Morgunblaðið - 09.02.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 B 7
KÖRFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
FRIÐRIK Ragnarsson, fyrirliði Njarðvíkinga, hampar hér bikarnum og samherjar hans fagna - næstir eru þeir Teitur Örlygsson og Friðrik Stefánsson.
Fórum of erfiða leið til þess að tap væri réttlætanlegt
„VIÐ byrjuðum þennan leik af miklum krafti og vorum yfir lengi
framan af, en síðan komust Keflvíkingar framúr og svo virtist
sem sigurinn ætlaði að lenda þeirra megin. Við vorum hins vegar
aldrei langt undan,“ sagði sigurreifur þjálfari Njarðvíkinga,
Friðrik Ingi Rúnarsson, þegar hann hafði tekið við sigurlaunum
sínum.
Morgunblaðið/Golli
FRIÐRIK Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, stjórnar sínum
mönnum á örlagastundu.
Ekki fyrr en í
fulla hnefana
Margir héldu að sigurinn væri
að hafna Keflavíkurmegin, en
sem hendi væri veifað snerist leik-
urinn okkur í hag. Við fengum
snögg upphlaup sem enduðu með
stigum, tíminn var stöðvaður og við
náðum einni sókn í viðbót þegar
fímmtán sekúndur voru eftir og
vorum þremur stigum undir. Auð-
vitað voru þetta „dramatískar"
lokamínútur. Þegar út í framleng-
inguna var komið byrjuðum við á að
gera þriggja stiga körfu og það
hafði mikið að segja, því það vill oft
verða svo í framlengingu að það lið
sem skorar fyrst fær byr í seglin
sem nægir til sigurs. Þessi sigur
sannar það bara enn einu sinni
hvernig þessi íþrótt er, það er ekk-
ert víst fyrr en flautað hefur verið
af.“
Friðrik sagði að lið sitt hefði ver-
ið í ákveðinni lægð upp á síðkastið,
en það hafi hins vegar hrist af sér
slenið að þessu sinni og sýnt að það
býr ýmislegt í því. Vörnin var flrna-
sterk og sóknarleikurinn lengst af í
lagi. „Eg er mjög ánægður með
hvernig leikmenn komu til leiks og
héldu einbeitingu allan tímann þó á
ýmsu hafi gengið og spennustigið
verið nokkuð hátt. Menn voru stað-
ráðnir í að láta ekki Keflavík vinna
alla titla sem í boði eru.“
Hvað sagðir þú við þína menn áð-
ur en framlengingin hófst?
„Einfaldlega það að við værum
komnir of nálægt sigri til þess að
hægt væri að kasta honum frá sér.
Við áttum meira skilið eftir það sem
á undan var gengið. Með það að
leiðarljósi komum við til leiks í
framlenginguna."
Eftir að hafa haldið þríggja stiga
skyttum Keflvíkinga niðrí í fyirí
hálfleik þá var eins og flóðgáttir
opnuðust er leið á síðari hálfleik.
Hvað brást hjá ykkur í vörninni á
þeim kafla?
„Það brást ekkert öðru fremur
hjá okkur. Keflavíkurliðið er bara
þannig skipað að innan þess eru
leikmenn sem eru óhræddir að
skjóta þótt ekkert sé í gangi, þeir
skjóta upp úr þurru. Með það hug-
arfar komu Damon [Johnson] og
Falur [Harðarson] í síðari hálfleik-
inn; að láta bara vaða á súðum og
það gekk upp hjá þeim um tíma.
Þeir hittu og hittu þrátt fyrir að
mínir menn væru með hendur á
þeim, þeir eru hins vegar þeim eig-
inleika gæddir að þeir geta gert
ýmsa hluti fyrirhafnarlítið. Við lét-
um þetta ekki slá okkur út af laginu
heldur héldum okkar striki og sætt-
um lagi þegar tími vannst til og það
skilaði að lokum hreint frábæram
sigri.“
Friðrik sagði þennan sigur vera
toppinn á kransakökunni eftir afar
erfiða leiki í bikarkeppninni í vetur.
I 16-liða úrslitum vann Njarðvík
liðsmenn Grindavíkur í baráttuleik
eftir að hafa lent 18 stigum undir
þegar síðari hálfleikur var hálfnað-
ur. I næstu umferð vann liðið fjög-
urra stiga sigur í hnífjöfnum leik í
Borgarnesi og loks vann liðið
Hauka eftir framlengdan leik í fjög-
urra liða úrslitum. „Bikarkeppnin
hefur verið mikil þrautarganga hjá
okkur og það var eitt þeirra atriða
sem ég lagði upp með við mína
menn fyrir leikinn. Leiðin í úrslitin
hefur verið of erfið til þess að það
megi gerast að við töpum síðasta og
stærsta áfanganum og það hreif.
