Morgunblaðið - 09.02.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR1999 B 3
ÍÞRÓTTIR
NA HUÐ?
HIVEA
hoilv
NIVI A I'IRMING
I.OTION 1 R N'i' 1 1 RAKAKRl M
S1 M I R l’ROAO 111 AD AUKA
S 11 NN1 i IKA IIUOARINNAR
Morgunblaðið/Júlíus
ÞÓREY Edda Elísdóttir stökk yfir 4,20 m.
FlRMING
BODY LOTION
WlTH L1POSOMF.S
Increases
skin eiaslicity
m fASlAXM 1
'fnmvmwi
í ■
-
Þjálfari
Perugia
hættur
ILARIO Castagrier, þjálfari
Perugia, sem leikur í fyrstu
deild ítölsku knattspyrn-
unnar, sagði starfí sínu
lausu á mánudag. Kvaðst
hann uppgefinn á afskipta-
semi Luciano Gaucci, for-
seta félagsins.
í uppsagnarbréfí Casta-
gner, sem sent var til
ANSA-fréttastofunnar,
sakaði hann forsetann um
að skapa óþarfa spennu
innan herbúða félagsins,
sem hefði haft neikvæðar
afleiðingar í för með sér.
Castagner sagði að
ákvörðun sín um að hætta
starfi hjá Perugia væri
endanleg.
Undir stjórn þjálfarans
komst Perugia í 1. deild
ítölsku knattspyrnunnar á
síðasta tímabili. Liðið hóf
keppnistímabilið í vetur
vel, en heldur hefur hallað
undan fæti síðustu vikur og
hefur liðið tapað fyrir Udi-
nese, AC Milan og Juvent-
us. Perngia tapaði 0-3 fyrir
Lazio siðastliðinn sunnu-
dag. Liðið er nú í 13. sæti
ítölsku fyrstu deildarinnar,
nokkrum sætum fyrir ofan
liðin í fallsætum.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Þórey Edda
bætir sig
verulega í
Gautaborg
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH, stökk 4,20
metra á frjálsíþróttamóti í Gautaborg á laugardaginn og fór
með sigur af hólmi. Um leið bætti Þórey sinn fyrri árangur í
greininni um 6 cm, en alls hefur hún þar með bætt 20 cm við
sinn besta árangur innanhúss það sem af er keppnistímbil-
inu. Um leið náði Þórey lágmarki fyrir heimsmeistaramótið
innanhúss sem haldið verður í Japan fyrstu helgi marsmánað-
ar. Vala Flosadóttir, ÍR, hafði náð lágmarkinu 4,20 metrar í
fyrra. Vala tók einnig þátt í mótinu í Gautaborg, en náði sér
ekki á strik að þessu sinni, fór aðeins yfir byrjunarhæð, 3,84
metra.
Þá keppti Bima Bjömsdóttir,
hlaupari úr FH, einnig á mót-
inu og gerði tilraun til þess að bæta
22 ára gamalt íslandsmet Lilju
Guðundsdóttur, ÍR, í 800 metra
hlaupi innanhúss, 2.09,7 mín. Þrátt
fyrir að Bimu tækist vel upp í
hlaupinu tókst henni ekki að bæta
metið, hljóp á 2.10,11 mín. Bima
ætlar að gera aðra tilraun við met-
ið á sænska meistaramótinu um
næstu helgi.
Vala, Þórey og Jóhannes Már
Marteinsson keppa annað kvöld á
móti í Malmö, stúlkurnar í stangar-
stökki en pilturinn í 60 metra
hlaupi.
Ólafur fimmti í Svíþjóð
Ólafur Guðmundsson, fjölþraut-
arkappi frá Selfossi, varð í 6. sæti í
sjöþraut á Opna sænska meistara-
mótinu í fjölþrautum sem fram fór
í Karlstad um helgina. Ólafur hlaut
5.486 stig og var 41 stig frá sínu
besta. Bjami Traustason, FH, var
einnig á meðal keppenda í sjö-
þrautinni og varð í 9. sæti með
5.036 stig. Alls luku 12 af 15 kepp-
endur þrautinni. Þetta er í fyrsta
skipti sem Bjami lýkur keppni í
sjöþraut.
