Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR1999
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Albert prins
hættur að mæta
á leiki Mónakó
ALBERT prins af Mónakó, sem sjaldnast lætur sig vanta á
heimaleiki Mónakóliðsins í knattspyrnu með rauðan og hvítan
trefil liðsins um hálsinn, hefur lýst því yfir að hann hyggist ekki
mæta á fleiri heimaleiki á Stade Louis II í bráð. Astæaðn er sú
að honum þykir leikmenn liðsins ekki leggja sig eins mikið fram
og áður.
„Eg hef þegar greint forseta Mónakóliðsins, Jean-Louis
Campora, frá því að ég mæti ekki á fleiri leiki fyrr en liðsmenn
geta náð saman og leikið sem ein heild,“ sagði prinsinn í viðtali
við L’Equipe á föstudag. Faðir prinsins, Rainer, er sterkasti
fjárhagsbakhjarl liðsins. Hann hefur einnig gagnrýnt liðið opin-
berlega og sagt að verði ekki breyting á því verði ekki komist
hjá því að skipt verði um stjómendur.
Mónakó er í 6. sæti frönsku deildarinnar, 16 stigum á eftir
efsta liðinu, Bordeaux.
íslandsmeistarar í einliðaleik karla
í badminton 1949-1999 ^
=====...........................................................—«-
Broddi Kristjánsson, TBR, 13 |1980|1981|1982ll983|1984|1986|1988|1989|1990|1992[1993|1995|1998l
Óskar Guðmundsson, KR, 8 Il960ll96l|l963|l964|1965|1968|1969[1970l
Ágúst Bjartmarz, UMFSnæfelli, 5 |1950|1951|1956|1958|19591
Wagner Walbom, TBR, 5 [195211953|1954|1955|1957|
Haraldur Korniliusson, TBR, 511971|1972|1973|1974|1975|
Jón Árnason, TBR, 311962|1966|19671
Sigurður Haraldsson, TBR |1976|1977| ^
Jóhann Kjartansson, TBR [1978|1979|
Þorsteinn Páll Hængsson, TBR |1987|1994[
Tryggvi Nielsen, TBR |1996[1997'
Einar Jónsson, TBR [1949[
Guðmundur Adolfsson, TBR [1985[
Árni Þór Hallgrímsson, TBR [1991|
Tómas Viborg Garðarsson, víkingi [1999
Hollendingurinn
sem ekki er fljúgandi
ÓHÆTT er að segja að hollenski markahrókurinn Dennis Berg-
kamp verði á faraldsfæti næsta árið. Framherjinn sterki er lykil
maður í meistaraliði Arsenal og í hollenska landsliðinu og fyrir
báðum þessum liðum liggur fyrir stíf ferðaáætlun næsta árið.
Slíkt væri vitanlega ekki sérstak-
lega í frásögur færandi, ef ekki
væri fyrir þá kunnu staðreynd að
Dennis er fremur flughræddur
maður og neitar með öllu að stíga
upp í stálfuglana og taka sér far
með þeim. Hann kýs fremur að nota
jarðbundnari fararskjóta og verður
fyrir vikið að gera sér lengri og erf-
iðari ferðalög að góðu.
Flughræðsla Bergkamps er ekki
ný af nálinni og Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, hefur
sætt sig við hana og látið kappann
notast við lestarferðir í mikilvæg-
ustu leiki liðsins á erlendri grundu.
Minniháttar leikjum hefur fram-
herjinn hins vegar sleppt. Nú er
gamli varnarjaxlinn Frank Rijka-
ard tekinn við hollenska landsliðinu
og hann hefur gefíð tvennt út varð-
andi Bergkamp; annars vegar að
hann sætti sig við flughræðslu hans
og hins vegar að fyrir vikið verði
leikmaðurinn að vera viljugur til
ferðalaga á jörðu niðri, því hann sé
mikilvægur hlekkur í landsliðinu
sem undirbýr sig íyrir úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða 2000.
Sleppur við Brasilíuferð
Hollendingar og Belgar eru sam-
eiginlegir gestgjafar á EM og fyrir
vikið þurfa landslið þjóðanna ekki
að taka þátt í undankeppninni, þau
hljóta sjálfkrafa þátttökurétt. Hins
vegar munu þau í staðinn leika
gnægð mismerkilegra vináttuleikja
og vegna þeirra mun Bergkamp
þurfa að ferðast víða á næstunni.
Fyrstu verkefni Hollendinga af
þessum toga verða tveir leikir í
Brasilíu í júní nk. Þeim fær Berg-
kamp að sleppa sakir mannúðar-
sjónarmiða Rijkaards, en öðrum
ekki, og þar með eru taldir leikir í
Danmörku, Frakklandi og Sviss svo
dæmi séu tekin.
„Við erum að búa okkur undir af-
ar mikilvægt verkefni og megum
ekki við sífelldri tilraunastarfsemi.
Eg hef ákveðnar og fastmótaðar
hugmyndir um landsliðið og vil fá
þá leikmenn sem ég vel hverju
sinni. Þótt þeir þurfi að ferðast um
langan veg,“ sagði Rijkaard.
Hollendingar leika vináttulands-
leik gegn Portúgölum annað kvöld á
Parc des Princes-leikvanginum
fræga í París. Hollenska liðið mætti
til æfinga í Amsterdam í gær og
þurfti Bergkamp vitaskuld að taka
hraðlest gegnum Ermarsundsgöng-
in með viðkomu í Calais til að hitta
félagana í borginni við sundin. Það-
an fljúga félagar hans til Parísar
seinna í dag - Bergkamp kemur ak-
andi á eftir, fjögurra og hálfs tíma
ferðalag.
