Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR KIRKJUSTARF GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR + Guðlaug Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 23. sept- ember 1948. Hún lést á heimili sínu 3. febrúar siðastliðinn og fór útfor hennar fram frá Seljakirkju 12. febrúar. Elsku Gulla mín. Nú hefur þú fengið hvíld frá sjúkdóminum og þrautagöngu þinni er lokið. Þú varst ótrú- lega dugleg og sýndir mikið æðruleysi í baráttu þinni. Ég er ekki enn búinn að átta mig á því að þú sért farin. Þegar við kynnt- umst fyrst, fyrir allmörgum árum, á söngæfingu hjá Arnesingakórn- um í Reykjavík, tókst strax með okkur góður og tryggur vinskapur, sem hélst alla tíð. Við áttum svo margar ánægjulegar stundir sam- an. Ég gleymi ekki þegar þú hringdir og sagðir: „Helltu upp á könnuna, ég er að koma með glæný rúnnstykki, ost og Ásgeirsmar- rnelaði," eða þú sagðir: „Attu kaffi og ristað brauð, ég er að koma.“ Það var alltaf gaman hjá okkur þegar þú komst í heimsókn og oft tókum við lagið saman. Þú settist við píanóið og við sungum saman, þú með þinni yndislegu millirödd sem ég man svo vel eftir. Ég minn- ist líka söngferðanna með kórnum sem við nutum svo vel og sauma- klúbbskvöldanna okkar, því þar var oft glatt á hjalla. Elsku Gulla, hinsta kveðjan er erfiðust. Hafðu þakkir fyrir allt. Asgeir minn, Jón Páll og Rósa. Ég bið Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit, mitt er hold til moldar hnigið máske fyn' en að ég veit. Heilsa, máttur, fegurð, fjör flýgur burt sem elding snör. Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla, hverfull reykur. Þín vinkona, Ásta Guðmundsdóttir. Elsku Guðlaug. Þá ertu horfin úr þessum heimi og þrautum þín- um lokið. Mig langar að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Ég var aðeins búin að þekkja þig síðan í júlí í sum- ar, samt var ejns og við hefðum þekkst lengi. Ég kynntist þér á Heilsuhælinu í Hveragerði í júlí 1998 og tókst með okkur góður vin- skapur. Annairi konu, sem hét Sólveig Hjálmarsdóttir, kynntist ég líka á Heilsuhælinu sl. sumar og lést hún 7. nóvember sl. Mig langar að minn- ast ykkar beggja nú. Þið háðuð harða en hetjulega baráttu við erf- iðan sjúkdóm sem þið urðuð að lúta í lægra haldi fyrir. Það var skemmtileg stund þegar þú, Guðlaug mín, varst að kenna mér að spila billjard í Hveragerði í sumar. Við áttum margar skemmti- legar stundir saman, sérstaklega á kvöldin þegar við vorum að drekka kvöldteið. Þá var mikið hlegið. Við vorum nokkrar konur að æfa línu- dans á kvöldin. Það var mjög gam- an. Þegar fór að líða að minni út- skrift í Hveragerði vorum við að grínast með að sýna línudans á kvöldvöku. Ég útski'ifaðist daginn fyrir kvöldvökuna og þið sem voruð í línudansinum sögðuð við mig að ég yrði að koma í Hveragerði og sýna með ykkur línudans. Ég sagði bara já, án þess að vita hvort ég kæmist, en ég skyldi koma sem og ég gerði. Ég fór með rútu frá Reykjavík til Hveragerðis og aftur til baka þetta kvöld og var þessi kvöldvaka mjög skemmtileg. Nú kveð ég ykkur, stelpur mínar, og ég þakka ykkur fyrir allt sem við áttum saman og geymi ég það með mér. Ég bið Guð að leiðbeina ykkur inn í ljósið og vaka yfir ykkur. Jafn- framt votta ég fjölskyldum ykkar innilegustu samúð. Ykkar vinkona, Guðrún Benediktsdóttir. Guðlaug var bekkjarkennari okk- ar í 1. og 2. bekk. Hún var jafnt kennari sem vinur. Hún var góð við alla. Hún var mjög stolt af okkur og hrósaði okkur ef tækifæri gafst. I dag kveðjum við konu sem lifir enn í hjörtum okkar og sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til Ás- geirs og fjölskyldu. Ládauð móða leggst að augans lygna vatni - það er sagt að sumum batni. Ofar skýjum opnast vegur allra vega: andar þú mín elskulega? Hún er liðin: hljóðar öldur haminn lauga - dularfúllt er dáið auga. (Jóh. úr Kötlum) Guð geymi þig og varðveiti. Nemendur úr 2. G.J. veturinn 1994-1995. MARTA JÓNSDÓTTIR alla vegu sína og treysta Honum, og Hann mun vel fyrir sjá! Þetta vissi Marta og þessi fullvissa um að treysta Drottni endurspeglaði líf hennar. Fyrir u.