Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 B 5 ÍÞRÓTTIR FRJÁLSIÞROTTIR Jón Amar nokkuð frá sínu besta Hafnaði í fjórða sæti á sjöþrauta- móti Erki Nool í JON Amar Magnússon hafnaði aðeins í fjórða sæti í sjöþraut á alþjóðlegu móti sem tugþrautar- kappinn Erki Nool stóð fyiir í Tall- inn í Eistlandi um helgina. Jón hlaut 5.986 stig sem er nokkuð frá íslands- og Norðurlandmeti hans, 6.170 stig. Kom það einkum til af því að Jón var fjarri sínu besta í langstökki, hástökki, 60 metra grindahlaupi og stangarstökki. „Þrátt fyrir allt þá er ég nokkuð þokkalega ánægður með þetta ef tekið er mið af árstíma," sagði Gísli Sigurðsson, þjálfai-i Jóns Amars. „En því er ekki að leyna að ég vil sjá umtalsvert betri árangur hjá Jóni í sjöþrautinni á HM eftir mán- uð, en þá verður hann búinn að létta sig niður eftir ei-fiðar æfingar.“ Erki Nool varð hlutskarpastur í sjöþrautinni, fékk 6.309 stig, Tékk- inn Roman Sebrle varð annar með 6.209 stig, Lev Lobodin frá Rúss- landi hafnaði í þriðja sæti, fékk 6.182 stig. Næst á eftir Jóni í 5. sæti varð Bandaríkjamaðurinn Chad Smith, 5779 stig, Úkraínu- maðurinn Aleksandr Jurkov varð sjötti með 5.764 og Eistlendingur- inn Indrek Kaseorg áttundi, önglaði saman 5.764 stigum. Alls byrjuðu 15 keppendur í sjöþraut- inni og luku 13 öllum greinunum sjö. Jón Arnar hljóp 60 metra hlaup á 6,95 sekúndum, stökk 7,30 metra í langstökki, varpaði kúlu 15,90 metra, stökk yfir 1,98 metra í hástökki, hljóp 60 metra grinda- hlaup á 8,21 sekúndu, stökk yfir 4,75 metra í stangarstökki og hljóp 1.000 metra á 2.46,17 mín. „Eg er auðvitað ekki ánægður Tallinn í Eistlandi með sætið en það er erfitt að keppa þegar maður er á fullu í æfingum," sajgði Jón Amar að mótinu loknu. „Eg er í mjög erfiðum æfingum um þessar mundh' og bjó mig ekkert sérstaklega undir þetta tiltekna mót. Að því loknu veit maður hins vegar betur hver staðan er,“ sagði Jón ennfremur. GísM sagði árangur Jóns e.t.v. nokkuð eðlilegan. Hann hefði létt sig fyrir IR-mótið á dög- unum og verið þá í léttara lagi. Eftir það hefðu hins vegar tekið við mjög þungar æfingar og hann hefði ekki fengið neitt að slaka á klónni áður en haldið var til Eistlands, enda öll áhersla lögð á að vera í sem bestri æfíngu þegar að heimsmeistara- mótinu kemur efth- mánuð. Stangirnar komu ekki Jón Arnar var einn fjögurra keppenda á mótinu í Tallinn sem ekki fékk stangir sínar fluttar frá Kaupmannahöfn til TalMnn. Ein- hverra hluta vegna urðu þær eftir í Kaupmannahöfn og skrifast sökin á flugfélagið SAS. Jón og félagar hans sem fyrir þessum óþægindum urðu þurftu að fá lánaðar stangir en það skapar verulegt óöryggi að stökkva ekki á eigin stöngum, að sögn Gísla Sigurðssonar þjálfara. Enda kom það fram á árangri fjór- menninganna, Jón stökk 4,75, var 35 sm frá sínu besta, Roman Sebrle fór aðeins yfir 4,65, Jir Ryba, Tékklandi, fór sömu hæð og Jón en verst út úr þessu fór Band- aríkjamaðurinn Trafton Rodgers, hann náði sér ekki á strik og felldi byi’junarhæð. ■ Úrslit/ B15 SIV Friðleifsdóttir og Víðir Bragason sigruðu í tvenndarleik í A-flokki á Íslands- mótinu í badminton um helgina. Þingstörfin og badmin- tonið fara vel saman SIV Friðleifsdóttir alþingis- maður og Víðir Bragason sigruðu í tvenndarleik í A- flokki á íslandsmótinu í badimnton sem fram fór í TBR-húsinu um helgina. Þau unnu Kristján Kristjánsson og Helenu Oskarsdóttur í úrslita- leik, 15/4 og 15/6. „Það var mjög gaman að verða fsiands- meistari, en leikirnir voru allir mjög jafnir. Við Víðir náðum mjög vel saman í mótinu. Eg átti alls ekki von á því að við myndum sigra,“ sagði Siv við Morgunblaðið. Siv segist liafa stundað bad- minton frá því hún var 7 ára gömul og komist m.a. í ung- lingalandsliðið á sfnum tíma. Faðir hennar, Friðleifur Stefánsson, hefur einnig stundað íþróttina í tugi ára, varð Islandsmeistari í tvíliða- leik með Oskari Guðmundssyni 1969. Siv er nú í stjórn