„Ég hefði gjaman viljað sjá Ólaf
ná betri árangri þar sem ég veit að
hann er í góðri æfingu,“ sagði Gísli
Sigurðsson, þjálfari Ólafs Guð-
mundssonar. „Þetta var svona
nokkuð slétt og fellt,“ bætti Gísli
við.
Sigui’vegari sjöþrautarinnar
var Norðmaðurinn Tom Erik 01-
sen, hlaut 5.897 stig og Svíinn
Henrik Dagárd varð annar með
5.859 stig. Heimamaðurinn Mich-
ael Hoffer varð þriðji með 5.811
stig. „Dagárd er allur að koma til
eftir nokkurra ára erfitt tímabil
vegna meiðsla, það má því fast-
lega reikna með honum í keppni
þeirra bestu í sjöþrautinni á HM
og í tugþrautarmótum sumars-
ins,“ sagði Gísli ennfremur.
Dagárd er fyrrverandi Norður-
landamethafi í sjöþraut, hann á
best 6.143 stig frá árinu 1994. Jón
Arnar bætti síðan Norðurlanda-
met hans á HM í París 1997,
(6.145) og ennfrekar á Evrópu-
meistaramótinu í Valencia í fyrra,
6.170 stig.
Ólafur hljóp 60 metra hlaup á
7,16 sekúndu, stökk 7,04 metra í
langstökki, vai-paði kúlu 14,12
metra, stökk 1,97 metra í hástökki,
hljóp 60 metra grindahlaup á 8,35,
stökk 4,18 metra í stangarstökki og
hljóp loks 1.000 metrana á 2.47,89
mínútum. Arangur Bjarna í sömu
greinum var 7,19 - 6,65 -10,70, 2,00
- 8,42 - 3,98 - 2.59,84.
■ Urslit / B14
KORFUKNATTLEIKUR
Bjarni og Brynjar
hætta hjá ÍA
Ijami Magnússon og Brynjar
fSigurðsson, sem leikið hafa
með LA í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í vetur, leika ekki
meira með hðinu á yfirstandandi
keppnistímabili í kjölfar þess að fé-
lagið sagði upp samningum við þá í
liðinni viku. „Körfuknattleiksdeild
IA á í verulegum frjárhagserfið-
leikum svo ekki sé fastar að orði
kveðið og því var okkur nauðugur
sá kostur að segja upp samningum
við tvo af þeim þremur leikmönn-
um sem hafa fengið greitt fyrir að
leika með okkur,“ sagði Sigurður
Sverrisson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar IA, í gær. „Við gerðum
samninga við þá í haust og vonuð-
umst til að geta staðið við þá en
þegar það varð ljóst að svo yrði
ekki sögðum við þeim upp. Það er
að okkar mati heiðarlegri leið en að
vera með samninga sem við getum
ekki staðið við. Leikmönnunum vai-
hins vegar frjálst að leika með okk-
ur áfram en þeir völdu þann kost
að hætta strax. Ég skil Brynjar vel
því hann stundar nám í Iþrótta-
kennaraskólanum á Laugarvattni.
Hann taldi sig ekki geta farið á
milli Akraness og Laugarvatn
þrisvar í viku án ferðastyrksins frá
okkur,“ saðgi Sigurður ennfremur.
Sigurður sagði fjárhagsvanda
deildarinnar vera að stórum hluta
vegna skulda fyrri ára. Núverandi
stjóm hefði tekist að grynnka
verulega á skuldunum en ætti enn
langt í land að ná hreinu borði. „Þá
er því ekki að leyna að vændræði
okkar með erlenda leikmenn hafa
einnig tekið sinn toll,“ sagði Sig-
urður en nú er fimmti erlendi leik-
maður í herbúðum liðsins frá því
keppni í úrvalsdeildinni hófst í
haust.