Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Risastór gígur eftir loftstein
undan Norður-Noregi
*
Kenningar Islend-
ings um gígmynd-
un staðfestar
Jarðvisindamenn sem
leitað hafa olíu í
Barentshafí hafa fyrir
tilviljun fundið einn
stærsta gíg eftir loft-
stein sem nokkru sinni
hefur fundist í Evrópu.
Er hann jafnframt einn
sá stærsti í heiminum
öllum og betur varð-
veittur en nokkur ann-
ar loftsteinsgígur.
Steinar Þór Guðlaugs-
son, jarðfræðingur á
Orkustofnun, tók þátt í
rannsóknunum og setti
fyrstur fram kenning-
una um gígmyndunina.
I kjölfar sérstakra bor-
ana í fyrrasumar hefur nú verið
sannað að hann hafði rétt fyrir sér,
að því er hann sagði í samtali við
Morgunblaðið.
Gígurinn, sem er 40 km í þver-
mál, er á svonefndu Mjölnis-svæði
undan Norður-Noregi og fannst
þar fyrir tilviljun er borað var eftir
olíu og gasi. Hann er talinn hafa
myndast fyrir 150 milljónum ára
eftir loftstein, sem var 900 metrar
til þrír kílómetrar í þvermál og
skall til jarðar á 30.000 kílómetra
hraða.
,Ég var lektor við Óslóarháskóla
á þessum tíma og kom að rannsókn-
unum. í borkjarna, sem var tekinn
50 km frá gígnum, fannst mér vera
að finna ótvíræðar vísbendingar um
gígmyndun. I honum var irridíum
og kvarts sem virtist ummyndað
eftir höggbylgju," sagði Steinar.
Ekki voru allir sammála Steinari
Þór og töldu aðrir jarðfræðingar að
um saltsteinsmyndun væri að ræða
eða neðanjarðareldfjall. ,En það var
svo endanlega skorið úr um þetta
eftir að loks varð orðið við óskum
félaga minna og borað niður í keil-
una sem stendur upp úr gígnum
miðjum. í kjarnanum sem þá fékkst
komu í ljós afskaplega undarlegar
bergtegundir og vísbendingar um
mjög trufluð setlög til marks um
miklar hamfarir,“ sagði Steinar.
Þótti nú sýnt að um
gíg eftir loftstein væri
að ræða, svipaðan
Chicxulub-gígnum í
Mexíkó, sem varð til
fyrir 65 milljónum ára
með þeim afleiðingum
að risaeðlur dóu út á
jörðinni og um 75%
allra lífvera.
Kjarninn, sem náðist
í fyrrasumar, er 121
metra langur. Er hann
sagður vera jarðfræði-
legur dýrgripur sakir
þess að í honum er
bæði að finna sýni úr
gígnum og rykinu og
grjótinu sem féll til
jarðar við hann að loknum árekstri
loftsteinsins.
Uppgötvunin á eftir að leiða til
mikilla umhverfisrannsókna
„Það sem gerir þennan loftsteina-
gíg svo frábrugðinn öðrum sem vit-
að er um á jörðinni er hversu vel
hann er varðveittur á 300 metra
dýpi. í honum er líka úrfellið úr
honum, en það fékkst staðfest með
borkjarnanum frá í fyrra. Og má því
búast við að í gang fari nú miklar
rannsóknir á umhverfisáhrifum loft-
steinsins. Þegar hann skall á jörð-
inni breyttist hreyfiorkan í varma-
orku sem verið hefur milli 500.000
og ein milljón megatonn af TNT, en
það er meiri sprengikraftur en allra
kjarnorkusprengna sem smíðaðar
hafa verið,“ sagði Steinar Þór.
Gígurinn fær íslenskt
nafn í stað norsks
Steinar sagðist í upphafi hafa
komið með tillögu um að gígurinn
yrði kallaður Mjölnir éftjr hamri
Þórs. ,Ég lagði til að nafnið yrði rit-
að upp á norrænu, eða gammel-
norsk, Mjölnir í stað Mjolner, eins
og gert væri á nýnorsku. Ég hef svo
nýlega fengið fregnir frá Noregi af
þýí að sérstök örnefnanefnd, sem
fjallar um jarðfræðilegar nafngiftir
í Noregi, hefði samþykkt það.“
Steinar Þór
Guðlaugsson
Unk-Belt
rnm-0027
Morgunblaðið/Kristinn
ISAFOLDARHUSIÐ í Austurstræti hefur verið tekið niður, spýtu fyrir spýtu, og sett í geymslu þar til það
verður reist á ný við Aðalstræti 10.
Isafoldarhúsið
horfið úr Austurstræti
ÍSAFOLDARHÚSIÐ við Aust-
urstræti 8-10, þar sem Morg-
unblaðið var eitt sinn til húsa,
hefur verið hlutað í sundur og
komið fyrir í gámi til geymslu.
