Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Náttúrugripasafn í Vatnsmýrina Samstarf um bygg- ingu nýs húss RIKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær tillögur um- hverfisráðherra þess efnis að taka upp viðræður við Háskóla íslands og Reykjavíkurborg um byggingu nýs húsnæðis fyiir Náttúrugripasafn íslands. Guð- mundur Bjamason umhvei’fis- ráðherra segir að horft verði til Vatnsmýrarinnar með tilliti til •staðsetningai- húsnæðisins. Auk umhverfisráðuneytisins, Há- skólans og Reykjavíkurborgar koma að verkefninu fjármála- og menntamálaráðuneyti. Guðmundur segi að áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar sé á bilinu 7-800 milljónir króna. Viðræður hófust á milli Reykjavíkurborgar, ríkisstjórn- arinnar og Háskólans á árunum 1991 og 1992 en málið var stöðv- að síðar og hefur ekki komist skriður á það fyrr en nú. „Ef samstarfíð hefst á ný ætti undirbúningur að geta byrjað af fullum ki-afti á næsta ári. Pað eru því miður ekki fjárveitingar til verkefnisins í fjárlögum þessa árs,“ segir Guðmundur. Hann telur að undirbúningur við verkefnið gæti hugsanlega tekið tvö ár og byggingafram- kvæmdir önnur tvö, eða þrjú ár og því gæti húsið verið tilbúið árið 2004 eða 2005. Guðmundur segir að Ijóst sé að um mikla byggingu verði að ræða því Náttúrugripasafnið sé orðið gríðarlega stórt, en búi við óviðunandi húsakost við Hverf- isgötu. Morgunblaðið/Kristján STEINDÓR Gunnarsson, umboðsmaður Sigbjörns Gunnarssonar, fylgist með Jökli Guðmundssyni að störfum við endurtalningu at- kvæða í Lárusarhúsi á Akureyri í gær. Prófkjör Samfylkingar á Norðurlandi eystra Niðurstaðan óbreytt eftir endurtalning’u ENGAR breytingar urðu á niður- stöðu prófkjörs Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra við endurtaln- ingu atkvæða Svanfríðar Jónas- dóttur og Sigbjörns Gunnarssonar sem kepptu um fyrsta sætið á list- anum. Sigbjörn hlaut 961 atkvæði og Svanfríður 951. Kjördæmisráð Alþýðuflokks og Alþýðubandalags óskuðu eftir endurtalningunni. Reykjavíkurflugvöllur Tillögur að deiliskipu- lagi verði auglýstar MEIRIHLUTI borgarráðs hefur samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reykjavíkui-flugvall- ar vegna fyrirhugaðra endurbygg- inga á flugbrautum. Jafnframt er borgarskipulagi falið að kynna til- löguna fyrir almenningi. I bókun minnihluta Sjálfstæðis- flokks í borgarráði segir að minni- hlutinn sitji hjá við afgreiðslu máls- ins, þar sem umferðartenging sem sýnd er að og frá flugvallarsvæðinu sé að þeirra mati ófullnægjandi. Ein meginástæða fyrir flutningi flugstöðvarbyggingar og þjónustu- kjama sé að tryggja betri umferð- artengingu við svæðið. Fyrirliggj- andi tillaga tryggi ekki betri sam- göngur en fiugvallarsvæðið búi við í dag. Sömu athugasemdir um nauðsyn umferðartenginga um Hlíðarfót hafi verið settar fram við afgreiðslu núgildandi svæðisskipu- lags. Meirihluti Reykjavíkurlista seg- ir í bókun sinni m.a. að sú umferð- artenging sem gert sé ráð fyrir í tillögu að endurskoðun deiliskipu- lags fyrir Reykjavíkurflugvöll sé í fullu samræmi við gildandi aðal- skipulag. Ein meginforsenda fyrir þeim umferðartengingum sem era í því skipulagi byggist á umhverfís- sjónarmiðum, m.a. friðun Foss- vogsbakka sem borgarráð hafi staðfest. Það sé einnig stefna borg- aryfirvalda að allt æfingar-, kennslu- og ferjuflug verði flutt frá Reykjavíkurflugvelli. Að þein-a mati séu þær umferðartengingar fullnægjandi sem sýndar era í gild- andi aðalskipulagi. * Róbert Trausti Arnason verður forsetaritari • RÓBERT Trausti Árnason