Bad- mintonsambands Islands. „Badminton er rosalega skemmtileg íþrótt sem allir geta stundað. Jafnt unglingar sem fullorðnir. Eg veit til þess að menn á níræðisaldri eru að æfa badminton, það er frábært. Ég legg mikla áherslu á að komast á æfingar minnst einu sinni í viku. Ég æfi með hópi sem nefnir sig Lurkarnir. Við erum tólf sam- an og það er mjög skemmti- legur hópur sem kemur úr hinum ýmsu störfum þjóðfélagsins. Það eru því oft líflegar umræður eftir æfíng- ar. En við erum ekki aðeins saman á æfingum. Við förum saman út að borða og gerum margt annað saman utan æf- inganna,“ sagði hún. . En fer það vel saman að vera þingmaður og að æfa badminton? „Já, allir verða að hreyfa sig og þetta er liður í því hjá mér. Hreyfingin er aðalatriðið og það er ekkert atriði að taka þátt í keppni. Ég reyni að gera allt til að hliðra til svo ég komist á æfingar, fresta fundum ef ég hef tök á því eða þá flýti þeim ef ég er að verða of sein á æfingar. Það er ekki hægt að koma of seint á æfingar því þá lætur maður aðra bíða eftir sér. Badminton er frábær íþrótt og það ættu sem flestir að kynna sér hana,“ sagði Siv. HANDKNATTLEIKUR / ÞÝSKALAND Essen hefur sótft í sig veðrið EFTIR slæma byrjun í þýsku 1. deildinni í handknattleik hefur lið Essen heldur betur sótt í sig veðrið upp á síðkastið og unn- ið níu af síðustu 11 leikjum og þar með náð 6. sæti deildarinn- ar, hefur 20 stig úr 19 leikjum. Um helgina vann Essen lið Eisenach á heimavelli með 9 marka mun, 28:19. Þar með hefur Eisenach tapað öllum níu leikjum sínum á útivelli á leiktíðinni og er í 11. sæti af 16 liðum með 16 stig. Páll Þórólfsson skoraði eitt mark úr vítakasti fyrir Essen í leiknum en þetta var stærsti sigur liðsins á leiktíðinni. Julian Róbert Duranona náði sér ekki á strik og skoraði aðeins 2 mörk úr vítaköst- um fyrir lið Eisenach. Bad Schwartau, lið Sigurðar Bjarnasonar, vann mjög mikilvæg- an sigur á Gummersbach á heima- veMi, 33:24. Sigurður skoraði eitt mark fyrir Schwartau-liðið. Sig- urður og félagar eru eftir sem áð- ur í 14. sæti með 14 stig, að lokn- um 20 leikjum. Fyrir neðan eru Dutenhofen og Schutterwald. Þessi lið áttust við um helgina og vann Dutenhofen öruggan sigur, 27:20. Dutenhofen er með 11 stig eftir 19 leiki en Schutterwald rek- ur lestina, hefur 8 stig úr 18 leikj- um. Fleiri leikir fóru ekki fram í 1. deildinni sökum leikja í 8-liða úr- slitum Evrópukeppninnar í hand- knattleik sem leikin var um helg- ina þar sem 6 þýsk lið voru í eldlín- unni. Annað tap Dormagen Bayer Dormagen tapaði öðram leik sínum í röð er það sótti TSV Östringen heim, lokatölur 31:29. Héðinn Gilsson var næstmarka- hæstur Mðsmanna Dormagen skoraði 6 mörk, Róbert Sighvats- son gerði 3 og Daði Hafþórsson var með eitt mark. Dormagen er sem fyrr í 2. sæti suðurhluta 2. deildar, hefur 40 stig að loknum 24 leikjum. Willstátt með Gústaf Bjarnason innan sinna vébanda er í efsta sæti með 42 stig. Willstátt tapaði einnig um helgina. Það mætti Rúnari Sig- tryggssyni og félögum í Göppingen sem unnu tveggja marka sigur, 27:25. Gústaf skoraði eitt mark fyr- ir Willstatt, en Rúnar Sigtryggs- son var næstmarkahæstur leik- manna Göppingen með sex mörk. Göppingen er í 6. sæti deildarinnar með 30 stig. Hameln, liðið sem Alfreð Gísla- son þjálfar, er enn taplaust í norð- urhluta 2. deildar, hefur 45 stig að loknum 23 leikjum. Um helgina vann Hameln Rostock 18:17 á úti- velli. Nordhorn er í efsta sæti deild- arinnar, með 46 stig en hefur leikið einum leik fleira en Hameln. flllar pizzur 6 aðeins Skiptir þá engu hversu stór pizzan er, hvort áleggstegundirnar eru I eða 10, hvort þú saekir uppáhalds pizzuna þína eða snaeðir hana einfaldlega í góðu yfirlæti hjá okkur. 554 ...fín sendingl Kynntu þér hin frábæru heimsendingartilboð okkar! 6600 Beinn sími á Austurströnd: 561 0070 Hlíðarsmára 8 - Kópavogi Austurströnd 8 ~ Setjamarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.