Að sögn Þorsteins Bergssonar,
framkvæmdastjóra Minja-
verndar, sem sér um verkið, er
gert ráð fyrir að hafist verði
handa við endurreisn hússins á
lóðinni við Aðalstræti 10 í byrj-
un næsta mánaðar og að lokið
verði frágangi að utan í októ-
ber nk.
Sem næst upprunanum
Þorsteinn sagði að húsinu
hefði verið breytt verulega frá
upprunalegri mynd á undan-
förnum árum og m.a. mikið
tekið af burðarvirkjum á
neðstu hæð. „Reyndar voru
menn að velta því fyrir sér að
taka efri hæðirnar af um tíma
og flytja í einu lagi en þegar
upp var staðið kom í ljós að
besta, ódýrasta og faglegasta
leiðin væri að taka húsið niður
spýtu fyrir spýtu og endur-
byggja á nýjum stað,“ sagði
hann.
Húsið verður reist á ný í sem
næst upprunalegri mynd í Aðal-
stræti, en þegar Björn Jónsson,
einn af stofnendum Morgun-
blaðsins, reisti húsið var prent-
smiðjan á neðstu hæð en sjálfur
bjó hann á efri hæðunum. í end-
urreistu húsi er gert ráð fyrir
um 135 fermetra íbúð í risi og á
hæðinni verða skrifstofur en á
fyrstu hæð og í kjallara verða
verslanir og verða verslunar-
gluggar eins og voru um tíma á
þeirri hlið sem snýr að Aðal-
stræti.
„Við svona nýtum okkur stað-
reyndir úr sögu hússins til þess
að laga það að því sem við þurf-
um og viljum ná fram, en
karakter hússins mun halda
sér,“ sagði Þorsteinn. Framhlið
og suðurgafl verða timbur-
klædd með samskonar klæðn-
ingu og áður var, en upphaf-
lega var húsið klætt járni á
tveimur hliðum og timbri á
þeim hliðum sem sneru að al-
menningi. Að sögn Þorsteins
verður ibúðin í risi seld en
skrifstofu- og verslunarrýmið
leigt út.
Uppbygging flug-
vallar í Skerjafírði
Umhverf-
isþættir
skoðaðir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að fela borgarverkfræðingi og
skipulagsstjóra að skoða helstu
umhverfisþætti og umhverfisá-
hiif, sem samhliða væru upp-
byggingu flugvallar í Skerjafirði
og íbúðabyggðar í Vatnsmýri í
þeirri frumúttekt, sem borgar-
ráð hefur falið þeim að vinna að.
A fundi borgarráðs í gær
kom fram tillaga frá fulltrúum
Sjálfstæðisflokks um að láta
fara fram umhverfismat vegna
hugmynda um flutning Reykja-
víkui’flugvallar á landfyllingu í
Skerjafirði. Jafnframt að unnið
yrði umhverfismat vegna mögu-
legrar uppbyggingar íbúða-
hverfis í Vatnsmýri.
í bókun borgarstjóra segir að
á þessu stigi sé ekki forsenda
fyrir umhvei'fismati á flugvallai’-
framkvæmdum í Skerjafirði en
lagt ja&framt til að borgarverk-
fræðingi og skipulagsstjóra yrði
falið að skoða helstu umhverfis-
þætti í þeirri frumúttekt sem
þeim hefur verið falið að vinna.
Utandagskrárumræða á Alþingi um samdrátt f rækjuveiðum
Stjórnvöld mæti
vanda útgerðanna
EINAR K. Guðfinnsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, var málshefj-
andi utandagskráramræðu á Al-
þingi í gær um samdrátt í rækju-
veiðum og hvatti sjávarútvegsráð-
herra m.a. til þess að bregðast við
þeim vanda sem nú steðjaði að út-
gerðum með rækjukvóta vegna
þessa. Benti hann m.a. á heimild
ráðherra tii þess, samkvæmt ní-
undu grein laganna um stjórn fisk-
veiða, að halda eftir ákveðnu afla-
magni til ráðstöfunar handa þeim
útgerðum sem yrðu fyrir mestum
tekjumissi vegna skertra aflaheim-
iida í rækju, ekki síst þeirra sem í
senn yrðu íyrir skerðingu á afla-
heimildum í innfjarðar- og úthafs-
rækju, eins og dæmi væru um með-
al annars við Húnaflóa.
Fleiri þingmenn, þar á meðal
nokkrir þingmenn Vestfjarða, tóku
undir þá áskorun að stjórnvöld
beittu sér fyrir aðgerðum til þess að
draga úr áhrifum aflabrests í
rækjuveiðum á útgerðir og byggð-
arlög.
Sjávarútvegsráðherra, Þorsteinn
Páisson, benti m.a. á að ákvörðun
um að minnka áður útgefinn rækju-
kvóta á þessu fiskveiðiári um þriðj-
ung hefði verið tekinn að höfðu
samráði við samtök útvegsmanna
og sjómanna. Hann tók undir þau
sjónarmið að vissulega steðjaði
vandi að ýmsum í umræddri at-
vinnugrein en taldi þó að ekki væri
hægt, á þessu stigi málsins, að
svara því hvort níundu grein fisk-
veiðistjórnunarlaganna yrði beitt
með áðurnefndum hætti á næsta
fiskveiðiári. Því yrði fyrst hægt að
svara þegar niðurstöður ráðgefandi
aðila lægju fyrir og ákvarðanir yrðu
teknar um heildarafla í einstaka
tegundum á vori komanda.