sendiherra tekur við störfum for- setaritara í byrjun apríl af Kornei- íusi Sigmundssyni, sem gegnt hefur starfinu undanfarið og verður sendiherra íslands í Finnlandi. Róbert Trausti hefur verið sendi- herra Islands í Danmörku og einnig í Litháen, Tyrklandi og Bosníu-Hersegóvínu. A undan því gegndi hann starfi ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Hann lauk prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Islands og stundaði síðan fram- haldsnám í alþjóðastjórnmálum við Queen’s University í Kanada. Að loknu námi starfaði Róbert Trausti í höfuðstöðvum Atlants- hafsbandalagsins í Brussel, meðal annars sem aðstoðarmaður fram- kvæmdastjóra bandalagsins. Hann kom síðan til starfa í utanríkisráðu- neytinu. Kona Róberts er Klara Hilmarsdóttir. Steindór Gunnarsson, umboðs- maður Sigbjörns, mótmælti endur- talningunni á fundi með kjörstjórn áður en hún hófst á þeim forsend- um að kjörgögn hefðu ekki verið innsigluð eftir tainingu. Ýmsir hafi því getað komist í kassann þar sem atkvæðin voru geymd, meðal ann- ars aðilar sem væru andsnúnir Sig- birni Gunnarssyni eins og fram hefði komið í yfirlýsingum eftir að úrslit talningar voru ljós. Hann fékk þau svör frá Hreini Pálssyni, formanni kjörstjómar, að atkvæðaseðlarnir hefðu verið í koff- orti sem læst hefði verið með tveimur hengilásum. Lykilinn að öðrum hefði hann sjálfur haft en annar maður hinn lykilinn. Kof- fortið hefði verið geymt í læstu her- bergi sem þriðji maðurinn hefði haft lykil að. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Hvorki land- né lóðaskort- ur háir höf- uðborginni INGIBJORG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að hvorki land- né lóðaskortur hái höfuðborginni. Bara á síðasta ári hafi borgin út- hlutað lóðum undir um 480 íbúðir og þar að auki hafi ýmsir einkaað- ilar verið nokkuð drjúgir á þessum markaði og verði það á þessu ári líka og mætti í því sambandi nefna Bryggjuhverfið, Kirkjutúnið og Skúlagötuna, aðspurð um gagn- rýni minnihluta sjálfstæðismanna í borgarstjórn á lóðamál í höfuð- borginni. „Við ákváðum hins vegar að fara ekki af stað í Grafarholtinu á þessu ári eða gera lóðirnar ekki bygging- arhæfar þótt það verði farið í út- hlutun vegna þess að þegar við færam okkur austur fyrir Vestur- landsveginn og opnum nýtt svæði þá þurfa menn auðvitað líka að vera tilbúnir að setja fjármuni úr borgarsjóði í uppbyggingu skóla, leikskóla, grænna svæða, íþrótta- mannvirkja og alls þess sem til- heyrir nýju svæði,“ sagði Ingi- björg Sólrún. 1.500 íbúðir. Þar yrði fram- kvæmdahraði að vera sæmilegur til þess að hægt væri að fylgja eftir íbúaþróun með þeii'ri þjónustu sem til þyrfti. Ingibjörg benti á varðandi byggð í Norðlingaholti að þar væri ekki um að ræða land sem borgin ætti heldur væri það í eigu margra einstaklinga. Eignamálin væru þannig nokkuð flókin og að auki liti hún þannig á að ef ákveðið yrði að fara í Norðlingaholtið þá væri verið að fresta Grafarholtinu. Ekki væri skynsamlegt að vera með tvö svæði opin í einu og byggja þar upp alla þá þjónustu sem til þyrfti einfaldlega ef litið væri til fjárhags borgarinnar og hagsmuna þeirra sem í borginni byggju, skattgreið- enda. Umræðan fór fram fyrir kosningar Þremur grunnskólum ólokið Hún sagði að ennþá væri ólokið byggingu þriggja grannskóla í Borgarholts- og Staðarhverfum. Enn ætti eftir að byggja Víkur- skóla, Borgarskóla og Staðarskóla. „Við teljum einfaldlega að menn verði að sjá fyrir endann á slíkum framkvæmdum áður en á stað er farið,“ sagði Ingibjörg Sólrún enn- fremur. Hún