Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Old frá upphafi skipulegrar skóg- ræktar hér á landi Eitt hundrað ár eru liðin á þessu ári frá upphafi skipulegrar skógræktar á íslandi. >» I tilefni afmælisársins efna Skógræktar- félag Islands og Skógrækt ríkisins til hátíðarhalda með margvíslefflim hætti. MARKMIÐ hátíðarhaldanna er að vekja at.hygli almennings á skdgrækt og þeim skógarsvæðum sem þann hefur frjálsan aðgang að. Á kynningarfundi sem Skóg- rækt ríkisins og Skógræktarfélag íslands efndu til í gær kom fram að dagskrá afmælisársins væri margþætt. I sumarbyijun verður gefínn út sameiginlegur kynning- arbæklingur með yfirliti yfír þau skóglendi sem almenningur hefur aðgang að til útivistar og dvalar. Að sðgn Huldu Valtýsdóttur, formanns Skógræktarfélags Is- Iands, eru samningar við Félag íslenskra hljómlistarmanna langt komnir og mun félagið Ieggja fram krafta sína í tilefni afmælis- ins á Skógardögum, sem verða sérstaklega tileinkaðir tónlist, sem og öðrum atburðum afmælis- ársins. Upphaf skógræktar á Islandi Það var danskur skipstjóri, Carl Hartvig Ryder, sem átti frumkvæðið að skipulegri skóg- rækt á Islandi árið 1899, þegar hann og félagar hans hófust handa á spildu sem þeir fengu út- hlutað á eystri barmi Almanna- gjár, en Furulundurinn, eins og reiturinn er nefndur, er talinn marka tímamót í sögu skógrækt- ar á íslandi. Islendingar tóku framtak Ryders til fyrirmyndar og tími verka og athafna tók við. Árið 1907 voru fyrstu skógræktarlög- in sett og sama ár var Skógrækt ríkisins stofnuð. Áriö 1930 var Skógræktarfélag íslands stofnað og hefur lialdið uppi áróðri og fræðslu og staðið fyrir gróður- setningu æ síðan. I dag eru með- Morgunblaðið/Kristinn SKÓRGRÆKT ríkisins og Skógræktarfélag íslands efndu til fundar f gær vegna 100 ára afmælis skipulegrar skógræktar á þessu ári. Frá vinstri má sjá Magnús Jóhannesson, varaformann Skógræktarfélags íslands, Sigríði Jóhannsdóttur, sem situr í stjórn félagsins, Ólaf Oddsson, kynningarfulltrúa Skógræktar ríkisins, Huldu Valtýsdóttur, formann Skógræktarfélags Islands, Brynjólf Jónsson, framkvæmdastjóra Skógræktarfé- lags Islands, Gunnar Má Hauksson og Guðmund Gíslason, frá Búnaðarbankanum, sem er einn af samstarfsað- ilum Skógræktarfélags íslands. limir í aðildarfélögum Skógrækt- arfélags íslands um 7.000 og fjölgar árlega. Samstarf félagsins og Skógræktar ríkisins frá upp- hafí verið mikið og farsælt, að sögn Iluldu. Ólafur Oddsson, kynningarfulltnii Skógræktar ríkisins, tók í sama streng og sagði að án dyggs stuðnings fé- Iagsins hefði Skógrækt ríkisins eflaust ekki náð þeim árangri sem hún hefur náð til þessa. Um 60 milljónum plantna hefur verið plantað á öldinni á 12-15.000 hektara svæði. Helm- ingi þessara planta var plantað á þessum áratug, að sögn Ólafs. „Upphaflegt markmið var að fá almenning til þess að taka þátt í skógrækt og mér sýnist að það hafi verið að takast nú á undan- förnum árum,“ sagði Ólafur á fundinum í gær. Skógardagar og útgáfa bókar Þann 26. júní verður efnt til hátíðarsamkomu á Þingvöllum sem Skógrækt ríkisins, forsætis- ráðuneytið og Þingvallanefnd standaað. Helgina 17.-18. júlí halda Skógrækt ríkisins og Skóg- ræktarfélag Islands sameiginleg- an skógardag undir yfirskriftinni Skógurinn - auðlind og unaðs- reitur. Aðalfundur Skógræktarfélags Islands verður haldinn á Laugar- vatni 6.-8. ágúst og verður til- einkaður afmælisárinu. I tengsl- um við fundinn verður afhjúpað- ur minnisvarði í Haukadalsskógi til minningar um störf Hákonar Bjarnasonar, fyrrverandi skóg- ræktarstjóra. 16. október verður haldin sam- eiginleg ráðstefna um fortíð og framtíð skógræktar á íslandi og einnig verður gefin út bók á ár- inu um sögu skógræktar á ís- landi, og er Sigurður Blöndal, fyrrverandi skógræktarsljóri, rit- sljóri hennar. