Morgunblaðið - 09.02.1999, Qupperneq 9
+
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 B 9
BADMINTON
Morgunblaðið/Golli
Sýndi mikinn styrk
Víkingi sýndi geysilega mikinn styrk þegar hann mætti Tryggva Nielsen í
'omas að verjast og lauma boltoanum yfir netið - og inn á gólfið hjá Tryggva.
Elsa hefur setl
stefnuna á
ÓL í Sydney
að er alltaf jafn gaman að fagna sigri
í úrslitaleik - það breytist ekkert,“
sagði Elsa Nielsen, eftir að hún hafði lagt
Brynju Pétursdóttur að velli í einliðaleik
kvenna. Elsa fagnaði sínum sjöunda
meistaratitli, varð fyrst meistari 1991 með
því að leggja Þórdísi Edwald að velli, varð
meistari fímm ár í röð, vann sjötta meist-
aratitilinn 1998, einnig eftir úrslitaleik við
Bi-ynju.
Elsa sagði að Brynja hafi komið sterk
til leiks í fyrsta leiknum og náð að vinna
13:12. „Brynja náði sér ekki á strik í öðr-
um leiknum, sem ég vann létt 11:1. Ég
byrjaði betur í oddaleiknum, komst yfir
4:0. Brynja náði að jafna 7:7, en ég var
sterkari á endasprettinum og fagnaði
sigri 11:9,“ sagði Elsa.
Elsa, sem er nýbúin að eignast son, hef-
ur ekki æft nema tvisvar til þrisvar í viku
í vetur. Var það reynslan sem færði henni
sigurinn nú? „Það má segja það. Ég er
búin að vera lengur en Brynja í slagnum
og þekki vel hvernig er að leika úrslita-
leiki.“
Brynja fékk síðan að kynnast því
hvernig er að fagna sigri, þar sem hún og
Elsa urðu meistarar í tvíliðaleik; unnu
Katrínu Atladóttur og Söru Jónsdóttur í
úrslitaleik, 15:7 og 15:3.
Þetta var sjötta árið í röð sem Elsa
verður meistari í tvíliðaleik. Hún var
meistari með Þórdísi Edwald 1994 og
síðan með Vigdísi Ásgeirsdóttur
1995-1998.
Elsa sagðist ekki vera á þeim buxunum
að hætta að leika badminton - hún hefur
sett stefnuna á Ólympíuleikana í Sydney á
næsta ári, en hún hefur tvisvar tekið þátt
í ÓL, í Barcelona 1992 og Atlanta 1996.
„Ef sá draumm- á að rætast kostar það
nokkrar utanlandsferðir til að safna
punktum í alþjóðlegum mótum. Einnig
auknar æfingar. Við Bi-ynja verðum sam-
an i þeirri baráttu," sagði Elsa.
_Elsa segir að uppsveifla sé í badminton
á Islandi. „Við sáum ungu strákana, Tom-
as Viborg og Tryggva, leika til úrslita.
Sveinn Sölvason og Þorsteinn Hængsson
eru einnig góðir. Ungar stúlkur eru
einnig á uppleið, eins og Sara Jónsdóttir
og Katrín Atladóttir. Það er orðið miklu
skemmtilegi-a að keppa nú, því að allir
geta unnið alla - það er aðeins spuming
um dagsform hver fer með sigur af hólmi.
Arangur okkar I Evrópukeppninni sýnir
það svart á hvítu að framtíðin er björt,“
sagði Elsa Nielsen.
Broddi Kristjánsson um úrslitaleik karla í einliðaleik
Tomas Viborg
sýndi mikið
keppnisskap
„ÞAÐ var greinilegt að Tomas Viborg var of spenntur í byrjun
leiksins. Hann sló knöttinn oft út fyrir völlinn og Tryggvi náði
öruggri forystu, níu núll. Tryggvi naut þess að hann hefur leikið
úrslitaleiki áður og þekkti umhverfið betur, en síðan missti
hann dampinn og fór að klúðra mörgum einföldum boltum.
Hann hefur fallið ofan í þessa gryfju áður og Tomas nýtti sér
það og fagnaði sigri,“ sagði Broddi Kristjánsson, sem varð að
sjá á eftir íslandsmeistaratitlinum í einliðaleik til Tomas Viborg
Garðarssonar, en Broddi tapaði fyrir honum í undanúrslitum
17:15 og 15:10.