þ.b. 11 árum kynnti Marta mig fyr- ir frelsaranum Jesú Kristi. Hún gerði það með lífi sínu og orðum kærleikans sem hún átti nóg af. í dag er Jesús minn frelsari og þetta er sú besta ákvörðun sem ég hef tekið í mínu lífi. Við Marta töluðum oft um lífið sem Guð gaf okkur og þessar stundir voru mér mjög dýrmætar, því hún skildi mig svo vel og kenndi mér svo margt um lífið og trúna. + Marta Jónsdótt- ir fæddist á Vatneyri við Pat- reksfjörð 14. júní 1911. Hún lést á Landspítalanum 4. febrúar síðastliðinn og fór útrór hennar fram frá Áskirkju 12. febrúar. Ég fyllist gleði og þakklæti í hjarta mínu þegar ég hugsa til þess að hafa fengið að kynnast Mörtu Jóns- dóttur. Líf hennar var ríkt af kær- leika, gleði og einlægni. Það var viss upplifun fyrir mig að tala við hana um lífið, því að ég vissi að líf- ið fyrir henni var að lifa í vilja Guðs. En hvað er að lifa í vilja Guðs? Jú, það er að fela Drottni Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wor- dPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegif lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ég mun aldrei gleyma kærleika hennar, því hann minnir mig á þann kærleika sem sagt er frá í Bi- blíunni: „Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin. Hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu vonar allt, umber allt.“ (1. Kor.l3:4-7.) Ég bið Drottin að blessa og styrkja ættingja Mörtu Jónsdóttur. Þorgerður Helga Þorsteinsdóttir. Okkur langar til að kveðja hana ömmu okkar með þessum fallegu orðum: „Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.“ (Höf. Oþ.) Far þú í friði, elsku amma. Marteinn (Matti), Sigurður (Siggi). „Eitt sinn verða allir menn að deyja,“ segir í laginu „Söknuður". Og víst er það rétt, en þegar ást- vinur deyr erum við alltaf jafn óviðbúin, sorgin, söknuðurinn yfir- þyrmandi. Nú ertu loksins búin að fá hvíld frá þessum hræðilega sjúk- dómi. En það er erfitt að segja átta ára gamalli stúlku að nú sé Marta langamma farin til Guðs. Og nú séu það guð og góðu englarnir sem vaki yfir þér. Sofðu rótt, elsku amma. Guðmunda (Munda) og fjölskylda. Safnaðarstarf Sigurbjörn biskup prédikar í Hallgríms- kirkju DR. Sigurbjörn Einarsson biskup prédikai- við föstuguðsþjónustu í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20.30. Schola cantonjm syngur og sr. Sig- urður Pálsson þjónar fyrir altari. Að venju verða fóstuguðsþjón- ustur hvern miðvikudag á löngu- föstu og mun dr. Sigurbjöm pré- dika í þeim öllum að þessu sinni. Prestar kirkjunnar munu þjóna fyrir altari og tónlistarfólk hennar annast söng og hljóðfæraslátt auk annarra tónlistarmanna. Föstuguðsþjónustur hafa verið fastur liður helgihalds á föstu í Hallgrímssókn frá upphafi. Efni þessara kvölda er píslarsaga Jesú Krists og sungið er úr Passíusálm- unum. Það er einkai- ánægjulegt að dr. Sigurbjörn skuli vilja taka að sér prédikun allra þessara kvölda, en hann var sem kunnugt er annar tveggja presta er íyrstir þjónuðu Hallgrímsprestakalli, hinn var dr. Jakob Jónsson. Dr. Sigurbjörn er án efa í hópi bestu prédikara sem kirkjan hefur átt. Það er því fagn- aðarefni að hann skuli nú vilja leiða söfnuðinn inn í leyndardóma písl- arsögunnar. Taizé-guðs- þjónusta í Fríkirkjunni í Hafnarfirði í KVÖLD, miðvikudag 17. febrúar, verður kvöldguðsþjónusta í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði og hefst hún kl. 20.30. Unglingakór kirkj- unnar leiðir sönginn. Sungnir verða Taizé-söngvar sem em fal- legir bænasöngvar. Það er Öm Arnarson sem leiðir sönginn með gítar- og þverflautuundirleik. Til- efni þess að boðið er til guðsþjón- ustu á þessum tíma er að gefa fólki tækifæri til þess að eiga kyrrðar- stund í kirkjunni sinni að kvöldi dags. Allir em hjartanlega vel- komnir. Fyrirlestur í Krossinum MÁNUDAGINN 22. febráar kl. 20.30 mun Sólveig Dögg Larsen halda fyrirlestur í Krossinum. Hún mun velta fyrir sér spurningunni: „Skiptir máli hvernig uppeldi börn- in okkar fá?