinn geti kallað fram rétta stemmningu og keppnisanda hjá liðsheildinni. Ef einn starfsmaður fellur ekki inn í liðsheildina sé við- komandi liðsstjóri til- búinn að skipta öðram inn á. Hluti af rekstri fyrirtækis er eðlileg endurnýjun, ekki bara tækja og búnaðar, held- ur einnig starfsmanna (nýtt blóð), og þá gjarnan millistjórnenda. Til þess að stuðla að slíkri endurnýjun er starfsfólk oft fært til í stöðum innan fyrirtækisins. Þó verður að hafa í huga að ef tiltekinn starfs- maður eða starfsmenn hafa nei- kvæð áhrif á liðsheildina þá verða leiðir fyrirtækis og starfsmanns að skilja. Fjárfestar vilja hafa vissu fyrir því að tekið sé á slíkum málum komi þau upp. Sýna sjálfstæði 4. Stjórnandinn fylgi eftir skoð- unum sínum gagnvart stjóm, þó svo að þær tillögur sem hann gerir og telur skynsamlegar séu afdrifaríkar og kunni að mæta andstöðu stjóm- armanna eða stjórnar í heild. Stjórnandinn þarf að sýna visst sjálf- stæði gagnvart stjórn fyrirtækisins og á þetta sérstaklega við ef fyrirtækið þarf að móta nýja stefnu og nýtt skipulag til að bregðast við þörfum viðskiptavinanna og nýjum markaðsað- stæðum. Víðsýni nauðsynleg Jónsson 5. „Víðsýni“. Ef stjórnandi hefur ferskar og nýjar hugmyndir um verulegar breyting- ar í rekstri, hvort sem þær em ann- arra og hvort sem þær reynast framkvæmanlegar eða ekki, mun það vekja þá tilfmningu hjá fjárfest- um að stjómandinn sé enn víðsýnn og ferskur í hugsun, en ekki upp- tekinn við daglegan rekstur og „af- greiðslu" ákvarðanir. 6. Hlutverk utan fyrirtækis. Þátt- taka stjórnandans í félagsstörfum og hagsmunasamtökum á þeim vettvangi sem tengist starfsemi fyr- irtækisins sem hann stjómar, má ekki koma niður á störfum hans innan fyrirtækisins. Stjórnandinn þarf að leggja mat á það hvort tíma hans sé betur varið innan fyrirtæk- isins eða utan. Leiða má að því lík- um að stjórnanda, sem nær ekki að einbeita sér að stjórnun fyrirtækis vegna starfa utan þess, gangi verr en ella að skapa skuldbindingu hjá starfsfólki. 7. Endurnýjun innra skipulags. Nánustu samstarfsmenn stjómand- ans em yfirleitt millistjórnendur sem hafa oft starfað lengi í fyrir- tækinu og hugsanlega lengur en sjálfur stjórnandinn. Oft skapast vináttutengsl milli stjómandans og millistjómendanna, sem geta hindr- að framkvæmd óþægilegra aðgerða innan fyrirtækisins, sem nauðsyn- leg em til að fyrirtækið nái mark- miðum sínum. Nauðsynlegt getur því verið að endurnýja millistjórn- endur miðað við stefnumörkun fyr- irtækisins hverju sinni. Skapa framtíðarsýn 8. Hæfileiki til að miðla framtíð- arsýn. Nauðsynlegt er að stjóm- anda takist að skapa framtíðarsýn fyrir starfsfólk fyrirtækisins og hafi hæfileika til að miðla henni til starfsmanna. Hér að framan hefur verið tæpt á nokkrum mikilvægum þáttum sem stjómandi þarf að huga að við markaðssetningu fyrirtækis á hlutabréfamarkaði. Fjárfestar munu í auknum mæli horfa til fyrir- tækja þar sem ráðnir verða fram- sýnir stjórnendur með hæfni og þekkingu til að skila nauðsynlegri arðsemi til lengri tíma. Stjórnendur fyrirtækja sem em skráð á hluta- bréfamarkaði og þau fyrirtæki sem huga að sölu hlutafjár í náinni fram- tíð þurfa að huga að sérstakri stefnu gagnvart hluthöfum, s.s. markmiðum fyrirtækisins um arð- semi og arðgreiðslur til hluthafa. Stjómendum fyrirtækja sem upp- fylla ekki kröfur fjárfesta um arð- semi og góða stjórnun mun ekki takast að markaðssetja fyrirtæki sitt á hlutabréfamarkaði með góð- um árangri. Höfundur er forstöðumnður verð- bréfamiðlunar Fjárvangs. Tímaritið Iceland Business Fjögur blöð á síð- asta ári FRÁ því útgáfa á sérritinu Iceland Business á ensku hófst fyrir fjóram áram hafa aldrei komið út jafnmörg rit og á síðastliðnu ári eða alls fjögur. I fréttatilkynningu kemur fram að eftirtalin sérrit komu út á árinu 1998: The Digital Island - hugbúnaðai-fram- leiðsla á íslandi Iceland’s Seafood Industry - sjávarút- vegur, veiðar, vinnsla, mark- aðsmál The Eco Island - Iceland’s Food Industry - vistvæn og sjálfbær matvæla- framleiðsla ínvest in Iceland - íslenski hlutabréfa- og skuldabréfamarkaðurinn Upplag ritsins er 8-10.000 eintök. Ritið er m.a. sent eftir sérstökum póstlista Utflutn- ingsráðs og Iceland Review, dreift á erlendum kaupstefn- um tengdum viðkomandi mál- efni, upplag sent sendiráðum íslands og ræðismönnum ut- anríkisþjónustunnar, dreifing fyrirtækja er eiga aðild að hverri útgáfu, Saga Class Flugleiða og á heimasíðu Iceland Review á Netinu. Á þessu ári verður haldið áfram uppbyggingu ritsins og fleiri málaflokkum bætt við eftir því sem tilefni gefst til. Nú er í undirbúningi út- gáfa að riti um sjávarútveg sem dreift verður sérstak- lega á sjávarútvegssýningun- um í Boston og Brussel. Þar á eftir er fyrirhugað að gefa út rit á þýsku um viðskipti Islands og Þýskalands, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu. DILBERT — VOU SHOULD DILUTE TT DITH COHITE COINIE.. m ______ y VOU'LL THMslK N\E FOR THIS LM’ER. — r~ I THINK THAT HELPED. VOU NEED SALT TO AESORB IT. Þú helltir rauðvíni á skyrtuna þína. Þú ættir að þynna það út með hvítvíni Þú þakkar mér fyrir þetta seinna. TRV tAY KMLG^RITA Ég held að þetta sé orðið skárra. - Salt drekkur í sig vökvann. TUST OtslCE, I'D LIKE TO GO TO A PARTY AND NOT BE SET ON FIR.E. ' THERE'S A STAIN ON VOUR RAG. Saltið dugði ekki. Prófum piparúða. - Kannski kveikiarabensín ... Það sakar ekki að reyna. - Ég kann eitt ráð enn. Ég vildi óska að ég gæti einu sinni farið í boð án þess að kveikt sé í mér. - Það er blettur á dulunni þinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.