sagði að um leið og farið yrði af stað í Grafarholtinu yrðu þar tiltækar lóðir undir 1.400 til Aðspurð um Geldinganesið og hvort ástæða væri til að gera ein- hverjar breytingar á skipulagi þar, sagði Ingibjörg Sólrán að sú um- ræða hefði farið fram fyrir kosn- ingar og kjósendur hefðu fellt sinn dóm í þeim efnum. „Það eru engar breyttar forsendur frá þeim tíma kalla á einhverja aðalskipu- sem lagsbreytingu þar. Hins vegar er núna verið að vinna svæðisskipu- lag fyrir allt höfuðborgarsvæðið og ef menn meina eitthvað með þeirri vinnu hljótum við að verða að líta svo á að það geti orðið ákveðin framkvæmdaröð í uppbyggingu sveitarfélaganna þannig að þau séu ekki með allt undir í einu,“ sagði Ingibjörg Sólrán ennfremur. Bréf Bandaríkjastjórnar til sendiherra íslands um útboð og veitingu varnarliðsflutninga Ákvörðun í fullu samræmi varnarsamning'inn við „RIKISSTJORN Bandaríkjanna telur, að ákvarðanir sínar varðandi útboð og veitingu flutninga fyrir varnarliðið á Islandi séu í fullu sam- ræmi við varnarsamninginn milli ríkjanna og viljayfirlýsingu þar að lútandi." Kemur þetta fram í bréfi, sem bandaríska utanríkisráðuneytið hefur ritað íslenska sendiráðinu í Washington en þar er jafnframt vitnað í athugasemdir frá íslenska utanríkisráðuneytinu, dagsettar 8.6. ‘98, 28.9. ‘98, 22.10. ‘98 og 7.12. ‘98, og í viðræður milli fulltrúa íslenska sendiráðsins og starfsmanna banda- ríska utanríkisráðuneytisins. I bréfinu segir, að flutningar fyrir varnarliðið hafi verið í höndum ís- lenskra skipafélaga frá því seint á sjöunda áratugnum til 1984 er stofnað var fyrirtæki í Bandaríkjun- um til að nýta sér það ákvæði bandarískra laga, sem kveður á um, að bandarísk skip skuli annast flutninga íyrir Bandaríkjaher sé þess nokkur kostur. Um mitt ár 1986 hefði íslenska ríkisstjórnin síð- an tilkynnt, að sett yrðu bráða- birgðalög þar sem krafist yrði út- boðs á flutningum og yrði það opið öllum íslenskum skipafélögum. Kæmi ekki til útboðs, yrðu flutning- arnir samkvæmt þessum lögum ein- göngu í höndum íslenskra skipafé- laga. Bandaríska utanríkisráðuneytið segir, að í varnarsamningnum og í viljayfirlýsingunni sé gert ráð fyrir útboði og í viljayfirlýsingunni tekið fram, að lægstbjóðandi skuli ekki fá meira en 65% flutninganna og næst- bjóðandi afganginn. í þeim útboð- um, sem fram hafi farið, hafi íslensk skipafélög ávallt fengið 65% flutn- inganna. ar varnarsamninginn og viljayfir- lýsinguna þannig, að íslenskum skipafélögum sé óheimilt að nota skip, sem skráð eru í Bandaríkjun- Engin athugasemd þar til í júlí Við þetta fyrirkomulag hafi ís- lensk stjórnvöld enga athugasemd gert íyrr en með bréfi frá íslenska utanríkisráðuneytinu í júlí sl. en þar segi, að „íslenska ríkisstjómin túlk- „Ríkisstjórn Bandaríkjanna vill benda á, að í varnarsamningnum og viljayfirlýsingunni segh- ekkert um það hvar þau skip skuli skráð, sem íslensk skipafélög nota í flutningum fyrir varnarliðið. Raunar telur Bandaiíkjastjórn sig vita, að ís- lensku skipafélögin hafi við þessa flutninga sjaldan notað skip, sem skráð eru á íslandi," segir í bréfi bandaríska utani'íkisráðuneytisins. I bréfinu kemur fram, að í annarri og þriðju athugasemd frá íslenska utanríkisráðuneytinu segi, að íslenska ríkisstjórnin telji varn- arsamninginn og viljayfirlýsinguna koma í veg fyrir, að íslenskur hluti varnarliðsflutninganna verði veittur TransAtlantic Lines - Iceland ehf. í annarri athugasemdinni segi, að ís- lenska rfldsstjórnin líti ekki á „fyr-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.