“ Einnig verður fjallað um mikilvægi trúarlegs uppeldis, jákvæðan og neikvæðan aga, sam- skipti föður og dóttur og samskipti móður og sonar. I kjölfar fyrirlestrarins verður létt spjall og kaffi. Áskirkja. Starf íýrir 10-12 ára börn kl. 17. Föstumessa kl. 20.30. Ámi Bergur Sigurbjömsson. Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr- aða kl. 13-17. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Grensáskirkja. Þorrahátíð eldri borgara hefst með helgistund kl. 12. Þorramatur. TTT-starf (10-12 ára) kl. 16.30. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Leikir barna. Sigríður Jóhannesdóttir, hjúkmnarfr. Starf fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf fyrir 11-12 ára kl. 18. Föstuguðsþjón- usta kl. 20.30. Dr. theol. Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar. Schola cantorum syngur. Organisti Dou- glas A. Brotchie. Prestar kirkjunn- ar þjóna. Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbæn- ir kl. 18. Langholtskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 13-17. Allir velkomnir. Ihugunar- og fyrirbænastund kl. 18. Laugarneskirkja. Fundur „Kirkjuprakkara" (6-9 ára böm) kl. 14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl. 16. Fundur æskulýðsfélagsins (13- 15 ára) kl. 20. Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Fræðsla: Málþroski og örv- un. Hjúkranarfr. á Seltjarnarnesi. Ungar mæður og feður velkomin. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15- 17. Helga Ingvadóttir kemur í heimsókn. Umsjón Iíristín Bög- eskov, djákni. Éöstuguðsþjónusta kl. 20. Myndasýning frá norðurferð sl. sumar að lokinni guðsþjónustu. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11- 12 ára börn kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safn- aðarins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16- 17. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk- arar“ starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og kirkjunnar kl. 20. Feila- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Sarf fyrir ÍO-12 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-18.45. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Léttur kvöldverður að bænastund lokinni. Fundur æsku- lýðsélagsins kl. 20. Vídahnskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi- stund, spil og þorramatur. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar- stund í hádegi í kirkjunni kl. 12- 12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í minni Hásölum. Kl. 20- 21.30 íhugun og samræður í safn- aðarheimilinu í Hafnarfjarðar- kirkju. Leiðbeinendur Ragnhiid Hansen og sr. Gunnþór Ingason. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samvera í kirkjulundi kl. 12.25, djáknasúpa, salat og brauð á vægu verði - allir aldurshópar. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn í safnaðar- heimilinu. Kl. 12 bænar- og kyrrð- arstund í Landakirkju. Komum saman og biðjum fyi'ir öðram. Dýr- mætar 20 mínútur. Kl. 20.30 biblíu- lestur í KFUM&K-húsinu. Skrafað saman um Jóhannesarguðspjall. Allir velkomnir. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl. 18.30 fjölskyldusamvera sem hefst með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19.30 er kennsla og þá er skipt nið- ur í deildir. Allir hjartanlega vel- komnir. Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bænastundir alla fimmtudaga kl. 18 í vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.