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Ný samningalota innan Alþjóðaviðskiptastofimnarinnar að hefjast Viðræður undirbunar með stofnun nefndar Jóhanna Sigurðar- dóttir um skipan talsmanns Samfylkingarinnar Geri út af fyrir sig enga at- hugasemd JÓHANNA Sigurðardóttir al- þingismaður, sem er efst á fram- boðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist ekki eiga neina aðild að ákvörðun um tals- mann Samfylkingarinnar í kosn- ingunum í vor. Þetta sé fyrst og fremst ákvörðun sem stofnanir flokkanna taki og telji nauðsyn- legt að skipa sér talsmann með þessum hætti. „Eg geri út af fyr- ir sig enga athugasemd við það. Ég óska bara Margréti alls góðs í þessu hlutverki að vera tals- maður flokkanna fram að kosn- ingum,“ sagði Jóhanna ennfrem- ur. Aðspurð hvort hún liti ekki þannig á að eðlilegt hefði verið að hún yrði þessi talsmaður í ljósi góðs árangurs hennar í prófkjörinu 1 Reykjavík sagði hún að það væri ekkert eðlilegra að hún yrði þessi talsmaður en Margrét. Hún hefði hins vegar alveg eins átt að koma til greina, en henni fyndist þessi niður- staða alveg í lagi. Eðlilegra að hafa nánara samráð „Það sem skiptir mig máli er að Samfylkingin sigri í vor og verði leiðandi afl í næstu ríkis- stjórn og ég sem leiðtogi í Reykjavík ætla auðvitað að gera mitt til þess að svo verði. Það eina sem ég hef við þetta að at- huga er að mér hefði þótt eðli- legra og betri vinnubrögð að það hefði verið haft nánara samráð um þessa ákvörðun. Mér hefði þótt vænt um það, en þetta er niðurstaðan. Við það lifí ég eins og aðrir,“ sagði Jóhanna enn- fremur. RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt tillögu Halldórs Ásgrímssonar utan- ríkisráðherra um að ísland hefji nú þegar undirbúning að þátttöku í nýrri samningalotu innan Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar. Sett verður á stofn nefnd undir forsæti utanrík- isráðuneytisins sem í eiga sæti full- trúar allra ráðuneyta. Nýrri samningalotu innan Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar verður ýtt úr vör á ráðherrafundi aðildar- ríkjanna í Bandaríkjunum í lok þessa árs. Talið er að sú samningalota standi yfir í a.m.k. þrjú ár. „Það verða mörg mjög viðamikil og erfíð verkefni í þessari lotu. Það sem verður erfiðast af öllu er endur- skoðun á landbúnaðarsamningi Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar með það fyrir augum að draga úr hömlum í milliríkjaviðskiptum með landbún- aðarafurðir og auka markaðsaðgang {'eirra. Öll aðildarríkin, þar á meðal sland, skuldbundu sig í lok síðustu samningalotu, sem lauk 1994, að semja um þetta mál í næstu samn- ingalotu," sagði Halldór. Mörg erfið mál Halldór sagði að aðrir málaflokkar yrðu einnig fyrirferðarmiklir í þess- um samningum. I því sambandi nefndi hann lækkun á tollum á iðnað- arvörum, þar með talið sjóvai-afurð- um, endurskoðun samninga um þjónustuviðskipti og höfundar- og hugverkaréttindi. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir að þar yrðu til umfjöllunar mál eins og flutninga- þjónusta, sérfræðingaþjónusta, frjáls flutningur fólks, heilbrigðis- þjónusta, menntamál, fjármálaþjón- usta og fjarskiptaþjónusta. Halldór sagði ljóst að eitt mikil- vægasta málið í þessum samningum yrði sambandið milli viðskipta og um- hverfis. Fjallað yrði um sjálfbæra þróun og skynsamlega nýtingu end- urnýjanlegra orkulinda. Hann sagði að þarna gæti skapast einstakt tæki- færi fyrir Island að hafa áhrif vegna reynslu okkar á þessu sviði. Halldór sagði ekki ólíklegt að í þessum við- ræðum kæmi einnig til umfjöllunar samningur, sem var á vettvangi OECD, um viðskipti og fjárfestingar. Klakahöll við Goðafoss Laxamýri - Mikil hálka og klakamyndanir hafa verið í Suður-Þingeyjarsýslu í vetur og enn hylja svell tún og bflvegi þótt ís sé farinn af vegum með bundnu slitlagi. Við Goðafoss hefur fossúðinn myndað mikla klakahöll og er vissara að gæta sín vel á útsýnisstaðnum við fossinn. --------------- Lögreglan undrast kvartanir bifreiðarstjóra „Var sinnt eins og skot“ LÖGREGLAN í Reykjavík, sem Sigurður Ólafsson bifreiðarstjóri kvartaði undan vegna seinagangs aðfaranótt laugardags, þegar drukkinn farþegi stal leigubíl hans fyrir utan lögreglustöðina á Hverf- isgötu, undrast mjög kvartanir Sig- urðar. Sigurður sagðist hafa beðið a.m.k. í fimm mínútur eftir að varð- stjórinn sinnti erindi sínu, en lög- reglan segir á móti, að það sem fyrir Sigurði hafi verið mínútur hafi í raun verið sekúndur. „Honum var sinnt alveg eins og skot,“ sagði Geir Jón Þórisson að- stoðaiyfirlögregluþjónn. „Þetta gerist allt á sömu mínútunni. Mað- urinn kemur inn, tilkynnir atvikið, það eru kallaðir lögreglumenn til aðstoðar til að fara út í bílinn, mað- urinn [Sigurður] fer út og kemur aftur strax og segir að bíllinn sé farinn. Lögreglan sér á eftir bíln- um og lögreglubíll, sem var að fara út úr portinu hóf eftirfór strax og tilkynnti bílinn, þannig að það var ekki hægt að gera þetta hraðar,“ sagði Geir Jón. Leigubfll Sigurðar fannst síðan talsvert skemmdur við Valsheimil- ið að Hlíðarenda nokkru síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.