Morgunblaðið - 09.02.1999, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
PRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 B 11
Morgunblaðið/Golli
GUNNAR Berg Viktorsson fékk eins og aðrir Framarar óblíðar móttökur hjá varnarmönnum Hauka
á sunnudaginn. Hér er hann að sleppa í gegn en Sturla Egilsson er til varnar.
Æðibunugangur
á Akureyri
Stefán Þór
Sæmundsson
skrífar
Leikur KA og Gróttu/KR á
Akureyri sl. sunnudagskvöld
var stórfurðulegt afbrigði af
íþrótt þeirri er nefn-
ist handbolti í dag-
legu tali. Oft líktist
þetta skipulagslaus-
um eltingarleik með
brennheitan bolta þar sem engar
ákveðnar reglur giltu og þeir
stóðu sig best sem gátu hlaupið
lengst með boltann án þess að
missa hann. KA-menn höfðu bet-
ur í þessum leik og unnu sannfær-
andi, 32:26. Þeir virðast hafa náð
sér á strik á ný og stefna nú á
gott sæti í úrslitakeppninni. Róð-
urinn þyngist hins vegar hjá
Gróttu/KR.
Flumbrugangurinn sem var á
fyrstu mínútum leiksins, bæði hjá
leikmönnum og dómurum, reyndist
vera annað og meira en upphafs-
hrollur. Sjaldan hafa sést jafn-
margar misheppnaðar sendingar í
einum leik og allt úði og grúði af
mistökum. Grótta/KR mætti til
leiks í búningum Þórs, erkifjenda
KA, en varla skýrir það gang leiks-
ins. KA-menn voru 1-3 mörkum yf-
ir í fyrri hálfleik gegn framliggj-
andi vöm gestanna og staðan í
leikhléi var 15:13. Mikið var skorað
þrátt fyrir öll mistökin, enda mark-
varsla lítil.
Seinni hálfleikur var enn skraut-
legri, stöðug hlaup og læti. Gest-
irnir gengu enn framar í vörninni,
tóku Lars Walther úr umferð á
tímabili en síðustu mínúturnar var
vöm þeirra öll komin fram undir
miðju. Það var hins vegar sama
hvað liðið reyndi, KA-menn voru 3-
6 mörkum yfir allan hálfleikinn og
virtust mun sterkari. Á síðustu 10
mínútunum var leikurinn hrein
hörmung, leikleysa og vitleysa sem
afleitir dómarar stýrðu út og suð-
Stutt á milli hlát-
urs og i grál ts
STUTT er á tnilli hláturs og gráts eins og Framarar fengu að
reyna í Hafnarfirði á sunnudaginn er þeir, einum fleiri þegar
mínúta var til leiksloka, reyndu ótímabært skot - nóg til að
Haukar geystust upp í hraðaupphlaup og Ketil Ellertsen skoraði
sigurmark Hauka, 27:26, þegar sekúnda var eftir. Fyrir vikið
vippuðu Haukar sér í fimmta sæti deildarinnar og þó að Fram
sitji eftir sem áður í þriðja sætinu, minnkaði ískyggilega bilið á
næstu lið, nú þegar úrslitakeppnin fer að bresta á.
Þorsteinsson
skrífar
Vörn Fram var ekki árennileg
með Oleg Titov, Andrei Astafejv
og Gunnar Berg Viktorsson í broddi
■ fylkingar. Haukar
Stefán komust lítt áleiðis og
Stefánsson sóknarleikurinn var
skrifar mistækur svo að þeir
einsettu sér að bæta það upp með
öflugum varnarleik en það ekki bet-
ur en svo að Fram hafði 8:3 forystu
eftir miðjan fyrri hálfleik - þrátt fyr-
ir að Jónas Stefánsson í marki
Hauka verði allt hvað af tók. Þá
snerist taflið líka við þvi áður en
flautað var til leikhlés höfðu Hafn-
firðingar náð yfirhöndinni, 11:10.
Síðari hálfleikm- var mikill barning-
ur þar sem liðin skiptust á að hafa
forystuna og mikil taugaspenna
einnkenndi leikinn en eftir dairaðar-
dans á síðustu mínútunum fögnuðu
Haukar sigri.
