Morgunblaðið - 09.02.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 09.02.1999, Síða 16
SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I ALPAGREINUM Reuters ÞÆR tryggðu sér verðlaunapeninga í bruni - Michaela Dorfmeistar, Renate Götschl, sigurvegari, og Stefanie Schuster. ■ PERNILLA Wiberg frá Svíþjóð sigraði í alpatvíkeppninni á HM í Vail og var það fjórði heimsmeist- aratitill hennar á sigursælum ferli. Hún vann í stórsvigi á HM 1991 og svigi og tvíkeppni 1996. ■ BRUNO Kernen frá Sviss náði bestum tíma í bruni tvíkeppninnar í gær, en seinni hlutinn, svigið fer fram í dag. Kjetil Andre Ámodt var með næst besta tímann og Lasse Kjus þriðja. ■ HERMANN Maier sleppti því að keppa í tvíkeppni á heimsmeistara- mótinu því hann ætlar að einbeita sér að stórsviginu sem fram fer á fóstudag. Hann hefur þegar unnið brun og risasvig og setur stefnuna á þriðja HM-gullið í stórsviginu. ■ KJETIL Andre Ámodt er núver- andi heimsmeistari í tvíkeppni, sigr- aði í Sestriere 1997 og getur því varið titil sinn nú. Það er aðeins einn skíðamaður, Marc Girardelli, sem hefur unnið þrisvar í tvíkeppni á HM. ■ MARIO Reiter frá Austurríki er talinn sá eini sem geti ógnað sigri Norðmannanna Lasse Kjus og Kjetils Andre Ámodts í alpatvík- eppninni á HM. Reiter kom mjög á óvart með því að næla sér í gullið í tvíkeppninni á ÓL í Nagano fyrra og eins nældi hann í bronsið á HM 1997. ■ ÍSLENSKU keppendumir á HM unglinga í göngu í Austurríki voru aftarlega í 30 km göngu með frjálsri aðferð á sunnudag. Baldur Ingvars- son frá Akureyri varð í 75. sæti og Árni Gunnarsson, Olafsfirði, næst- ur á eftir, í 76. sæti. Sigurvegari var Jussi Ylimáki frá Finnlandi, sem gekk á 1:18.29,1 klst. og var 14,33 mínútum á undan Baldri og 15,18 mín. á undan Árna. 82 kepp- endur af 88 luku keppni. Einokun aust- urrísku stúlkn- anna í bruni AUSTURRÍSKA skíðafólkið hélt á sunnudag áfram að safna að sér verlaunum á heimsmeistaramótinu í Alpagreinum sem nú stendur yfir í Vail í Colorado í Bandaríkjunum. Austurríki hefur nú hlotið 10 af þeim fimmtán verðlaunapeningum sem í boði hafa verið til þessa. Af 57 þjóðum sem eiga keppendur á mótinu hafa aðeins Noregur, Frakldand og Svíþjóð hlotið verðlaun auk Austurríkis. Á sunnudaginn urðu austurrískar stúlkur í fjórum efstu sætunum í bruni og hefur það aldrei gerst áður á HM. Renate Götschl var fremst austurrísku kvennanna á sunnudaginn og bætti þar með þriðju verðlaunum sínum í safnið, því fyrr hafði hún nælt sér í silfur í risasvigi og tvíkeppni. „Eg veit ekki hvers vegna við náðum svona góðum árangri. Eg held að skýringarnar séu mjög margar,“ sagði Götschl. „Æfingarnar í sumar gengu mjög vel og samkeppnin er mikil í Iandsliðinu. Við búum einnig við mjög góðar aðstæður og þjálfarar liðsins eru frábærir. Við höfum ekki gert neitt sérstakt eða öðruvísi en önnur landslið, bara æfum og gerum mikið af því,“ sagði heimsmeistarinn. Goetschl, sem var með rásnúmer 22, fór ekki vel af stað og var töluvert á eftir löndu sinni, Michaelu Dorfmeister, í millitíma. En hún setti allt á fulla ferð í neðri hluta brautarinnar og það nægði til sigurs. Hún var 0,15 sek. á undan Dorfmeister og 0,17 á undan Stefanie Schuster sem varð þriðja. Alexandra Meissnitzer, sem er efst í heimsbikarkeppninni, hafnaði í þriðja sæti, aðeins 0,10 sek. á eftir Sehuster. „Þetta er búið að vera frábært heimsmeistaramót fyrir mig,“ sagði Götschl. „Ég er komin með þrenn verðlaun og þau síðustu voru gull. Ég hefði ekki getað farið fram á meira fyrirfram og þetta var einnig stór sigur fyrir Austurríki,“ sagði hún. Heimsmeistarinn í bruni frá síðasta HM í Sestriere 1997, Hilary Lindh frá Bandaríkjunum, var ekki með vegna þess að hún hefur lagt skíðin á