Bergkamp er auðvitað fyrir löngu
orðinn vanur slíkum ferðamáta og
hefur þess vegna komið sér upp álit-
legum bifreiðakosti fyrir lengri og
skemmri ökutúra. Sumir þessara
bíla hafa stýrið vinstra megin, eins
og á meginlandinu, aðrir eru útbúnir
fyrir vinstri umferð eins og gerist á
Bretlandi. I bílaflotanum eru nokkr-
ar BMW-bifreiðir, einn Porche og
jeppi af Range Rover-gerð.
Ancelotti tekur við
af Lippi hjá Juventus
CARLOS Ancelotti hefur verið ráðinn þjálfari ítalska knattspyrnuliðs-
ins Juventus. Hann tekur við af Marcello Lippi, sem sagði af sér í kjöl-
far 2-4 tapleiks gegn Parma á sunnudag. Ancelotti átti að taka við
starfi Lippi að lokinni þessari leiktíð, en stjórn liðsins óskað eftir því
að haim tæki við því sem fyrst. Lippi sagðist hafa reynt hvað hann gat
til þess að ná árangri ineð liðið, en honum hefði mistekist.
Ljóst er að Aucelottis bíður erfitt verkefni. Staða liðsins f deildinni
hefur ekki verið eins slæm í 37 ár. Liðið er í 9. sæti í fyrstu deild
ítölsku knattspymunnar og er úr leik í bikarkeppninni. Alexandro Del
Piero, helsti markaskorari liðsins, hefur átt við meiðsli að stríða og
hefur liðinu gengið erfiðlega að skora mörk. í 20 leikjum hefur Juve
aðeins skorað 22 mörk. Thierry Henry frá Frakklandi og Juan
Esnaider frá Argentfnu komu til liðsins í sfðasta mánuði og áttu að
skerpa sóknarleik þess, en hvorugum hefur tekist. ætlunarverk sitt. Þá
er Zinedine Zidane ekki svipur hjá sjón frá því á HM í Frakklandi.
Reuters
Marki fagnað
DENNIS Bergkamp fagnar hér marki sínu gegn West Ham, er
Arsenal lagði „hammers" á Upton Park, 4:0. Fyrir aftan hann er
Julian Dicks, leikmaður West Ham.
■ HARALDUR Þorvarðarson
skoraði 5 mörk fyrir Diisseldorf
þegar liðið vann HG Erlangen í suð-
urhluta 2. deildar þýska handknatt-
leiksins um helgina. Diisseldorf er í
13. sæti af 18 liðum deildarinnar
með 16 stig.
■ EIÐUR Smári Guðjohnsen var í
leikmannahópi Bolton Wanderers
sem vann Grimsby 1:0. Framherj-
inn Dean Holdsworth skoraði eina
mark leiksins, en hann hefur hrein-
lega blómstrað í íramlínu Bolton
síðustu vikurnar.
Eiður Smári hefur verið frá lengi
vegna meiðsla, en er óðum að ná sér
og komst í leikmannahóp Bolton
eftir söluna á Arnari Gunnlaugs-
syni til Leicester.
■ BOLTON stendur nú ágætlega
að vigi í toppbaráttu 1. deildarinnar,
á leik til góða á Bradford og Sund-
erland sem eru íyrir ofan á töflunni.
Fastlega er búist við að danski leik-
maðurinn Bo Hansen verði seldur
til Bolton innan skamms frá dönsku
meisturunum Bröndby.
■ JÓHANN B. Guðmundsson var í
leikmannahópi Watford sem tapaði
um helgina. Hann kom ekki inn á í
leiknum.
■ MEL Miiller setti bandarískt met
í stangarstökki kvenna innanhúss á
hinu árlega Milrose-móti í New
York-borg á iaugardaginn. Miiller
stökk 4,49 metra og bætti fyrra met
Stacy Dragila um 1 cm. Muller
gerði tilraun til að bæta heimsmetið
um 1 cm, átti þrjár tilraunir við 4,56
en tókst ekki.
■ JELENA Belyakova frá Rúss-
landi hafnaði í öðru sæti, stökk 4,22
metra. Daniel Bartova frá Tékk-
landi sem missti Evrópumetið inn-
anhúss í vikunni hafnaði í 6. sæti,
fór yfir 4,12 metra.
■ DAN O’Brien heimsmethafi í
tugþraut og sjöþraut býr sig nú af
kappi undir heimsmeistaramótið
innanhúss í næsta mánuði. Hann
lenti í 3. sæti í 60 metra grinda-
hlaupi á Milrose mótinu, hljóp vega-
lengdina á 7,76 sek. íslandsmet
Jóns Arnars Magnússonar í 50
metra grindahlaupi er 7,99 sek.
■ MARTINA Hingis tenniskona frá
Sviss endurheimti efsta sæti styrk-
leikalista tenniskvenna með því að
leggja Jönu Novotnu í tveimur sett-
um í undanúrslitum Kyrrahafsmóts-
ins í tennis í Tókýó um helgina.
■ HINGIS varð að sjá á bak sætinu
til Lindsay Davenport frá Banda-
ríkjunum þegar hin síðarnefnda
vann Opna bandaríska meistara-
mótið í vetur. Davenport féll hins
vegar úr leik í 8-manna úrslitum
Kyrrahafsmótsins og féll þar með í
2. sæti listans þar sem hún hafnaði
einnig á eftir Hingis á Opna ástr-
alska á dögunum.