„Við vissum að vörnin yrði að
standast álagið og lögðum mesta
áherslu á að loka fyrir sendingar
inná línuna til Titov og koma í veg
fyrir hraðaupphlaup þein-a,“ sagði
Þorkell Magnússon, sem hélt Hauk-
um á floti framan af. „Það gekk samt
ekki í byrjun og getur verið að ófar-
irnar í Mosfellsbænum þegar við
misstum annað stigið hafi skapað
spennu en við vorum staðráðnir í að
bæta fyrir það - gerðum vel einum
færri þegai- ein mínúta og Fram í
sókn er við snerum taflinu við enda
hefði ekki gengið að fara í frí með
tap á bakinu. Nú er hver leikur úr-
slitaleikur og allt getur gerst.“ Jónas
mai-kvörður og Einar Gunnarsson
voru líka góðii- auk þess sem kemp-
urnar Óskar Ármannsson og Halldór
Ingólfsson tóku af skarið í lokin þeg-
ar spennan var sem mest.
„Við klúðruðum þessu sjálfir,"
sagði Björgvin Björgvinsson, sem
átti góðan leik fyrir Fram ásamt
Sebastian Alexandersyni og Oleg
Titov. „Eftir góða byrjun fórum við
að slaka á og spila óskynsamlegan
sóknai-leik og það var vitleysa hjá
okkur í lokin að halda ekki boltanum
og fá að minnsta kosti annað stigið.
Við verðum nú að spá alvarlega í
hvar við ætlum okkur að vera þegar
kemur að úrslitakeppninni því eins
og staðan er getur brugðið til beggja
vona hvort við náum heimaleikjum."
^ IR-sigur í Austurbergi
IR-ingar komu sér vel fyrir í átt-
unda sæti 1. deildar er liðið lagði
FH-inga 21:18 í Austurbergi í sveiflu-
■■■■■■ kenndum leik. FH-
G,s/' ingar sitja hins vegar í
níunda sæti deildar-
innar og eiga erfitt
verkefni fyrir höndum _ef hðið ætlar
sér í úrslitakeppnina. IR-ingar hófu
leikinn betur og áttu FH-ingar lítið
svar við markvörslu Hrafns Mar-
geirssonar. Heimamenn héldu for-
ystu fram undir miðjan seinni hálf-
leik. Þá tóku FH-ingar við sér, tókst
að komast yfir og höfðu tveggja
marka forystu í hálfleik.
FH-ingai- hófu seinni hálfleikinn
betur og komust í þriggja marka for-
ystu, en með góðri markvörslu og
mikilli baráttu í vöm náðu ÍR-ingar
að komast aftur inn í leikinn og skora
fimm mörk í röð. Þegar um 10 mínút-
ur voru eftir af síðari hálfleik voru
IR-ingar komnir með tveggja marka
forystu. Áttu FH-ingar ekkert svar
við leik ÍR-inga og þegar yfir lauk var
munurinn á liðunum þrjú mörk.
Kristján Arason, þjálfai-i FH, sagði
að tapið fyrir IR hefði verið mikið rot-
högg. „Sóknarleikur liðsins brást í
seinni hálfleik hvað eftir annað, leik-
menn misnotuðu upplögð tækifæri
eða höfðu ekki þolinmæði til þess að
ljúka sóknum.“ Kristján sagði Ijóst að
FH-liðið ætti erfitt verkeftii fyrir
höndum ef leikmenn þess ætluðu sér
að komast í úrslitakeppnina. „Liðið
verður að minnsta kosti að sýna betri
sóknarleik til þess að vinna þá leiki
sem eru eftir í deildarkeppninni."
FH leikur gegn Aftureldingu í úr-
slitum bikarkeppni HSI um næstu
helgi og sagði Kristján að hann yrði
að skvetta vatni á leikmenn sína til
þess að vekja þá úr rotinu. „Það
skiptir máli að nýta það tækifæri að
fá að spila úrslitaleik í bikarkeppni
því þá skiptir staðan í deildinni engu
máli,“ sagði Kristján.
Kristján Halldórsson, þjálfari ÍR,
var ánægður í leikslok. Hann sagði
að sigurinn hefði mikla þýðingu fyrir
liðið og taldi að það væri komið með
annan fótinn í úrslitakeppnina. „Við
vorum seinir í gang en um leið og
vörnin small saman og markverðirn-
ir fóru að verja var aldrei spurning
hvar sigurinn lenti. Þá skipti heima-
völlurinn miklu máli eins og svo oft
áður í vetur.“
Hjá ÍR-ingum voru Hrafn Mar-
geirsson og Hallgrímur Jónasson,
markverðir, í aðalhlutverki og vörðu
samtals 20 skot. Þá sýndi Finnur Jó-
hannsson mikla bai-áttu í vörn ÍR-
inga og varði ófáa bolta frá sóknar-
mönnum FH-inga. Hjá FH-ingum
bar mest á Val Arnarsyni og Guð-
mundi Pedersen. Magnús Amarson
varði vel í fyrri hálfleik en aðeins tvö
skot í seinni hálfleik.
ur. Rauðu spjöldin fóru á loft en
virkuðu aðeins sem olía á eld. Ein-
ar B. Árnason í Gróttu/KR var sér-
staklega eldfimur.