Þetta er alveg rosalega sætm- sig-
ur.“
Allt vitlaust í framlengingunni
„Við höfðum trú á að þetta gengi
upp hjá okkur - annars hefðum við
tapað í lokin - og þetta gekk upp þó
að það hafi verið nokkuð tæpt og
ekki laust við að við áhyggjur íétu á
sér kræla,“ sagði Teitur Orlygsson,
leikmaður Njarðvíkinga, eftir leik-
inn og taldi að björninn hefði unnist
með því að ná framlengingu. „Eftir
hlé sýndum við augnabliks einbeit-
ingarleysi og þeir eru með of gott
lið og frábæra skotmenn til að
sleppa slíku ^ tækifæri til að snúa
leiknum við. í framlengingunni voni
þeir búnir að missa Fal, sem auð-
veldaði mikið fyrir okkur því hann
var búinn að spila mjög vel og má
segja að þá höáim við bara átt eftir
að eiga við Damon því Keflvíking-
arnir treysta mikið á þessa tvo til að
sjá um sóknina og gera út um svona
jafna og erflða leiki. Þegar Falur
var farinn og Damon eftir náðum
við að passa upp á skotmennina
þeirra og komast inn í leikinn á ný
með gríðarlegiú baráttu. Eins og
sást var allt vitlaust á bekknum hjá
okkur í framlengingunni og ekld
möguleiki á að við myndum tapa
leiknum því við sáum að upplitið á
þeim var ekki djarft eftir að hafa
verið svo nálægt því að vinna en
fengið síðan kalda vatnsgusu í and-
litið,“ bætti Teitur við og naut
augnabliksins. „Ég veit ekkert um
framhaldið og deildina - mér er al-
veg sama og ætla bara að vera til-
búinn þegar kemur að úrslitakeppn-
inni.“
Léleg skot - en fóru ofan í
„Það var ótrúlegt þegar við jöfn-
uðum, alveg ótrúlegt því þó að skot-
in væru léleg fóru þau öll ofan í
körfuna," sagði Kristbjörn Alberts-
son, Njarðvíkingur og fyrrum stór-
dómari þegar hann sveif um gólfíð
með breitt bros á vör og bætti við
um leið og hann sveif í burtu:
„Lukkan lék líka við okkur í dag.“
SÍÐUSTU leikir okkar í bikamum
hafa allir verið baráttuleikir - við
töpuðum fjrir Grindavík, Skalla-
grími og Haukum í deildinni en
unnum svo einmitt þessi lið í bikar-
keppninni svo við voram ákveðnir í
að láta ekki staðar numið og gefast
ekki upp fyiT en í fulla hnefana,"
sagði Njarðvíkingm'inn Benton
Birmingham eftir leikinn. „Það var
líka gaman að sigra því það voru
ekki margir sem höfðu trú á að okk-
ur tækist það en það gerðum við
með samstilltri heild. Damon John-
son hjá Keflavík er frábær leikmað-
ur sem þarf oft að taka af skarið
þegar í harðbakkann slær og það
gerði hann en við stóðum þann
storm af okkur, leyfðum þeim aldrei
að stinga okkur af og það skilaði sér
að gefast aldrei upp. Við höfðum því
nóg af sjálfstrausti í framlenging-
una því þeir áttu alls ekki, frekar en
aðrir í Höllinni, von á að til hennar
kæmi, en svona er þetta stundum."
Benton býr í Keflavík og hefur
fundið spennuna vaxa fyrir leikinn.
„Fólk hefur verið að stríða mér fyi'-
ir leikinn en nú get ég farið og borið
höfuðið hátt. Ef við hefðum tapað
hefði beðið eftir mér fáni Keflvík-
inga framan á hótelinu þar sem ég
bý en nú get ég pakkað honum nið-
ur í bili,“ sagði Birmingham að end-
ingu.
Átti að vera búið
„Þetta átti að vera búið og litlu
mátti muna að við værum sjálfir
búnir að afskrifa okkur eins og aðr-
ir en einhverra hluta vegna er eins
og við höfum átt að vinna þennan
leik,“ sagði Friðrik Rúnarsson fyr-
irliði Njarðvíkinga eftir leikinn.
„Sviptingarnar voru með ólíkindum
og lengi vel þurftu Keflvíkingarnir
bara að henda boltanum til að hitta
körfuna og það var alveg sama hver
kastaði svo að það var ekki við vörn-
ina hjá okkur að sakast - við gátum
bara ekki meira en þetta. I fram-
lengingunni hjálpaði að Falur
(Harðarson) hjá þeim var kominn
með fimm villur auk þess, sem
stemmningin í húsinu var okkar því
það vorum við sem enduðum á að
jafna. Það hlýtur líka að hafa farið
illa í þá að vera með unninn leik en
við sýndum líka að Njarðvíkingar
eru líka með stærsta hjartað."