hilluna og það sama hefur landa hennar Picabo Street, sem vann á HM 1996, gert. engum líkur Austum'ski skíðakappinn Her- mann Maier er engum líkur. Hann sýndi enn einu sinni hversu gríðarlega sterkur hann er með því að næla sér í heimsmeistaratitilinn í bnini karla á HM í Vail í Colorado í Bandaríkjunum á laugai-daginn. Þetta voru önnur gullverðlaun hans á mótinu því hann sigraði einnig í fyrstu greininni, risasvigi - deildi þá gullinu með Norðmanninum Lasse Kjus. Maier, eða múrarinn, var tvöfaldur Olympíumeistaii frá Nagano og nú tvöfaldur heims- meistari í Vail og á möguleika á þriðja HM-gullinu í stórsviginu sem fram fer á fóstudag. Maier varð að deila gullinu með Kjus í risasviginu, en hann var staðráðinn í að hirða það einn í bruninu. Kjus var sá eini sem veitti honum einhverja keppni, var 0,30 sek. á eftir og síðan kom Kjetil Andre Ámodt í þriðja sæti, 0,26 sek. á eftir Kjus. Með sigrinum er Maier kominn á stall með löndum sínum, Patrick Otrlieb, sem vann brunið á HM 1996 og Harti Weir- ather sem vann 1982. Þessir þrír eru einu Austurríkismennirnir sem státa af heimsmeistaratitli í bruni síðustu 20 árin. Ein besta ferð mín „Þetta var ein besta ferð sem ég hef átt í brunkeppni á ferlinum,“ sagði Maier eftir sigurinn. „Þetta var ótrúleg ferð. Ég lyfti höfðinu aðeins einu sinni alla leið niður til að vindmótstaðan yrði sem minnst. Ég var reyndar heppinn að detta ekki þegar ég fór fullharkalega ut- an í eitt hliðið. Gullið er það sem allir sækjast eftir og það er nú mitt.“ Maier fór niður tveimur sætum á eftir Ámodt, sem var þá með besta tímann. Kjus fór næstur á eftir Maier, sem beið með að fagna þar til Norðmaðurinn var kominn í markið. „Maier hefur náð frábærri ferð og sigur hans er því sann- gjam,“ sagði Kjus eftir að hann kom í markið í öðra sæti. Hann hefur verið með kvef undanfarna daga og hefur j)að sjálfsagt haft einhver áhrif. „Eg hefði ekki getað gert betur en þetta og er ánægður með silfrið." Ámodt sáttur Ámodt sagðist sáttur við brons- ið, en hann hefur nú unnið 12 verð- laun á heimsmeistaramóti og Olympíuleikum á ferlinum. Hann þarf aðeins að vinna ein verðlaun til viðbótar til að jafna met Marc Girardellis frá Lúxemborg, sem vann 13 verðlaun á þessum tveimur stórmótum. ■ Úrslit/ B15 I Schwarzenegger um Maier: Hinn raun- verulegi „Tortímandi“ ; LEIKARINN kunni, Amold Schwarzen- egger, var meðal áhorfenda að bruni karla á HM í Vail á laugardaginn og fagnaði sigri landa síns, Hermanns Maiers. „Hermann þú * ert greinilega hinn raunverulegi „Tortím- andi (Hermanitor),“ sagði Schwarzenegger við Maier um leið og hann óskaði honum til hamingju með gullið. Schwarzenegger sagði að Hermann Mai- er hefði tortímt ljallinu. „Vegna þess að ég er austurrískur er ég mjög stoltur af 1 frammistöðu hans í bmninu. Ég er ánægð- 3 ur að hafa fengið að deila gleðinni með ] honum. Hann keyrði niður fjallið á ofsa- I hraða og það var mjög áhrifaríkt að fylgj- ast með honum,“ sagði leikarinn. „Ég talaði ekki við Schwarzenegger fyr- 1 ir keppnina, en ég vissi að hann fylgdist \ með í endamarkinu. Það var mér mikill i heiður að vita af honum og ræða við liann eftir keppnina,“ sagði Maier. Móðir Maiers, Gertrude, stóð í markinu ásamt Petm unnustu Maiers og þótti sonur- inn fara fullhratt niður. „Ég var mjög hrædd vegna þess að hann tók mikla áhættu og fór hraðar en nokkm sinni,“ t sagði móðir hans. „Ég var hrædd vegna ■ þess að það fór illa síðast þegar hann tók þessa áhættu í Nagano fyrir ári síðan. Hann ætlaði sér sigur í Nagno eins og ; núna, en það sem hann hafði núna umfram Nagano var heppnin,“ sagði hún. ENGLAND: 111 222 2X2 2X21 ITALIA: 2X1 1 1 X 121 1 1 XX

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.