Fáeina ljósa punkta má nefna í
þessum leik. Hjá Gróttu/KR var
hann reyndar aðeins einn; lagleg
langskot hins unga Aleksanders
Petersons. Þá sýndi Gylfi Gylfa-
son ágæt tilþrif. Heldur voru þær
fleiri ljósglæturnar hjá heima-
mönnum. Jóhann G. Jóhannsson
blómstraði í seinni hálfleik og
skoraði þá öll sín 7 mörk á fjöl-
breyttan hátt. Lars Walther var
traustur að vanda og gerði einnig
7 mörk. Sverrir Björnsson var
góður í fyrri hálfleik en datt niður
í þeim seinni. Vörn KA var sterk á
köflum og góð barátta í Erlingi
Kristjánssyni, sem aldrei stendur
við gefin loforð um að vera hætt-
ur. Hann fauk reyndar þrisvar út
af fyrir tilþrif sín. í heild var þetta
varla marktækur leikur, svo und-
arlegur var hann, en það er ljóst
að KA-menn hafa ekki sagt sitt
síðasta.
■ Urslít / B14
■ Staðan / B14
FOLK
■ JÓN KARL Björnsson vítaskytta
var markahæstur Hauka í sigurleik
á Fram á sunnudaginn. Hann kom
einungis inn á þegar Haukar fengu
vítaköst. Hann tók níu vítaköst, og
skoraði úr sjö vítaskotum en tvisvar
sá Sebastian Alexanderson við hon-
um. Þess á milli slakaði Jón Karl á
og dundaði við að klæða sig í og úr
æfingagallanum.
■ PETR Bnumruk, vamarjaxl
Hauka, verður seint sakaður um að
gefa eftir í vöminni og á því fékk
Framarinn Magnús Arnar Arn-
grímsson að kenna. Petr stökk út
úr vörninni og rak hendurnar fram-
an í hann og fékk fyrir vikið tveggja
mínútna brottvísun en mótmælti því
hástöfum.
■ FRAMARAR fengu aukakast við
miðlínu um leið og flautað var til
leikhlés. Haukamenn stilltu upp
vamarvegg og Framarar afþökk-
uðu aukakastið.
■ NJÖRÐUR Árnason lék ekki
með félögum sínum í Fram á móti
Haukum á sunnudaginn því hann
tók út leikbann.
■ EINAR Gunnarsson úr Haukum
fékk högg í andlitið á upphafsmínút-
um leiksins við Fram og þurfti að
huga að sárum hans inni í búnings-
klefa. Einar sagðist fyrst hafa feng-
ið bolta í andlitið og síðan neglur
svo að hann hruflaðist. Eftir sigur-
leik fannst honum þetta smávægi-
legt og brá á leik þegar hann hvatti
menn til að klippa neglur fyrir
svona leiki - jafnvel táneglur.
■ GUNNAR Andrésson skoraði 8
mörk, þar af 1 úr vítakasti er lið
hans Ámicitia frá Ziirich tapaði
27:19 fyrir Kadetten Scaffhausen í
svissnesku 1. deildinni í handknatt-
leik um helgina. Gunnar hefur því
alls skoraði 35 mörk í fimm leikjum
í síðar hluta deildarkeppninnar og
er markahæstur.
■ JÚLÍUS Jonasson var með 6
mörk er St.Otmar vann Endingen,
22:20 í svissneska handknattleikn-
um. St. Otmar er í 2. sæti deildar-
innar en Amicitia er í sjöunda og
næst neðsta sæti.
■ HRVOJE Horvat þjálfari Will-
statt sem Gústaf Bjarnason og
Magnús Sigurðsson leika með í suð-
urhluta 2. deildai’ þýska handknatt-
leiksins hefur framlengt samning
sinn við félagið til vorsins 2001.
Horvat hefur verið þjálfari Willstatt
sl. tvö ár.