Eftir að Tomas Viborg komst
undir í úrslitaleiknum gegn
Tryggva, 9:0 og 12:4, fór hann að
bita frá sér og náði með miklu
harðfylgi að jafna 12:12. Tryggvi
komst yfir á ný, 14:12, en þá sagði
Tomas Viborg hingað og ekki
lengra, fagnaði sigri í fyrsta leikn-
um, 17:14 og í öðrum leiknum, 15:9.
Hann sýndi mikið keppnisskap og
átti Tryggvi erfitt með að ráða við
föst högg hans.
„Tomas Viborg er mjög sterkur
og höggfastur. Hann kunni að
meta það að Tryggvi var að krossa
of mikið, þannig að hann seldi oft
annan helminginn á velhnum. Oft
krossaði hann beint upp í forhönd-
ina á Tomasi, þannig að hann þakk-
aði fyrir sig og setti boltann beint
niður á gólfið, eða droppaði boltan-
um glæsilega rétt yfir netið.
Tryggvi hefði átt að láta knöttinn
ganga miklu meira beint, láta bolt-
ann vinna með sér,“ sagði Broddi.
Tomas Viborg vann þama sinn
fyrsta íslandsmeistaratitil. Er
hann arftaki Brodda? „Já, hann er
einn af þeim. Það hefði ekki þurft
að gerast mikið til að þessi úrslit
hafi snúist við og Tryggvi fagnað
sigri. Tomas kemur mjög sterkur
til leiks og Tryggvi sýndi það að
hann er að ná sér á strik. Það er
ekkert víst að úrslitin hefðu farið
svona ef mótið hefði farið fram um
næstu helgi. Það geta allir unnið
alla, við eigum marga jafna leik-
menn sem gerir keppnina spenn-
andi hjá okkur,“ sagði Broddi.
Hvað segir hann um tapið fyiir
Tomasi Viborg?
„Ég var nokkuð stífur þegar ég
mætti Tomasi í undanúrslitunum í
morgun. Ég tók áhættu með að
taka þátt í þremur greinum, einnig
í tvíliðaleik og tvenndarleik á með-
an Tomas tók aðeins þátt í einliða-
leiknum. Það sat í mér í morgun,
ég var stífur eftir gærdaginn -
þegar ég tryggði mér rétt til að
leika til úrshta í tviliða- og tvennd-
arleik. Það voni margir leikir sem
ég lék í gær. Ég tók þessa áhættu
og verð að sætta mig við það að
hafa ekki leikið til úrslita í einliða-
leiknum.“ Hefði það ekki veríð
réttara hjá þér að einbeita þér að
einliðaleiknum?
„Eflaust hefði það kannski verið
skynsamlegra. Svo hefði maður
kannski tapað hvort sem er. Þá
hefði maður orðið sár að hafa ekki
verið með í tvíliða- og tvenndar-
keppninni.“
Guðmund-
! ur hljóp
í skarðið
i ÁRNI Þór Hallgrímsson,
| sem hafði orðið fslands-
meistari í tvíliðaleik með
Brodda Kristjánssyni átta
ár í röð, meiddist á læri á
æfíngu fyrir meistaramót-
ið, þegar vöðvi tognaði.
Það varð til þess að Broddi
kallaði á frænda sinn Guð-
mund Adolfsson til að leika
með sér. Þeir fögnuðu
sigri, eins og þeir gerðu
fyrir sautján árum - 1982.
Á sunnudaginn unnu þeir
frændur ungu strákana
Svein Sölvason og Tryggva
Nielsen í úrslitum 15:8 og
15:4.
Broddi hefur sautján
sinnum fagnað sigri í tví-
liðaleik. Tvisvar með Jó-
hanni Kjartanssyni (1980
og 1981), tvisvar með Guð-
mundi (1982 og 1999),
fimm sinnum með Þor-
steini Páli Hængssyni
(1984-1987 og 1990).
Broddi hefur fagnað sigri
tíu ár í röð.
j Broddi
; meðfjórum
j stúlkum
BRODDI Kristjánsson
fagnaði á ný meistaratitli í
tvenndarleik, er hann og
Dísa Harðardóttir unnu
Þorstein Hængsson og Vig-
dísi Ásgeirsdóttur í úrslita-
leik 2:1 - 15:13, 5:13,13:11.
Broddi, sem hefur níu sinn-
um orðið meistari í tvennd-
arleik, varð síðast meistari
| með Elsu Nielsen 1996 og
1994. Þar áður varð hann
meistari með Ásu Pálsdótt-
ur 1992 og fímm ár í röð
með Kristínu Magnúsdótt-
ur, 1982-1986.
Morgunblaðið/Golli
ELSA Nielsen gaf ekkert eftir í úrslitaleiknum í einliðaleik.