Einar K. Guðfinnsson fór í fram-
sögu sinni yfir stöðu mála vegna
samdráttar í rækjuveiðum og
vinnslu og benti á að einstök byggð-
arlög og heil svæði væru nú orðin
afar háð þessari atvinnugrein. Slak-
ur árangur við rækjuveiðamar hefði
bókstaflega kippt fótunum undan
rækjuútgerð víða um land. Fjöl-
mörg skip hefðu hætt veiðum og
hráefnisöflun því snarlega dregist
saman. Auk þess benti hann á að
áhrif minnkandi rækjuveiði væru
mikii á þjóðarhag. Heiidarátflutn-
ingsverðmæti rækju hefðu á síðasta
ári verið um 11 milljarðar ki-óna og
hefði þá minnkað um 700 milljónir
króna frá árinu áður. „Hér er því
um að ræða mikil verðmæti. Þýðing
þessarar greinar er á hinn bóginn
allstaðbundin og ljóst að fyrir ein-
stök fyrirtæki, starfsfólk og byggð-
arlög em áhrifin af minnkandi veiði
afar alvarleg.“
Þá sagði Einar að margir væru
þeimar skoðunar að ákvörðun núna
á miðju fiskveiðiári um að skerða
aflaheimildirnar um þriðjung myndi
ekki hafa nein áhrif á heildarveið-
ina. „Einungis verði um að ræða til-
færslur milli útgerða sem eru með
aflaheimildir í rækju. Þannig eru til
dæmi um skip sem hafa þegar leigt
frá sér allar sínar aflaheimildir í
rækju. Skerðing á útgefnu afla-
marki nú um þriðjung hefur sáralít-
il áhrif á þessi skip.“
Einar sagði hins vegar að ein-
stakar útgerðir væru í þeirri stöðu
að hafa lagt mikla áherslu á að nýta
sínar heimildir til þess að afla hrá-
efnis til vinnslu hér innanlands. „Ég
þekki dæmi um slíkar útgerðir sem
nú þurfa að leigja til sín aflaheimild-
ir í rækju frá skipum sem ekki sjá
sér hag í því að nýta sínar heimildir.
Skerðing á þriðjungi aflamarks í
rækju nú á miðju fiskveiðiárinu
mun því hafa það í för með sér að
fjármagn færist á milli einstakra út-
gerða, en vafasamt má telja hvort
það hefur nokkur áhrif á heildar-
veiðina."
Aflinn ekki yfír
30 þúsund lestir
Sjávarátvegsráðherra benti á að
það hefði komið á óvart hve seint
aflasamdrátturinn í rækjuveiðum
hefði komið fram. „Mikil umskipti
hafa verið í útbreiðslu þorsks norð-
anlands sl. tvö ár og enginn vafi á að
aukin þorskgengd á svæðinu ræður
hér mestu, bæði aukið arðrán
þorsks á rækju, en einnig er hugs-
anlegt að þorskurinn tvístri rækj-
unni og minnki veiðanleika hennar.
Þá er hugsanlegt að hitastig sjávai'
norðalands sl. þrjú ár kunni að hafa
haft áhrif á útbreiðslu þorsks og
rækju.“
Ráðherra sagði síðar aðspurður
að miðað við afiabrögð að undan-
förnu væri ekki líklegt að aflinn
færi mikið yfir þrjátíu þúsund lestir
það sem eftir væri af fiskveiðiárinu.
„En þetta er auðvitað ógerlegt að
segja fyrir með nokkurri vissu og
það ræðst auðvitað mjög af því hver
afli á sóknareiningu verður á kom-
andi mánuðum,“ sagði hann meðal
annars og lauk máli sínu á því að
segja að erfitt væri að svara því nú
hvort níundu grein fiskveiðistjórn-
unarlaganna yrði beitt á næsta ári.
Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Framsóknai'flokks, sagði m.a. í
þessum umræðum að íyllsta ástæða
væri fyrir stjórnvöld að grípa nú
þegar til aðgerða til að draga úr
áhrifum samdráttar í rækjuveiðum
og að ekki mætti bíða með aðgerðir
fram á næsta fiskveiðiár.
Fleiri þingmenn tóku undir það að
brýnt væri að stjórnvöld gripu til að-
gerða í þessum málum. Þeir voru
Einar Oddur Kristjánsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, Sighvatur
Björgvinsson, þingmaður jafnaðar-
manna, Kristján Pálsson, Sjálfstæð-
isflokki, Össur Skarphéðinsson,
þingflokki jafnaðarmanna, og Sturla
Böðvarsson, Sjálfstæðisflokki.